Morgunblaðið - 16.10.2014, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2014
HHollvinasamtök líknarþjónustu
Aðalfundur Hollvinasamtaka líknarþjónustu verður í Neskirkju
mánudag 27. október 2014 og hefst hann klukkan 20:00.
Dagskrá: Aðalfundarstörf
STJÓRNIN
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Allt að 200 íbúðir verða mögulega
byggðar á svonefndum Kassagerð-
arreit, skammt frá Laugarnesinu í
Reykjavík. Raunhæft þykir að árið
2020 verði uppbyggingu íbúða og at-
vinnuhúsnæðis á reitnum lokið.
Fram kemur í samantekt um-
hverfis- og skipulagssviðs Reykja-
víkurborgar, sem lögð var fyrir
stjórn Faxaflóahafna, að í aðal-
skipulagi sé gert ráð fyrir að bygg-
ingarmagn á reitnum verði aukið um
80.000 fermetra og að byggðin verði
þriggja til fimm hæða. Sé íbúð að
meðaltali 100 fermetrar fara 20.000
fermetrar undir íbúðir.
Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxa-
flóahafna, segir málið á frumstigi.
„Í nýju aðalskipulagi borgarinnar
er gert ráð fyrir þróunarreit á þessu
svæði. Á árum áður voru ýmsar hug-
myndir um uppbyggingu á því sem
kallað var Tollvörugeymslureitur og
Kassagerðarreitur. Það hafði hins
vegar engan framgang. Það sem nú
virðist í fljótu bragði blasa við er að
höfnin, í samvinnu við borgina, setji
fram forsendur að deiliskipulagi á
reitnum. Sú vinna er ekki farin af
stað. Væntanlega yrði það fyrsta
skrefið í skipulagningunni.“
Flestar íbúðanna við Sæbraut
Spurður hvort einhverjar ákvarð-
anir hafi verið teknar um staðsetn-
ingu íbúða á reitnum segir Gísli að
málið sé ekki komið svo langt.
„Það er erfitt að segja til um
hvernig þetta mun líta út. Væntan-
lega yrði stærstur hluti íbúðanna
með Sæbrautinni. Ég get ímyndað
mér að áhugi væri á því að íbúðirnar
sneru til vesturs. Það á eftir að fara
talsvert miklu betur í gegnum það
og hversu stórt svæðið verður þegar
upp er staðið,“ segir Gísli en frá
íbúðum á vestari hluta reitsins yrði
útsýni inn til Reykjavíkurhafnar.
Að sögn Gísla má skipta reitnum í
tvö svæði. Annars vegar svonefndan
Tollvörugeymslureit og Kassagerð-
arreit og hins vegar lóðina Kletta-
garða 27. Þá lóð hafi forsvarsmenn
Olís hugsað sér sem framtíðarstað
fyrir höfuðstöðvar fyrirtækisins.
Engar ákvarðanir hafi þó verið tekn-
ar í því efni. „Þeirri lóð var sérstak-
lega úthlutað fyrir starfsemi Olís og
á rætur í uppgjöri þegar Olíustöðin í
Laugarnesi var lögð niður. Þá var
skilinn eftir reitur sem Olís fékk sem
hluta af greiðslum fyrir reitinn.“
Undirbúa nýja byggð í Laugarnesi
Skipulag gerir ráð fyrir að byggingarmagn á Kassagerðarreitnum aukist um 80.000 fermetra
Ný byggð verður 3-5 hæða Allt að 200 íbúðir verða á reitnum Olís á lóð undir höfuðstöðvar
Morgunblaðið/Júlíus
Við Sæbraut Gert er ráð fyrir að gömlu skemmurnar víki fyrir íbúðum og atvinnuhúsnæði. Gísli Gíslason, hafnar-
stjóri Faxaflóahafna, sér m.a. fyrir sér skrifstofuhúsnæði, minni heildsölur, lagarhald og ýmiss konar þjónustu, sem
rímar við hafnarstarfsemi á svæðinu, enda sé Sundahafnarsvæðið megingátt flutninga til landsins og frá.
Laugarnes – þróunarsvæði
Heimild: FaxaflóahafnirGrunnkort/Loftmyndir ehf.
Klettagarðar 27
Héðinsgata 1-3
Héðinsgata 10
Héðinsgata 2
Köllunarklettsvegur 3-5
Köllunarklettsvegur 1
Barnhóll
Andri Karl
andri@mbl.is
Sigurjón Árnason, fyrrverandi
bankastjóri Landsbankans, átti ekki
hlutabréf í bankanum eða í öðrum fé-
lögum sem skráð voru í Kauphöll Ís-
lands, þar sem hann taldi að ef hann
myndi selja eða kaupa bréf í bank-
anum gæti það verið túlkað sem vís-
bending fyrir markaðinn. Þetta var á
meðal þess sem kom fram í málflutn-
ingsræðu Sigurðar G. Guðjónssonar,
verjanda Sigurjóns fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær.
Fyrirhugað er að ljúka málflutn-
ingi í dag í máli sérstaks saksóknara
gegn þeim Sigurjóni, Ívari Guðjóns-
syni, fyrrverandi forstöðumanni eigin
fjárfestinga bankans, og þeim Sindra
Sveinssyni og Júlíusi S. Heiðarssyni,
starfsmönnum verðbréfasviðs bank-
ans.
