Morgunblaðið - 01.10.2014, Síða 18

Morgunblaðið - 01.10.2014, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Samkomulagiðsem náðist ámilli forseta- frambjóðendanna tveggja í Afganist- an, þeirra Ashrafs Ghanis og Abdullahs Abdullahs, telst til merkisviðburða í sögu landsins, þar sem það greiddi leiðina fyrir fyrstu friðsömu valdaskiptunum í Afganistan í nærri því fjörutíu ár. Verður samkomulagið að teljast tímabært, þar sem þriggja mánaða stjórnarkreppa hafði hleypt efnahag landsins í uppnám, auk þess sem ásakanir um kosningasvik á báða bóga rýrðu nokkuð gildi kosninganna fyrir heimsbyggðinni. Enn á þó eftir að reyna á hvort sú lausn, að láta Ghani fá forsetaemb- ættið og Abdullah embætti for- sætisráðherra, muni endast. Ekki var það síður tímabært verk af hinum nýja forseta að endurnýja öryggissáttmála landsins við Bandaríkjamenn og Atlantshafsbandalagið, en án þessa samkomulags hefðu hinar erlendu hersveitir þurft að yfir- gefa landið um næstu áramót. Fyrirrennari Ghanis, Hamid Karzai, hafði neitað að undirrita samkomulagið, og sagt það vera verkefni fyrir eftirmann sinn að undirrita það. Þráaðist Karzai við, jafnvel þegar ljóst var að báðir þeir sem komu til greina í forsetastólinn ætluðu sér að endurnýja samkomulagið. Virð- ist sem fátt annað hafi ráðið gjörðum Karzais en kergja hans út í vestræna herliðið, sem þó var helsta for- sendan fyrir því að Karzai héldi völd- um sínum. Tafirnar voru dýrar, því að á meðan Karzai dró það von úr viti að setja ör- yggismál landsins í fastar skorð- ur óx talibönum ásmegin. Bentu fréttir um hríð til þess að þeim kynni að takast að ná valda- taumunum í Kabúl á nýjan leik. Þegar kosningunum í vor lauk án þess að sigurvegari væri ljós nýttu þeir sér þá stöðu enn frek- ar og sóttu hart fram á svæðum, þar sem erlenda herliðsins naut ekki lengur við. Nýrrar rík- isstjórnar bíður því hið erfiða verkefni að reyna að snúa þeirri þróun við, með góðu eða illu. Ghani tilkynnti í fyrstu emb- ættisræðu sinni, að hann vildi fá talibana að samningaborðinu og semja við þá um varanlegan frið. Talibanar hafa þó ekki haft neina raunverulega hvata til þess að sækjast eftir friði. Hugsanlega gæti sú afstaða þeirra breyst nú, þegar búið er að tryggja hvort tveggja, nýja ríkisstjórn í Kabúl og áfram- haldandi veru vestræna herliðs- ins næstu tíu árin eða svo. Horf- urnar í Afganistan eru heldur bjartari nú en fyrir fáeinum vik- um og vonandi að Ashraf Ghani og Abdullah Abdullah verði far- sælli en Hamid Karzai var undir lok síns ferils. Ekki veitir af, enda bíða þeirra enn mikilvæg verkefni þó að leyst hafi verið úr þeim allra brýnustu. Afganar búa enn við nokkra óvissu}Dýrar tafir Íbúar Hong Konghafa undanfarna daga og kvöld fjöl- mennt á götur borg- arinnar. Þannig hafa þeir nýtt sér þann rétt, sem íbúar Hong Kong hafa umfram íbúa meginlands Kína, að mega efna til frið- samlegra mótmæla. Kveikjan er óánægja með tilraunir valdhafa í Peking til þess að þjarma að lýð- ræðinu í Hong Kong, sem átti að heita tryggt til ársins 2047 sam- kvæmt samningi við Breta. Lög- reglan í Hong Kong hefur brugð- ist hart við mótmælunum, og beitt táragasi til að hafa stjórn á þeim. Mótmælin hafa hlotið við- urnefnið „regnhlífabyltingin“, þar sem mótmælendur hafa beitt þeim til þess að skýla sér gegn táragasinu. Ljóst er að kínversk stjórn- völd eru í nokkrum vanda, þar sem minningin frá Torgi hins himneska friðar er enn ljóslif- andi í hugum fólks um allan heim. Xi Jinping hefur hins veg- ar sýnt það í innanflokksátökum að hann skirrist ekki við að ryðja andstæðingum sínum úr vegi og því gætu kínversk stjórnvöld metið það svo að álitshnekkirinn sem þau myndu bíða við að berja niður mótmælin í Hong Kong með of- beldi yrði minni en áhættan af því að andófsmenn heima fyrir fyndu til mátt- ar síns og tækju upp á því að hefja sín eigin mótmæli. Ólíklegt er að kínversk stjórnvöld vilji koma