Morgunblaðið - 03.06.2014, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2014
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum
(Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum.
Er á Facebook
Þurrar hendur? Handáburðurinn frá Önnu Rósu grasalækni er mjög mjúkur og góður. Égþarf mikið að nota handáburð því hendur mínar verða oft þurrar og hrjúfarvið mikla vatnsnotkun. Áhrif af handáburði endast því miður oft stutt, enþað á ekki við um handáburðinn frá Önnu Rósu, hann er miklu betri. Hann
smitar ekki, er sérlega endingargóður, gefur mjúka áferð, smýgur hratt inn
í húðina og er líka svo einstaklega heilnæmur! – Margrét Ólöf Ívarsdóttir
www.annarosa.is
Handáburðurinn er mýkjandi og græðandi og sérstaklega góður fyrir þurrar og sprungnar
hendur. Inniheldur lífrænar lækningajurtir og sótthreinsandi ilmkjarnaolíur. Inniheldur
ekki paraben-rotvarnarefni, lanólín, kemísk ilmefni eða litarefni.
Það hefur ávalt borgað sig
Líttu við í
íslensk fúavörn
Alvöru
á alvöru verði
Kjörvari 14 - 4 ltr.
Viðmiðunarverð kr. 6.150
Okkar verð kr. 4.995
Kjörvari 16 - 4 ltr.
Viðmiðunarverð kr. 8.362
Okkar verð kr. 7.390
Kjörvari 12 Pallaolía - 4 ltr.
Viðmiðunarverð kr. 6.250
Okkar verð kr. 4.995
Grensásveg 18
S. 568-1950 – 581-2444
www.litaver.is
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
Ekki var mikið um útstrikanir í
borgarstjórnarkosningunum sem
fram fóru á laugardaginn. Flestar
útstrikanir fékk Júlíus Vífill Ingv-
arsson hjá Sjálfstæðisflokki en alls
voru þær 463 talsins. Auðir seðlar
voru 2.024 talsins og ógildir voru
227 talsins.
Að sögn Tómasar Hrafns Sveins-
sonar, formanns kjörstjórnar í
Reykjavík, gekk talningin mjög vel.
„Á heildina litið gekk talning mjög
vel en við vorum búin klukkan þrjú
um nóttina. Það kom ekkert óvænt
upp í sjálfri talningunni, engar villur
og engin týnd atkvæði,“ segir Tóm-
as og bætir við að skýringuna á töf-
um á birtingu úrslita megi finna í
innsláttarvillu í einni af kjördeild-
unum. „Þegar talningu lauk kom í
ljós ein innsláttarvilla. Það hafði þau
áhrif að talin atkvæði stemmdu ekki
svo við þurftum að eyða þremur
klukkutímum í að finna hvar mis-
tökin lágu. Vafaatkvæðin voru svo
nokkuð mörg en þau töfðu okkur
ekkert og voru klár klukkan tvö um
nóttina.“
Tilviljun ræður
Spurður um skýringar á miklum
sveiflum á fylgi flokkanna á milli
talna sem kjörstjórn gaf upp á kosn-
inganótt segir Tómas að tilviljun ein
hafi ráðið þeim. Staðið hafi verið ná-
kvæmlega eins að talningunni og
síðast og sama fólk unnið við hana.
Kjörkassarnir séu teknir af handa-
hófi, atkvæðin flokkuð og talin og
upplýsingar gefnar um stöðu mála.
Hann segir að úrslitin ráðist ekki
fyrr en öll atkvæði hafi verið talin.
Eitthvað var um kvartanir vegna
kjörseðla í Hafnarfirði í kosning-
unum á laugardaginn. Kjörseðlar
voru útbúnir með þeim hætti að
enginn kassi var settur til að merkja
í framan við bókstafi framboða en
alls voru auðir seðlar 594 talsins og
ógildir 77 talsins. „Við fáum alltaf
einhverjar athugasemdir en það er
erfitt að gera öllum til geðs. Stund-
um eru settir kassar fyrir framan
listabókstafi sem þú getur merkt í
en í þessu tilviki var það ekki. Það
var eitthvað um athugasemdir í
tengslum við það. Fólk setti bara x
fyrir framan bókstafi en listinn
sjálfur var í ramma svo það fór ekk-
ert á milli mála við hvaða lista þú
varst að merkja,“ segir Jóna Ósk
Guðjónsdóttir, formaður kjör-
stjórnar í Hafnarfirði.
Gekk vel í Kópavogi
Kosningadagurinn gekk vel í
Kópavogi að sögn Snorra Tóm-
assonar, formanns kjörstjórnar, en
lítið var um vandræði og talning
gekk vel. Útstrikanir og breyttir
seðlar voru alls 323 talsins og voru
það oddvitar flokkanna sem voru
þar mest áberandi. Auðir seðlar
voru 601 talsins og ógildir 62 talsins.
