Morgunblaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2014 Samstaða Í gær var efnt til samstöðugöngu í kringum Tjörnina í Reykjavík í tilefni af alþjóðlegum degi helguðum baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Sumir blésu í bleikar blöðrur. Árni Sæberg Ekkert er með þeim hætti að ekki megi kúvenda og breyta. Engin ákvæði laga um búvöru- framleiðslu eru með þeim hætti að ekki megi endurskoða þau og breyta. Um þetta er fjallað í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsókn- arflokks og slík endurskoðun er að hefjast – enda ekki vanþörf á, því við byggjum á gamalli lög- gjöf og við þurfum að takast á við spennandi tíma. Þetta er ástæða að rifja upp í umræðu um mjólkurmál ásamt öðru sem ástæða er til að taka með í umræðuna. Úttekt landbúnaðarráðherra Ég fagna því framtaki landbúnaðarráð- herra að láta meta árangur síðustu ára með rannsókn Hagfræðistofnunar Háskóla Ís- lands. Engin rannsókn er betri en sú spurn- ing sem hún byggist á. Er spurt þar um hvort þessi leið skilar árangri umfram aðra – sem við gætum borið saman við þróun mála í öðr- um vörum? Við þurfum líka að spyrja um áhrif á byggðir – á búsetu – á velferð búfjár – um heilnæmi vöru – allt þættir sem sannarlega væri ástæða til að meta, því einmitt á þessum þáttum grundvallast landbún- aðarstefnan líka. Árangur Byrjum á þeim ávinningi sem náðst hefur. Raunlækkun er á verði mjólkurvara – 30% miðað við þróun launa – 20% miðað við almennt verðlag. Raunhækkun er á afurðaverði til bænda – und- an þessu er ekki vikist að við- urkenna og meta. Um þetta má fræðast í opinberum gögnum. Síðan er önnur saga hvernig smásöluálagning hefur þróast. Tollfrjálsa varan dýrust Í hagtölum Eurostat frá 2012 er sam- anburður á milli Evrópulanda, má sjá þar að matvöruverð er hér á landi 17% yfir meðaltali, mjólk er 12%, og því undir meðaltalinu, kjöt 19%, aðeins yfir meðaltalinu, og grænmeti 22% yfir. Ekki er gerður greinarmunur á inn- lendu eða erlendu grænmeti, og rétt að nefna að mestallt grænmeti hefur enga innflutnings- tolla. Án tolla eru líka kornvörur og brauð sem eru 30% yfir meðaltali. Það er því ekki um að ræða sérstaklega lágt verð á matvöru sem telst til þeirra vöruflokka sem enga tolla bera. „Undanþágan“ og verðlagningar- aðferðin duttu ekki af himnum ofan Gleymum ekki að margnefnd undanþága er hluti af byggðastefnu. Við getum spurt: Væri í dag rekin mjólkurvinnsla í Búðardal eða Eg- ilsstöðum nema einmitt vegna heimildar til skipulagningar? Skiptir það ekki íbúa þeirra héraða máli? Bændur hafa jafna stöðu til framleiðslu hvar sem er á landinu. Það skiptir máli. Varan er afhent hvar sem er á landinu á sama verði, það skiptir máli. Er umræðan kannski drifin áfram af þeim sem vilja brjóta niður slíkt skipulag og komast í sterkari valdastöðu gegn framleiðendum á mjólk- urvörum en núverandi lög heimila? Hver sem opnar mjólkurvinnslu getur fengið afhenta mjólk úr söfnunarkerfinu. Það skiptir máli. Er öðrum en MS bannað að framleiða úr mjólk? Nei. Eru einkaaðilar að vinna og selja mjólk – já þeir eru að því og það eru til glæsi- leg fyrirtæki í þeim iðnaði. Höldum áfram að leita svara Umræðan er mikilvæg og því skora ég á dugmikla blaðamenn að halda áfram að spyrja gagnrýninna spurninga. Mig langar að vita hvort tollalaus innflutt búvara, sem skatt- greiðendur annarra landa greiða þá niður, sé ódýrari en önnur vara? Eða hvers vegna kost- ar margfalt meira að selja kíló af lambakjöti á Íslandi en á Bretlandi? Hvar er umræða og stefnumótum í kjölfar McKinsey-skýrslunnar um mjög óhagkvæma verslun á Íslandi? Er umræðan valdabarátta um afslætti? Hvað segja minni kaupmenn, eru þeir sáttir við uppbrot á núverandi fyrirkomulagi, sem veitir gagnsæja afslætti til stórra sem smárra aðila á smásölumarkaði? Eru menn almennt sam- mála um núverandi fyrirkomulag á sam- skiptum smásala og birgja? Hvað hefur verið unnið með rannsókn Samkeppniseftirlitsins um matvörumarkaðinn og gríðarlegan mun á milli verslunarflokka um afslætti og álagn- ingu? Er það eðlilegt að ein verslun sæti því að þurfa að borga allt að 30% hærra verð fyrir vöru til endursölu en keppinautur? Eftir Harald Benediktsson » Bændur hafa jafna stöðu til framleiðslu hvar sem er á landinu. Haraldur Benediktsson Höfundur er alþingismaður og bóndi. Spennandi tímar Stórmerkilegur áfangi sem tengist áætluninni Betri heil- brigðisþjónustu var kynntur í liðinni viku þegar heilbrigð- isupplýsingagáttin VERA var opnuð við Heilsugæslustöðina í Glæsibæ. Með VERU er opnað fyrir öruggan