til móts við mótmælend- urna á nokkurn hátt, og óttast því margir Hong Kong-búar að staða borgarinnar sem fjármála- miðstöð sé í hættu, haldi mót- mælin áfram. Forsvarsmenn mótmælanna virðast vera meðvitaðir um þetta, og segja því að ekki megi ganga of langt. Vonast þeir þó til þess að fólk fjölmenni áfram og segi stjórnvöldum hug sinn, en í dag er þjóðhátíðardagur Kín- verja, sem hefur mikla þýðingu fyrir kommúnistaflokkinn kín- verska. Það hvernig leyst verður úr mótmælunum kann að segja töluverða sögu um stjórnvöldin í Peking og hvort þar hefur eitt- hvað breyst á síðastliðnum ald- arfjórðungi. Ennfremur segir það íbúum Hong Kong og um- heiminum, þar með talið Taívan, hvort eitthvað er að marka lof- orðið um „tvö kerfi í einu landi“. Mótmælin í Hong Kong eru prófsteinn fyrir Pekingstjórn} Hvers mega regnhlífarnar sín? E in af myndunum sem sýndar eru á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík er svissneska heimild- armyndin Thule Túvalú, sem sýnd verður í síðasta sinn í kvöld. Myndin fjalar um það hvaða áhrif hnattræn hlýnum hefur á þessi samfélög, Thule á Norð- vestur-Grænlandi (sem heitir reyndar Qaanaaq á inuktun) og Túvalú, sem er eyjaklasi í Kyrra- hafi, tólf þúsund kílómetra frá Thule. Við fyrstu sýn eiga þessi samfélög ekki mikið sameig- inlegt en hnattræn hlýnun hefur breytt lífs- háttum í báðum samfélögum – eftir því sem ís- inn hverfur verður erfiðara að stunda veiðar norður undir pól og eftir sem sjávarborð hækk- ar verður erfiðara að búa á Túvalú sunnan við miðbaug. Viðmælendur í myndinni eru flestir veiði- menn og Grænlendingarnir eru ekki í vafa hvert stefnir – þeir hafa séð ísinn þynnast á hverju ári, aukinheldur sem hann birtist siðar og fer fyrr. Þeir taka breytingunum af æðruleysi, enda ekki annað hægt: Ég verð ekki veiðimað- ur eftir tíu til fimmtán ár, segir einn þeirra en sér þó ekki fyrir hvað hann mun taka sér fyrir hendur. Á Túvalú vita viðmælendur einnig hvað er framundan, en sumir neita þó að horfast í augu við það: Guð mun ekki láta þetta gerast, segja fleiri en einn íbúanna, það yrði brot á sáttmálanum við Móses. Ég hef áður nefnt á þessum stað að illt sé að snúa trúuð- um, því þó þeir hafi ekki svar við rökum þá trúa þeir að svarið sé til. Þetta blasir við þegar karpað er við heittrúaða um hinstu rök tilverunnar, en líka þegar öllu jarðbundnari fyrirbæri eru til skoðunar, eins og til að mynda hnattræn hlýn- un. Fyrir einhverjar sakir varð það nefnilega að trúaratriði hjá ýmsum hægrimönnum að ekkert væri að hitna, og þó það væri kannski að hitna væri það bara allt í lagi og loks að vel megi vera að hitnunin sé bæði mikil og hættu- leg en um sé að kenna öllu öðru en mannkyni. Nú finnst kannski einhverjum rangt að flokka þá sem efast um hnatthlýnun sem trú- menn – eru þeir ekki bara að sýna eðlilega var- kárni? Eigum við ekki að vera tortryggin á það sem vísindamenn segja? Tökum undir það, lesandi góður, að rétt sé að gjalda varhug við almæltu, en gætum líka að því að þeir sem hafna vísindum fyrir yf- irskilvitlega hluti eru ekki rökhyggnir heldur trúmenn og það á svo sannarlega við þá sem hafna hnattrænni hlýnun. Hvað myndu íbúar Thule halda ef þar birtust stjórn- málamenn og -fræðingar og tækju að fræða þá á því að það hafi í raun ekkert hlýnað, í raun séu menn að lesa vit- laust af mælum, nú eða þetta sé bara náttúrleg þróun og ekkert að óttast? Hvað ætli landflótta Túvalíngum þætti um þá heittrúðu hægrimenn sem myndu birtast og segja þeim að þó enn séu að koma fram afleiðingar hlýnunar og land þeirra enn að eyðileggjast þá sé ekki bara allt í lagi, heldur sé allt í himnalagi því heimurinn sé hættur að hitna? arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Frá Thule til Túvalú STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon un,“ segir Bryndís. „En ég held að þróunin úti í heimi sé í þessa átt. Þýskaland hefur keypt gögn um skattaundanskot en á Norðurlönd- unum hafa menn m.a. bent á að þessi aðferð kynni að skaða samninga við aflandsríkin um skipti á upplýs- ingum. Samningar séu vænlegri leið.