„Talningin gekk alveg afspyrnu
vel. Við vorum búin að telja um
klukkan hálfþrjú um nóttina en
markmiðið var að vera búin klukkan
tvö svo það munaði ekki miklu. Á
kosningadeginum var mikill erill og
umboðsmenn á staðnum voru svolít-
ið að pota í okkur. Svo voru ein-
hverjar auglýsingar á staðnum sem
við létum fjarlægja en það var ekk-
ert stórvandamál,“ segir Snorri.
Ekki mikið um útstrikanir í
borgarstjórnarkosningum
Tilviljun ræður sveiflum á milli talna Auglýsingar fjarlægðar í Kópavogi
Framsókn og flugv. Sveinbjörg B. Sveinbjörnsd. 36 0,61% 53,7%
Sjálfstæðisflokkur Júlíus Vífill Ingvarsson 463 3,30% 52,9%
Samfylkingin Björk Vilhelmsdóttir 138 0,79% 43,7%
Vinstri-græn Sóley Tómasdóttir 112 2,46% 77,2%
Píratar Þórlaug Ágústsdóttir 14 0,43% 31,8%
Björt framtíð Ilmur Kristjánsdóttir 52 0,61% 40,3%
Flestar útstrikanir eftir listum
Fj
öl
di
se
ðl
a
m
eð
út
st
rik
un
Hl
ut
fa
ll
af
at
kv
æ
ðu
m
lis
ta
Hl
ut
fa
ll
af
br
ey
tt
um
at
kv
æ
ðu
m
lis
ta
í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík 2014
Breyttir seðlar eftir listum
Fjöldi
atkvæða
Fjöldi
breyttra seðla
Hlutfall
breyttra seðla
í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík 2014
Framsókn og flugv. 5.865 67 1,14%
Sjálfstæðisflokkurinn 14.031 876 6,24%
Alþýðufylkingin 219 2 0,91%
Samfylkingin 17.426 316 1,81%
Dögun Reykjavík 774 25 3,23%
Vinstri-græn 4.553 145 3,18%
Píratar 3.238 44 1,36%
Björt framtíð 8.539 129 1,51%
Auðir 2.024 0
Vafa 0 0
Ógildir 227 0
Samtals 56.896 1.604 2,82%
Samkomulag hefur náðst innan
meirihluta sjálfstæðismanna í bæj-
arstjórn Akraness um að Regína
Ásvaldsdóttir gegni áfram störfum
bæjarstjóra. Hún hefur gegnt starfi
bæjarstjóra frá því í ársbyrjun 2013
og var ráðin með atkvæðum allra
bæjarfulltrúa. Í fréttatilkynningu
frá Ólafi Adolfssyni, oddvita sjálf-
stæðismanna á Akranesi, segir m.a.
að Regína hafi verið farsæl í störf-
um og njóti vinsælda meðal bæj-
arbúa. Hún hafi því verið fyrsti
kostur sjálfstæðismanna í starf bæj-
arstjóra en flokkurinn fékk fimm
menn kjörna í bæjarstjórn og þar
með hreinan meirihluta.
pfe@mbl.is
Regína verður áfram
bæjarstjóri á Akranesi
Samstarf Regína Ásvaldsdóttir
bæjarstjóri og Ólafur Adolfsson.
mbl.is
alltaf - allstaðar
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
Gunnar Einarsson verður bæjar-
stjóri Garðabæjar á næsta kjör-
tímabili en hann hefur gegnt því
starfi frá því í maí árið 2005. Sjálf-
stæðisflokkurinn fékk hreinan
meirihluta í kosningum til bæjar-
stjórnar eða sjö bæjarfulltrúa af ell-
efu. Gunnar skipaði áttunda sæti
listans en uppstillingarnefnd
flokksins setti hann upphaflega í
efsta sæti listans. Aðeins munaði 25
atkvæðum á því að Gunnar hefði
náð inn sem áttundi bæjarfulltrúi
flokksins. „Ég er bæjarstjóraefni
Sjálfstæðisflokksins og þar sem við
fengum hreinan meirihluta geri ég
fastlega ráð fyrir því að frá því
verði formlega gengið á fyrsta
fundi nýrrar bæjarstjórnar þann
19. júní að ég haldi áfram sem bæj-
arstjóri Garðabæjar næstu fjögur
árin,“ segir Gunnar.
Mun sitja áfram í Garðabæ
Morgunblaðið/Ómar
Bæjarstjóri Gunnar Einarsson tók
við starfinu í maí árið 2005.