Morgunblaðið - 16.10.2014, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2014
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Bátasmiðir auk fleiri hagsmunaaðila
tengdir siglingaiðnaði á Íslandi hafa
fundað um stofnun nýrra hagsmuna-
samtaka. Á fundinn komu fulltrúar
frá tíu fyrirtækjum. Þegar hefur
verið haft samband við Samtök iðn-
aðarins um stofnun samtakanna.
Sverrir Bergsson, framkvæmda-
stjóri hjá bátasmiðjunni Seiglu, seg-
ir að þessir aðilar eigi það sammerkt
að segja farir sínar ekki sléttar af
samskiptum sínum við Samgöngu-
stofu. Sverrir segir að mál þessara
aðila séu ólík en almennt telji menn
mikið ósamræmi í afgreiðslu mála
hjá Samgöngustofu. „Við erum
t.a.m. að smíða skip og í okkar tilviki
ber okkur að senda teikningar til
Samgöngustofu. En það gengur
mjög illa að fá stofnunina til þess að
fara yfir teikningarnar. Yfirleitt
dregst það þar til menn þurfa að af-
henda skipið. Þá fyrst berast okkur
athugasemdir og
þetta veldur okk-
ur verulegu
tjóni,“ segir
Sverrir. Hann
segir það einnig
mál manna að
meiri kröfur séu
gerðar en reglu-
gerðir segi til um.
„Kröfurnar eru
ekki eins frá einu skipi til annars og
því er ekki hægt að treysta neinu í
þessu samhengi,“ segir Sverrir.
Hann gerir einnig athugasemdir við
það sem hann kallar tvöfalt eftirlits-
kerfi.
Seigla hefur verið undir eftirliti
skoðunarstofunnar Frumherja við
smíði á skipunum. „Þeir hafa gefið
samþykki sitt og í framhaldinu þurf-
um við að sækja um tækniskoðun.
Þá mæta eftirlitsmenn frá Sam-
göngustofu til að fara yfir skoðun
Frumherja. Mjög algengt er að þeir
geri einhverjar athugasemdir sem
Frumherji hefur ekki gert. Það veld-
ur okkur tjóni því það er tvíverkn-
aður að semja við einn aðila en þurfa
svo að lúta því sem annar aðili segir
eftir á. Við erum einhvers konar
milliaðili í þessu skoðunarferli og all-
ur kostnaður fellur á okkur,“ segir
Sverrir.
Erfitt að leita réttar síns
Hann segir að Frumherji hafi
sinnt eftirliti í áraraðir og ekki hafi
fallið skuggi á samstarf við fyrirtæk-
ið. Nú séu hins vegar starfsmenn hjá
Samgöngustofu sem séu tiltölulega
nýbyrjaðir í starfi og virðast þeir
ekki hafa tileinkað sér störf eldri
starfsmanna að sögn Sverris. Hann
tekur þó fram að hann hafi orðið var
við jákvæðara andrúmsloft eftir að
Þórólfur Árnason tók við starfi for-
stjóra fyrir fjórum mánuðum. „En
það er gríðarlega erfitt að leita rétt-
ar síns þegar upp kemur ágreining-
ur um það hvernig túlka á reglur,“
segir Sverrir.
Ósamræmi í afgreiðslu
Hagsmunaaðilar í siglingaiðnaði hyggjast stofna samtök
Sverrir Bergsson
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Hágæða flísar frá Ítalíu
60 x 60 cm
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Heimilisfaðir einn í Reykjavík
varð fyrir þeirri óskemmtilegri
reynslu í vikunni að finna litla
eðlu í niðursoðinni kókosmjólk,
sem hann ætlaði að nota til mat-
argerðar. „Það var frekar óspenn-
andi, þegar maður er kominn með
matinn og búinn að hella hluta af
mjólkinni út í, þegar kvikindið
birtist þarna allt í einu,“ segir
maðurinn sem vill ekki láta nafn
síns getið.
Aðspurður segir maðurinn ekki
hafa látið athuga nákvæmlega
hvers kyns kvikindi um væri að
ræða, en að lögun þess benti til
einhvers konar eðlu eða sala-
möndru. „Hún er mjög þunn og
kannski svona eins og tvær þum-
alfingursnaglir á lengd,“ segir
maðurinn.
Hann hafði samband við versl-
unina og innflytjanda vörunnar
degi síðar og lét vita hvað hefði
gerst. „Þau voru auðvitað gáttuð á
þessu og miður sín og sendu
manneskju á staðinn með stóra
körfu og inneignarnótu í verslun
sinni,“ segir maðurinn, sem er
hæstánægður með snör viðbrögð
innflytjandans. Segir hann þau
vera fyrsta flokks, enda sé ekki
við innflytjandann eða verslunina
að sakast að svona hafi farið. „Þau
ætla að kanna hvað hafi farið úr-
skeiðis þarna í framleiðsluferlinu
úti.“
Maðurinn segir málið sýna að
það borgi sig að sýna aðgát þegar
niðursuðuvörur séu opnaðar, sér í
lagi þegar um er að ræða inn-
fluttan varning, þar sem alltaf
megi eiga á því von að eitthvert
svona óhapp hafi orðið við fram-
leiðslu þeirra.
