Morgunblaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 19
VITINN 2014
Undir yfirskriftinni Vitinn 2014 verður í hringferðinni
leitað að áhugaverðum vaxtarbroddum í atvinnu
lífinu um land allt. Lesendur eru hvattir til að senda
blaðinu ábendingar á netfangið vitinn@mbl.is.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2014
Hafnarfjörður hefur það orð á
sér að vera rokkbær enda hafa
ekki síðri sveitir en Jet Black
Joe og Sign sprottið þar upp.
Ein af nýrri hafnfirsku rokk-
sveitunum eru þungarokk-
ararnir ungu í Alchemia en
þeir gáfu út sína aðra plötu í
sumar.
„Fólkið hérna er nógu um-
burðarlynt til að leyfa manni að
æfa sig, held ég!“ segir Gott-
skálk Daði Reynisson, trommu-
leikari Alchemia, um hvers
vegna Hafnarfjörður sé svo
frjór jarðvegur fyrir rokkið.
Sveitin hefur starfað í sjö ár,
allt frá því að stofnmeðlimir
hennar voru 17 ára gamlir.
Fyrsta plata hennar kom út ár-
ið 2011 og var samnefnd sveit-
inni. Gottskálk segir ekki ein-
falt mál að koma sér á fram-
færi, ekki síst þegar menn spili
tónlist sem er ekki inni í meg-
instraumnum eins og þunga-
rokk. Sú tónlistarstefna lifi þó
góðu lífi í dag eins og sést á
vinsældum Skálmaldar og
Dimmu til dæmis.
Meðlimir Alchemia eru allir í
hefðbundnum störfum samhliða
tónlistinni og segir Gottskálk
þá jarðbundna hvað varðar
framtíðardrauma.
„Draumurinn eins og staðan
er í dag er bara að geta gefið
út fleiri plötur og haldið áfram
að hafa gaman af þessu. Ef við
verðum vinsælir úti í hinum
stóra heimi og förum að túra
um Evrópu og Bandaríkin þá er
það ekki verra,“ segir Gott-
skálk. kjartan@mbl.is
Rokkbærinn Hafnarfjörður stendur undir nafni
Ábúðarfullir Meðlimir rokksveitarinnar Alchemia á góðri stundu.
Frá vinstri: Egill Fabien, Gottskálk Daði, Gabríel Örn og Birgir Þór.
Umburðarlyndi
fyrir æfingunum
hverfi með öryggisvörðum vorum
við með sífelldar áhyggjur. Þá er
menntun mjög dýr, opinberir skólar
eru almennt ekki góðir og það er
mikil samkeppni að koma börnum
inn í þá einkaskóla sem eru taldir
bestir. Þeir eru líka mjög dýrir,
skólagjöldin geta verið milljónir á
ári. Hérna fá öll börn mjög góða
menntun og við þurfum engar
áhyggjur að hafa af öryggi.“
„Ég verð alltaf svo glöð þegar
ég horfi á eftir honum hjóla einum í
skólann,“ segir Oy. „Það minnir mig
á hvað þetta var góð ákvörðun.“
Hjónin höfðu samband við fyrr-
verandi vinnufélaga og svo fór að
þeim voru boðin störf hjá Kaup-
þingi. Þau hafa nú búið hér sam-
fleytt frá 2007, lengst af í Reykjavík
en fluttu fyrir skömmu í eitt af nýrri
hverfum Kópavogs.
Spurð um hvort þau hafi óttast
að missa vinnuna þegar Kaupþing
féll haustið 2008 segja þau svo hafa
verið. „Já, auðvitað. Við fengum að
vita að það yrði hringt í alla og þeir
látnir vita. Við biðum við símann all-
an daginn og þegar símtalið kom var
okkur sagt að við myndum halda
vinnunni,“ segir Wirach.
Hjónin hafa starfað víða um
heim; í Taílandi, á Filippseyjum, í
Hong Kong og núna á Íslandi. Þau
hafa alla tíð, allt frá því að þau luku
háskólanámi árið 1994, unnið saman
og segja ekki erfitt að draga mörk
vinnu og einkalífs. „Í vinnunni erum
við vinnufélagar. Okkur myndi t.d.
aldrei detta í hug að fara að tala um
í vinnunnihvað við ætlum að hafa í
kvöldmatinn,“ segir Wirach.
