Morgunblaðið - 01.10.2014, Síða 23

Morgunblaðið - 01.10.2014, Síða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2014 ✝ Sigurður Stein-þórsson fædd- ist á Hæli í Gnúp- verjahreppi 21. mars 1954. Hann lést á heimili sínu 24. september 2014. Hann var sonur Steinþórs Gests- sonar, alþing- ismanns og bónda á Hæli, og Stein- unnar Matthíasdóttur frá Skarði í sömu sveit. Sigurður var yngst- ur fimm systkina. Þau eru: Jó- hanna, f. 27. nóvember 1938, Gestur, f. 7. júní 1941, Að- alsteinn, f. 6. júlí 1943, og Mar- grét, f. 18. apríl 1946. Eiginkona Sigurðar er Bolette Høeg Koch, f. 14. apríl 1961 í Danmörku. Hún fluttist að Hæli 1983 og lauk BEd-prófi frá Kennarahá- ráðunautur hjá Búnaðarsam- bandi Suðurlands en tók við bú- skap á Hæli 1. júní 1980 og bjó þar ásamt fjölskyldu sinni alla tíð síðan. Síðar lauk hann fram- haldsnámi frá Hvanneyri og Konunglega dýralækna- og landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn. Hann beitti sér fyrir verndun Þjórsárvera og var mikill áhugamaður um ís- lenska náttúru. Sigurður var mjög virkur í félagsstarfi, helst má nefna stjórnarsetu í Hrossa- ræktarsambandi Suðurlands, Búnaðarfélagi Gnúpverja, Hestamannafélaginu Smára, Landssambandi hestamanna, Félagi kúabænda á Suðurlandi, Hitaveitufélagi Gnúpverja, Ung- mennafélagi Gnúpverja, Fjár- ræktarfélagi Gnúpverja og Vina Skaftholtsrétta. Hann hafði mik- ið yndi af söng og var virkur í kórstarfi, má þar nefna kirkju- kór Stóra-Núpskirkju, Árnes- kórinn síðar Vörðukórinn og Karlakór Hreppamanna. Útför Sigurðar fer fram frá Skálholts- dómkirkju í dag, 1. október 2014, kl. 14. skóla Íslands 1985. Hún gegnir nú stöðu skólastjóra í Þjórsárskóla. Dæt- ur Sigurðar og Bo- lette eru þær: 1) Dórótea Høeg, f. 9. apríl 1986, dokt- orsnemi í verkfræði við Princeton- háskóla í Banda- ríkjunum. Hún er gift Jóni Emil Guð- mundssyni, f. 10. júlí 1985, stjarneðlisfræðingi. 2) Helga Høeg, f. 21. mars 1988, dýra- læknanemi við Kaupmannahafn- arháskóla. 3) Jóhanna Høeg, f. 4. desember 1991, nemi í arkitekt- úr við Listaháskólann í Kaup- mannahöfn. Sigurður útskrifaðist sem búfræðikandidat frá Hvanneyri 1975 og vann fyrstu árin sem Þegar ég var 15 ára á Héraðs- skólanum á Laugarvatni gerðist það dag einn í mars að pabbi hringdi til mín og færði mér þær fréttir að ég hefði eignast lítinn bróður nóttina áður. Mér og vin- konum mínum þótti það dálítið sérstakt að eignast systkin á þess- um aldri, en það er skemmst frá að segja að þessi drengur varð mér, systkinum mínum og foreldrum mikill gleðigjafi. Hann var glað- lyndur fjörkálfur og eins og stend- ur í Heilræðavísum sr. Hallgríms: „Lítillátur, ljúfur og kátur“. Magga systir mín, 8 ára gömul, fékk þarna í hendurnar lifandi dúkku og útrás fyrir sinn alkunna áhuga á börnum. Milli þeirra spannst þráður sem entist þeim báðum ævina og styrkur þess þráðar sannaðist best þegar mest bjátaði á í lífi beggja. Mamma og pabbi fengu inn í líf sitt óvæntan sólargeisla sem varð þeim undan- tekningarlaust til gleði og lífsfyll- ingar. Umhyggja hans fyrir þeim átti sér engin takmörk. Fljótt kom í ljós að guð hafi gef- ið Sigga margar góðar vöggugjaf- ir. Hann söng eins og engill og litla svipbrigðaríka andlitið hans gaf til kynna að þar var leikari á ferð. Ánægja hans af að umgangast