Morgunblaðið - 27.06.2014, Side 17

Morgunblaðið - 27.06.2014, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2014 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Maður er hálftómur eftir þessa upplifun, að koma að þessu svona,“ segir Egill Rafn Sigurgeirsson, for- maður Býflugnaræktendafélags Ís- lands, en 112 býflugnabú, sem flytja átti til landsins í fyrradag gleymdust í vöruskemmu á flugvellinum í Hels- inki, og tafðist því koma þeirra til landsins um einn sólarhring. Það leiddi til þess að búrin ofhitnuðu með þeim afleiðingum að um helmingur býflugnanna lifði ekki af ferðalagið. Er áætlað að í búunum hafi verið á bilinu ein og hálf til tvær milljónir býflugna. Tjónið einkum tilfinningalegt Er ljóst að um heilmikið tjón er að ræða. Um áttatíu býflugnabændur höfðu átt von á því að fá bú, en færri gátu nú fengið en vildu. Egill Rafn segir að heildarkostnaður við að út- vega býflugurnar hafi verið um sjö milljónir króna, og því hafi á bilinu þrjár til þrjár og hálf milljón farið forgörðum við skaðann. Tjónið sé þó fyrst og fremst tilfinningalegs eðlis, en hann og tveir aðrir hafi farið sér- staklega til þess að útvega flugurnar. „Þetta eru dýr og okkur þykir vænt um þau og berum mikla virðingu fyr- ir þeim. Þetta eru hálfgerð gæludýr fyrir okkur,“ segir Egill Rafn. Spurður um hugsanlegar skaða- bætur segir Egill að nú verði málið kannað og skýrsla skrifuð um ástandið. „Þetta eru mistök hjá ein- hverjum aðila sem flytur býflugurn- ar, en það þarf að kanna það.“ Býflugnarækt hefur verið stunduð hér frá árinu 1998 og hefur verið mikill vöxtur í greininni á undan- förnum árum. Egill Rafn segir að nú séu rúmlega eitt hundrað manns í Býflugnaræktendafélagi Íslands. Áfallið nú muni því hafa áhrif á mjög marga. Um helmingur bý- flugnanna lifði af  112 býflugnabú töfðust í Finnlandi Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Býflugur Um helmingur flugnanna drapst vegna tafa í flutningum. Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Á fundi sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps í fyrradag var tek- in ákvörðun um að spjaldtölvuvæða skyldi sveitarstjórnina. Fjárfest verður í sjö spjaldtölvum. Með þessari ákvörðun er Skeiða- og Gnúpverjahreppur kominn í hóp fjölmargra aðila innan stjórnsýsl- unnar sem nýta sér spjald- tölvutækni til sinna starfa. Að sögn Björgvins Skafta Harð- arssonar, sveitarstjóra í Skeiða- og Gnúpverjahreppi er ákvörðunin tek- in út frá hagræðissjónarmiðum. Verulega dragi úr prent- og vinnu- kostnaði við spjaldtölvuvæðingu hreppsins. „Þó þetta kosti eitthvað í upphafi þá er þetta margfalt hagkvæmara til lengri tíma litið,“ segir Skafti. Fyrsta skrefið í upplýsingavæð- ingu sveitarstjórnarinnar var tekin í upphafi síðasta kjörtímabils þegar keyptar voru fartölvur fyrir sveit- arstjórnarmenn. Skafti segir far- tölvurnar hafa reynst ágætlega en í ljós hafi komið að það sé mun hag- kvæmara að notast við spjaldtölvur í stað þess að endurnýja fartölvukost sveitarstjórnarmanna. Hann segir mikinn pappír hafa farið út fyrir hvern fund á sínum tíma eða um það bil 600 blaðsíður ásamt ýmsum aukagögnum. Nú séu gögnin nánast alfarið rafræn. Notkun spjaldtölva að aukast Karl Björnsson, framkvæmda- stjóri Sambands íslenskra sveitarfé- laga, segir notkun spjaldtölva vera að færast í vöxt meðal sveitarstjórna landsins og segir þróunina vera já- kvæða. „Menn eiga auðvitað að nýta sér þá tækni sem er fyrir hendi og njóta skilvirkninnar sem hún hefur upp á að bjóða. Þetta hefur verið notað af stjórnum nokkurra lífeyrissjóða og gengið vel,“ segir Karl. Samkvæmt upplýsingum sem fengust frá Reykjavíkurborg leggur borgin hverjum borgarfulltrúa til al- mennan skrifstofubúnað, þar með talda fartölvu. Spjaldtölvuvæðing innan borgarstjórnarinnar hefur verið til umræðu í einhvern tíma með það í huga að gera fundi borg- arinnar pappírslausa en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort af spjaldtölvukaupum verði. Þingmenn fá allir spjaldtölvu Allir alþingismenn fengu afhenta spjaldtölvu sl. haust í tengslum við verkefnið pappírslaus nefndarstörf. Samkvæmt upplýsingum frá Alþingi hefur nýjungin reynst vel og hefur töluvert dregið úr prentun frá því að verkefnið fór af stað. Spjaldtölv- urnar eru ekki eingöngu notaðar við nefndarvinnu heldur kjósa margir að nýta sér þær við almenn þing- störf. Í gegnum árin hefur Alþingi ekki látið sitt eftir liggja þegar kemur að því að fylgja tækniþróun og var Ís- land eitt fyrsta landið í heiminum til að sýna beint frá þjóðþingi sínu. Stjórnsýslan spjaldtölvuvæðist  Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur ákveðið að kaupa spjaldtölvur fyrir sveitarstjórnarmenn  Spjaldtölvuvæðing Alþingis hefur gefið góða raun Morgunblaðið/Styrmir Kári Spjaldtölvur Stjórnsýsla landsins virðist fylgja tækninni vel eftir. Laugardaginn 28. júní verður efnt til helgigöngu í þjóðgarðinum Snæ- fellsjökli í samstarfi við Ingjalds- hólssókn og starfshóp þjóðkirkj- unnar um helgistaði á föruleiðum. Gengið verður frá Öndverðarnesi að Gufuskálum. Mæting er við Ingj- aldshólskirkju kl. 13 og ekið út á Öndvarðarnes þar sem fyrsta helgi- stundin verður haldin. Þaðan verð- ur gengið í áföngum eftir strönd- inni að Gufuskálum, ýmist í þögn eða samræðum. Áð verður reglu- lega, haldnar stuttar helgistundir og sagðar sögur af merkum atburð- um, minnisstæðu fólki, helgisagnir og þjóðlegur fróðleikur sem tengist leiðinni og lífi fólks að fornu og nýju. Göngufólk les ritningarorð og fornsögutexta. Eftir gönguna verður boðið upp á kaffisopa í safnaðarheimili kirkj- unnar á Ingjaldshóli. Allir eru vel- komnir í gönguna. Helgiganga á Snæfellsnesi Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi · Sími 535 4300 · axis.is Opnunartími: mán. - fös. 9:00 - 18:00 Lauf Fjölnota skeljastóll Sturla Már Jónsson Húsgagna- og innanhússarkitekt hannaði LAUF

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.