Morgunblaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2014 Gréta Boða kynnir glæsilegar nýjungar frá Chanel 16.-17. október í Snyrtivöruversluninni Glæsibæ Opið til kl. 22.00 í dag 16. október Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Samkeppniseftirlitið hefur kært ell- efu starfsmenn Eimskips og Sam- skipa til embættis sérstaks sak- sóknara vegna gruns um að félögin hafi um árabil haft með sér ólöglegt samráð, líkt og fram kom í Morg- unblaðinu í gær. Þetta kom fyrst fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í fyrrakvöld. Bæði félögin neita sök. Samkeppniseftirlitið gerði húsleit hjá Samskipum, Eimskip og dótt- urfélögum þeirra fyrir rúmu ári og aftur í sumar. Eftirlitið hafði rann- sakað félögin og fengið ábendingar um ólöglegt samráð og að félögin misnotuðu markaðsráðandi stöðu sína. Fram kom í fréttum RÚV í gær að forstjórar Vífilfells og Ölgerð- arinnar ætla að kalla eftir skýr- ingum skipafélaganna í ljósi kæru Samkeppniseftirlitsins. Pálmar Óli Magnússon, forstjóri Samskipa, hafnar því að hann og fleiri starfsmenn Samskipa hafi gerst brotlegir við ákvæði sam- keppnislaga. „Við höfum ekki séð þetta plagg sem RÚV er greinilega með, þannig að það er erfitt að tjá sig efnislega um það. Ég horfði á Kastljósið og gat ekki séð neitt í þeirri umfjöllun, sem benti til þess að samkeppnislög hafi verið brotin,“ sagði Pálmar Óli í samtali við Morg- unblaðið í gær. Veit ekki um hollenska rannsókn Pálmar Óli segir að sér sé ekki kunnugt um að Samskip og Eim- skip séu til rannsóknar hjá hol- lenskum samkeppnisyfirvöldum fyr- ir sambærileg brot og Samkeppnis- eftirlitið hefur kært félögin. Aðspurður um þann hluta um- fjöllunarinnar þar sem greint var frá því að innan Samskipa hafi verið sagt að láta ætti Ölgerð Egils Skallagrímssonar eiga sig, á meðan Vífilfell væri hjá Samskipum, hvort það væri ekki vísbending um brot á samkeppnislögum, sagði Pálmar Óli: „Nei, af hverju?“ „Það er afskaplega erfitt að tjá sig um einhverja frasa sem teknir eru úr plöggum, sem maður hefur ekki séð. Það er eiginlega ekki hægt að hefja vitræna umræðu á þeim nótum. Almennt get ég sagt, að öll fyrirtæki hljóta að vera með áform og plön, hvort sem það er í sölu- málum, markaðsmálum eða öðrum málum. Það á við um hvaða við- skipti fyrirtækin ætla að reyna að ná í, hvaða viðskiptum þau eru ekki á höttunum eftir o.s.frv.,“ sagði Pálmar Óli. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hann gæti ekki tjáð sig efnislega um kæru Samkeppniseftirlitsins á hendur ell- efu starfsmönnum Eimskips og Samskipa til embættis sérstaks sak- sóknara vegna gruns um að félögin hafi um árabil haft með sér ólöglegt samráð. Ólafur Þór staðfesti að kæran hefði borist embættinu í mars á þessu ári. Morgunblaðið reyndi ítrekað í gær að ná tali af Gylfa Sigfússyni, forstjóra Eim- skips, og Páli Gunnari Pálssyni, for- stjóra Samkeppniseftirlitsins, en án árangurs. Staðfesta ekki umfjöllun Hins vegar barst seinnipartinn í gær tilkynning frá Samkeppniseft- irlitinu þar sem segir m.a: „Samkeppniseftirlitið mun ekki verða við beiðnum fjölmiðla um að- gang að gögnum málsins. Jafnframt er eftirlitið ekki reiðubúið að stað- festa þá umfjöllun sem fram kom í Kastljósi í gærkvöldi. Þá skal sér- staklega tekið fram að rannsókn málsins er ekki komin á það stig að unnt sé að slá neinu föstu um nið- urstöður hennar. Rannsókninni miðar vel en mikil vinna er óunnin við greiningu gagna og vísbend- inga.“ Eimskip og Samskip neita sök  Samkeppniseftirlitið lagði fram kæru hjá sérstökum saksóknara í mars á þessu ári  Eimskip og Samskipum hefur ekki verið birt kæra  „Erfitt að tjá sig um plagg sem maður hefur ekki séð“ Morgunblaðið/Rósa Braga Eimskip Strax í fyrrakvöld birti Eimskip yfirlýsingu á vef Kauphallarinnar þar sem sök var neitað. Ekki tókst í gær að ná sambandi við Gylfa Sigfússon, forstjóra Eimskips. Morgunblaðið/Sverrir Samskip Pálmi Óli Magnússon, forstjóri Samskipa segist ekki hafa séð neitt í umfjöllun Kast- ljóssins í fyrrakvöld sem benti til þess að samkeppnislög hafi verið brotin af Samskipum. Pálmar Óli Magnússon Ólafur Þór Hauksson Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Blikur eru á lofti um hvort Landsmót hestamanna verði haldið í Skagafirði árið 2016, þrátt fyrir að undirrituð hafi verið viljayfirlýsing þess efnis í byrjun maímánaðar í ár. Haraldur Þórarinsson formaður Lands- sambands hestamannafélaga greindi fulltrúum hestamannafélaga í Skaga- firði, sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagafjarðar og fleirum frá þessu á símafundi í fyrradag. Ekki var búið að rita undir samn- ing, þar sem ákveðið var að bíða með undirskrift þar til Landsmótinu á Hellu, sem haldið var síðastliðið sum- ar, væri lokið. Undirbúningur var hafinn við landsmótið sem halda átti 27. júní til 3. júlí 2016 á Vindheimamelum. Sveitarfélögin í Skagafirði höfðu þeg- ar auglýst mótið og lagt fjármagn í markaðssetningu þess. Kostnaðurinn hleypur á nokkrum hundruðum þús- unda að sögn, Sigfúsar Inga Sigfús- sonar, verkefnistjóra í atvinnu- og kynningarmálum sveitarfélagsins. Sveitarfélögin ætluðu að koma meira að undirbúningi landsmótsins en þau höfðu gert áður. Landsamband hestamannafélaga auglýsti formlega eftir umsækjendum til að halda mótið 2016 og Vindheimamelar urðu fyrir valinu. „Þessi framkoma er alveg með ólíkindum. Ég átta mig ekki á hvert menn eru að fara með þessu,“ segir Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Hún segir þessa ákvörðun formannsins hafi komið sér á óvart þar sem hún og fleiri sem unnu að undirbúningi landsmótsins í Skagafirði hafi fundað nokkrum sinnum undanfarið. Landsþing hestamannafélaga fer fram um helgina á Selfossi. Þar verð- ur endanleg ákvörðun tekin. Framkoman „með ólíkindum“  Viljayfirlýsing undirrituð í maí Morgunblaðið/Árni Sæberg Landsmót Ekki liggur fyrir hvar næsta Landsmót hestamanna verður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.