Morgunblaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2014 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Erfitt að manna viðbragðsteymi  Óeðlilegt ef aðstandendum væri sama, segir yfirlæknir sýkingavarnadeildar Landspítalans Jón Pétur Jónsson Stefán Gunnar Sveinsson Verið er að setja saman sérstakt við- bragðsteymi lækna og hjúkrunar- fræðinga sem ætlað er að bregðast við ef sjúklingur með ebólu kemur til landsins. Teymið er ekki tilbúið, og er verið að vinna að því að fjölga hjúkrunarfræðingum í hópnum. Nokkrir bættust við hópinn í gær eftir kynningarfund en „betur má ef duga skal,“ segir Ólafur Guðlaugs- son, yfirlæknir sýkingavarnadeildar Landspítalans, í samtali við mbl.is. Markmiðið er að setja saman um 20 manna hóp, talan er aðeins ákveð- ið viðmið að sögn Ólafs en betra sé að þjálfa fleiri heldur en færri. Hann segir að búið sé að fá að mestu þá lækna sem þarf í hópinn en nú sé unnið að því að fá fleiri hjúkrunar- fræðinga til þátttöku. Ólafur bendir á að ebólusmitaður einstaklingur geti dúkkað upp hvar sem er, t.d. í flugvél eða á næstu heilsugæslustöð. „Þá þarf fólk að vita hvað það á að gera og hvernig það á að bregðast við. Það er eiginlega það sem þetta teymi gengur út á.“ Til- gangurinn sé m.a. sá að starfsmenn spítalans séu vanir því að vinna með sérstakan hlífðarfatnað og þekki alla verkferla. Landspítalinn vilji vera í stakk til þess búinn komi sýktur ein- staklingur til landsins. Gengur ekki upp að neyða fólk Ólafur segir að æskilegt væri að fá reynslumikla hjúkrunarfræðinga í teymið, sem byðu sig sjálfviljugir fram, en í augnablikinu yrði öllum fagmenntuðum einstaklingum tekið fagnandi. Spurður um það hvort aðstand- endur heilbrigðisstarfsfólks hefðu áhyggjur af því að það gengi til liðs við hópinn sagði Ólafur að það væri óeðlilegt ef aðstandendum væri sama. Hins vegar myndi aldrei ganga upp að þrýsta á starfsfólk um að ganga í teymið. „Þetta er eins og með björgunarsveitir, hversu góður björgunarmaður værirðu ef þú værir píndur upp á fjöll?“ sagði Ólafur. Mjög krefjandi verkefni Sigríður Gunnarsdóttir, fram- kvæmdastjóri hjúkrunar á Landspít- alanum, segir að verkefnið sé mjög krefjandi og að fólk þurfi að vega og meta af yfirvegun hvort það treysti sér til þess að taka verkefnið að sér. „Við erum að reyna að vanda okkur við þá vinnu og sinna henni vandlega og af yfirvegun,“ segir Sigríður. Að- alatriðið sé að þarna fáist gott fólk sem treysti sér til starfans. AFP Læknar í Líberíu Hlífðarbúnað þarf þegar ebólusjúklingum er sinnt. Vetrarfrí hefst í flestum grunn- skólum á höfuðborgarsvæðinu á morgun og stendur fram á þriðjudag. Flest frístundaheimili verða einnig lokuð. Ragnar Árnason, forstöðu- maður vinnumarkaðssviðs Samtaka atvinnulífsins, gagnrýnir þetta fyr- irkomulag, þar sem þörfum atvinnu- lífsins er ekki mætt. Auk þess er for- eldrum komið í erfiða stöðu. Soffía Pálsdóttir, skrifstofustjóri frístunda- mála hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar, segir hins vegar að tilgangurinn sé að stuðla að auk- inni samveru fjölskyldunnar og að borgin hafi skipulagt viðburði til þess að fjölskyldur geti gert sér glaðan dag um helgina án þess að það kosti nokkur fjárútlát. Vetrarfrí að hefjast Heldur hlýnar í veðri þegar líður á vikuna. Veð- urstofan spáir 3 til 10 stiga hita um helgina og að mildasta veðrið verði vestantil. Hæg austanátt verður í dag en heldur herðir á henni á föstudag og um helgina. Eitthvað verður um skúrir næstu daga og rigning um helgina. Íbúar á vestanverðu landinu sleppa þó að mestu við úrkomu. Útlit er fyrir hvassa norðaustan- átt með