skepnur, áhuginn á búskapnum og ástin á heimahögunum, allt lagði þetta grunn að lífsstarfi hans og lífshamingju. Þegar við svo á fullorðinsárum vorum bæði sest að í sveitinni urð- um við í viðbót við systkinaþelið vinir og samstarfsmenn í leik og starfi. Margt var brallað í söng og leiklistarstandi og það get ég sagt með sanni að það var ekki leiðin- legt samstarf. Þegar Siggi tók við búinu á Hæli og var að bíða eftir fallega konuefninu sínu, henni Bolette, sem var úti í Danmörku að leggja grunn að búsetu sinni á Íslandi var ég svo heppin að geta lagt hon- um lið við heimilishaldið á Hæli í tvö sumur. Börnin mín þrjú voru þar líka, Steinþór 15 ára vinnu- maður og Freyja og Steinunn kúa- rektorar og snúningastelpur. Þetta var afar góður tími fyrir okkur öll. Það var t.d. rekið á fjall eins og í gamla daga, það var mik- ið ævintýri og allir tóku þátt. Siggi var ungur og frískur og skemmtilegur húsbóndi. Hann hafði gaman af að smástríða krökkunum öllum til gamans. Steinunn, sem var spretthörð á eftir lambánum og var stundum látin prófa rafmagnsgirðingarnar á eigin skinni, gekk hjá Sigga und- ir nafninu Steinka stálfjöður. Hann var ákaflega vinnusamur og duglegur og brennandi af búskap- aráhuga. Með honum var sjálfsagt að vinna vel enda var oft gleði og ánægja að dagsverki loknu. Svo kom hún Bolette til hans. Gagnkvæm ást þeirra og ánægja hvort með annað duldist engum. Saman byggðu þau svo upp sitt fallega heimili og glæsilega bú. Þegar Dóra, Helga og Jóhanna, frábæru dæturnar þrjár komu til sögunnar þá var stolt og gleði Sigga fullkomin. Samheldni þeirra og umhyggja hvort fyrir öðru var alltaf mikil og aldrei meiri en í raunum undanfarinna vikna, raunum sem enginn ætti að þurfa að horfast í augu við. Miklar þakkir, og ótal góðar minningar fylgja mínum elskaða bróður til æðri heimkynna. Nanna. Ég var níu ára gamall þegar at- vinnuþátttaka mín hófst. Sumarið 1966 réð ég mig sem kaupamann hjá Steinþóri föðurbróður mínum, Steinunni konu hans og Aðalsteini syni þeirra, en þau bjuggu fé- lagsbúi á Hæli í Gnúpverjahreppi. Herbergisfélagi minn næstu sex sumur var Siggi frændi minn, tveimur árum eldri en ég, sem ég leit mikið upp til. Við sváfum í STP-herberginu en það var engin tilviljun að kappsfullir dráttar- vélaökumenn merktu híbýli sín hágæða mótorolíu sem einkum var notuð á kappakstursbíla. Þarna var frændsemin efld og ævarandi vinátta myndaðist. Unn- ið var frá 7 á morgnana til a.m.k. 8 á kvöldin eins og gengur til sveita. Í minningunni var alltaf sólskin, líka þegar rigndi. Stuttu eftir að Siggi tók við bú- rekstri á Hæli kynntist hann sinni glæsilegu og góðu konu, Bolette. Hún kom með ferska vinda frá Danmörku inn í líf Sigga. Saman stofnuðu þau fallegt heimili og eignuðust 3 bráðefnilegar dætur. Við áttum margt sameiginlegt og nutu dætur okkar þess að fá að dvelja við leik og störf hjá þeim í nokkrar vikur á sumrin. Siggi og Bolette voru sannkallaðir höfð- ingjar heim að sækja og veislur sem haldnar voru í vesturbænum á Hæli voru í senn glæsilegar og höfðinglegar þar sem glaðværð, mikill söngur og tónlist voru alltaf til staðar. Ég vil einnig nota tækifærið að þakka kærlega fyrir alla þolin- mæðin og hjálpsemina, sem faðir minn Hjalti, naut alla tíð meðan hann var með féð sitt á Hæli. Hjálpsemin við