Morgunblaðið - 03.06.2014, Page 27
tíma og eignuðumst marga af okkar
bestu vinum þar. Síðan höfum við
fjölskyldan sótt mjög mikið í sumar-
frí til suðurríkja Bandaríkjanna. Við
höfum búið á Seltjarnarnesi í 19 ár
og það er örugglega næstum því
jafnskemmtilegt að alast upp þar og
í Eyjunum í gamla daga.
Ég vann sem matvælafræðingur á
rannsóknastofnun og í matvæla-
fyrirtæki fyrstu árin eftir háskóla-
námið en vegna áhuga á næringar-
fræðum endaði ég á Landspítalan-
um og hef unnið þar í bráðum 17 ár
á Næringarstofu. Það er dásam-
legur vinnustaður, fullt af frábæru
fólki, mjög fjölbreytt verkefni og
það að geta látið gott af sér leiða í
vinnunni er grunnurinn að ánægj-
unni. Ég fór síðan í framhaldsnám
árið 2005 og útskrifaðist með MS-
gráðu í næringarfræði árið 2007 og
diplómu í kennslufræðum 2010.“
Bertha stofnaði og rak fyrirtækið
Næringarsetrið ásamt þremur koll-
egum í nokkur ár og fékkst við ýmis
verkefni tengd næringu fyrir ein-
staklinga, félagasamtök, skóla og
fleira. Einnig hefur Bertha starfað
við næringarráðgjöf fyrir ein-
staklinga á ýmsum vettvangi.
Með brennandi áhuga á heilsu
Bertha hefur brennandi áhuga á
öllu sem viðkemur heilsu, mataræði
og lífsstíl. „Það er frábært að geta
unnið við það að fræða einstaklinga
um allt það sem við getum gert til
þess að auka líkurnar á að halda
heilsu sem lengst og njóta lífsins. Í
því felst einnig að njóta alls sem lífið
býður upp á í mat og drykk – þar er
áhugi minn. Ég hef því skrifað
greinar í blöð og tímarit og haldið
fyrirlestra um mat og næringu fyrir
þá sem vilja fræðast um þessi mál.
Áhugamálin liggja semsagt mest í
því að kenna ungum og gömlum að
umgangast fæðu á sem bestan hátt
en ekki með boðum og bönnum. Við
þurfum að ala börnin okkar upp til
þess að verða gagnrýnir neytendur
og velja ferska fæðu sem er laus við
óæskileg aukefni og annan óþarfa.
Margir halda að það sé svo flókið að
borða heilsusamlega en ég elska
þegar ég get sýnt fram á hvað þetta
er í raun einfalt og skemmtilegt.
Ég hef verið iðin við að koma mér
í félagsstörf bæði í skólum barn-
anna, íþróttafélaginu þeirra og svo
Matvæla- og næringarfræðafélagi
Íslands þar sem ég hef setið í stjórn
og er í stjórn stéttarfélagsins um
þessar mundir.“
Fjölskylda
Eiginmaður Berthu er Kolbeinn
Gunnarsson, f. 27.9. 1962, rafmagns-
verkfræðingur. Foreldrar hans eru
Gunnar Kolbeinsson, f. 16.2. 1937,
kennari og bóndi úr Kollafirði, og
Iðunn Guðmundsdóttir f. 23.4. 1940,
kennari í Reykjavík.
Börn Berthu og Kolbeins eru
Rósa Kolbeinsdóttir, f. 27.4. 1990.
Útskrifast sem sjúkraþjálfari frá HÍ
í júní 2014, og Gunnar Kolbeinsson,
f. 21.6. 1995, nemandi í Verslunar-
skóla Íslands.
Bróðir Berthu er Lárus Ársæls-
son, f. 20.8. 1962, byggingarverk-
fræðingur á Akranesi.
Foreldrar Berthu eru Ársæll Lár-
usson, f. 6.11. 1939, rafvirkjameist-
ari frá Vestmannaeyjum, og Rósa
Martinsdóttir, f. 20.4. 1941, skrif-
stofumaður frá Vestmannaeyjum.
