Morgunblaðið - 03.06.2014, Page 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2014
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Grétar Mar Sigurðsson, sem kallar
sig „listafígúruna Mar“, sendi í maí-
mánuði frá sér nýja stuttskífu, Mell-
ows, sem inniheldur fjögur lög samin
í mismunandi tónlistarstefnum og
eiga það sameiginlegt að vera búin til
í tónlistarforritum. Mar er myndlist-
armaður að mennt, nýútskrifaður úr
myndlistardeild Listaháskóla Íslands
og tók auk þess þátt í samsýningu í
Skaftfelli á Seyðisfirði sem lauk 1.
júní.
Tilraun til að vera opinn
Mellows er ekki fyrsta plata Mars
því hann gaf út plötu á netinu í fyrra,
SoundsEscape. Mellows er hins veg-
ar fyrsta platan sem hann syngur á.
Lögin fjögur á plötunni falla í flokka
dup-step, trip-hop, ambience og
electronic/braindance, að sögn Mars.
„Ég er alltaf að reyna að ögra sjálf-
um mér og opna á þá miðla sem ég
get notað til að túlka list mína. Ég
held það sé hollt fyrir mig að halda
opnum huga fyrir öllum listastefnum,
tónlistarstílum og meira að segja öll-
um pælingum og vangaveltum, ef út í
það er farið,“ segir Mar, spurður að
því hvers vegna lögin séu í fjórum
ólíkum stílum. „Upprunalegi ásetn-
ingurinn með þessu var að reyna að
ná til sem flestra með listsköpun
minni en þótt ég tileinki mér kannski
ekki allar þessar pælingar og vanga-
veltur reyni ég að setja mig í spor
þeirra sem gera það og þannig skilja
forsendur annarra fyrir ákvörðunum
sínum. Þetta er kannski mín tilraun
til að vera opinn, ekki bara sem tón-
listarmaður heldur sem manneskja
gagnvart öðru fólki og jafnvel öllu
lífi.“
Öll tónlist veitir innblástur
– Hafa einhverjar hljómsveitir eða
tónlistarmenn veitt þér innblástur
við lagasmíðarnar?
„Sá listi yrði ansi langur. Auk þess
sem allt það sem ég hef upplifað og
öll mín reynsla hefur veitt mér, mis-
mikið, einhvers konar innblástur. Þá
líka öll tónlist sem ég hef heyrt,
meira að segja sú tónlist sem ég
hlusta ekki á því hún hefur líka kennt
mér hvað mig langar ekki til að
skapa.“
– Gerðirðu þessa plötu alfarið einn
eða naustu aðstoðar einhverra?
„Ég gerði öll lögin sjálfur í tónlist-
arforriti. Ég tók hins vegar upp söng-
inn hjá Jakobi Þór Guðmundssyni í
stúdíó GFG. Síðan fékk ég söngkonu
til liðs við mig, hana Elínu Elísabetu
Einarsdóttur, auk þess sem fjöldinn
allur af vinum og vandamönnum hef-
ur sitt hlutverk,“ segir Mar.
– Hver er bakgrunnur þinn í tón-
list? Varstu í tónlistarnámi eða ertu
sjálflærður?
„Ég er sjálflærður tónlistarmaður
en minn aðalskóli hafa verið hin
ýmsu samstarfsverkefni og hljóm-
sveitir sem ég hef verið í, má þar
nefna helst Celestine og Two tickets
to Japan.“
Áhrif á virkni vatns
– Þú varst að útskrifast úr mynd-
listardeild LHÍ. Hvað geturðu sagt
mér um útskriftarverkið og kemur
tónlist eitthvað við sögu í því?