gegningar, hey- skap, smölun, sauðburð og annað sem til féll við búskapinn í Mið- nesi, var einstök og alls ekki sjálf- gefin. Elsku Bolette, Dóra, Helga og Jóhanna, ykkar missir er mikill við fráfall Sigga. Ég get eiginlega ekki lýst í orðum mannkostum hans. Frábær bóndi, yndislegur persónuleiki, afburða fjölskyldu- maður, frábær söngmaður og lengi enn er hægt að telja upp hans fjölmörgu mannkosti. En lífið heldur áfram. Elsku Bolette, okkar heimili stendur þér og dætrum þínum alltaf opið. Við erum alltaf til taks, eins og áður, og ræktum vináttuna áfram. Við viljum votta öllum aðstand- endum innilegrar samúðar við frá- fall Sigurðar Steinþórssonar. Gestur, Sólveig og dætur. Vinur okkar kær og frændi, Siggi á Hæli, hefur kvatt okkur. Það var ótímabært. Eftir sitjum við öll hnípin. Hann var fæddur á Hæli, yngstur fimm systkina. Síð- ast töluðum við saman í Hælis- dilknum á réttardaginn 12. sept- ember í okkar kæru Skaftholtsréttum. Sú fornfræga rétt hrundi nánast til grunna í jarð- skjálftunum árið 2000. Í endurgerð réttanna sat Siggi í framkvæmda- stjórn ásamt fjalldrottningu og þeim er þessar línur ritar. Hann og hans fjölskylda voru mjög dugleg og ósérhlífin í þeirri vinnu, lögðu margsinnis til vélar og tól og vinnufúsar hendur. Siggi stýrði með myndarbrag fjölmennri sam- komu við endurvígslu réttanna fyr- ir fáum árum. Siggi stóð fyrir myndarbúi á Hæli, með blandaðan búskap, stórt og afurðasamt kúabú, fjárbúskap- urinn var honum hugleikinn, enda fjárglöggur maður. Hann var alinn upp í góðum reynsluskóla foreldra og systkina, aflaði sér víðtækrar þekkingar og menntunar á Hvann- eyri og síðar við Háskóla í Dan- mörku. Föðurbróðir hans og tengdafaðir minn, Hjalti, voru nán- ir í fjárbúskapnum, sameiginleg tún og fjárhús í Miðnesi, en svo nefndi Hjalti athvarf sitt á Hæli. Það fór vel á með þeim frændum í þessu stússi, víðtæk þekking beggja og aðdáunarvert var hve skilningsríkur og hjálpsamur Siggi var frænda sínum þegar halla tók ævi hans og kraftar dvínuðu. Fjöl- skylda okkar stendur þar í mikilli þakkarskuld við Sigga og fjöl- skyldu hans. Hestamennskan á Hæli hefur lengi verið umfangsmikil, forysta í samtökum hestamanna, kynbóta- starf hefst með Skugga frá Bjarna- nesi, kornungum, sem Steinþór tamdi. Hestaeign og hestanotkun þar hefur alltaf verið mikil, smölun og fjallferðir, áður við önnur bú- störf og til frístunda. Öll er fjöl- skylda Sigga hestelsk, keppti á mótum og reið mikið út, fríður flokkur. Mér er ekki grunlaust um, að hesturinn íslenski hafi dregið Bolette til Íslands. Hér hefur að- eins verið rætt um bóndann Sigga og drenginn góða en hann átti líka mjög öfluga fjölskyldu, þrjár efni- legar dætur sem nú eru allar í framhaldsnámi erlendis og móðir- in skólastjóri í sveitinni. Við Magga vottum Bolette, dætrum, tengdasyni og ættingjum dýpstu samúð við fráfall þessa góða drengs. Vertu ætíð Guði fal- inn kæri vinur. Margrét og Kristján Guðmundsson. Það er bæði ótrúlegt og ósann- gjarnt, ég tala ekki um sorglegt að vera að skrifa minningarorð um hann Sigga frænda minn. Við fæddumst sama ár og ólumst upp nánast á sama heimilinu fyrstu 15 ár ævi okkar. Þess vegna var Siggi ekki bara frændi heldur besti vin- ur og nánast eini leikfélagi minn. Við fundum oft upp á allskonar leikjum, því