Morgunblaðið - 16.10.2014, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2014
A L V Ö R U
RISTAÐ
BRAUÐ BE IKON
Spælt
E G G
MORGUNVERÐARPYLSUR
kartöfluteningar
síróp
S K I N K A OSTUR
0g0
S P R E N G I S A N D I O G T R Y G G V A G Ö T U
S Í M I 5 2 7 5 0 0 0 — W W W . G R I L L H U S I D . I S
PÖNNUKAKA
1840kr á mann
Allt á sínum stað og svo fylgir
ávaxtasafi og kaffi eða te með.
Allt þetta fyrir einungis
HELGAR
BRUNCH
EKKERT VESEN
AVIS bílaleiga sími 591 4000 – avis.is
Losnaðu við vesenið með vetrarleigu AVIS
Vetrarleiga er 8 mánuðir. Í vetrarleigu er bíllinn tekinn á leigu að hausti og skilað inn á vorin. Hún er sérstaklega
hentug fyrir vetrartengda starfsemi, skólafólk eða jafnvel þá sem einfaldlega kjósa heilsusamlegri lífsstíl á sumrin.
Vetrarleiga er einungis í boði í september og október á hverju ári og eru 1.650 km á mánuði innifaldir.
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
VETRARLEIGA
VERÐ FRÁ
48.900 KR.
ÁMÁNUÐIÍ ÁTTAMÁNUÐI
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
„Auðvitað er enginn sáttur við að
missa vinnuna en framkvæmdin er
fyrir neðan allar hellur og það er
mitt mat sem trúnaðarmanns að
hér sé verið að fara á svig við lög
um hópuppsagnir.“ Þetta segir
Kristinn Örn Jóhannesson, trún-
aðarmaður VR hjá Primera Air, en
hann segir að þær upplýsingar sem
fram komu í Morgunblaðinu 11.
október síðastliðinn um uppsagnir
hjá fyrirtækinu standist ekki skoð-
un.
Í frétt Morgunblaðsins var m.a.
haft eftir Andra Má Ingólfssyni,
forstjóra og eiganda Primera Trav-
el Group, að um 20 starfsmönnum
Primera Air á Íslandi yrði sagt upp
í tengslum við flutninga starfsemi
fyrirtækisins til Riga í Lettlandi.
Kristinn segir umræddan fjölda
nær því að vera 50. Hann segir að á
starfsmannafundi 22. ágúst sl. hafi
verið tilkynnt að öll starfsemi fé-
lagsins á Íslandi yrði flutt til Riga,
utan þeirrar sem sneri að fjármála-
sviði. Hjá félaginu starfi alls 65
manns en aðeins 15 á fjármálasviði.
Ljúka eigi flutningum í mars á
næsta ári.
Starfsmenn gagnrýna
eigendur og stjórnendur
Níu starfsmönnum Primera Air á
Íslandi, og tveimur í Svíþjóð, var
sagt upp í september að sögn Krist-
ins en á fjölsóttum fundi starfs-
manna 25. september var samþykkt
ályktun þar sem starfsfólkið gagn-
rýnir eigendur og stjórnendur fé-
lagsins fyrir að „fagna“ velgengni
fyrirtæksins síðustu ár með því að
leggja niður starfsemi þess hér á
landi.
„Viðleitni starfsfólks til að mæta
þessum breytingum með jákvæðum
og uppbyggilegum hætti, m.a. með
ósk um sanngjörn starfslokakjör
starfsmanna, hefur verið hunsuð.
Starfsfólk lítur á fyrirhugaðar
breytingar sem hópuppsögn enda
ekki annað hægt þegar ljóst er að
meirihluta starfsmanna muni verða
sagt upp störfum sínum á næstu
mánuðum og undrast tilraunir
stjórnenda til að fara í kringum lög
um hópuppsagnir og það samráð
við starfsmenn og stjórnvöld sem
þar er kveðið á um,“ segir m.a. í
ályktun fundarins.
„Við höfum haldið því fram að
það yrði áhættuminnst fyrir fyrir-
tækið í þessari stöðu að halda fólki í
vinnu þar til hægt væri að flytja
störfin út og þá væri fólk einfald-
lega leyst undan störfum og upp-
sagnarfrestur greiddur. Það er
mildandi aðgerð, hún er mannlegri
og áhættuminni fyrir fyrirtækið, að
okkar mati,“ segir Kristinn en
þessu hafi verið hafnað af hálfu
stjórnenda.