rafrænan aðgang einstaklinga að margvíslegum upplýsingum um eigið heilsufar og meðferð. Í lok nóvember verður hún orðin hluti af þjón- ustu allra heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu og í febrúar á heilbrigð- isstofnunum um allt land. Þar með verður hún aðgengileg öllum landsmönnum. Síðar er stefnt að innleiðingu VERU á sjúkrahúsum og einkareknum læknastofum. Það er óumdeilt að þurfi fólk á heilbrigð- isþjónustu að halda næst bestur árangur taki það sjálft virkan þátt í meðferðinni og sé vel upplýst um hvað í henni felst. Aukin notkun upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustunni eyk- ur öryggi sjúklinga og skilvirkni og gæði þjónustunnar. Áætlunin Betri heilbrigðisþjón- usta sem ég kynnti í byrjun þessa árs felur í sér nokkur stór verkefni sem öll hafa öryggi, gæði og aukna skilvirkni heilbrigðisþjónust- unnar að markmiði. Það er ánægjulegt að sjá góða uppskeru líta dagsins ljós með opnun VERU en ég mun á næstunni kynna stöðu fleiri verkefna. Merkur áfangi og miklir framtíðarmöguleikar Sjúklingar eiga rétt á aðgangi að eigin sjúkraskrá og upplýs- ingum um eigin lyfjanotkun. Opnun VERU er fyrsta skrefið í að því að veita fólki greiðan að- gang að þessum upplýsingum. Til að byrja með er í VERU hægt að sjá upplýsingar um stöðu lyfseðla í lyfjagátt, end- urnýjun lyfja og sögu um lyfja- notkun, upplýsingar um bólusetningar og skráð ofnæmi ef því er að skipta. Sömu upp- lýsingar um börn yngri en fimmtán ára eru aðgengilegar foreldrum eða forráðamönnum þeirra. Jafnframt getur fólk pantað tíma á heilsugæslunni í gegnum VERU. Það eru ekki fyrst og fremst upplýsing- arnar sem VERA veitir nú þegar sem fela í sér merkan áfanga, heldur ekki síður ávinn- ingurinn sem felst í þeim tæknilegu lausnum, hönnunarvinnu og öryggisprófunum sem eru að baki og hafa gert VERU að veruleika. Eft- ir því sem fram líða stundir verður aukið við upplýsingar í gáttinni. Nefna má mælingar vegna hækkaðs blóðþrýstings og sykurýki, upplýsingar tengdar mæðravernd, notkun hreyfiseðla o.s.frv. Möguleikar á eftirliti með heilsufari og meðferð aukast við þetta. Upp- lýsingar um komur á heilbrigðisstofnanir, leg- ur, aðgerðir, sjúkdómsgreiningar og rann- sóknir er einnig það sem koma skal eftir því sem þróun VERU miðar áfram. Tækifærin sem felast í VERU til framtíðar eru trúlega meiri en hægt er að sjá fyrir. Eitt er þó víst að stöðugar framfarir í upplýsinga- tækni og heilbrigðistækni með öruggum gagnvirkum samskiptum hafa þegar haft mik- il áhrif á þá heilbrigðisþjónustu sem veitt er í dag og sú þróun mun halda áfram. Augljósir kostir Kostur á rafrænni beiðni sjúklinga um lyfjaendurnýjun í gegnum VERU sparar tíma heilbrigðisstarfsfólks og fólk getur komið beiðninni á framfæri hvenær sem því hentar í stað þess að vera háð ákveðnum símatímum. Aðgangur fólks að lyfjaupplýsingum með til- heyrandi leiðbeiningum um notkun lyfja sem það notar er augljós kostur. Sama máli gegnir um skráðar upplýsingar um ofnæmi sem fólk getur séð og komið upplýsingum á framfæri ef skráningu vantar. Þessi atriði geta skipt geysilega miklu um örugga meðferð sjúk- linga. Að VERA eða ekki vera … Samtengd rafræn sjúkraskrá er eitt af stórum verkefnum áætlunarinnar Betri heil- brigðisþjónusta. Áhersla er lögð á markvissa þróun upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu og samnýtingu upplýsinga til að auka gæði, öryggi, hagkvæmni og skilvirkni. Af mörgum brýnum verkefnum tel ég þetta eitt hið mik- ilvægasta og hyggst því auka fjárframlög til þess á næsta ári, eins og fram kemur í fjár- lagafrumvarpinu. Í mínum huga leikur enginn vafi á því að framtíð heilbrigðisþjónustunnar veltur að mörgu leyti á því hve vel okkur tekst að þróa og nýta kosti upplýsinga- tækninnar. Embætti landlæknis, sem ber ábyrgð á þróun upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu, hefur þróað VERU í samvinnu við Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins og hugbún- aðarfyrirtækið TM Software. Strangar örygg- iskröfur gilda um aðgang að gáttinni sem krefst því rafrænna skilríkja. Ég hvet fólk til að afla sér þeirra og nýta sér þessa mik- ilvægu upplýsingagátt frá upphafi. Um ávinn- inginn af VERU leikur enginn efi. Eftir Kristján Þór Júlíusson »Opnun VERU er fyrsta skrefið að því að veita fólki greiðan aðgang að upplýsingum úr eigin sjúkraskrá. Ávinning- urinn er margvíslegur. Kristján Þór Júlíusson Höfundur er heilbrigðisráðherra. VERA: Ný vídd í þjónustu heilsugæslunnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.