Sagði Sigurður að formennska Sig-
urjóns í fjármálanefnd bankans hafi
ekki gefið honum nein tækifæri til
þess að ráðskast með eigin fjárfest-
ingar bankans. Engin sönnunargögn
í málinu bentu til þess og hvergi væri
að finna í fundargerðum nefndarinn-
ar neina ákvörðun bankastjórnar um
það hvernig haga ætti viðskiptum
með hlutabréf í Landsbankanum.
Misnotkun án fordæma
Gærdagurinn hófst á því að Arn-
þrúður Þórarinsdóttir, saksóknari,
flutti málflutningsræðu sína. Hófst
hún klukkan níu og lauk ekki fyrr en
um tvöleytið. Sagði Arnþrúður að
hinir ákærðu hefðu haldið uppi verði
hlutabréfa í Landsbankanum með því
að búa til falska eftirspurn.
Sagði hún undir lok ræðu sinnar að
brotin sem hér um ræddi ættu sér
ekki fordæmi hér á landi og að um
væri að ræða langvinnari, grófari,
stórfelldari og skaðlegri markaðsmis-
notkun en dæmi væru um, bæði varð-
andi fjölda viðskipta og fjárhæðir.
Sagði saksóknari það mikilvægt að
rétturinn sendi skilaboð út í sam-
félagið um að það varði refsingu að
handstýra verði hlutabréfa og krafð-
ist þess að horft yrði til refsirammans
við ákvörðun refsingar, en hámarks
refsing við brotum af þessu tagi er
sex ára fangelsi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Málsvörn Sigurður G. Guðjónsson
og Sigurjón Árnason ræða saman.
Málflutningi lokið í dag
Sérstakur saksóknari segir að brotin gerist vart alvarlegri
Sigurjón átti ekki sjálfur hlutabréf í Landsbankanum
Stjórn Faxaflóahafna fundaði í
Hafnarhúsinu í gær.
Meðal dagskrárliða var um-
ræða um athafnasvæði Björg-
unar við Ártúnshöfða. Hinn 22.
september lagði stjórnin fram
bókun þess efnis að Faxaflóa-
hafnir hygðust segja Björgun
formlega upp afnotum á Sævar-
höfða 33 í Reykjavík. Skyldi
miðað við að lóðin yrði rýmd
eigi síðar en í árslok árið 2016.
Forsvarsmönnum Björgunar
var í kjölfarið gefið tækifæri til
að lýsa sjónarmiðum sínum.
Þau birtust í svarbréfi til
Faxaflóahafna 7. október.
Stjórn Faxaflóahafna sam-
þykkti svo bókunina í gær en
auk samþykktar um að segja
Björgun upp afnotum lóð-
arinnar segir m.a. að hafnar-
stjóra sé falið að „skoða hvort
rétt sé að nýta kauprétt að
fasteignum á lóðinni, á grund-
velli mats dómkvaddra mats-
manna ef ekki næst sam-
komulag um kaupverð“. Þá er
haldið til haga skyldum Björg-
unar til hreinsunar aðliggjandi
fjöru og botns.
Spurður hvað gerist næst í
málinu segir Gísli Gíslason,
hafnarstjóri Faxaflóahafna, að
ofangreind samþykkt sé að
mati stjórnarinnar „tímabær og
óhjákvæmileg“. „Það má ætla
að það sé sameiginlegur skiln-
ingur allra aðila sem koma að
málinu að Björgun þurfi að víkja
af svæðinu. Það er þá fyrst og
fremst spurningin hvernig úr
því verður leyst, sem verður
umræðuefnið næstu misseri.“
Björgun flytji
starfsemina
LÓÐ VIÐ ÁRTÚNSHÖFÐA
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Björgun Hluti af athafnasvæði
Björgunar við Ártúnshöfða.
Þingmenn úr öllum stjórnmála-
flokkum sem sæti eiga á Alþingi
hafa lagt fram þingsályktunar-
tillögu þess efnis að innanríkis-
ráðherra verði falið að setja á fót
starfshóp sem fái það verkefni að
undirbúa endurskoðun laga um
lögheimili sem geri hjónum mögu-
legt að eiga lögheimili hvort á sín-
um staðnum, hvort heldur þegar
bæði hafa bækistöð innan lands
eða þegar annað hefur bækistöð
erlendis. Fyrri umræða um tillög-
una fór fram á Alþingi í gær.
Vakin er athygli á því í grein-
argerð með þingsályktunartillög-
unni að lög um lögheimili hafi
haldið gildi sínu í nær aldarfjórð-
ung en á sama tíma hafi orðið um-
talsverðar breytingar á þjóðfélags-
aðstæðum. Undanfarin ár hafi
borið á því að íbúar landsins hafi
lent í vandræðum vegna ákvæðis
laganna þar sem kveðið sé á um
að hjón eigi sama lögheimili.
Vinnuveitendur sem ráði til sín
starfsfólk hafi stundum gert þá
kröfu að það skrái lögheimili sitt í
því sveitarfélagi þar sem starfsemi
þess fer fram.
Þingsályktunartillaga um að hjón
geti búið hvort á sínum staðnum