Morgunblaðið - 27.06.2014, Qupperneq 12
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Stefnt er að því að ljúka fram-
kvæmdum við Norðurturninn, fjórt-
án hæða skrifstofuturn við Smára-
lind, næsta vor. Tólf skrifstofuhæðir
verða í turninum og verður hver um
sig um þúsund fermetrar. Þá verða
tvær hæðir tengdar við verslunar-
miðstöðina Smáralind. Eins og sjá
má á teikningum hér á síðunni er
mikið lagt í bygginguna.
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að áform séu um
að reisa 32 hæða
turn steinsnar
frá Norðurturn-
inum, austan
Reykjanes-
brautar, og er
fyrirhuguð hæð
risaturnsins hér
borin saman við
nokkur þekkt há-
hýsi á höfuðborg-
arsvæðinu. Tekið
skal fram að hönnun risaturnsins er
ekki lokið.
Ríkharð Ottó Ríkharðsson, fram-
kvæmdastjóri Norðurturns hf., seg-
ir eftirspurn tekna að myndast á ný
eftir svo glæsilegu skrifstofurými.
Hann segir kostnaðinn við að
ljúka framkvæmdinni trúnaðarmál.
„Við teljum að það sé markaður
fyrir svona húsnæði. Það hefur ekk-
ert verið byggt af nýju húsnæði í
þessum gæðaflokki frá hruni. Við
teljum að mörg fyrirtæki séu að
hugsa sér til hreyfings og að þetta
hljóti að vera góður kostur fyrir
stöndug fyrirtæki sem vilja vera í
vönduðu húsnæði.“
Framkvæmdir við turninn hófust
2007 og fór verkefnið á ís við efna-
hagshrunið 2008. Það hófst á ný í
ágúst í fyrrasumar og er nú verið að
steypa þrettándu hæðina.
Fyrstu hæðirnar í turninum stóðu
árum saman ókláraðar.
Leiguverðið á uppleið
Ríkharð segir aðspurður að leigu-
verð á atvinnuhúsnæði sé að hækka.
„Ég held að leiguverðið sé aðeins
að braggast og hækka. Það á samt
enn nokkuð í land með að vera nógu
hátt til að það sé arðbært að byggja
svona húsnæði frá grunni. Þetta
verkefni snýst um að ljúka því sem
hafið var. Væri verkefnið verðlagt
frá grunni væri nokkuð í land með
að leigan væri orðin nógu há.“
Gengið var frá leigusamningi við
Regin um leigu á fyrstu tveimur
hæðum hússins og hefur Baðhúsið
komið sér fyrir á annarri hæðinni.
Sú hæð er beintengd Smáralind.
Eigandi hússins er Nýr Norður-
turn hf. (NNT) en á vef félagsins
kemur fram að það sé m.a. í eigu
Glitnis, Íslandsbanka, Trygginga-
miðstöðvarinnar, Lífeyrissjóðs
verkfræðinga og Hjúps ehf., dóttur-
félags Byggingarfélags Gylfa og
Gunnars, sem einnig sér um allar
framkvæmdir. Segir Ríkharð að tvö
önnur félög eigi smærri hlut.
Hann segir aðspurður að Fast-
eignafélag Íslands hafi ýtt verkefn-
inu úr vör á sínum tíma en Saxbygg
og Glitnir voru meirihlutaeigendur í
því félagi. Smáralind var dóttur-
félag Fasteignafélags Íslands og var
félagið sem var að baki turninum
systurfélag Smáralindar.
Vakin er athygli á kóðanum hér
til hliðar.
Norðurturninn vígður næsta vor
Framkvæmdastjóri Norðurturnsins telur eftirspurn að skapast á ný eftir glæsilegu skrifstofurými
Stöndug fyrirtæki vilji vandað húsnæði Risaturn, austan Norðurturnsins, yrði allt að 152 metrar
Nokkrar af hæstu byggingum landsins*
Skrifstofuturnar og Hallgrímskirkja
*Önnur mannvirki, svo sem útvarpsmöstur, eru hér undanskilin.
**Óvíst hvort innréttuð verði 15. hæð. ***Hér er klukkuloftið ekki talið með.
Hús
verslunarinnar
54 m • 15 hæðir
Skuggahverfi,
miðturn
63 m • 20 hæðir
Grand hótel
65 m • 13-14 hæðir
Norðurturninn
68 m • 14 hæðir**
Höfðatorgsturn
70 m • 19 hæðir
Hallgrímskirkja
74,5 m • 9 hæðir***
Turninn
78 m • 20 hæðir
Risaturninn
151,5 m • 32 hæðir
Fullbyggt Fullbyggt Fullbyggt Fullbyggt Fullbyggt FullbyggtÍ byggingu Í hönnun
Heimildir: Vísindavefurinn, Hallgrímskirkja, 101skuggi.is, Norðurturn hf., Hús verslunarinnar, gagnasafn Morgunblaðsins, vefsíður.
Morgunblaðið/Þórður
Nýr turn rís við Smáratorg Búið er að steypa 13 hæðir af turninum.
Skýjum ofar Útsýni verður yfir allt höfuðborgarsvæðið frá efstu hæðum.
Teikningar/KRark/Kristinn Ragnarsson arkitekt
Íburður Svona mun móttökurýmið líta út í Norðurturninum í Kópavogi.
Ríkharð Ottó
Ríkharðsson
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2014
ÁLÞAKRENNUR
Viðhaldslitlar
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu
er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0.9 mm áli og tærast ekki,
ryðga né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, gráar, rauðbrúnar og ólitaðar.
Seljum einnig varmaskiptasamstæður, loftræstistokka og tengistykki.
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202
Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is
www.hagblikk.is
HAGBLIKK ehf.
Hinn 17. apríl 2007 tók Gunnar Ingi
Birgisson, þáverandi bæjarstjóri í
Kópavogi, fyrstu skóflustunguna að
Norðurturninum við Smáralind.
Fram kom í frétt Morgunblaðsins
af þessu tilefni að reiknað væri með
að steypuvinna við undirstöður
Norðurturnsins myndi hefjast um
miðjan maí 2007 og að uppsteypu
hússins myndi ljúka vorið 2008.
Áætlað var að öllum fram-
kvæmdum utanhúss yrði lokið í
október 2008 og að byggingin yrði
fullbúin og tekin í notkun vorið
2009. Þegar byggingin yrði tekin í
notkun myndu 300-500 manns
vinna í turninum.
Hinn 5. nóvember 2008 sagði í
Morgunblaðinu að búið væri að
reisa bílakjallara og fjórar hæðir.
Byggingarkostnaður var áætlaður
um sex til sjö milljarðar. Það er
framreiknað 7,7-9 milljarðar króna.
Vinnustaður
fyrir 300-500
manns
Skannaðu kóðann
til að sjá kynningu
á Norðurturni.