“ Gögn þurfa að vera ítarleg „Hins vegar þarf alltaf að meta þá hagsmuni sem eru undir. Kannski eru fyrir hendi borðliggj- andi upplýsingar þannig að auðvelt er að sanna sök. En svo geta verið vísbendingar um brot. Þá þarf að skoða þetta í ljósi þess hve mikinn mannskap og fleira af því tagi þyrfti til að vinna úr þeim og hver líkindin væru á að hægt væri að upplýsa undanskot.“ Gögnin verði að vera ítarleg, þess vegna þurfi að halda vænt- ingum um árangur í ákveðnu hófi. „Þó að okkur hafi tekist í mörgum tilfellum að upplýsa þessi mál hefur það reynst tímafrekt og erfitt. Þau gögn sem hafa helst komið okkur að gagni eru þau sem hefur ver- ið aflað í húsleit hér- lendis. En í sumum til- vikum höfum við þurft að láta kyrrt liggja vegna skorts á full- nægjandi gögnum.“ Ljóstrað upp um leynilega reikninga Friðsæld Hægt er að hafa það mjög notalegt á Tortólu, einkum ef menn eiga nóg af peningum á leynireikningi. En hvað ef Skattmann kemst í hann? Ekki er ljóst hve mikið þarf að greiða fyrir upplýsingarnar, hvort það yrðu milljónir eða tugmilljónir. Sumir heimild- armenn blaðamanns ræða ann- an kost: að óþekkti seljandinn fái prósentu af því fé sem ríkið klófesti. Bryndís Kristjánsdóttir segir að málið sé ekki komið á það stig að rætt hafi verið um fjárhæðir. Útilokað sé líka að giska á það hve mikið myndi innheimtast með hjálp gagnanna. En slá megi föstu að óvenju- mikið hafi verið um að Ís- lendingar feldu eignir í skattaskjólum, miðað við aðrar þjóðir. Hún óttast ekki að eigendurnir bregðist nú við með því að koma fénu fyrir annars staðar. Gögn sem sýni undanskotin muni ekki hverfa. Fjöldi leyni- reikninga UNDANSKOT ÍSLENDINGA Bryndís Kristjánsdóttir FRÉTTASKÝRING Kristján Jónsson kjon@mbl.is Heimildarmenn segja lík-legt að íslenskum útrás-arvíkingum hafi tekistað fela milljarða króna í erlendum skattaskjólum. Vitað er að starfsmenn dótturfélaga íslensku bankanna í Lúxemborg bentu mönn- um á að þeir gætu stofnað félög sem síðan stofnuðu leynireikninga í skattaskjólum í Karíbahafsríkjum og víðar. Þar væri hægt að fela fé. Erfitt hefur reynst að rekja þessa þræði enda aflandsríkin treg til að veita upplýsingar. En ýmsar upplýsingar um und- anskot hafa verið birtar á vef rann- sóknarblaðamanna, ICIJ. Nú gæti farið svo að íslensk stjórnvöld keyptu upplýsingar af óþekktum að- ilum sem geta varpað nýju ljósi á undanskot frá skatti. Á síðustu árum hafa öðru hverju borist fregnir af tilboðum sem embætti Bryndísar Kristjáns- dóttur skattrannsóknarstjóra hefur fengið um kaup á slíkum gögnum um félög og einstaklinga. Viðbrögð hafa verið fremur dræm enda ekki einfalt mál fyrir ríkisvaldið að kaupa gögn sem hljóta að teljast illa fengin, í reynd þýfi. Yrði ríkið ekki samsekt lögbrjótnum nafnlausa og þannig siðlaust? Bjarni Benediktsson fjár- málaráðherra benti í vor á að þarna gæti verið um að ræða vafasamt for- dæmi. Og skattrannsóknarstjóri sagði ljóst að bæði væru kostir og gallar við kaup af þessu tagi. En nú er komið annað hljóð í strokkinn, fjármálaráðherra og þingmenn keppast við að lýsa því yf- ir að ekki megi útiloka þennan möguleika. Skattrannsóknarstjóri sendi í september fjármálaráðuneyt- inu minnisblað um málið. Bryndís segist alls ekki taka afstöðu gegn kaupum á þessum gögnum en hafi hvorki lagalega heimild né fjárheim- ildir til að taka tilboðunum. Ráð- herra verði að taka slíka ákvörðun. Niðurstaða embættisins sé að í þeim „sýnishornum“ sem vænt- anlegir söluaðilar gagnanna hafi sent til að auka áhuga stjórnvalda séu vísbendingar um að hægt verði að nýta gögnin. „Þetta er auðvitað stór ákvörð- un og ég hef reynt að gefa ráðherra svigrúm til að móta sína eigin skoð-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.