Morgunblaðið - 16.10.2014, Qupperneq 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2014
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Kvikmyndaframleiðandinn Anton
Máni Svansson er meðframleið-
andi að Wolf and Sheep, fyrstu
leiknu kvikmyndinni í fullri lengd
eftir kvenleikstjóra frá Afganist-
an. Kvikmyndin verður jafnframt
fyrsta „art-house“-myndin sem
tekin er í Afgan-
istan, að sögn
framleiðenda.
Ung og hæfi-
leikarík kona að
nafni Shahr-
banoo Sadat,
kölluð Shahr, er
handritshöf-
undur og leik-
stjóri mynd-
arinnar og vann
hún að handriti
hennar í leikstjórnarsmiðju Can-
nes-kvikmyndahátíðarinnar fyrir
fjórum árum. Shahr var þá yngsti
kvikmyndagerðarmaðurinn sem
setið hafði smiðjuna, aðeins tvítug
að aldri en ári síðar var hennar
fyrsta leikna stuttmynd, Vice
Versa One, valin til keppni á hátíð-
inni. Stefnt er að því að hefja tök-
ur á Wolf and Sheep í maí á næsta
ári, náist að fjármagna hana að
fullu og stendur nú yfir hópfjár-
mögnun fyrir hana á vefnum Poz-
ible (www.pozible.com/project/-
187023) sem valdi nýverið fimm
kvikmyndir til að styðja við bakið
á og var hún ein þeirra. Mark-
miðið er að safna 100.000 Banda-
ríkjadölum fyrir 2. nóvember.
Anton Máni segir erfitt að fjár-
magna mynd af þessu tagi og því
hafi danskur aðalframleiðandi
myndarinnar, Katja Adomeit hjá
Adomeit Film sem hefur m.a. ver-
ið meðframleiðandi sænsku kvik-
myndarinnar Turist, fengið fram-
leiðendur frá nokkrum löndum til
liðs við sig. Þá hafi myndin fengið
nokkra þróunarstyrki víðsvegar
frá Evrópu og framleiðslustyrk frá
danska kvikmyndasjóðnum. Anton
Máni vonast til þess að geta fengið
sem flest íslenskt kvikmyndagerð-
arfólk til að starfa við myndina en
segir það fara eftir því hversu stór
hluti framleiðslufjármagnsins komi
að lokum frá Íslandi.
Byggð á æsku leikstjórans
-Hvernig komst þú að þessu
verkefni?
„Ég kynntist aðalframleiðand-
anum, Kötju Adomeit, á kvik-
myndahátíðinni í Cannes á þessu
ári þegar ég var að kynna kvik-
myndina Hjartastein,“ svarar Ant-
on Máni. Þau hafi farið að spjalla
um Wolf and Sheep og honum litist
það vel á myndina að hann hafi
ákveðið að finna leið til að koma
Íslandi inn í verkefnið.
-Um hvað fjallar myndin?
„Það má segja að þetta verði
fyrsta afganska „art-house“-
myndin, listræn svipmynd af litlu
sveitasamfélagi sem Shahr ólst
upp í. Stað þar sem börn þurfa að
vinna allan daginn samhliða því að
upplifa bernskuna. Stað þar sem
úlfur reikar stundum um á tveim-
um fótum síðla nætur.
Wolf and Sheep verður kvik-
mynd sem blandar á einstakan
máta saman miklu raunsæi og
„dassi“ af töfrum. Sagan er byggð
á æsku leikstjórans en við tökur
hennar mun hún eingöngu notast
við ólærða leikara, venjulegt fólk
frá svæðinu. Hún hefur tileinkað
sér sérstaka aðferð við gerð
mynda sinna sem hefur skilað
henni lofsverðum árangri en sú að-
ferð byggist í einföldu máli á því
að kvikmynda skáldað handrit
nánast eins og heimildarmynd.
Myndir frá Afganistan hafa hingað
til flestar verið einhverskonar
áróðursmyndir þar sem athyglinni
er beint að því umdeilda og ógn-
vekjandi en nóg tel ég vera um
neikvæða umfjöllun frá fjölmiðlum
sem hefur t.d. gert það að verkum
að flestir tengja Afganistan ein-
göngu við hryðjuverk, talibana,
stríð, ofbeldi og ópíum. Shahr
langar að segja okkur allt aðra
sögu en við erum vön að heyra og
búa til mynd sem gefur okkur inn-
sýn í venjulegt þorp í Afganistan
þar sem fólk er ekki í neinum
tengslum við umheiminn og veit
varla hvað er á seyði í sínu eigin
landi,“ segir Anton Máni.