Sárt og reitt
Kristinn, sem er fyrrverandi for-
maður VR, segir að gengið hafi ver-
ið til samninga við lykilstarfsmenn
um starfslok en einhverjir starfs-
menn hafi sagt upp störfum eftir að
ljóst varð hvert stefndi. Hann mun
funda með lögfræðingi ASÍ í dag.
Spurður um hljóðið í starfsfólk-
inu segir hann fólk áhyggjufullt en
andinn sé engu að síður góður.
„Auðvitað er fólk sátt og reitt, en
þess má geta að þetta hefur verið
frábær vinnustaður með rosalega
góðum starfsanda og það ótrúlega
er að starfsandinn og húmorinn
hafa haldið sér. En auðvitað er fólk
sárt, reitt og vissulega óttaslegið.“
Að sögn Kristins hefur Primera
Air samið um áfallahjálp til handa
starfsmönnum og aðstoð við at-
vinnuleit og gerð ferilskrár. Hann
segir þessi úrræði þó aðeins standa
þeim til boða sem þegar hefur verið
sagt upp.
Morgunblaðið/ÞÖK
Flutningar Primera Air hefur fengið flugrekstrarleyfi í Lettlandi.
Segir að farið sé á svig
við lög um hópuppsagnir
Allt að 50 muni
missa vinnuna hjá
Primera Air
Morgubblaðið/ÞÖK
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
Opinn fundur
verður haldinn
fimmtudaginn
16. október í
Lögbergi 101
kl. 12.00-13.00.
Þar flytur
Geir Helgesen
fyrirlesturinn
„Útskúfun eða
samræður?
Hvernig við eigum að haga sam-
skiptum við Norður-Kóreu.“
Geir Helgesen er forstöðumað-
ur Norrænu Asíumálastofnunar-
innar (NIAS) sem er staðsett í
Kaupmannahafnarháskóla. Hann
mun fjalla um kynni sín af þessu
dularfulla samfélagi.
Ræðir um samskipti
við Norður-Kóreu
Kim Jong-Un
STUTT
Bleiki dagurinn er í dag, 16.
október. Leitarstöð Krabbameins-
félagsins í Skógarhlíð verður op-
in á bleika daginn kl. 8-16 fyrir
„týndar konur“ þ.e. konur sem
ekki hafa skilað sér á réttum
tíma í leghálskrabbameinsleit,
segir í frétt frá félaginu.
„Þær þurfa ekki að panta tíma,
bara koma við og fá skoðun.
Skoðunargjaldið er 4.200 kr. en
við minnum á að flest stéttarfélög
niðurgreiða það. Við munum taka
vel á móti þeim því haldið verður
upp á bleika daginn hjá Krabba-
meinsfélaginu með tónlist, slauf-
um, þyrluflugi og veitingum,“
segir í frétt frá Krabbameins-
félaginu.
Opið hús fyrir
„týndar konur“
Varðberg, samtök um vestræna sam-
vinnu og alþjóðamál, boðar til hádeg-
isfundar í fyrirlestrasal Þjóðminja-
safns fimmtudaginn 16. október,
klukkan 12.00 til 13.00.
Birgir Ármannsson, formaður ut-
anríkismálanefndar Alþingis, flytur
erindið: NATO og nýjar hættur.
„Fyrir fáeinum vikum komu leið-
togar NATO-ríkjanna saman til fund-
ar í Wales og tóku ákvarðanir um við-
brögð við nýjum aðstæðum í
öryggismálum Evrópu vegna aðfarar
Rússa að Úkraínumönnum. Hinn 1.
október 2014 tók Jens Stoltenberg við
embætti framkvæmdastjóra NATO
af Anders Fogh
Rasmussen. Borg-
arastyrjöldin í Sýr-
landi og hernaður
Íslamska ríkisins
er háður við landa-
mæri NATO-ríkis,
Tyrklands. Boðað
hefur verið að á því
þingi sem nú situr
verði lögð fram til-
laga til ályktunar
um þjóðaröryggisstefnu Íslands,“
segir í tilkynningu.
Birgir Ármannsson mun fjalla um
þessi málefni og stöðu Íslands.
Fjallar um NATO
og nýjar hættur
Birgir
Ármannsson