Morgunblaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2014
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Kæra Samkeppniseftirlitsins á
hendur Eimskipafélaginu og Sam-
skipum fyrir brot á samkeppnislög-
um er ekki fyrstu afskipti sam-
keppnisyfirvalda af félögunum.
Sumarið 1997 úrskurðaði sam-
keppnisráð að samstarfssamningur
félaganna um gámaflutninga til Am-
eríku væri brot á samkeppnislögum.
Árið 2007 úrskurðaði Samkeppnis-
eftirlitið að Eimskip hefði brotið al-
varlega gegn lögunum með aðgerð-
um gegn Samskipum. Var félagið
sektað um 310 milljónir króna, jafn-
virði um 480 milljóna króna á nú-
virði, en áfrýjunarnefnd samkeppn-
ismála lækkaði sektina í 230
milljónir ári seinna. Það eru um 355
milljónir króna að núvirði.
Samstarf ólöglegt
Í ársbyrjun 1997 var gengið frá
samningi milli Eimskipafélagsins og
Samskipa um flutninga milli Íslands
og Norður-Ameríku. Samningurinn
fól í sér að Eimskipafélagið annaðist
flutninga á gámum Samskipa.
Hættu Samskip að reka sérstakt
skip á þessari siglingaleið. Yfirlýst
markmið var að auka hagræði í
flutningum með fækkun skipa og
betri nýtingu þeirra.
Samkeppnisyfirvöld hófu rann-
sókn á samningnum vegna kvört-
unar frá stórkaupmönnum sem ótt-
uðust hækkun farmgjalda í
kjölfarið.
Í júlí 1997 kvað samkeppnisráð
upp þann úrskurð að samningur
Eimskipafélagsins og Samskipa
bryti í bága við 10. gr. samkeppn-
islaga. Ráðið veitti félögunum þó
undanþágu frá bannákvæði laganna
til 1. ágúst árið 2000 þar eð samn-
ingurinn hefði fleiri kosti en galla
við þáverandi aðstæður á flutninga-
markaðnum. Ósk félaganna um
framlengingu undanþágunnar árið
2000 var hafnað.
Húsleit og sekt
Haustið 2002 gerði Samkeppnis-
stofnun húsleit í þáverandi höfuð-
stöðvum Eimskipafélagsins í Póst-
hússtræti. Var það gert í framhaldi
af kvörtun um að félagið notfærði
sér yfirburðastöðu sína á markaðn-
um með óeðlilega lágum farmgjöld-
um. Það voru Samskip sem sent
höfðu kvörtun þessa efnis til stofn-
unarinnar.
Eimskipafélagið mótmælti kær-
unni harðlega.
Rannsókn málsins tók langan
tíma. Í desember 2007 úrskurðaði
Samkeppniseftirlitið að Eimskipa-
félagið hefði brotið alvarlega gegn
samkeppnislögum á árunum 2001 og
2002. Var félagið sektað um 310
milljónir króna. Í úrskurði stofnun-
arinnar sagði að félagið hefði mis-
notað markaðsráðandi stöðu sína á
sjóflutningamarkaði og brotið þann-
ig gegn ákvæðum samkeppnislaga.
Sektin var hin hæsta sem nokkru
sinni hafði verið lögð á fyrirtæki hér
á landi vegna brota á samkeppn-
islögum.
Samkeppniseftirlitið kvað gögnim
sem lagt var hald á sýna ótvírætt að
stjórnendur hjá Eimskipafélaginu
hefðu talað um aðgerðir gegn Sam-
skipum sem „markaðsatlögu“ og
„árás“. Talað hefði verið um að
„máttur“ Eimskips yrði nýttur til
fullnustu til að viðhalda markaðs-
ráðandi stöðu. Það var gert með því
að bjóða völdum hópi fyrirtækja
sérstakan afslátt gegn skuldbind-
ingu um að eiga ekki viðskipti við
keppinauta Eimskips.
Í tíð fyrri eigenda
Forráðamenn Eimskipafélagsins
bentu á að brotin hefðu verið framin
í tíð fyrri eigenda félagsins. Ábyrgð-
in á sektinni ætti ekki að liggja hjá
nýjum eigendum. Var niðurstöðu
Samkeppniseftirlitsins áfrýjað til
úrskurðarnefndar samkeppnismála.
Áfrýjunarnefndin staðfesti í mars
2008 niðurstöðu Samkeppniseftir-
litsins. Nefndin lækkaði hins vegar
stjórnvaldssektina sem félaginu bar
að greiða um 80 milljónir króna, úr
310 milljónum í 230. Fyrir áfrýj-
unarnefndinni hélt Eimskip því
fram að málið hefði ranglega verið
sótt gegn félaginu. Það væri ekki
markaðsráðandi og aðgerðir þess
hefðu falið í sér eðlilega samkeppni
en ekki brot á samkeppnislögum. Á
þetta var ekki fallist. Taldi nefndin
að Eimskip hefði stefnt að því að
veikja keppinautinn, Samskip, veru-
lega og varanlega með gerð ólög-
mætra einkakaupasamninga við ým-
is fyrirtæki.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sektað Gerð var húsleit hjá Eimskip haustið 2002. Árið 2007 var félagið
sektað um 310 millljónir króna fyrir brot á samkeppnislögum.
Tvívegis áður
úrskurðað um
samkeppnisbrot
Eimskip fékk mjög háa sekt árið 2007
Fyrri samkeppnisbrot
» Árið 1997 var úrskurðað að
Eimskip og Samskip hefðu
bæði brotið gegn samkeppn-
islögum með samstarfi um
gámaflutninga í Ameríkusigl-
ingum.
» Árið 2007 var úrskurðað að
Eimskip hefði brotið gegn
Samskipum og misbeitt mark-
aðsráðandi stöðu sinni. Fékk
félagið 480 milljóna króna sekt
að núvirði.
» Árið 2008 staðfesti áfrýj-
unarnefnd samkeppnismála
úrskurð Samkeppniseftirlits-
ins, en lækkaði sektina í 355
milljónir króna að núvirði.