Morgunblaðið - 10.09.2014, Side 39

Morgunblaðið - 10.09.2014, Side 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2014 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Það eru 20 ár síðan ég fékk áhuga á þessari sögu, en þá heyrði ég um konu í Chicago sem vann við að hjálpa HIV-smituðu fólki og eitur- lyfjaneytendum í fátækrahverfum borgarinnar,“ segir Þorsteinn J. um heimildarmynd sína Ó borg mín borg Chicago sem frumsýnd verður í Ríkissjónvarpinu í kvöld kl. 22.20 og endursýnd nk. sunnudag kl. 14.05. Í myndinni er sögð saga Matthildar Jónsdóttur Kelley sem fluttist ung til Chicago og sökk til botns í heimi eiturlyfja og vændis áður en hún komst á réttan kjöl fyrir um aldar- fjórðungi „Ég hitti Möttu fyrst árið 1993 þegar við Einar Falur Ingólfs- son ljósmyndari eyddum nokkrum dögum með henni og úr varð útvarps- þátturinn So What? sem og blaða- grein,“ segir Þorsteinn og rifjar upp að Matthildur hafi aldrei horfið úr huga hans. „Ég hef í gegnum árin fylgst með henni og heyrt reglulega í henni. Þegar ég frétti af því að hún væri að fara á eftirlaun í fyrra langaði mig til að gera aðra heimildarmynd og tengja saman þessa tvenna tíma til að sjá hvað hefði gerst og mögulega breyst á þessum árum.“ Vinnur við erfiðar aðstæður Að sögn Þorsteins hefur lífsstarf Matthildar aðallega falist í því að gefa fólki von þar sem ekkert nema von- leysi sé að finna. „Matta er ótrúleg manneskja með stóra og mikla hug- sjón. Það að hafa unnið svona lengi við þessar erfiðu aðstæður í þessu fá- ránlega hættulega hverfi sem West Side Chicago er, segir mjög mikið um hennar karakter. Á umliðnum árum hefur Matta snert líf mjög margra,“ segir Þorsteinn og tekur fram að þar sem Matthildur sjálf sé afar hógvær hafi hann fyrst og fremst heyrt um afrek hennar frá samstarfsfólki hennar. „Matta hefur bjargað mörg- um mannslífum og gefið mörgum von. Það finnst mér nógu merkilegt til að gera 60 mínútna heimildar- mynd, því okkur veitir ekki af sögum um von og úrræði þar sem við erum oft föst í því að horfa aðeins á það sem miður fer.“ Spurður hvað drífi Matt- hildi áfram í starfi hennar segir Þor- steinn ljóst að hún sé drifin áfram af elsku og væntumþykju gagnvart fólki sem enginn kæri sig um. „Hún sér í þessu fólki eitthvert ljós sem flestir sjá ekki og hefur raunverulegan áhuga á því að gera gagn.“ Spurður hvort Matthildur sé búin að sjá myndina og hvernig viðbrögð hennar hafi verið segir Þorsteinn að hún hafi verið mjög ánægð með útkomuna. „Og mér þótti afar vænt um það. Þeg- ar maður gerir mynd eins og heimild- armynd þá eru í raun margar sögur í gangi og best þegar myndir eru í mörgum lögum. Ég er mjög ánægður með hvernig mér hefur tekist að tvinna saman þessa tvenna tíma og láta þá renna saman í eina sögu með mörgum undirsögum,“ segir Þor- steinn og tekur fram að hann hafi varið sl. sex mánuðum í að klippa myndina og koma henni saman í sam- vinnu við aðra fagmenn. Þannig samdi Pétur Grétarsson tónlistina, Gunnar Árnason annaðist hljóð- vinnslu og Bjarki Guðjónsson sá um litaleiðréttingu. „Það var að mörgu að huga þannig að myndin liti rétt út og hljóðheimurinn væri réttur, því það er ekki nóg bara að finna áhugaverða sögu og klippa hana saman. Verkið þarf að standa sem sjálfstætt lista- verk,“ segir Þorsteinn að lokum. „Hún hefur gefið mörgum von“  Ný heimildarmynd eftir Þorstein J. frumsýnd í kvöld Ljósmynd/Einar Falur Ingólfsson Hugsjónastarf Lífsstarf Matthildar Jónsdóttur Kelley er til umfjöllunar í heimildarmynd