Morgunblaðið - 16.10.2014, Qupperneq 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2014
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699-8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Húsnæði óskast
Óska eftir 4 herbergja íbúð
í Reykjavík
Fjölskylda sem telur 3 leitar að íbúð í
Reykjavík í langtímaleigu. Greiðslu-
geta ca 180.000. Erum mjög reglu-
söm og ábyrg.
oddnystef@gmail.com
Sími 659 2565.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Antík
Antikhúsgögn í úrvali
Postulíns matar- og kaffistell
Silfurborðbúnaður og gjafavara
Opið frá kl. 10 til 18 virka daga
Þórunnartúni 6,
sími 553 0755 – antiksalan.is
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur fyrir
veturinn og tek að mér
ýmis smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704 eða
manninn@hotmail.com
Heilsárshús
Glæsileg heilsárshús
Stór sem smá heilsárshús,
framleitt eftir ósk kaupanda.
Efnismikil hús með stóru svefn-
lofti, teikning af 64fm + loft, 74fm
+ loft, 84fm + loft. Vönduð vinna,
vanir menn. Erum á Suðurlandi.
Haraldur Húsasmíðameistari.
Sími 894 0048.
halli@hatak.is
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Hópbílar
Bjóðum hópferðabíla frá 8-67 farþega.
Guðmundur Tyrfingsson ehf
gt@gtbus.is www.gtbus.is
S. 568-1410 / 482-1210
Hópferðabílar til leigu
með eða án bílstjóra
Bílar
Til sölu Toyota Prius, Plug in
Rrafmagns og hybrid bíll, árg. 2012.
Mjög vel með farið eintak.
Verð tilboð.
Upplýsingar í síma 863-7656.
Hópferðabílar til leigu
Fast verð eða tilboð.
Plútó ehf
sími: 892 1525.
Ýmislegt
VANDAÐIR VETRARSKÓR Í
ÚRVALI!
Teg. 619414 Vandaðir dömu vetrar-
skór úr leðri(nubuk), fóðraðir og á
góðum sóla. Stærðir: 36-41
Verð: 19.985
Teg. 619413 Vandaðir dömu vetrar-
skór úr leðri(nubuk), fóðraðir og á
góðum sóla. Stærðir: 36-41.
Verð: 19.985.-
Teg. 619412 Vandaðir dömu vetrar-
skór úr leðri, fóðraðir og á góðum
sóla. Stærðir: 36-41. Verð: 19.985
Teg. 5528 Vandaðir dömu vetrarskór
úr leðri, fóðraðir og á góðum sóla.
Stærðir: 36-42. Verð: 17.785
Teg. 5524 Vandaðir dömu vetrarskór
úr leðri (nubuk), fóðraðir og á góðum
sóla. Stærðir: 36-42. Verð: 17.785
Teg. 7294 Vandaðir dömu vetrarskór
úr leðri, fóðraðir og á góðum sóla.
Stærðir: 36-42. Verð: 17.785
Teg. 804 Vandaðir dömu vetrarskór
úr leðri, skinnfóðraðir og á góðum
sóla. Stærðir: 36-42. Verð: 15.985
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Kær vinur er
horfinn á braut.
Þótt það hafi verið vitað um
nokkurt skeið að þetta lægi fyrir
er alltaf jafnerfitt að horfast í
augu við manninn með ljáinn.
Ég hef þekkt Magga lengi og
ég á eftir að sakna þess að sjá
ekki bílinn hans hér, hálfan fyrir
innkeyrslunni og hann segja þeg-
ar ég kem inn: „Hæ, þú hefur
komist framhjá?“ og svarið hjá
mér oftast: „Já, já, ég vissi það.“
Ég á líka eftir að sakna neftób-
akskornanna á gólfinu þegar
Maggi var búinn að vera í kaffi.
Maggi var maður sem hægt var
að treysta á, hann var frekar ein-
rænn, nánast einfari. En hann
kom alltaf reglulega, var fastur
punktur í tilverunni sem senni-
lega enginn getur fyllt upp í. En
nú siglir Maggi á vit nýrra ævin-
týra á nýjum bát með Maddý sér
við hlið. Megi minning þeirra
beggja lifa um ókominn tíma með
þökk fyrir samfylgdina í rúm
fjörutíu ár.
