Morgunblaðið - 10.09.2014, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2014
Atvinnuhúsnæði
Til leigu skrifstofuherbergi í 104
Rvk. Securitas- öryggiskerfi.
Tölvulagnir. Góð samnýting.
Uppl. í síma 896 9629.
Geymslur
Ferðavagnageymsla Borgarfirði
Geymum tjaldvagna, fellihýsi, hjól-
hýsi, báta og fleira í upphituðu rými.
Gott verð. Sími 899 9339
Sólbakki
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Nýkomið
Túnikur st. 12-58
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Bílar
Til sölu Toyota Prius, Plug in
Rrafmagns og hybrid bíll, árg. 2012.
Mjög vel með farið eintak.
Verð tilboð.
Upplýsingar í síma 863-7656.
2010 Skoda Octavia 1,9 L Diesel
á svipuðu verði og aðrir setja á meira
ekinn 2008 bíl. Hann er ekinn 96 þús.
km. með þjónustubók og lítur mjög
vel út. Tilboðsverð 2.225.000.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Bílaþjónusta
Bryngljáatilboð í september
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
Smáauglýsingar
Kveðja til
tengdadóttur
Ég sendi þér kæra
kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
Sigurbirna
Árnadóttir
✝ SigurbirnaÁrnadóttir
fæddist 3. mars
1948. Hún andaðist
19. ágúst. sl. Sigur-
birna var jarð-
sungin 30. ágúst
2014.
þín veröld er björt á
ný.
Ég þakka þau ár sem
ég átti
þá auðnu að hafa þig
hér,
og það er svo margs að
minnast
svo margt sem um hug
minn fer,
þó þú sért horfinn úr
heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Hjördís
Guðmundsdóttir.
✝ Arinbjörnfæddist 22. maí
1932 á Efstu-Grund
undir Eyjafjöllum,
sonur Guðmundar
Björnssonar verka-
manns frá Efstu-
Grund og Guð-
mundu Ágústs-
dóttur úr Skaga-
firði. Kona Arin-
bjarnar var Ragn-
heiður Bryndís
Jónsdóttir og börn þeirra eru
Kristjana, f. 1961 og Guðmundur
Oliver, f. 1962. Ar-
inbjörn var einn af
kunnustu skák-
mönnum Íslendinga
á árunum 1955-1970
og tefldi á mörgum
Ólympíumótum.
Hann var renni-
smiður að mennt og
vann lengi í Land-
miðjunni og síðar í
Búnaðarbankanum.
Hann fluttist til
Ástralíu með fjölskyldu sína árið
1970 og lést þar 4. ágúst 2014.
Arinbjörn var um árabil einn
sterkasti skákmaður Íslendinga.
Árið 1970 flutti hann til Ástralíu
með fjölskyldu sína. Mikil eftirsjá
var að Arinbirni. Hann auðgaði ís-
lenskt skáklíf með frábærri tafl-
mennsku sinni og var vinsæll
meðal vina sinna og kunningja.
Hann var óvenju glaðvær maður,
hnyttinn í tilsvörum og alltaf stutt
í glettinn og gáskafullan hlátur.
Skaphöfn hans einkenndist af
samviskusemi, trausti, vandvirkni
og hjálpsemi. Orðvar var hann og
vinfastur. Arinbjörn tefldi nokkr-
um sinnum á Ólympíuskákmótum
fyrir Íslands hönd. Á Ólympíu-
mótunum 1960 og 1962 tefldi hann
á 1. og 2. borði með óvenjulegum
árangri. Í þessum mótum tapaði
hann aðeins einni skák af um þrjá-
tíu. Tekið var eftir þegar ung-
verski stórmeistarinn Szabo bauð
Arinbirni jafntefli í erfiðu hróka-
endatafli. Szabo var frægur enda-
taflsmaður og einn af fáum sem
stóðu Sovétmönnum á sporði á
þessum árum. Ungverski þjálfar-
inn skammaði Szabo fyrir að gera
jafntefli við óþekktan skákmann,
en Szabo svaraði: „ Ég get ekki
teflt við þennan mann, ég bara
tapa þessu.“ Þegar Fischer kom
til Íslands 1960 neitaði hann að
tefla í móti hér nema Arinbjörn
væri meðal þátttakenda. Fischer
vann í frægri skák og birti skákina
með sínum skýringum í bók sinni
um minnisverðustu skákir sínar.
Þar benti Fischer á að Arinbjörn
hefði getað leikið 16. Db3 og hald-
ið jafntefli. Á sjúkrasæng
skömmu fyrir andlát sitt rifjaði
Arinbjörn upp skákina án þess að
hafa skákborð við höndina. Hann
fann þá leikinn 16. Dd1. Daði
Jónsson keyrði leikinn gegnum
sterka skáktölvu sem komst að
þeirri niðurstöðu að leikur Arin-
bjarnar væri sá besti. Taldi Daði
þetta benda á hversu sterkur
skákmaður Arinbjörn væri eftir
áratugahlé frá skákinni. Þannig
mætti lengi telja. Um 1970 óskuðu
Ástralar eftir innflytjendum. Ar-
inbjörn fór. Hann var rennismiður
að mennt og vann lengi slíkur
langan vinnudag. Síðar vann hann
í Búnaðarbankanum en gerði við
bíla og vinnuvélar á kvöldin.