„Útskriftarverkið mitt var á allt
öðrum nótum en platan, var í grófum
dráttum vísindaleg rannsókn til að
sannreyna hvort meðvitund okkar
gæti haft áhrif á efni – þar sem ég
vinn mikið með vatn í myndlist minni
– þ.e. hvort og þá hvernig tilfinningar
okkar, hugsanir, tónlist og jafnvel
nærvera gætu haft mismunandi áhrif
á virkni vatns og þá sameindabygg-
ingu þess. Reyndar gerði ég hljóð-
verk sem er hluti af því verki, sem
heitir Mantra. Það samanstendur af
ákveðinni tíðni sem er spiluð í bland
við kór, sem bróðurpartur bekkjar-
systkina minna skipaði og ég fékk til
að kyrja í kirkju á Seyðisfirði,“ segir
Mar.
– Hefur myndlistarnámið haft ein-
hver áhrif á tónlistina hjá þér?
„Það má segja að myndlistin hafi
mótað tónlist mína mikið, ekki bara
opnað möguleika fyrir hugmyndum
um hljóðlist heldur einnig hefur hún
haft áhrif á allt það sjónræna sem
tengist tónlistinni, s.s. framsetningu,
útlit því ég hanna meðal annars öll
mín plötuumslög, tónlistarmyndbönd
o.s.fv. Alveg eins og textagerð og
ljóðlist hefur haft áhrif líka. Ég er
meira að segja orðinn mjög spenntur
fyrir nútímadansi og langar til að
gera tilraunir með að koma því inn í
tónlistina í framtíðinni,“ segir Mar.
Gildishlaðin orð
– Þú kallar þig listafígúru. Hvers
vegna?
„Ég gat í rauninni ekki fundið
betra orð til að lýsa þeirri heild sem
ég er að skapa. Orðin tónlistarmaður
og listamaður eru svo gildishlaðin.
Ég er vissulega bæði þessi fyrirbæri
en mig langar ekki til að takmarka
mig við annað hvort. Eins og áður
sagði vil ég með þessu Mar-verkefni
vera eitthvað meira. Eitthvað sem til-
einkar sér og þannig tengir alla list-
miðla. Myndlistin hefur kennt mér að
sjá listræn tækifæri í öllu og í leiðinni
varpað ljósi á að öll sköpun, listræn
eða ekki, getur verið áhugaverð.
Næsta plata gæti verið allt öðruvísi.“
Spurður hvað sé framundan segir
Mar að útgáfutónleikar verði haldnir
í sumar og hann muni líklega halda
þá með tónlistarmanninum Kalel
Cosmo.
„Á báðum stöðum mun fólk geta
nælt sér í eintak af plötunni sem
verður í takmörkuðu silkiþrykktu
upplagi. Þó eru engar dagsetningar
komar. Ég er alltaf að gera mynd-
tónlist svo hver veit nema maður
skjóti upp kollinum einhvers staðar í
myndlistargalleríi, á ljóðakvöldi, á
götum Reykjavíkurborgar eða ein-
faldlega á einhverju festivali eða tón-
listarhátíð úti á landi í sumar,“ segir
Mar að lokum.
Mellows er aðgengileg á vefjunum
Soundcloud, Bandcamp og gogoyoko
og auk þess er hægt að hlusta á hana
á marmakings.bandcamp.com/-
album/mellows.
Ljósmynd/Jón Smári Tómasson
Umslagsþrykk Mar silkiþrykkti umslög fyrir takmarkað upplag plötunnar á diski. Diskurinn verður einnig seldur á útgáfutónleikum Mars í sumar.
„Alltaf að reyna að ögra sjálfum mér“
Mar sendir frá sér stuttskífuna Mellows Sinnir tónlist og myndlist jöfnum höndum og segir
myndlistina hafa mótað tónlist sína mikið Vann með vatn í útskriftarverkefni sínu í LHÍ
Logo Mar segir lógóið sitt, sem hér sést, leika veigamikið hlutverk bæði á
umslagi plötunnar Mellows og öllum ljósmyndum sem hann tekur.
Á fallegum og notalegum stað
á 5. hæð Perlunnar
Aðeins 2.150 kr. á mann
Næg bílastæði
ERFIDRYKKJUR
Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is
Pantanir
í síma
562 0200