Hanna Ingimundardóttir.
Ég kynntist Magga vini mín-
um fyrst 1973 við svolítið skrýtn-
ar aðstæður um borð í Reyni GK
177 í Sandgerðishöfn og í fellibyl.
Þá var ég stýrimaður á Reyni en
Maggi vélstjóri á Steinunni
gömlu, sem sökk þessa nótt. Eftir
þetta kom Maggi yfir á Reyni
sem vélstjóri og vorum við saman
á sjó í nokkur ár bæði á Reyni og
Danna Péturs.
Maggi var þeim eiginleikum
gæddur að þegar var verið að
trolla og aðrir settust við spil
settist hann í hornið sitt með kaffi
og sígó og var sofnaður eftir
Magnús
Jónsson
✝ Magnús Jóns-son fæddist í
Reykjavík 16.2.
1936. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja 24.
september 2014.
Útför Magnúsar
fór fram í kyrrþey
að hans ósk.
fimm mínútur.
Margir öfunduðu
hann af þessum eig-
inleika. Seinna unn-
um við saman í vél-
smiðjunni Kópu og
flæktumst þá vestur
á firði að setja upp
bræðslur.
Maggi var ekki
allra, hann var frek-
ar mikill einfari.
Enda heitir bátur-
inn hans Einfari og um borð í
bátnum sínum leið honum vel.
Þar sem við áttum heima í
sama húsi og á sömu hæð var
mikill samgangur. Fastur liður
var að fara í Austurbæjarbíó og
sjá gamanleikrit. Það var oft fjör
og þetta voru góðir tímar.
Núna síðustu ár hefur Maggi
barist við erfið veikindi, sjúkdóm
sem manni finnst leggja flesta að
velli í dag. Maggi var vinur vina
sinna, en hann otaði sér hvergi.
Eitt sinn spurði ég hvernig hann
hefði það. Svarið var: „Mín veik-
indi eru ekki til umræðu,“ og þar
með var það búið mál.
Ég vil þakka Magga fyrir vin-
áttu hans í gegnum mín veikindi,
þar sýndi hann hvað hann var
mikill vinur. Þótt hann skildi
varla orð af því sem ég reyndi að
böggla út úr mér sat hann og tal-
aði við mig eða hringdi og athug-
aði með mig.
Ég á eftir að sakna þess að
sitja og drekka morgunkaffið
ýmist heima hjá mér eða honum,
sem hefur verið svona kjölfestan í
tilverunni, og hringinganna um
hvort stórútgerðarmennirnir
þurfi nú ekki að gá að stóreign-
unum í Sandgerðishöfn. Rúnt-
anna hingað og þangað, ekkert
stress.
Nú skilur leiðir, nú siglir vinur
minn á ný mið, aðeins lengra en
út í eyju eða suður í Röst. Líklega
verður báturinn nýr Einfari og
kannski rauður og hvítur.
Ég kveð Magga vin minn með
miklum söknuði, vonandi hitt-
umst við seinna, við aðra höfn og í
morgunkaffi. Kær kveðja,
Jón Halldór Björnsson.
✝ María Björns-dóttir fæddist í
Reykjavík 3. desem-
ber 1920. Hún lést á
Droplaugarstöðum
17. september 2014.
Foreldrar henn-
ar voru Guðrún
Brynjólfsdóttir hús-
freyja, f. 7.8. 1878,
d. 1947, og Björn
Sumarliði Jónsson
verkamaður, f.
20.10. 1881, d. 1961.
María var yngst níu systkina
sem öll eru látin, en þau voru:
Elín Anna, f. 1907, d. 2001,
Kristín, f. 1908, d. 1997, Jóna
Rannveig, f. 1911, d. 1998, Krist-
ján, f. í mars 1913 og d. í júní
sama ár, Birna Guðrún, f. 1914,
d. 1973, Samúel, f. 1916, d. 1991,
Brynjólfur Kristinn, f. 1917, d.
1975, og Rakel, f. 1919, d. 1996.
Hinn 26. september 1942 gift-
ist María Herði Guðmundssyni
byggingarverktaka, f. 4. desem-
ber 1922, d. 11. september 1984.
Börn þeirra eru: 1) Marsibil, f.