Úr frændgarði Berthu Maríu Ársælsdóttur
Bertha María
Ársælsdóttir
Sigríður Einarsdóttir
húsmóðir
Gísli Magnússon
útgerðarmaður frá Skál-
holti í Vestmannaeyjum
Ágústa Gísladóttir
húsmóðir frá Skálholti
í Vestmannaeyjum
Ársæll Lárusson
rafvirkjameistari frá
Vestmannaeyjum
Lárus Á. Ársælsson
útgerðarmaður frá Fögrubrekku
í Vestmannaeyjum
Laufey Sigurðardóttir
húsmóðir
Rannveig Vilhjálmsdóttir
frá Borgarfirði eystra
Gísli Þórðarson
sjómaður úr Rangárvallasýslu
Bertha Gísladóttir
húsmóðir frá Vestmannaeyjum
Martin Tómasson
útgerðarmaður og forstjóri
frá Höfn í Vestmannaeyjum
Jóhannes Tómasson
frá Höfn í Vestmannaeyjum
Stefán Haukur Jóhannesson
sendiherra, formaður eftir-
litssveitar ÖSE í Úkraínu
Rósa Martinsdóttir
skrifstofumaður frá
Vestmannaeyjum
Eyjólfur Martinsson
framkvæmdastjóri í
Vestmannaeyjum
Martin Eyjólfsson
fastafulltrúi Íslands
í Genf og sendiherra
Íslands gagnvart
Liechtenstein og
Páfagarði
Hjörtrós Hannesdóttir
frá Miðhúsum í Vestmanna-
eyjum, faðir hennar var
Hannes lóðs hafnsögu-
maður í Vestmannaeyjum
Tómas M. Guðjónsson
útgerðarmaður frá Höfn í Vestmannaeyjum
Ársæll Sveinsson
útgerðarmaður frá Fögrubrekku í
Vestmannaeyjum
Júlíana Sveinsdóttir
listamaður
Sveinn Sveinsson
forstjóri trésmiðjunnar Völundar
Haraldur Sveinsson
stjórnarformaður Árvakurs
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2014
Guðrún Árnadóttir, eða Guð-rún frá Lundi, rithöfundurfæddist 3.6. 1887 á Lundi í
Stíflu í Skagafirði. Foreldrar hennar
voru Árni Magnússon bóndi, lengst
á Syðra-Mallandi á Skaga, og Bald-
vina Ásgrímsdóttir, dóttir Ásgríms
Ásmundssonar, bónda á Skeiði í
Fljótum.
Guðrún ólst upp á Lundi til 11 ára
aldurs. Þá fluttist fjölskyldan að
Enni á Höfðaströnd og síðan að
Syðra-Mallandi á Skaga. Þar var
Guðrún í fjögur ár en fór síðan í
kaupamennsku. Réðst fyrst í vetrar-
vist í Þverárdal í Laxárdal, A-Hún.
þar sem hún kynntist manni sínum.
Þau voru í húsmennsku í þrjú ár í
Bólstaðarhlíð, fóru þá í Þverárdal og
höfðu hluta af jörðinni til ábúðar.
Voru þar í tvö ár en fluttust síðan í
fjallakotið Valabjörg í Skörðum og
voru þar í sjö ár. Þaðan fluttu þau í
nábýli við fólkið hennar Guðrúnar,
að Ytra-Mallandi, buggu þar í 15 ár
og fluttu þaðan á Sauðárkrók 1939.
Guðrún lærði ung að lesa og skrifa
og byrjaði þá strax að skrifa sögur.
Hún brenndi þær hins vegar allar
um tvítugt þegar hún giftist, fyrir
utan frumdrögin að Dalalífi. Það
þótti ekki tilhlýðilegt fyrir bónda-
konu að eyða tímanum í skriftir.
Þegar Guðrún fluttist á Sauðárkrók
hafði hún meiri tíma aflögu og fór að
vinna í frumdrögunum að Dalalífi.
Hins vegar gekk lítið að fá útgef-
anda þar til Gunnar Einarsson í Ísa-
fold fékkst til að gefa Dalalíf út árið
1946. Fimm bindi af því verki komu
út og urðu bækurnar strax feiki-
vinsælar. Hver bókin rak síðan aðra,
ein á ári meðan Guðrún hafði heilsu
til eða allt til 1972, og allar lentu þær
í efstu sætum metsölulistanna. Enn
er Dalalíf meðal vinsælustu bóka á
bókasöfnunum.
Eiginmaður Guðrúnar var Jón Jó-
hann Þorfinnsson, f. 28.10. 1884, d.
20.12. 1960 bóndi, síðar smiður á
Sauðárkróki. Foreldrar hans voru
Þorfinnur Þorfinnsson, bóndi í
Geitagerði, og Þóra Jónsdóttir. Guð-
rún og Jón eignuðust þrjú börn,
Angantý, Freystein Ástvald og
Marín Baldvinu.