ekki var mikið til af leikföngum á okkar heimilum. Við áttum leggjabú sem við lékum oft í. Það var skammt frá bænum nán- ar tiltekið austan í Grófarásnum. Eitt sinn þegar við vorum þar við leik vorum við svo niðursokkin að við gleymdum stund og stað og var farið að leita að okkur og hringt á næstu bæi til að gá hvort við hefð- um komið þar. Ég átti dúkkulísur sem mér þóttu mjög spennandi, Siggi gaf það aldrei upp hvað hon- um fannst um þær en ósjaldan vor- um við í dúkkulísuleik. Og skemmtum okkur konunglega, alla vega fannst mér það svo þegar þeim leik lauk var farið í hestaleik. Þegar ég hugsa til baka var Siggi mun virkari í þeim leik. Í minning- unni fannst mér alltaf jafnræði hjá okkur, þó man ég eftir að mæður okkar töluðu um að Siggi hefði ein- stakt lag á mér. Það var mikið af börnum á heimilum okkar á sumr- in og um hátíðar. Aðallega voru þetta barnabörn ömmu okkar. Við vorum fjögur yngst, við Siggi, Unnur Hjalta og svo Deddi Hjalta sem var sá yngsti. Við vorum köll- uð litlu krakkarnir af þeim eldri. Það var margt brallað, ótal ævin- týri sem við lékum og lentum í. Skriðum upp á fjósloft sem mátti alls ekki, við gætum bæði meitt okkur og skemmt loftið. Við vild- um vera alvörufólk og stofnuðum leynifélag sem stóru krakkarnir vissu ekki um. Unnur sú elsta og reynslumesta lagði línurnar strax á stofnfundinum og hljóðaði það á þennan veg. „Ég pant vera gjald- keri, ritari og formaður, Dísa og Deddi í stjórn og Siggi fundar- stjóri“ Þannig var skiptingin og allir sáttir. Það var ekki bara þarna sem Siggi var stjóri eða sá stærsti. Þegar skólagangan hófst var Siggi alltaf með hæstu ein- kunnirnar, skrifaði best, hljóp hraðast, söng og lék best enda var hann aðalleikarinn í öllum leikrit- um í skólanum og síðar í sveitinni. Fyrsta árið okkar í Reykjavík vor- um við saman í bekk og gengum yfirleitt alltaf saman í skólann. Í minningunni voru fyrstu 15 árin okkar Sigga svona yndisleg í leik og starfi með foreldrum, systkin- um og frændfólki. Svo tók eitt við af öðru, framhaldsskólaganga, vinna, stofnun heimilis og barn- eignir. Siggi var alltaf á sérstökum stalli hjá mér. Maður sem bar af þó að hann yfirleitt léti lítið fyrir sér fara. Sigga tókst það sem flestir stefna að. Kynntist yndislegri konu, átti með henni þrjár frábær- ar dætur, átti sínar hugsjónir og skilur eftir sig góðan farveg. Ég sendi Bolette og dætrum mínar dýpstu samúðarkveðjur. Með ríku þakklæti fyrir samfylgdina. Þórdís Einarsdóttir. Það er sárt að kveðja Sigga, frænda minn á Hæli. Margar af mínum dýrmætustu æskuminn- ingum eru úr sveitinni á Hæli þar sem ég dvaldi nær öll sumur sem barn og fram á unglingsár. Á hverju vori fylltist ég eftirvænt- ingu og iðaði í skinninu að komast í sveitina til Sigga og Bolette. Þar fengum við frænkurnar frelsi til að vera börn, leika okkur og hafa gaman en lærðum jafnframt heil- mikið um lífið og tilveruna. Á okkar yngri árum fór mestur tími okkar frænknanna í útreiðar, leiki og annað skemmtilegt sem hægt var að bralla í sveitinni. Eftir því sem við eltumst fórum við að geta hjálpað meira til á bænum og voru okkur fengin hin ýmsu verk- efni sem við leystum alla jafna vel af hendi, undir dyggri leiðsögn Sigga frænda. Það var lítið mál að vinna fyrir Sigga þar sem hann var sanngjarn