Þorsteins J. sem nefnist Ó borg mín borg Chicago. Sífellt fjölgar upplýsingum um Cornelius Gurlitt, þýska listaverkasafnarann sem faldi yfir 1400 listaverk á heimilum sínum í Þýskalandi og Austurríki en lést á sjúkrahúsi í desember síðastliðnum, rúm- lega átttræður að aldri. Samkvæmt hópi rannsakenda sem vinna að því að rekja eigendasögu verkanna sem voru í fórum Gurlitts, með það að leiðarljósi að skila þeim til réttra eigenda ef þau hafa verið ránsfengur nasista, þá tók Gurlitt óvenjulegan farangur með sér á sjúkra- húsið þegar hann lagðist banaleguna. Í ljós kom að í ferðatösku hans var málverk á pappír af fólki og bátum á strönd, eftir franska meistarann Claude Monet. Í sjúkrahúsinu var töskunni fyrst komið í geymslu eftir að hann lést en hún hefur nú verið send til rannsakendanna. Verk eftir Monet líkt því í töskunni. Tók verk eftir Monet með á sjúkrahúsið Um leið og sýning á málverkum frá síðustu árum ferils breska listmál- arans J.W.M. Turner (1775-1851) var opnuð í Tate Britain-safninu í London, var opnuð þar sýning á nýjum verkum eftir Ólaf Elíasson og kallast Turner Colour Experi- ments. Gagnrýnendur hafa lofað sýn- inguna á verkum Turners en þau nutu lítils skilnings samtímamanna hans. Gagnrýnandi The Telegraph fjallar um sýningu Ólafs og segir það vel valið hjá sýningarstjórum að stilla verkum hans upp með verkum Turners. Málverk Turners leysist nær því upp í tvívíða ab- strakt könnun á litum, birtu og and- rúmslofti en stór verk Ólafs taki við þessum sömu hugmyndum og bygg- ist á rakatækjum, speglum og ann- arri hrífandi tækni til að fanga huga gesta með leiðum sem Turner hefði aldrei getað ímyndað sér. Verkin byggjast á litahringnum og litunum í sjö málverkum eftir Turn- er sem hafa verið útfærð í jafn- mörgum hringlaga verkum. Gagnrýnandinn gefur sýning- unni þrjár stjörnur og segir hana lágstemmda við hlið margra fyrri verka Ólafs, svo sem fossanna í New York og glerhjúps Hörpu í Reykjavík. Listamaðurinn Ólafur Elíasson. Verk Ólafs í Tate Britain með Turner Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ fi p y j g p C p i ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam Villibráðar-paté prikmeð pa Bruchetta tarsmeð tvíreyktu hangikjöti, balsamrauðlauk og piparró Bruchetta með hráskinku, balsam nmog grill uðu Miðjarðarhafsgræ - salat skufer ðbo arðameð Miðj kjRisa-ræ með peppadew iluS ajónmeð japönsku m het Hörpuskeljar má, 3 s Frönsk súkkulaðikaka skum/rjóma og fer Vanillufylltar vatnsdeigsbollur arbSúkkulaðiskeljar með jarð Kjúklingur-satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti R ahörpuskel maríneruð á pinna Túnfiskur í sesamhjúp á spjóti mSími 511 8090 • www.yndisauki.is Veitingar fyrir öll tækifæri, stór og smá, fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Markmið okkar er alltaf það sama, glæsilegar veitingar og ómótstæðilegt bragð. Persónuleg og góð þjónusta. ★★★★ – SGV, Mblamlet Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is Róðarí (Aðalsalur) Þri 16/9 kl. 20:00 Sun 28/9 kl. 20:00 Sun 12/10 kl. 20:00 Mið 24/9 kl. 20:00 Lau 4/10 kl. 20:00 Kameljón (Aðalsalur) Fös 12/9 kl. 20:00 Lau 27/9 kl. 20:00 Sun 21/9 kl. 20:00 Sun 5/10 kl. 20:00 Trúðleikur (Aðalsalur) Sun 14/9 kl. 14:00 Sun 28/9 kl. 14:00 Sun 21/9 kl. 14:00 Sun 12/10 kl. 14:00 Petra (Aðalsalur) Fim 11/9 kl. 20:00 GOOD/BYE (Aðalsalur) Lau 20/9 kl. 20:00 Blái hnötturinn (Aðalsalur) Fim 18/9 kl. 18:00 Fös 19/9 kl. 18:00

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.