Þreyttur var hann því oft og
óþjálfaður þegar hann tefldi.
Hann sá að hann gat ekki helgað
skákinni þann tíma sem hann vildi
og hvarf á braut. Um hann mætti
nota orð skáldsins:
Þú reyndir hvert hugur og
harðfylgi ná
þótt hendurnar tvískiptar vinni.
Að brjóta með annarri braut sinni þrá
en berjast við lífið með hinni.
(Þorsteinn Erlingsson)
Foreldrar hans voru Guðmund-
ur Björnsson og Guðmunda
Ágústsdóttir. Bræður Arinbjarn-
ar eru Eyþór og Ásmundur. Kona
Arinbjarnar var Ragnheiður
Jónsdóttir og börn þeirra Krist-
jana og Guðmundur Oliver.
Enn lifa í hugum vina hans
hnyttin tilsvör hans.
Ég minnist margra ánægju-
stunda með Arinbirni og sakna
hans. Vona að handan móðunnar
milu eigum við eftir að hittast og
raða upp í skák. Sé fyrir mér
glettnina í augum hans og heyri
snjallar og glaðlegar athugasemd-
ir.
Ragnheiði og börnum hans,
ættingjum og vinum sendi ég
samúðarkveðjur. Genginn er góð-
ur vinur og minningin um hann
styrkir okkur á veginum fram-
undan um „ófarið örstutt ævi-
skeið“.
Guðmundur G. Þórarinsson
Arinbjörn
Guðmundsson
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Minningargreinar
Kveðja frá
Vestfirðinga-
félaginu.
Kveðju mína og kærleiksband,
í kvæði vil ég hér bjóða,
öllum þeim um Ísaland
sem eru í því samhljóða,
Guð, lofa fyrir hið góða,
einkum þó ég voga vil
Vestfirðinga að nefna til,
fróma og fróða.
(Ólafur Jónsson,
prestur á Söndum í Dýrafirði)
Um leið og Vestfirðingafélagið
þakkar Halldóru vel unnin störf,
kveðja félagarnir hana með virð-
ingu og þökk. Hvíl í friði, okkar
kæra.
Syrgjendum vottum við okkar
dýpstu samúð.
F.h. Vestfirðingafélagsins,
Hrund Ýr Óladóttir,
formaður.
Hinn 8. maí 1954 var opnuð
skrifstofa „fyrir starfsemi
krabbameinsfélaganna í húsnæði
Blóðbankans við Barónsstíg“,
segir í Fréttabréfi um heilbrigð-
ismál. „Ein stúlka, Halldóra
Thoroddsen, var ráðin þar allan
Halldóra
Thoroddsen
✝ Halldóra Ólafs-dóttir Thor-
oddsen fæddist 17.
desember 1927.
Hún andaðist 28.
ágúst 2014. Útför
Halldóru fór fram
8. september 2014.
daginn til að annast
Krabbameinsskrán-
inguna og aðra
starfsemi félag-
anna.“ Þetta var
upphaf samfylgdar
Halldóru og
Krabbameins-
félagsins. Hún var
starfsmaður félags-
ins til 1997 eða í 43
ár, lengst af sem
framkvæmdastjóri,
en síðustu árin sem aðalgjald-
keri. Á starfstíma Halldóru voru
sex formenn. Hún var kjörin í
heiðursráð Krabbameinsfélags-
ins á 50 ára afmæli þess árið
2001.
Segja má að Halldóra og félag-
ið hafi verið eitt allan þennan
tíma. Hún vann félaginu af trú-
mennsku, var kjölfestan í starf-
inu og mjög gætin í fjármálum,
sem ekki veitti af. Halldóra átti
þátt í að byggja upp það mikla
traust sem Krabbameinsfélagið
hefur notið.
Starfsmenn Krabbameins-
félagsins minnast Halldóru með
mikilli hlýju, virðingu og söknuði.
Hún markaði djúp spor í sögu
Krabbameinsfélagsins með störf-
um sínum, og hafði jafnframt
mikil áhrif á samstarfsfólk sitt
með framlagi sínu. Síðustu árin
mætti hún gjarnan í Skógarhlíð-
ina við hátíðleg tækifæri, og var
öllum ljóst að hún var þar mikill
aufúsugestur.
Fyrir hönd stjórnar og starfs-
manna Krabbameinsfélagsins vil
ég þakka Halldóru fyrir að helga
félaginu starfskrafta sína alla
sína starfsævi. Blessuð sé minn-
ing hennar.
Ragnheiður Haraldsdóttir,
forstjóri Krabbameinsfélags
Íslands.