rigningu eða slyddu á Norð- vesturlandi eftir helgi. Hægari vind- ur annars staðar og úrkomulítið. Kólnar smám saman. Hlýnar í veðri – í bili Leikur Ágætis veð- ur er framundan. Á Vöglum og í Hvammi má sjá myndarlega við- arstafla efir grisjun í skóginum í sumar og haust. Á komandi vikum munu vegfarendur sjá fjöl- marga fullhlaðna timburbíla á vegum landsins með verðmæti úr íslenskum skógum til notkunar hjá Elkem í Hvalfirði. Á mánudag hófst akstur úr Vaglaskógi og áætlað er að farnar verði alls um 30 ferðir. Úr Stálpastaðaskógi verða fluttir yfir þúsund rúmmetrar af timbri í haust og yfir 800 rúm- metrar úr Vaglaskógi. Á þessum stöðum hafa stærstu grisjunarverkefnin á vegum Skógrækt- ar ríkisins verið unnin í ár. Einnig hefur verið unnið að grisjun í skógum skógarbænda og ann- arra skógareigenda, t.d. lét Skógræktarfélag Eyfirðinga grisja um 200 rúmmetra viðar. Skógræktin hefur látið prenta vígorð á stóra borða sem settir verða á viðarflutningabíla á næstunni. Á þessa átta metra borða verður letr- að: „Úr skógunum okkar“ og „Íslensk skógar- auðlind“. Þetta er gert til að vekja athygli á því að skógarauðlindin sé farin að skila verðmætum. Grisjunin hefur einkum verið unnin á vegum Kristjáns Más Magnússonar. aij@mbl.is Skógurinn farinn að skila verðmætum Ljósmynd/ Pétur Halldórsson Spáð í viðinn á Vöglum Þröstur Eysteinsson, sviðsstjóri þjóðskóganna, Guðni Þorsteinn Arnþórsson aðstoðarskógarvörður, Jón Loftsson skógræktarstjóri og Rúnar Ísleifsson skógarvörður virða fyrir sér stafla af nýgrisjuðu lerki í Vaglaskógi, en þar var unnið af krafti að grisjun í sumar og haust. Fjöldi fullhlaðinna timburbíla á vegum landsins á næstu vikum Gera má ráð fyrir mikilli umferð á veginum fyrir Hvalfjörð um helgina, en sem kunnugt er verða jarðgöng- in undir fjörðinn lokuð frá klukkan sex á föstudagskvöld til sex á mánu- dagsmorgun vegna malbikunar- framkvæmda. Ekki hefur áður kom- ið til þess að göngunum hafi verið lokað í jafnlangan tíma frá því að þau voru opnuð í júlí 1998. Um síðustu helgi, það er frá föstudagskvöldi til mánudagsmorg- uns, eða nákvæmlega sama tíma og göngin verða lokuð nú, fóru þar í gegn 11.705 bílar. „Yfirleitt losa helgar á þessum tíma árs rúmlega ellefu þúsund bíla,“ sagði Marinó Tryggvason, öryggisfulltrúi hjá Speli, í samtali við Morgunblaðið í gær. Í því sam- bandi má benda á að helgina 18. til 21. október í fyrra, sömu helgi og nú er um að ræða, fóru 11.593 bílar um göngin. Leiðin fyrir Hvalfjörð er 61 kílómetri þar sem farnar eru brekk- ur, beygjur og um hlíðar. Leiðin þykir almennt falleg. Áður voru þrjár vegasjoppur á svæðinu: Botnsskálinn, Miðsandur og Fer- stikla. Nú er aðeins sú síðastnefnda eftir og sú er raunar aðeins opin yfir sumarið. Í dag eru á svæðinu hótel, ferðaþjónusta á bænum Bjarteyjar- sandi og á Hlöðum rekur Guðjón Sigmundsson, best þekktur sem Gaui litli, Hernámssetrið, safn þar sem brugðið er ljósi á umsvif banda- manna á þessum slóðum í síðari heimsstyrjöld. Þá rekur Gaui kaffi- húsið Hvíta fálkann og verður það opið um helgina. „Það munu sjálfsagt margir stoppa hér um helgina, þótt ómögu- legt sé að spá nokkuð um hver fjöld- inn verður. En ég ætla að hræra deig og sletta í form og sennilega líta fleiri inn um helgina en endra- nær.“ sbs@mbl.is Búist við 11 þúsund bílum fyrir fjörð  Hvalfjarðargöngin verða lokuð frá föstudagskvöldi til mánudags  Gaui litli slettir í form á Hlöðum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Miðsandur Margt að sjá í Hvalfirði sem er í alfaraleið um næstu helgi. Guðjón Sigmundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.