Morgunblaðið - 27.06.2014, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 27.06.2014, Qupperneq 16
Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is Undanfarin ár hafa tugir þúsunda sótt garðyrkju- og blómasýninguna „Blóm í bæ“ sem haldin verður í Hveragerði um helgina. Þetta er í fimmta sinn sem sýningin er haldin en hún hefst formlega klukkan 16 í dag. Sýningin er fjölskyldumiðuð og ætti fólk á öllum aldri að finna eitt- hvað við sitt hæfi. Fjöldi viðburða verður á sviði garðyrkju, umhverf- ismála, skógræktar og íslenskrar framleiðslu en sýningar, markaðir og fræðsla verða alla sýningardag- ana. Þétt dagskrá Þema sýningarinnar í ár verður „regnboginn“ og taka skreytingar og keppnir hátíðarinnar mið af því. Þétt dagskrá verður svo í boði alla helgina en þar má nefna sirkus, leik- tæki og alls kyns uppákomur fyrir yngri kynslóðina. Sölu- og sýning- arsvæði verður á sýningunni en fjöl- margir einstaklingar og fyrirtæki munu sýna þar og selja vörur sínar. „Sýningin verður að mestu haldin utan dyra en svæðið í kringum grunnskólann, lystigarðurinn og stór partur af miðbænum er und- irlagður skreytingum. Þetta eru um 40 blómaskreytar sem bera þungann af vinnunni og sjá um skreyting- arnar og smíðavinnuna. Þeir voru mættir snemma á miðvikudags- morgun en öll blóm og allt hráefni sem fer í undirbúning kemur frá garðyrkjubændum. Þetta verður heilmikil dagskrá og við hvetjum fólk til að mæta,“ segir Elínborg María Ólafsdóttir, framkvæmda- stjóri sýningarinnar. Um 40 blómaskreytar undirbúa Garðyrkju- og blómasýningu  Fjölskyldumiðuð sýning við allra hæfi í Hveragerði  Að mestu haldin utan dyra  Regnboginn þemað í ár Blómaskreytingar Garðyrkju- og blómasýningin „Blóm í bæ“ verður haldin í fimmta sinn um helgina. Fyrri sýn- ingar hafa notið mikillar hylli og fjöldi gesta sótt hátíðina heim. Hér sjást fallegar plöntur frá sýningunni í fyrra. 16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2014 KOLAPORTIÐ kolaportid.is Einstök stemning í 25 ár Opið laugardaga og sunnu daga frá kl. 11-17 Djasshátíð Egilsstaða fer fram á morgun, laugardag, í Sláturhúsinu, menningarmiðstöð á Egilsstöðum. Um elstu djasshátíð á Íslandi er að ræða en hún hefur verið haldin síðan árið 1988 og er orðin fastur liður í tónleikahaldi á Austurlandi. Hátíðin er með breyttu sniði í ár en í staðinn fyrir að halda hana á þremur stöðum, eins og undanfarin ár, fer hún fram á einum stað á einu kvöldi. Þeir sem koma fram í ár eru: Rhytmefor með Hugo Hilde á fiðlu og Garðar Eðvalds á saxófón; Dútl sem spilar blöndu af rokki, djassi og blús; Georgy & Co sem er splunku- nýtt band með frumsamið efni; AT Nordic Quartett sem flytur frábær- an norrænan djass; og KK band með Kristján Kristjánsson, KK, í far- arbroddi. Hátíðinni verður lokað með tónleikum íslensku hljómsveit- arinnar Kaleo úr Mosfellsbæ sem hefur heldur betur vakið athygli landsmanna að undanförnu með lög- um eins og „Vor í Vaglaskógi“, „Au- tomobile“ og „I walk on water“. Árni Ísleifs, stofnandi hátíðar- innar, setur Djasshátíð Egilsstaða sem hefst klukkan 17 og stendur til miðnættis. Morgunblaðið/Eggert Djass KK band er meðal þeirra hljómsveita sem koma fram á djasshátíðinni. Djasshátíð Egilsstaða haldin í Sláturhúsinu Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is Skagfirskir lummudagar verða haldnir í sjötta skiptið á Sauð- árkróki um helgina en þeir hófust formlega með setningarhátíð við heimavist Fjölbrautaskóla Norður- lands vestra í gær. Í dag hefst dag- skráin á ratleik kl. 14:30 við sund- laug Sauðárkróks. Sápubolti, götugrill og loftboltamót þar sem risastórir loftboltar koma við sögu taka svo við þegar lengra líður á dag- inn en kvöldið endar á uppistandi með Pétri Jóhanni í Mælifelli. Dagskráin á laugardeginum er ekki í verri kantinum en þar má nefna götumarkað með helling af skemmti- legum vörum. Hoppukastali og tón- listaratriði verða á svæðinu fyrir börnin og að sjálfsögðu verða lummur í boði á hinum ýmsum stöðum. Kvöld- ið endar svo á balli í Mælifelli með DJ Óla Geir, Steinda Junior og Bent en aldurstakmark á ballið er 18 ár. Risastórir loftboltar á Sauðárkróki  Lummudagar haldnir í sjötta skipti Lummustuð Skagfirskir lummudagar verða haldnir í sjötta skiptið á Sauðárkróki um helgina. Helgarferðin – áhugaverðir áfangastaðir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.