Morgunblaðið - 03.06.2014, Side 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2014
Hátúni 6a • 105 Rvk • Sími 552 4420 • fonix.is
ELDHÚSTÆKI
STUTTAR FRÉTTIR
● Sigurður Óli
Ólafsson hefur ver-
ið ráðinn forstjóri
samheitalyfjasviðs
Teva Pharmaceuti-
cal Industries,
stærsta lyfjafyr-
irtækis heims á
sviði samheitalyfja.
Sigurður sagði
nýlega starfi sínu
lausu sem forstjóri Actavis Pharma.
Teva er með höfuðstöðvar í Jerúsalem
og skráð í kauphöllinni í New York. Velta
fyrirtækisins er áætluð um 20 millj-
arðar bandaríkjadala (2.273 milljarðar
króna) á þessu ári, en Teva er tíunda
stærsta lyfjafyrirtæki í heimi. Sigurður
mun starfa í starfsstöð fyrirtækisins í
Pennsylvaníu og hefur störf 1. júlí 2014.
Sigurður Óli forstjóri
samheitalyfja Teva
Sigurður Óli
Ólafsson
Klakki, stærsti hluthafi VÍS, seldi í
gær 8% hlut í tryggingafélaginu fyr-
ir 1.850 milljónir króna. Lífeyrissjóð-
ur verslunarmanna keypti 5% hlut
og er eftir viðskiptin næststærsti
hluthafinn með 10% hlut, samkvæmt
flöggunum til Kauphallarinnar.
„Okkur barst tilboð sem við
ákváðum að taka,“ segir Magnús
Scheving Thorsteinsson, forstjóri
Klakka, í samtali við Morgunblaðið.
Trúnaður ríkir um hverjir keyptu
hin 3%, en Magnús segir að um sé að
ræða nokkra kaupendur. Eftir við-
skiptin á Klakki 23% í VÍS.
Klakki, sem áður hét Exista, átti
VÍS að fullu þar til tryggingafélagið
var skráð í Kauphöll á síðastliðnu
ári. Í tengslum við sölu tæplega 70%
hlutar Klakka í Vátryggingarfélagi
Íslands á síðastliðnu ári fyrir 14,3
milljarða króna skuldbatt eignar-
haldsfélagið sig til þess að selja ekki
liðlega 30% hlut sinn í eitt ár. Þessar
söluhömlur runnu út 18. apríl.
Magnús segir að stjórnendur
Klakka hafi trú á VÍS og að engar
ákvarðanir hafi verið teknar um sölu
eftirstandandi eignarhlutar Klakka.
Klakki er að stærstum hluta í eigu
íslenskra og erlendra fjármálastofn-
ana og lífeyrissjóða. Hluthafar eru
um 200 talsins. Þrír hluthafa eiga
meira en 10% í félaginu: Arion
Banki, Kaupþing og Burlington Lo-
an Management. helgivifill@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Hluthafi Klakki, áður Exista, er stærsti hluthafi VÍS með 23% hlut.
Klakki selur 8% í VÍS á 1,9 milljarða
Lífeyrissjóður verslunarmanna
keypti 5% hlut í VÍS og á nú 10%
verið til frá árinu 2006 en hér á
landi væri umhverfisvæn orka og
byggðu stofnendur fyrirtækisins
reksturinn á þeirri sérstöðu. Þeir
hafa sagt m.a. í viðtali við Morg-
unblaðið að GreenQloud reki eina
umhverfisvæna tölvuskýið í heim-
inum en tölvubúnaðurinn er í ís-
lenskum gagnaverum og í Seattle.
Hópfjármögnun hentug
Sherwood Neiss, stjórnandi hjá
Crowdfund Capital Advisors, sagði
að frumkvöðlar þyrftu ekki lengur
að vera í Kísildal eða London til að
afla fjármagns, þökk sé hópfjár-
mögnun (e. crowd funding). Með
þeim hætti væri hægt að afla
hlutafjár eða lána og nefndi hann
að þegar hefði verið lánaður yfir
einn milljarður dollara án nokk-
urra veða. Neiss sagði að hlutfall
þeirra sem ekki stæðu í skilum í
hóplánum væri lægra en hjá bönk-
um og lánin væru á samkeppn-
ishæfum kjörum.