30. september
1941, gift Elfari
Heiðari Þorvalds-
syni, f. 13. október
1938, dætur þeirra
eru Þórhildur,
Ruth, María og
Hildur. 2) Guð-
mundur, f. 29. júlí
1943, kvæntur
Kristínu Snorra-
dóttur, f. 29. mars
1946, börn þeirra
eru Jóhanna Kristín og Hörður
Már. 3) Guðrún Birna, f. 9. des-
ember 1946, d. 15. júlí 2009, gift
Guðmundi Steinþórssyni, f. 21.
október 1935. Börn þeirra:
María Kolbrún, Indriði Stein-
þór, Guðrún Bjarney, Sæmund-
ur Bjarni og Þórdís Guðbjörg. 4)
Erla Kristrún, f. 25. nóvember
1948, dóttir hennar er Chloé
Ophelia. Langömmubörnin eru
26 og langalangömmubörnin
fjögur.
Útför Maríu fór fram 30. sept-
ember 2014, í kyrrþey að henn-
ar ósk.
Mæja og Lóa, mamma mín,
hafa verið bestu vinkonur lengur
en elstu menn muna, enda fáir
sem ná vel á tíræðisaldur eins og
þær vinkonurnar sem kynntust
sem smástelpur árið 1927, þá
fimm og sex ára gamlar. Ragga,
systir Mæju, var ekki síðri vin-
kona mömmu og var sú þrenning
því stór hluti tilveru minnar alla
tíð. Ragga lést fyrir átján árum
en þar fór einstaklega skemmti-
leg kona sem gleymist seint. Þær
systur áttu sammerkt að vera
bráðfyndnar og fjörugar og þar
sem mamma er enginn eftirbátur
í góðum húmor og hlátrasköllum
var engin lognmolla þegar vin-
konurnar hittust. Þegar fjöl-
skyldur hafa í sameiningu brallað
svo margt endar með því að allt
rennur saman og það eru þó-
nokkur ár síðan ég hætti að kalla
Mæju „vinkonu mömmu“ því hún
var auðvitað vinkona okkar allra,
alveg einstakur fjölskylduvinur.
Góðir vinir hjálpast að og þannig
var að Rúna, ein dætra hjónanna
Mæju og Harðar, ólst upp hjá
foreldrum mínum. Síðar giftist
Rúna vestur á firði, en þrátt fyrir
að alast ekki upp hjá foreldrum
sínum breytti það engu um að
Mæja var sannarlega formóðir
barnahópsins hennar Rúnu með
öllum hlutverkum sem því fylgir.
Upphaf þessarar löngu vináttu er
að sem börn voru mamma og
Mæja nágrannar. Þegar ég var
stelpa bjuggu fjölskyldurnar um
tíma í sama húsi og tilviljun ein
réð því að fyrir nokkrum árum
fluttu foreldrar mínir í íbúð beint
á móti Mæju svo síðustu árin
nutu þau góðra samvista undir
sama þaki. Mæja varð ekkja fyrir
mörgum árum og afkomendur
þeirra hjóna eru fjölmargir. Samt
þóttumst við eiga svo mikið tilkall
til Mæju að við reiknuðum með
henni í alls konar uppákomur, í
sumarbústaðinn og þegar afmæli
og annað skemmtilegt var á
seyði. Ungum sem öldnum þótti
okkur meira en sjálfsagt að Mæja
væri með og víst er að ekki dró
nærvera hennar úr fjörinu. Ég
veit að ég mæli fyrir munn allra í
fjölskyldu minni þegar ég þakka
Mæju samveruna, þakka fyrir
einstaklega fallega vináttu henn-
ar og mömmu í 87 ár og allt það
skemmtilega sem hvert okkar
fékk síðar að njóta með vinkonu
okkar, Mæju.
Hólmfríður Ben
Benediktsdóttir.
María Björnsdóttir
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og
hvenær sá sem fjallað er um
fæddist, hvar og hvenær hann
lést og loks hvaðan og klukkan
hvað útförin fer fram. Þar mega
einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og
börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja
mynd skal senda hana með æviá-
gripi í innsendikerfinu. Hafi
æviágrip þegar verið sent er ráð-
legt að senda myndina á net-
fangið minning@mbl.is og láta
umsjónarmenn minningargreina
vita.
Minningargreinar