Kurteisir og áhugasamir
Vissulega er margs að sakna
frá heimalandinu og nefna þau eink-
um vini og fjölskyldu. Þau leggja sig
fram við að viðhalda tengslum og
fara til Taílands á hverju ári.
Hjónin hafa ferðast talsvert um
landið. Spurð um hvaða staður þeim
þyki fallegastur svara þau að hér sé
allt fallegt. „En ef ég á að velja einn
uppáhaldsstað, þá er það Geysir,“
segir Oy og Wirach samsinnir því.
Þau segja Kópavog fyrirtaks
stað til að búa á, öll þjónusta sé inn-
an seilingar og stutt sé í skólann og
á fótboltaæfingar fyrir Mart sem
æfir af kappi með Breiðablik.
Hjónin eru sammála um að Ís-
land sé talsvert frábrugðið Taílandi
að flestu leyti. Þau segja Íslendinga
almennt áhugasama um uppruna
þeirra og hvernig þeim gangi að að-
lagast samfélaginu. Þau segja eft-
irtektarvert hvað Íslendingar eru
kurteisir upp til hópa og þau heyri
þá sjaldan tala illa um annað fólk.
„Mér finnst áberandi hvað Íslend-
ingar eru yfirleitt hreinskilnir, þeir
koma hreint fram við fólk og það
finnst mér þægilegt,“ segir Oy.
„Ísland er öðruvísi en Taíland á
góðan hátt, ætli það sé ekki besta
lýsingin,“ segir Wirach.
Morgunblaðið/Eggert
Fjölskylda Hjónin bera íslenska skólakerfinu vel söguna og að öll börn eigi
kost á sömu menntun óháð efnahag foreldra. Því sé öðruvísi farið í Taílandi.
Oy og Wirach segjast bæði hafa lært um Ísland í grunnskóla, þau hafi vit-
að hvar landið var og að þar væri nokkuð kalt. „Mynd af eskimóa kom upp
í hugann þegar við töluðum fyrst um að flytja til Íslands,“ segir Wirach.
„Kannski var þannig mynd með Íslandskaflanum í skólabókinni, ég man
það ekki. En okkur kom svo á óvart hvað allt var nýtískulegt hérna og allir
tæknivæddir, Íslendingar eru a.m.k. tveimur árum á undan Taílendingum
hvað það varðar.“ Oy skýtur því inn í hversu ánægjulegt það sé að úrval í
matvöruverslunum hafi aukist frá því þau komu hingað fyrst árið 1998.
„Þá þurfti ég t.d. að leita út um allt eftir chili-aldini. Núna fást þau í öllum
búðum.“
Nú fæst chili alls staðar
LÆRÐU UM ÍSLAND Í GRUNNSKÓLA
útvegsfyrirtæki innanlands og ut-
an. „Við höfum selt til Færeyja,
Kanada og Noregs og í sjónmáli er
sala til Bretlands og Bandaríkj-
anna,“ segir Helgi. Stærstu verk-
efnin hafa þó verið unnin innan-
lands, ekki síst fyri HB Granda.
Nýleg stórverkefni eru fyrir Gjög-
ur á Grenivík, sem keypti snyrti- og
skurðarlínu og flokkara. Þar er nú
eitt fullkomnasta fiskvinnsluhús
landsins, eitt það sjálfvirkasta á
öllu landinu. Þá keypti Ísfiskur í
Kópavogi röntgenstýrða skurð-
arvél. Vélin sker sjálfvirkt bein-
garð úr þorsk- og ýsuflökum sam-
tímis, og sker hún flökin í þær
bitastærðir sem óskað er hverju
sinni. Búnaðurinn kom á markað
fyrir tveimur árum og hefur hann
vakið mikla eftirtekt í greininni ut-
anlands sem innan. Var Valka fyrst
til að setja slíkan búnað á markað.
Helgi segir að velta Völku hafi
numið um 400 milljónum króna á
síðasta ári. Á þessu ári stefni í um
50% veltuaukningu.
gudmundur@mbl.is
Morgunblaðið/Þórður
Valka Þar eru nú 20 starfsmenn.
HB-System
ABUS kranar í öll verk
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.is
Stoðkranar Brúkranar
Sveiflukranar