Morgunblaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2014 þjóðlegt gómsætt og gott alla daga Gríptu með úr næstu verslun www.flatkaka.is kÖku gerÐ hp Þótt Ásta Ragn-heiður Jóhann-esdóttir, fyrr- verandi þingforseti og ráðherra, eigi af- mæli í dag þá býst hún við að eyða deg- inum í að undirbúa annað afmæli, líkt og hún hefur gert aðra daga undanfarið. Hún er nefnilega fram- kvæmdastjóri afmæl- isnefndar um 100 ára kosningarétt kvenna en konur fengu kosn- ingarétt árið 1915 og verða hátíðarhöld af því tilefni allt næsta ár. „Það stefnir í mikla þátttöku um allt land. Ætlunin var að hafa þetta sjálfs- prottið, að grasrótin kæmi með hugmyndir að afmælishaldinu og hafa komið fjölmarg- ar skemmtilegar hugmyndir.“ Fyrsti viðburðurinn verður fundur í Iðnó nú um áramótin, sem verður upprifjun úr kvennabaráttunni. Af öðrum viðburðum má nefna sýningu Þjóðminjasafnsins um konur í 100 ár, tónleika Sinfón- íuhljómsveitar Íslands með verkum kvenna og hátíðarhöld á Austurvelli 19. júní. Það verða málþing og ráðstefnur, fjöl- breyttar sýningar í söfnum landsins og sveitarfélögin, jafnréttis- og kvenfélög munu minnast þessara tímamóta með ýmsum við- burðum. „Aðaláhugamálið mitt núna er þetta 100 ára afmæli og svo fór ég að læra silfursmíði í Tækniskólanum en ég ákvað að láta þann draum rætast þegar ég hætti á Alþingi. Ég hef alltaf haft áhuga á hönnun og handverki og unnið mikið í höndunum, prjónað og saumað, og sit t.d. í stjórn Handverks og hönnunar.“ Eiginmaður Ástu Ragnheiðar er Einar Örn Stefánsson. Hann vinnur við ritstörf og þýðingar. Börn þeirra eru Ragna Björt Einarsdóttir og Ingvi Snær Einarsson og svo eiga þau þrjú barnabörn. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir er 65 ára Lærir silfursmíði „Mér finnst þetta mjög skemmtilegt. Maður lærir bæði að hanna og smíða gripina.“ Er að undirbúa hundrað ára afmæli Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Vinkonurnar Eydís Ósk Svavarsdóttir og Anja Rut Hrannarsdóttir gengu í hús og söfnuðu dóti á tombólu sem þær héldu síðan við Bónusbúðina við Undirhlíð á Akureyri. Þær söfnuðu 5.495 krónum sem þær styrktu Rauða krossinn með. Hlutavelta S turla Gunnar fæddist á Suðureyri við Súganda- fjörð 16.10. 1964, og ólst þar upp fram að menntaskóla. Eftir nám í Grunnskóla Suðureyrar fór hann á Héraðsskólann á Núpi í Dýra- firði, stundaði nám við MÍ, Fjöl- brautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki og lauk prófum sem rekstrarfræðingur frá Sam- vinnuháskólanum á Bifröst 1992. Eftir námið á Bifröst var Sturla Gunnar verslunarstjóri hjá Kaup- félagi Steingrímsfjarðar á Hólma- vík í tvö ár, síðar verslunarstjóri, rekstrarstjóri og innkaupastjóri hjá Kaupfélagi Suðurnesja og loks hjá Samkaupum. Hann var fram- kvæmdastjóri hjá Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli 2002-2006 og síðar framkvæmdastjóri Sam- Sturla Gunnar Eðvarðsson, framkvæmdastj. Smáralindar – 50 ára Alsæl á brúðkaupsdaginn Sturla Gunnar og Ingibjörg gengu í það heilaga í Kópavogskirkju nú í sumar. Laxveiðimaður með áhuga á landi og sögu „Göltur úr hafinu gnæfir hátt,“ segir í ljóði Guðmundar Ágústssonar. Sturla Gunnar Eðvarðsson með fjall Súgfirðinga í baksýn. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.