Morgunblaðið - 18.08.2014, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2014
Hlý
r og
not
aleg
ur
Laugavegi 25, 101 Reykjavík. Sími 552-7499
Hafnarstræti 99-101, 600 Akureyri. Sími 461-3006 www.ullarkistan.is
Gæða ullarfatnaður
á alla fjölskylduna
frábært verð
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Sprengistjörnur og gammablossar
eru rannsóknarefni bandaríska
stjarneðlisfræðingsins Zacks Cano
sem starfar við Stjarneðlis- og heims-
fræðimiðstöð Háskóla Íslands. Rann-
sóknir sem hann vinnur nú að gætu
getið af sér nýja mælistiku til að
mæla vegalengdir í alheiminum.
Hingað til hafa stjarnvísindamenn
notað fyrirbæri með þekkt reynd-
arbirtustig til þess að mæla fjarlægð-
ina til þeirra út frá því hversu björt
þau sýnast frá jörðinni. Slík fyrirbæri
eru þekkt sem staðalkerti. Sprengi-
stjörnur eru einhver björtustu fyr-
irbærin í alheiminum og hafa vís-
indamenn notað tiltekna gerð af
þeim, IA, sem staðalkerti.
„Segjum að þú haldir á 60W ljósa-
peru. Þú veist hversu björt hún er og
getur mælt hversu björt hún virðist
rétt hjá þér. Ef þú færir peruna
hundrað metra í burtu virðist hún
daufari en þú getur mælt hversu
langt hún er í burtu vegna þess að þú
veist hversu björt hún er í raun,“ seg-
ir Cano til útskýringar þess hvernig
staðalkertin eru notuð í heimsfræð-
inni.
Til marks um hversu veigamikil
uppgötvunin á staðalkertunum var
upphaflega þá fengu vísindamenn-
irnir sem notuðu sprengistjörnu af
gerðinni IA sem staðalkerti til að
mæla sívaxandi útþenslu alheimsins
Nóbelsverðlaunin fyrir hana. „Ég er
ekki með neitt slíkt í huga en þetta
sýnir hversu mikilvæg ný tegund
staðalkerta er, sérstaklega þegar
menn reyna að grafast fyrir um eðli
alheimsins,“ segir hann.
Cano segir að hópurinn sem hann
vinni með í HÍ eyði miklum tíma í
rannsóknir á svonefndum gamma-
blossum. Það eru orkumestu spreng-
ingar alheimsins og eiga þær sér stað
í gríðarlega öflugum sprengistjörn-
um. Hrina gammageisla er fyrsta
merkið um öflugar sprengistjörnur
og gera rannsóknir á þeim vís-
indamönnum kleift að staðsetja þær á
himinum, að sögn Cano. Þannig er
hægt að rannsaka sprengistjörn-
urnar frá upphafi til enda.
„Það sem ég er að gera er að fylgj-
ast með sprengistjörnum og reyna að
mæla eiginleika þeirra; sýndarbirtu
og hversu langan tíma það tekur fyrir
þær að ná hámarksbirtustigi og dofna
svo aftur. Ég fann fylgni á milli birtu-
stigs sprengistjarna og hversu lang-
an tíma tekur fyrir þær að dofna. Við
getum reiknað út hversu björt þessi
tegund sprengistjarna sem við tengj-
um við gammablossa á að vera og get-
um þá notað það sem mælistiku til að
finna út hversu langt sú stjarna var
frá okkur þegar hún sprakk,“ segir
Cano sem vinnur að tveimur greinum
um rannsóknir sínar. Þær verða að
líkindum báðar birtar á þessu ári í
vísindatímaritum.
Framundan eru frekari rannsóknir
til að sýna fram á með óyggjandi
hætti að hægt sé að nota gamma-
blossa sprengistjarna til að finna ný
staðalkerti. Til þess mun Cano þurfa
aðgang að sjónaukum, bæði á landi og
á braut um jörðu en mikil samkeppni
er um slíkan aðgang.
Cano segir gott að vinna að rann-
sóknum sem þessum hér á landi en
hann lauk doktorsgráðu sinni í Liver-
pool á Englandi og hóf störf við Há-
skóla Íslands að því loknu. Tengsl
Háskólans hér við Norræna stjörnu-
sjónaukann eru sérstaklega gagnleg
fyrir rannsóknir á gammablossum.
