Morgunblaðið - 01.10.2014, Page 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2014
-VOTTUÐ FRAMLEIÐSLA
Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300 www.ispan.is - ispan@ispan.is
Gler n speglar n sandblástur n slípun
Sandblásummyndir og texta á spegla,
lýsing á bakvið spegla
afmælis
afsláttur
af speglum
30%
Opið alla virka daga 08:00-17:00
Sendum um allt land
45 ára
framleiðsla
Metfjöldi tók þátt í Hjartadags-
hlaupinu sem haldið var á sunnu-
dag í áttunda sinn. Rúmlega 270
þátttakendur gátu valið um að
hlaupa 5 eða 10 km vegalengd.
Strax í kjölfar hlaupsins var
gengin Hjartaganga um Kópavogs-
dal undir leiðsögn garðyrkjustjóra
Kópavogs, Friðriks Baldurssonar.
Dagurinn er haldinn 29. september
ár hvert, en það er Alþjóðahjarta-
sambandið (World Heart Federa-
tion) sem hvetur aðildarfélög sín
um allan heim til að halda upp á
hjartadaginn. Á Íslandi sameinast
Hjartavernd, Hjartaheill, Neistinn
og Heilaheill um að halda daginn
hátíðlegan. vidar@mbl.is
Metfjöldi í
Hjarta-
dagshlaupi
Haldið í áttunda
sinn hér á landi
Hjartadagshlaup Metþátttaka var í
Hjartadagshlaupinu og 270 mættu.
WOW air mun fljúga til þriggja nýrra áfangastaða í Evr-
ópu næsta vor og bæta við flugferðum til nokkurra núver-
andi áfangastaða, að því er segir í fréttatilkynningu.
WOW air verður með sex vélar í flota sínum en var með
fjórar síðastliðið sumar.
Flogið verður til Dublin þrisvar í viku frá og með 2. júní
og verður borgin áfangastaður allt árið. Flogið verður á
þriðjudögum, fimmtudögum og sunnudögum. Róm mun
einnig bætast við flugáætlun í júlí og ágúst á föstudögum.
Og frá 12. júní verður flogið til Billund í Danmörku á
mánudögum og frá Billund á föstudögum.
Upplýsingafulltrúi Wow air, Svanhvít Friðriksdóttir,
segir að Írar leggi nú mikla áherslu á að flugvöllurinn í
Dublin sé einn besti tengiflugvöllur Evrópu til annarra
áfangastaða. Hún segir aðspurð að hjá WOW hafi menn
að sjálfsögðu tekið eftir því að Ryanair fljúgi til margra
áfangastaða frá Dublin en það hafi þó ekki verið aðal-
atriðið.
„Það var farið í óvissuferð með starfsfólkið til Dublin í
síðustu viku og allir voru mjög ánægðir með að versla
þarna,“ segir Svanhvít. „Þetta er skemmtileg borg og
þægileg. Írar eru líka hálfgerðir frændur okkar og hafa
margir áhuga á að koma hingað til lands.“
Hún segir að mjög góð sætanýting hafi verið í ferðum
til og frá Mílanó sem hafi ýtt undir að Róm var bætt við
næsta sumar.
Munu fljúga til Dublin
Morgunblaðið/Þorkell
Lífleg Margir Íslendingar fóru til Dublin í verslunarferðir fyrir bankahrun.
WOW air bætir við þremur áfangastöðum næsta sumar
Samninga-
viðræður standa
nú yfir á milli rík-
islögmanns og
fulltrúa Páls
Sverrissonar um
upphæð skaða-
bóta honum til
handa vegna þess
að læknir nýtti
sér upplýsingar
úr sjúkraskrá
hans.
Ríkið hefur viðurkennt skaðabóta-
skyldu í málinu en Hrefna Dögg
Gunnarsdóttir, lögmaður Páls, segir
að ekki hafi neinar upphæðir verið
ræddar ennþá.
Upphaf málsins var það að læknir
hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands
notaði upplýsingar úr sjúkraskrá
Páls í málsvörn sinni fyrir siðanefnd
Læknafélagsins. Upplýsingar úr
sjúkraskránni rötuðu meðal annars í
Læknablaðið og á vefsíðu félagsins,
án þess þó að nafn Páls væri nefnt.
Lögreglan og ríkissaksóknari létu
hins vegar rannsókn á uppflett-
ingum læknisins niður falla.
Persónuvernd hafnaði því á dög-
unum að taka kvörtun Páls vegna
málsins upp að nýju.
Bætur vegna
flettinga í
sjúkraskrá
Sjúkraskrár
eru viðkvæm gögn.