Morgunblaðið - 01.10.2014, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 01.10.2014, Qupperneq 11
Nóg að gera Sigurður Þór og Ágúst Sigurjónsson svíða fýlinn. um og hann getur valdið miklum magaverkjum hjá þeim sem borða hann. Þetta var kallað fýlaveiki í Vestmannaeyjum, því þegar klett- arnir þar fylltust af fýl upp úr alda- mótum, um 1920, þá var hann auð- vitað veiddur í massavís. En því miður var allt sett í hrúgu sem hitn- aði og Vestmannaeyingarnir sem borðuðu hann urðu fárveikir og sum- ir dóu. Fyrir vikið var bannað að veiða fýl þar í mörg ár. Talið var að fýlaveikin væri páfagaukaveiki sunnan úr höfum en seinna komust menn að ástæðunni.“ Skúmurinn réðst á hann Eftir að fuglinn hefur verið lát- inn kólna og þorna er hann reyttur, bæði dúnn og fiður. „Fuglinn sem við veiðum er ungur fugl, sá sem er að fljúga í fyrsta sinn úr hreiðri út á sjó. Það er auðvelt að ná þeim, því þetta eru þeir fuglar sem fipast í fluginu og detta niður og ná ekki að fljúga til sjávar. Vargurinn þiggur alveg að ná sér í þessa fugla, bæði minkur og tófa, en skúmurinn og kjóinn gera sér lítið fyrir og slá fugl- inn niður. Ég lenti eitt sinn í því þeg- ar ég var að veiða fýl, að þegar ég ætlaði að taka fugl sem skúmur hafði slegið niður, þá réðst hann á mig. Hann ætlaði ekki að gefa bráð sína eftir,“ segir Njörður og hlær að minningunni. Útvötnun í þrjá sólarhringa Eftir að fýllinn hefur verið reyttur er hann sviðinn, og eftir sviðninguna eru vængir, fætur og haus teknir af búknum. Síðan er tek- ið innan úr honum. Að því loknu er hann saltaður niður í tunnu. „En hann er ekkert vondur nýr, mér finnst hann sérstaklega góður eftir aðeins þriggja daga söltun. En hann geymist lengi í söltuninni, allt að heilu ári. Eina sem þarf að gera er að útvatna hann í þrjá sólarhringa áður en hann er soðinn,“ segir Njörður sem finnst fýll mikill herramanns- matur. Hann segir mikla stemningu í kringum hina árlegu veiði og verkun fýls- ins á haustin. „Fólk á öllum aldri kemur saman til að gera að fýlnum, hjá okkur er þetta fjölskylda og vinir og það er gaman, handagangur í öskj- unni. Við gerum þetta fyrir ánægjuna og til að viðhalda hefð- inni og kunnáttunni. Ég veit að stór- fjölskyldur koma víða saman í fýla- veislur þar sem allir gæða sér á góðgætinu.“ Sviðnir fýlar Þeir eru kannski ekk- ert augnayndi í þessu ástandi. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2014 örva sköpunargáfu yngstu símnot- endanna, og benda á tækifæri til sögumennsku og orðaleikja innan ramma smáskilaboðanna. Nú er lag fyrir ungt fólk að láta vaða. Í tilefni Lestrarhátíðar í október standa Borgarbókasafn og Vodafone fyrir örsagnasamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 10-16 ára. Dagana 1. til 26. október verður hægt að senda sögur í sms- skilaboðum í númerið 901 0500. Sögurnar mega vera að hámarki 33 orð en að öðru leyti er aðferðin frjáls. Sögu skal fylgja nafn og aldur höf- undar og teljast þær upplýsingar ekki með í orðunum 33. Vodafone gefur vegleg verðlaun sem verða veitt fyrir þrjár bestu sögurnar í byrjun nóv- ember. Markmið keppninnar er að Örsagnasamkeppni fyrir ungt fólk 10-16 ára Gaman Að semja smáskilaboðasögu. Sendið inn sögur í smá- skilaboðum viðskipti með snjöllum hugbúnaði sem nær óslitið úr stofunni heima inn í eldhús veitingastaðarins. Þegar viðskiptavinurinn hefur pantað af matseðli, á vefsíðu eða úr appi aha.is birtist pöntunin á skjá hjá veitingahúsinu og ráðstafanir eru þegar gerðar til að útvega flutning á matnum, sé heimsendingar ósk- að. Greiðsla fyrir matinn fer fram í appinu eða á vefsíðunni með debet- eða kreditkorti þannig að greiðsla er frágengin við pöntun. Hægt er að panta af matseðlum veitingastaðanna á vefsíðu aha: www.aha.is sem og í appi aha.is sem til er fyrir Android og iPhone. Nýyrðasmíð er ævin- lega ögrandi og skemmtileg og nú er heldur betur tækifæri fyrir þá sem eru frjóir og skapandi þegar kemur að tungumálinu, því þeir sem standa að vefsíðunni aha.is opn- uðu þar nýlega veit- ingaþjónustu og bráð- vantar íslenskt orð yfir mat sem flokkast undir það sem á ensku heitir „Take Away“, eða mat- ur sem fólk tekur með sér heim eða lætur senda sér heim. Ekkert nothæft íslenskt orð er til yfir þetta fyrirbæri en æ fleiri taka með sér tilbúinn mat heim. Í tilefni af opn- un veitingaþjónustunnar efnir aha.is til þessarar nýyrðasamkeppni og í verðlaun er úttekt að upphæð 50.000 kr. á veitingavef aha.is og iPhone 6. Nánari upplýsingar um leik- inn má finna inni á heimasíðu aha.is. Í tikynningu frá aha.is segir að hjá veitingaþjónustunni á aha.is gefist neytendum kostur á að velja af mat- seðlum um þrjátíu veitingastaða, sækja matinn eða fá sendan gegn gjaldi. Ný þjónusta aha.is auðveldar neytendum og veitingahúsum þessi Verðlaun í boði fyrir vinningshafa Girnilegt Hver vill ekki fá svona gómsæti heim? Ertu með hugmynd að íslensku orði yfir „Take Away“? Ofurkrútt Heldur betur krúttleg há- karlahúfa. Rómantískt umhverfi og steik eins og steik á að bragðast Barónsstíg 11 101 Reykjavík argentina.is Borðapantanir 551 9555 Mér finnst hann sér- staklega góður eftir aðeins þriggja daga söltun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.