Ævistarf Halldóru Thorodd-
sen var samofið starfsemi
Krabbameinsfélagsins í nær
hálfa öld. Hún var í upphafi ráðin
til að sinna skrifstofustörfum,
bóhhaldi og fjármálum félagsins
auk þess að skrá krabbamein,
sem greindust hér á landi. Með
vönduðu og tryggu framlagi átti
Halldóra ríkan þátt í að efla og
þróa verksvið og mikilvægi
Krabbameinsfélagsins og leggja
ásamt öðrum grunninn að
Krabbameinsskránni, en hún er
meðal hinna vönduðustu, sem
þekkjast. Halldóra sá starfið efl-
ast frá því að rúmast í einu her-
bergi í húsi Rannsóknastofu Há-
skólans og Blóðbankans við
Barónsstíg yfir í fimm hæða stór-
hýsi við Skógarhlíð þar sem allt
pláss er gjörnýtt fyrir hina viða-
miklu starfsemi félaganna.
Halldóra var kraftmikil og
dugleg kona, einstaklega trú sín-
um vinnustað og vinum. Oft var
þröngt í búi og stundum vandséð,
hvernig unnt væri að láta enda
mætast á mánaðamótum. Það var
ekki sízt fyrir útsjónarsemi og
vönduð vinnubrögð Halldóru og
samstarfsmanna hennar að
traust og velvilji meðal þjóðar-
innar gagnvart Krabbameins-
félaginu varð til þess að auðvelda
fjáröflun í formi happdrættis,
minningarkorta og erfðagjafa og
margvíslegs annars stuðnings,
sem náði hámarki með þjóðar-
átaki árið 1982 þar sem safnað
var, um eina helgi, fyrir húsinu í
Skógarhlíð.
Ég tel það mikið lán að hafa
fengið að kynnast og starfa með
Halldóru Thoroddsen. Hún gat
verið ákveðin og stóð iðulega fast
á sínu en jafnframt var hún rétt-
sýn, sanngjörn, jafnan skemmti-
leg og stóð ætíð við orð sín. Hún
var íþrótta- og útivistarkona,
hafði unun af hestamennsku,
áhugasöm um menningu og þjóð-
félagsmál. Hún var einn af mátt-
arstólpum Krabbameinsfélags-
ins.
Halldóru Thoroddsen verður
sárt saknað en minningin um
góðan vin geymist. Blessuð sé
minning hennar. Aðstandendum
votta ég samúð mína.
Sigurður Björnsson, læknir,
fv. formaður Krabbameins-
félags Íslands.
Krabbameinsfélagið var stofn-
að um miðja síðustu öld og hóf
starfsemi sína í Suðurgötunni.
Halldóra Thoroddsen var meðal
fyrstu starfsmanna þess, til-
heyrði frumkvöðlunum. Af þess-
um frumkvöðlaanda miðlaði hún
okkur sem stóðum fyrir nýrri
starfsemi í nýju húsnæði
Krabbameinsfélagsins í Skógar-
hlíðinni, en þar var Rannsókna-
stofa í sameinda- og frumulíf-
fræði stofnuð árið 1988. Eftir 20
ára starf fluttist starfsemin til
Læknadeildar Háskóla Íslands.
Þá var Halldóra komin á eftir-
laun, en hún sýndi störfum okkar
virkan áhuga fram á síðasta dag
og ræddi við okkur í síma fyrir
nokkrum dögum um það hvernig
styrkja mætti starf okkar. Og
enn var sama skerpan í samtal-
inu sem við þekktum svo vel. Við
kveðjum Halldóru Thoroddsen
með virðingu og þökk.
Helga M. Ögmundsdottir
og Jórunn Erla Eyfjörð.
Margrét
Gunnarsdóttir
✝ Margrét Gunn-arsdóttir fædd-
ist 23. janúar 1965.
Hún lést 23. ágúst
2014. Útför Mar-
grétar fór fram 1.
september.
í huga. Við ætluð-
um að eiga svo
margar skemmti-
legar stundir í
framtíðinni, hvort
sem það var í litla
Peru-matarklúbbn-
um okkar eða í
sameiginlegum
Peru-útilegum.
Sem hluti af vina-
hópi okkar sem
varð til fyrir rúm-
lega 13 árum var eftirtektar-
vert hvað þú varst alltaf glöð
Elsku Magga
okkar.
Líf okkar er
ekki gefið og það
ber að þakka. Þeg-
ar við kveðjum góða vinkonu á
besta aldri kemur okkur margt
og kát og naust lífsins og til-
verunnar. Við eigum yndis-
legar minningar um fallega
konu sem við varðveitum í
hjörtum okkar. Við tókum
sérstaklega eftir því hversu
jákvæð þú varst og hversu
góð þú varst við hann Gunna
þinn. Hann gekk í gegnum
erfið veikindi þar sem þú
stóðst sem klettur við hlið
hans. Það er því sárt að
hugsa til þess að svipuð veik-
indi skuli hafa náð tangar-
haldi á þér, haldi sem ekki
fékkst við ráðið.
Megir þú hvíla í friði, elsku
Magga okkar. Við munum
hugsa vel um hann Gunna
þinn og styðja hann á þessum
erfiðu tímum sem framundan
eru og í náinni framtíð.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um huga minn fer,
þó þú sért horfin úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Matthías og Eyrún,
Árni og Elín, Guð-
mundur og Þorgerður.