Guðrún frá Lundi lést 22.8. 1975.
Merkir Íslendingar
Guðrún
frá Lundi
85 ára
Bryngerður Bryngeirsdóttir
Erla Kristjánsdóttir
Guðjón Rögnvaldsson
Guðrún Gísladóttir
Gunnar Marteinsson
Sigurlaug Hermannsdóttir
80 ára
Áslaug Guðbrandsdóttir
Gísli Svanbergsson
75 ára
Arnold Robert Sievers
Dagný Jónsdóttir
Helga Hafberg
Helgi J. Kristjánsson
Málfríður Loftsdóttir
Sigurlaug Jónsdóttir
70 ára
Benedikt Harðarson
Einar Knútsson
Guðbrandur Benediktsson
Jónína G. R. Ívarsdóttir
Sverrir Þóroddsson
60 ára
Anna Jenny Einarsdóttir
Grazyna Jasionowska
Heimir Hávarðsson
Helgi Samsonarson
Kristján H. Ingimarsson
Lilja Ósk Þórisdóttir
Soffía Steinunn
Sigurðardóttir
50 ára
Berglind Sigurðardóttir
Ewa Szmirska
Fríða Jensína Jónsdóttir
Gísli Bragason
Helma B. Jóhannesdóttir
Jóhann Þorkelsson
Jón Halldór Finnsson
Leszek Piotr Fil
María Hrafnhildardóttir
Þuríður Guðmundsdóttir
40 ára
Bergþóra Ásdís Sófusdóttir
Lára Björk Sigurðardóttir
Lárus Steingrímur Bl.
Jónasson
María Ben Ólafsdóttir
Sergejs Berzins
Silja Gunnarsdóttir
Sólveig Þórarinsdóttir
Þorfinnur Björnsson
30 ára
Agnar Freyr Ingvason
Andri Axelsson
Andrius Jokubauskas
Ásgeir Daði Rúnarsson
Gyða Steinarsdóttir
Hermann Ingi Dagnýsson
Hjalti Geir Atlason
Kristín Lýðsdóttir
Krzysztof Chrapowicki
Nanna Helga Valfells
Stefán Sævar Stefánsson
Vigdís Sigurðardóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Guðný er frá Þor-
lákshöfn, býr í Mosfells-
bæ og er í fæðingar-
orlofi.
Maki: Sigurður Karsten
Bogason, f. 1972, kokkur
á sjó.
Börn: Elvar Kató, f. 1995,
Aníta Karen, f. 1999, Em-
ilía Ýr, f. 2003, og óskírð,
f. 2014.
Móðir: Jensína Óskars-
dóttir, f. 1954, vinnur í
skólamötuneyti, bús. í
Mosfellsbæ.
Guðný Elva
Ólafsdóttir
40 ára Karl er úr Reykja-
vík, býr í Garðabæ og er
sölufulltrúi hjá Globus hf.
Maki: Karen Víðisdóttir, f.
1982, leiðbeinandi á leik-
skólanum Holtakoti.
Börn: Víðir Freyr, f. 2005,
Hlynur Finnbogi, f. 2007,
og Emilía Björk, f. 2010.
Foreldrar: Finnbogi
Karlsson, f. 1951, sölu-
maður hjá símafélaginu
Tal, og Stella Her-
mannsdóttir, f. 1951,
talmeinafræðingur.
Karl Fjölnir
Finnbogason
40 ára Hilmar er Eyjapeyi
og er verkamaður ásamt
því að reka ferðaþjón-
ustufyrirtækið Ribsafarí.
Maki: Sæbjörg Helga-
dóttir, f. 1986, vinnur hjá
Eyjavík.
Börn: Kristján Ólafur, f.
2006, Gréta Hólmfríður, f.
2008, og Dröfn, f. 2013.
Foreldrar: Kristján Hilm-
arsson, f. 1955, sjómaður,
og Heiðrún Guðbrands-
dóttir, f. 1955, vinnur við
aðhlynningu.
Hilmar
Kristjánsson
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150
60 ára reynsla á Íslandi
Lífið er
litríkt
Fæst í eftirfarandi verslunum:
Húsasmiðju búðirnar, BYKO búðirnar, ELKO búðirnar, Hagkaups búðirnar,
Byggt og Búið, Kaupfélag Skagfirðinga, Geisli, Skipavík, Heimkaup.is