„Mikið af athugununum sem rann-
sóknirnar byggjast á kom frá Nor-
ræna stjörnusjónaukanum. Ísland er
gott fyrir rannsóknir og aðgang að
gögnum,“ segir Cano.
Gæti tendrað ný
mikilvæg staðalkerti
Bandarískur stjarneðlisfræðingur við HÍ rannsakar
sprengistjörnur Aðstæður til rannsókna góðar á Íslandi
Morgunblaðið/Þórður
Stjarneðlisfræðingur Bandaríkjamaðurinn Zack Cano vinnur að rann-
sóknum og starfar við Stjarneðlis- og heimsfræðimiðstöð Háskóla Íslands.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Talsvert hefur borið á utanvega-
akstri að undanförnu og fær lögregl-
an á Hvolsvelli t.a.m. nokkrar
ábendingar um slíkt í hverri viku.
Þeir sem staðnir eru að akstri utan
vega hljóta sekt fyrir, en hún hleyp-
ur iðulega á hundruðum þúsunda og
getur náð allt að 500 þúsund krón-
um.
Í lögum um náttúruvernd nr. 44/
1999 segir í 17. grein um akstur utan
vega að bannað sé „að aka vélknún-
um ökutækjum utan vega. Þó er
heimilt að aka slíkum tækjum á jökl-
um, svo og á snjó utan vega utan
þéttbýlis svo fremi sem jörð er
snævi þakin og frosin“.
Nýverið barst Morgunblaðinu
ábending frá vegfaranda sem velti
því upp hvort það teldist til utan-
vegaaksturs þegar tvær bifreiðar
mætast á þröngum vegi og önnur
eða báðar þurfa að keyra út fyrir
veginn til þess að halda umferð
gangandi.
Gæta þarf að umhverfinu
Ólafur Arnar Jónsson, sviðsstjóri
á sviði náttúru hjá Umhverfisstofn-
un, segir ökumenn ekki eiga von á
sekt víki þeir upp í kant. „Ef öku-
menn þurfa að fara upp úr veginum
til þess að geta mætt öðrum bíl er
það í lagi,“ segir hann og bendir á að
ökumenn verði þó að taka tillit til að-
stæðna og umhverfis hverju sinni
svo koma megi í veg fyrir óaftur-
kræf umhverfisspjöll.
„Þegar lögreglan er að sekta öku-
menn þarf hún að vera viss um að
viðkomandi sé ekki að keyra á veg-
slóða og að engin ummerki séu um
annan akstur. Til þess að verða sekt-
aðir þurfa menn því að vera komnir
algerlega út fyrir greinilegan veg,“
segir Ólafur Arnar. Spurður hvort
heimilt sé að leggja biluðu ökutæki
utan vegar kveður hann já við. „Ef
bíllinn bilar og viðkomandi bregður
á það ráð að fara út í vegkantinn eða
jafnvel út fyrir sýnilegan veg verður
viðkomandi ekki sektaður svo fram-
arlega sem umhverfi er virt.“
Ökumenn virði
umhverfið
Heimilt er að víkja upp í vegkant þeg-
ar mæta þarf umferð á þröngum vegum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Utanvegaakstur Þeir sem staðnir eru að akstri utan vega hljóta sekt fyrir.
Veruleg umsvif hafa verið á Hólma-
vík að undanförnu vegna makríl-
veiða, en fiskurinn hefur í tals-
verðum mæli gengið inn á
Steingrímsfjörð. Fyrir botni fjarð-
arins hafa bátar verið nánast uppi í
landsteinum og vakið athygli veg-
farenda þar. Alls 15 bátar voru á
makrílmiðum á Ströndum í júlí, en
um helgina voru þeir tæplega 10.
Að sögn Borgars Þórarinssonar á
hafnarvoginni á Hólmavík var alls
38,5 tonnum af makríl landað á
besta deginum í sumar. Í fyrra var
hins vegar metið alls 280 tonn, enda
fiskigengd meiri þá og margir tugir
báta á svæðinu. Eigi að síður eru
menn ánægðir með vertíðina nú.
Starfsmenn fiskmarkaðarins í
þorpinu hafa séð um löndun úr bát-
unum og komið aflanum áfram, en
kaupendur eru m.a. í Rússlandi þar
sem hefð er fyrir neyslu fituríks
fiskmetis. sbs@mbl.is
Makrílbátar við fjör-
una í Steingrímsfirði
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sjósóknin Makríllinn er nánast uppi í flæðarmáli og þar eru bátarnir.