Eðla í kókosmjólkinni Manninum var skiljanlega brugðið þegar kvikindið
birtist, en er ánægður með góð viðbrögð innflytjanda kókosmjólkurinnar.
Morgunblaðið/Golli
Fékk eðlu í kaupbæti
Ánægður með
snör viðbrögð inn-
flutningsaðilans
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Búist er við að ákveðin austanátt
blási út af landinu því eldfjallagasi
sem safnast hefur upp og fólk hef-
ur orðið vart við um allt land.
Næstu daga er helst von á mistri á
Vestur- og Norðvesturlandi, sam-
kvæmt gasdreifingarspá Veður-
stofu Íslands.
Í gær lá blámóða yfir stórum
hluta Norðurlands en nálgaðist
hvergi þau mörk að valdið gæti
tjóni á heilsu fólks, eftir því sem
næst verður komist. Einna hæstu
gildin mældust á Akureyri en loft-
gæði voru þó góð eða sæmileg all-
an daginn.
Veðurstofan fékk í gær fjölda
fyrirspurna vegna mengunarinnar,
ekki síst frá leik- og grunnskólum.
Almannavarnir og viðeigandi stofn-
anir hafa birt leiðbeiningar um það
hvernig rétt sé að bregðast við
þegar mengunartoppar ganga yfir.
Þær má meðal annars nálgast á
heimasíðum Umhverfisstofnunar
og landlæknis. Gosið í Holuhrauni
hefur haldið sínu striki síðustu vik-
una. Í gærmorgun höfðu mælst 130
jarðskjálftar síðasta sólarhringinn
og eru það fleiri skjálftar en mælst
hafa undanfarnar tvær vikur.
Vísindamenn frá Íslenskum
orkurannsóknum eru að undirbúa
rannsókn í Holuhrauni. Þeir ætla
að reyna að ná sýnum af bráðinni
kviku og mæla í henni rafleiðni.
Samkvæmt upplýsingum frá
starfsmanni ÍSOR er tilgangurinn
að nýta þetta einstæða tækifæri til
að afla þekkingar sem nýta má til
að skilja betur niðurstöður við-
námsmælinga sem fyrirtækið ger-
ir.
Mælingar af þessu tagi hafa ekki
áður verið gerðar hér á landi. Þá
er ætlunin að rannsaka sýnin frek-
ar í samvinnu við Nýsköpunarmið-
stöð Íslands.
Verið er að smíða sérstaka kassa
til að safna kvikunni í og ÍSOR
hefur fengið slökkviliðsmenn úr
Þingeyjarsveit og Mývatnssveit til
að aðstoða við að ná kvikunni. Þeir
verða með viðeigandi hlífar og með
reykköfunarbúnað til að verjast
hita og mengun.
Austanáttin léttir á menguninni
Slökkviliðsmenn munu aðstoða vísindamenn frá ÍSOR við að ná sýnum af bráðinni kviku í Holuhrauni
Tilgangurinn að mæla rafleiðni og bera saman við yfirborðsmælingar Nýjung í rannsóknum
Morgunblaðið/Þórður
Blámóða Mengunarmistur frá eldgosinu í Holuhrauni lá yfir stórum hluta landsins í gær. Undarleg birta er undir.
Hafinn er undirbúningur að því að
senda varðskipið Tý til aðstoðar við
landamæragæslu á Miðjarðarhafi. Í
gær var verið að mála varðskipið aft-
ur í gráum lit Landhelgisgæslu Ís-
lands en það var málað í norsku
fánalitunum vegna verkefna fyrir
sýslumanninn á Svalbarða. Það verk
fer fram á Akureyri.
Landhelgisgæslunni barst í vik-
unni beiðni frá Frontex, landamæra-
stofnun Evrópusambandsins, um að
fá varðskip til aðstoðar við landa-
mæragæslu. Miðað er við að Týr
verði þar í desember og jafnvel leng-
ur, að því er fram kemur á vef Land-
helgisgæslunnar. Reiknað er með að
Týr verði á hafsvæðinu suður af Sik-
iley en þar mæðir mikið á því flótta-
mönnum sem reyna að komast til
Evrópu þá leiðina hefur fjölgað gíf-
urlega og hundruð farist á leiðinni.
Frontex hyggst stórauka viðbúnað á
svæðinu. helgi@mbl.is
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Málningarvinna Varðskipið Týr skiptir litum við bryggju á Akureyri.
Týr fer til Sikileyjar
Varðskipið Týr aftur málað grátt