Bre Pettis, sem stofnaði fyrir-
tækið MakerBot sem framleiðir
þrívíddarprentara og var selt fyrir
403 milljónir dollara til Stratasys,
sagði að ef hópfjármögnun á borð
við Kickstarter hefði verið til þeg-
ar hann stofnaði sitt fyrirtæki,
hefði hann eflaust ekki þurft að
láta fjárfesta fá 4% af fyrirtækinu
fyrir 75 þúsund dollara. Hann tel-
ur að fyrirtækið hefði getað aflað
um einnar milljónar dollara með
fyrirframsölu á þeim vettvangi.
Tæknisamfélag á að byggja
á sérþekkingu og aðstæðum
Ekki ráðlegt fyrir Ísland að apa eftir Kísildal, segir nýsjálenskur sérfræðingur
Ráðlagt Ben Kepes, ráðgjafi frá Nýja-Sjálandi, mælir gegn því að Ísland api
eftir Kísildalnum í einu og öllu. Hann telur að landið eigi að fara eigin leiðir.
Morgunblaðið/Þórður
Þriðja skiptið
» Startup Iceland er nú haldið
þriðja árið í röð.
» Níu erlendir fyrirlesarar
tóku til máls og sjö íslenskir.
» Fjárfestirinn Bala Kamal-
lakharan er meðal þeirra sem
standa að ráðstefnunni.
» Bala Kamallakharan og Ís-
landssjóðir, dótturfélag Ís-
landsbanka, vinna að því að
stofna fjárfestingasjóð fyrir
sprotafyrirtæki.
» Í dag gefst ráðstefnugestum
færi á að ræða við fyrirlesara
og aðra.
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Ekki reyna að byggja upp tækni-
samfélag með því að apa eftir Kís-
ildal í Bandaríkjunum, sagði nýsjá-
lenski fjárfestirinn og ráðgjafinn
Ben Kepes á ráðstefnunni Startup
Iceland í Hörpu í gær. Byggið
fremur á þeirri sérþekkingu og
þeim aðstæðum sem eru hér á
landi.
Ben Kepes lagði upp þrjár leiðir
fyrir lönd sem eru langt frá mörk-
uðum, líkt og Ísland og Nýja-Sjá-
land eru. Í fyrsta lagi sé hægt að
ráðast í blóðuga samkeppni, en til
þess þurfi mikið fjármagn, frá-
bæra tímasetningu og heppni.
Hann rifjaði upp að vel hefði tekist
hjá Davíð gegn risanum Golíat; en
það væri sjaldnast þannig.
Kepes nefndi því næst þá leið að
nýta sérstöðu markaðarins. Hann
tók sem dæmi að hér á landi gætu
fyrirtæki þróað tækni til að auka
skilvirkni álvera og í kjölfarið flutt
hana út á erlenda markaði.
Loks nefndi hann þá leið að að-
laga viðskiptahugmynd sem hefði
gengið vel erlendis að aðstæðum
hér á landi. Íslenska nýsköpunar-
fyrirtækið GreenQloud væri gott
dæmi um þetta. Tölvuský hefðu
!"
!#
$ #
%#"
# "
$#
!
#"
"!#
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
$
%"
!
$
%%
"
$"#
%$
#!$
"%#
%
!!
$ #
%
"
$$
!
#!!
"!
$ " !"
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Salvör Nordal og
Sigurður Arnar Sig-
urðsson munu
koma ný inn í stjórn
Haga á aðalfundi á
fimmtudaginn, en
sjálfkjörið er í fimm
manna stjórn fé-
lagsins. Árni Hauks-
son, núverandi
stjórnarformaður,
og Hallbjörn Karlsson munu fara úr
stjórninni á sama tíma. Hagamelur, félag
Hallbjörns, Árna og Sigurbjörns Þorkels-
sonar minnkaði hlut sinn í Högum úr
7,8% í 1,5% í febrúar síðastliðnum.
Salvör er forstöðumaður Sið-
fræðistofnunar Háskóla Íslands og Sig-
urður Arnar er fyrrum forstjóri Húsa-
smiðjunnar. Aðrir í stjórn Haga eru Erna
Gísladóttir, Kristín Friðgeirsdóttir og
Stefán Árni Auðólfsson.
Árni og Hallbjörn
fara úr stjórn Haga
Árni
Hauksson