Morgunblaðið - 27.06.2014, Side 11

Morgunblaðið - 27.06.2014, Side 11
haust og þeir byrjuðu strax að dilla sér með og heilluðust af harmon- ikkutónlistinni og sögðust vilja gefa út disk með okkur. Þeir höfðu sam- band við okkur í janúar og spurðu hvort við vildum ekki ganga í málið með þeim og gefa út disk með tón- listinni þeirra, þar sem við lékjum á harmonikkurnar. Við vorum að sjálfsögðu til í það, og á diskinum eru tólf þekkt lög frá þeim, til dæm- is Fram á nótt, Alelda, Hjálpaðu mér upp, Frelsið er yndislegt og fleiri.“ Bragi segir samstarfið hafa verið skemmtilegt, þeir hafi fengið frjálsar hendur með útsetningar laganna. „Trommuleikari Ný- danskrar, Ólafur Hólm, var mikið með okkur í útsetningunum, hann er gull af manni og þetta var virki- lega skemmtilegt. Allir meðlimir hljómsveitarinnar komu að disk- Útskrifaðir Daginn sem þeir útskrifuðust úr Stýrimannaskólanum í vor. inum, á einn eða annan hátt. Björn Jörundur og Daníel sáu um útlit disksins, myndatökur og fleira, Jón Ólafs „masteraði“ og Stefán Hjör- leifsson sá um bókhald og annað slíkt.“ Þeir bræður ætla að kynna nýja diskinn sinn á humarhátíðinni á Höfn um helgina og stíga á svið bæði föstudag og laugardag með dragspilin. Nikkubarn á leiðinni Þegar Bragi er spurður hvern- ig það sé að vera tvíburi, hluti af einhverjum öðrum sem er auk þess alveg eins í útliti, segist hann eðli málsins samkvæmt ekki þekkja neitt annað og því hafi hann ekki samanburðinn. „Það hefur alltaf verið voða gott samband á milli okkar bræðra og það er frábært að eiga alltaf félaga í bróður sínum. Við erum mjög nánir en að sjálf- sögðu getur fokið í okkur eins og annað fólk. Tvíburasambandi okkar er kannski best lýst sem góðu hjónabandi, það eru skin og skúrir.“ Bragi hefur verið í föstu sambandi með Karen Sif Jakobsdóttur frá því á fyrstu önninni í Stýrimannaskól- anum og hann segir að það hafi vissulega verið erfitt fyrst í stað fyrir bróður hans þegar þriðji aðili kom inn í bræðrasambandið, en þau hafi öll aðlagast því. „Mig langaði að finna góða stelpu og ég datt heldur betur í lukkupottinn þegar ég hitti Karen, hún er æðisleg stelpa og við eigum von á okkar fyrsta barni í haust. Þetta er strákur og hann verður væntanlega nikkari, ég spila oft fyrir hann og kærastan spilar á fiðlu. Músíkin hlýtur að leka beint í hann,“ segir Bragi og hlær. „Dreng- urinn verður fullkomin blanda, ætli hann verði ekki bæði sjómaður og bóndi, því tengdapabbi er frí- stundabóndi á Hömrum á Klepp- járnsreykjum í Borgarfirði.“ Facebooksíða þeirra: Harmonikkubræðurnir DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2014 Sheer Driving Pleasure BMW 1 lína www.bmw.is MISSTU EKKI AF ÞESSUM. BJÓÐUM BMW 116d SPORT DÍSIL MEÐ RÍKULEGUM BÚNAÐI Á SÉRSTÖKU SUMARVERÐI. Nú er komið að því að upplifa BMW. Lykilorðin eru gæði, sparneytni og afl. Komdu og reynsluaktu BMW 116d Sport með leðurklæddu stýri, upphituðum framsætum, rafdrifnu léttstýri, fjarlægðarvara að aftan, stillanlegum armpúða, SENSATEC BLACK sætum og álfelgum. Þú gerir ekki einungis góð kaup heldur færð allt það besta í þessum þægilega millistærðar-bíl sem sameinar alla helstu kosti BMW. BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000 Verð:4.590.000 kr. 116d *Miðað við uppgefnar viðmiðunartölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri. Fyrir skömmu rakst ég áskondna setningu á vafrimínu um netheima. Setn-ingin var á ensku og hljómaði svo: „Book lovers never go to bed alone“, eða „bókelskandi fólk fer aldrei eitt í rúmið“. Nokkuð er til í þessu. Góð bók gleypir lesandann, sem á móti gleyp- ir í sig bókina. Persónur vel skrifaðra og grípandi bóka lifna í huga lesand- ans á meðan á lestri stendur og þær persónur sem áköfum lesanda eru kærastar lifa með honum það sem eftir er. Raunar er góð bók að mörgu leyti eins og góður elskhugi. Maður sefur ekki fyrir þeim á nóttunni. Engu er komið í verk yfir daginn, því hugurinn veit að bókin bíður þegar heim er komið. Góð bók spyr ekki heimskulegra spurninga þegar til- veran er snúin, heldur tekur lesanda sinn næturlangt í fangið. Þegar lestri lýkur langar mann jafnskjótt að byrja upp á nýtt, gengur þó frá bókinni upp í hillu en horfir öðru hvoru löngunaraugum á bókarkjölinn. Og það sem eft- ir er á bókin alltaf svolítið í manni, hvort sem manni líkar betur eða verr. Nýlega hóf ég lestur á Elskhuga lafði Chatter- ley (e. Lady Chatter- ley’s Lover) eftir D.H. Lawrence. Bókin var fyrst útgefin árið 1928 í Flórens á Ítalíu og þótti hneykslandi. Ber- orðar og mynd- rænar kynlífslýs- ingar þekktust ekki í bókmenntum þess tíma. Ekki bætti úr skák að elsk- endur bókar- innar eru ung, gift kona úr efri stétt samfélagsins og vinnumaður sem talar mállýsku og skefur ekki utan af hlutunum. Sagan fylgir síðan eftir sambandi þeirra, utan svefnherbergis sem inn- an. Aðallega þó innan, en stöku sinn- um úti í skógi. Lawrence gekk fram af mörgum með bók sinni og hún kom ekki út í upprunalegri útgáfu í Bretlandi fyrr en árið 1960. Ég viðurkenni að hafa fyrst og fremst keypt bókina vegna þess fárs sem varð við útgáfu hennar á síðustu öld. Mig langaði að sjá hvers konar skrif það væru sem Bretar gátu ekki hugsað sér að birta fyrr en þrjátíu og tveimur árum eftir útgáfu bók- arinnar. Lesturinn hefur hins vegar leitt í ljós að bók- in á fyllilega skilið að vera lesin á eigin forsendum, ekki eingöngu vegna bók- menntasögulegs gildis. Sagan er nefnilega gríp- andi og bókin góð. Að því sögðu skal tekið fram, að sumar blað- síðurnar eru betri en aðrar. Eins og gengur. Ég á þrjátíu blaðsíður eftir af Elskhuga lafði Chatterley. Ég fer ekki ein í rúmið í kvöld. »Raunar er góð bók aðmörgu leyti eins og góður elskhugi. Maður sefur ekki fyrir þeim á nóttunni. Heimur Guðrúnar Ingibjargar Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir gith@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.