yfirmaður, léttur í lund, ljúfur og kátur. Það var aldrei langt í glens og gaman þegar Siggi var nálægt og á ég til dæmis ótal skemmtilegar minningar úr fjós- inu á Hæli þar sem hann söng og lék heilu leikþættina með okkur frænkunum, með miklum tilþrif- um, meðan á mjöltum stóð. Siggi og Bolette tóku mér alltaf opnum örmum, voru mér góð og létu mér líða eins og heima hjá mér á Hæli. Fyrir það, ómetan- lega vináttu og allt það sem þau hafa kennt mér er ég óendanlega þakklát. Það er sárt að kveðja en minn- ingin um yndislegan mann lifir áfram. Mínar dýpstu samúðarkveðjur til Bolette, Helgu, Dóru og Jó- hönnu. Hvíl í friði, elsku frændi. Kristín Gestsdóttir. Hann hvarf oss í rökkrið, heimtur af óvæntu kalli, og heiðar og runnar og lækir minning hans geyma, störin og fífan, blundandi blóm á fjalli, bláklukkan smá á þúfnakollunum heima. (Ólafur Jóh. Sig.) Tilhugsunin um að Siggi frændi sé ekki lengur á meðal okkar á eft- ir að taka tíma að venjast. En minningarnar um þennan fríska, glaðværa og góða dreng sem gæddur var svo mörgum eftir- sóknarverðum mannkostum ylja okkur nú þegar við kveðjum hann svo alltof, alltof snemma. Siggi hefur verið hluti af lífi okkar alla tíð, ekki bara sem kær móðurbróðir, heldur hefur hann staðið okkur ennþá nær, enda við á ýmsum tímum búið undir sama þaki og deilt heimili. Heimilið og fjölskyldan er sennilega það sem hverjum manni er mikilvægast, sérstaklega þegar eitthvað bjátar á. Að hafa skjólið og væntumþykj- una þegar svo virðist sem heim- urinn sé að hrynja er ótrúlega dýrmætt. Þetta skildi Siggi vel. Þegar stór áföll hafa dunið á okkar fjölskyldu var Siggi alltaf nærri og studdi okkur á allan mögulegan hátt. Traustur og nærgætinn stóð hann þétt við hlið systur sinnar, var hennar hægri hönd og, eins og hún hefur sjálf sagt, sú vinstri líka. Hann umvafði okkur krakk- ana kærleika og studdi okkur á allan hátt með ráðum og dáð og hans ljúfa lund, hlýja og glaðværð gerði nærveru hans einkar þægi- lega og eftirsóknarverða. Stuðn- ingur hans, staðfesta og fórnfýsi gerði það að verkum að það sem var okkur dýrmætast á erfiðum tímum glataðist ekki og skjólið mikilvæga stóð. Fyrir þetta verð- ur seint fullþakkað. Og nú þegar hann er sjálfur fallinn frá og við lítum yfir farinn veg sést vel að í öllu því sem hann gerði fyrir okk- ur birtust hans sterku karakter- einkenni sem hann hélt fram á síð- ustu stundu. Hann var einstaklega vel gerð manneskja og erum við í hópi þeirra lánsömu sem fengu að njóta hans góðu mannkosta, sem höfðu mótandi áhrif á okkur. Það sem hann hefur gert fyrir okkur í gengum tíðina er ekki hægt að ætlast til af nokkr- um manni en hann gerði það í ein- lægni og af æðruleysi og studdi okkur á einstakan hátt á við- kvæmum og erfiðum tímum. Um- hyggja hans sem við nutum mun aldrei gleymast. Þrátt fyrir að vera nú fallinn frá, með svo margt óupplifað, var Siggi gæfusamur maður. Hann kynntist Bolette og saman eign- uðust þau þrjár yndislegar dætur og gott heimili, sem var hans at- hvarf og skjól fram á síðasta dag. Hann var einstaklega góður eig- inmaður og faðir sem gaf sínum nánustu ómælda ást og umhyggju og það veganesti sem í því felst er ómetanlegt. Elsku Bolette, Dóra, Jón Emil, Helga og Jóhanna; missir ykkar er mikill og hugur okkar allra er hjá ykkur. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, sem fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Við kveðjum kæran frænda og vin með sárum söknuði og ein- lægu þakklæti fyrir alla hjálpina, vináttuna, kærleikann og um- hyggjuna sem hann sýndi okkur alla tíð. Að því munum við búa alla ævi. Blessuð sé minning Sigga frænda. Systkinin í Háholti, Steinþór Kári, Sigurður, Birna, Bjarni og Ragnheiður. Ein af mínum fyrstu minning- um er stund sem ég átti með Sigga frænda. Ég man eftir að hafa verið á ganginum á Hæli á sólbjörtum degi og Siggi kraup hjá mér, brosti og gaf mér mynda- kubba sem ég hélt alltaf mikið upp á. Ég hef sennilega verið þriggja eða fjögurra ára. Minn- ingar mínar um Sigga síðan þá hafa verið margar og allar góðar. Flestar eru frá því ég var á Hæli eftir að hann tók við búinu þar. Ég man hvað ég var stolt þegar ég hafði verið mikið á Hæli og þekkti Vesturbæjarkindurnar í réttunum með því einu að líta á þær. Þegar ég sagði Sigga frá þessu, leit hann kankvís á mig og skildi algjörlega ánægjuna sem í því fólst. Og þegar hestaæðið náði hámarki á unglingsárunum lánaði Siggi mér hesta heilu veturna. Ég held að fátt hafi glatt mig meira um ævina. Siggi kenndi mér ýmislegt um lífið þegar ég var á Hæli. Hann var ósérhlífinn og ætlaðist til að aðrir væru það líka, en þó nálg- aðist hann lífið af nærgætni og skilningi. Ég man þegar við tvö fórum að líta eftir ám sem voru nýbornar. Þegar við komum að þeim hafði hrafn komist í lömbin. Þetta var ljót sjón og hann sendi mig burtu til að hlífa mér við henni. Hann kenndi mér að bera virðingu fyrir dýrunum og tala um og fara með þau af nærgætni. Svona var Siggi, sterkur, blíður og umhyggjusamur allt í senn. Þetta einkenndi hann alla ævi og hvernig hann kom fram við alla, bæði menn og dýr. Ég verð Sigga frænda alltaf þakklát fyrir að leyfa þessari borgarstelpu að upplifa sveitalíf- ið, það er reynsla sem hefur mót- að mig og verður mér alltaf dýr- mæt. Siggi skipaði stóran sess í hjarta mér þegar ég var lítil og gerir enn. Það er erfitt að sætta sig við að fá ekki að hitta hann framar og að hann hafi verið tek- inn svo snemma frá fólkinu sínu. En það er huggun til þess að vita að ég held að Siggi hafi varið lífinu nákvæmlega eins og hann hefði helst kosið. Ég held að ekkert hefði getað fært honum meiri hamingju en að vera bóndi á Hæli, byggja upp fallegt heimili og myndarlegt bú með Bolette sinni, umvafinn stelpunum þeirra þrem- ur, Dóru, Helgu og Jóhönnu. Mér þótti alltaf vænt um þegar ég sá þennan sterka og ósérhlífna bónda horfa fullan ástúðar á stelpurnar sínar eða tala stoltur um þær, hvort sem þær voru að sinna bústörfum, tónlist, námi eða öðru sem hefur leikið í höndum þeirra. Það fór ekki fram hjá nein- um að þarna var samhent fjöl- skylda og að Siggi og Bolette bjuggu stelpunum sínum ástríkt heimili og studdu þær í alla staði. Elsku Bolette, Dóra, Helga og Jóhanna. Þið voru ljósin í lífi Sigga og fyrir það er ég svo þakk- lát. Ég er líka þakklát fyrir að þið eigið hver aðra að og fyrir ómet- anlegar minningar um eiginmann og föður sem sannarlega átti fáa sína líka. Hugur minn er hjá ykk- ur. Steinunn Gestsdóttir. Sigurður Steinþórsson  Fleiri minningargreinar um Sigurð Steinþórsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.