Tryggingar og öryggisgæsla
„Öryggi er mikilvægur þáttur
við gerð þessarar myndar en nú
þegar höfum við þurft að fresta
tökum einu sinni þar sem ástandið
í landinu var of varhugavert til að
skipuleggja ferð þangað með al-
þjóðlegt tökulið,“ segir Anton
Máni um myndina.
-Er ekki erfitt að fá öll tilskilin
leyfi fyrir tökur á kvikmynd í Afg-
anistan?
„Jú, jú, og stór hluti fjármagns-
ins fer í öryggisgæslu og þess
háttar. Það þarf að kaupa ýmsar
tryggingar og erum við nú þegar
komin í samstarf með Guardian
sem er eitt af reyndustu öryggis-
fyrirtækjunum í Danmörku.
Myndin verður þó skotin í Baym-
an, rólegasta héraðinu í Afganist-
an, en þar hafa engin átök átt sér
stað frá 11. september 2001.
Ástandið í landinu er þó enn nokk-
uð flókið, t.a.m. munu víst allir al-
þjóðlegir hermenn yfirgefa landið
við lok 2014 og hefur því meiri-
hluti fjölskyldu og vina Shahr-
banoo flúið landið af hræðslu við
þær breytingar sem kunna að
verða í kjölfar þessa. Shahr hefur
þó ákveðið að dvelja áfram í Afg-
anistan og segja heiminum fleiri
sögur af sínu heimalandi,“ svarar
Anton Máni.
Anton Máni segir Shahr mjög
aðdáunarverða baráttukonu. Hún
sé í raun að berjast fyrir bættri
ímynd Afganistan og uppbyggingu
menningar í landinu.
Að lokum er hann spurður að
því hvort hann sé bjartsýnn á að
myndin verði gerð.
„Já, ég er mjög bjartsýnn, þeg-
ar maður hefur svona gott verk-
efni í höndunum þá býst maður
ekki við öðru en að finna leið til að
fjármagna það. Ég hef nú þegar
selt RÚV myndina en bind svo
miklar vonir við að Kvikmynda-
miðstöðin styðji við verkið sem og
að hópfjármögnun okkar gangi
eftir. Mín von er að Íslendingar
verði þátttakendur í að brjóta blað
í kvikmyndasögu Afganistan og
hjálpi til á þennan máta við að
breyta núverandi, einhliða sjón-
arhorni heimsins á landið,“ segir
Anton Máni.
Leikstjórinn Kvikmynd Sadat verður listræn svipmynd af sveitasamfélagi sem hún ólst upp í, að sögn Antons Mána.
Aðdáunarverð baráttukona
Anton Máni er meðframleiðandi að fyrstu kvikmynd kvenleikstjóra í Afganistan „Mín von er að
Íslendingar verði þátttakendur í að brjóta blað í kvikmyndasögu Afganistan,“ segir framleiðandinn
Anton Máni
Svansson
Samsýningin „Pushing Reality“
verður opnuð í Grundemark Nils-
son Gallery í Berlín á föstudag og
er hún hluti af opinberri dagskrá
Monat der Fotografie-hátíðarinnar
þar í borg, mánaðar sem helgaður
er ljósmyndalist af ýmsu tagi. Lista-
mennirnir eru Sigurður Guðmunds-
son, Hreinn Friðfinnsson, Sigurður
Guðjónsson, Kristinn E. Hrafnsson,
Spessi, Dodda Maggý, Guðrún
Kristjánsdóttir, Magnús Ólafsson,
Gunnar Rúnar Ólafsson, Daniel
Reuter og Anna Þórhallsdóttir.
Sýnd eru ljósmynda- og mynd-
bandsverk og sjónum beint að því
hvernig listamenn sem vinna með
þessa miðla hér á landi vísa í og
vinna með fjóra grunnþætti: land,
vatn, eld og loft.
Í tengslum við sýninguna verður
á laugardag málþing í sendiráði
Norðurlandanna í Berlín, þar sem
sjónum verður beint að myndlist,
náttúru og samfélagi á Íslandi.
Stjórnandi umræðnanna er Chis-
tiane Stahl, stjórnandi Alfred
Ehrhardt-stofnunarinnar, og þátt
taka þrír listamannanna, Dodda
Maggý, Daniel Reuter og Spessi,
Einar Falur Ingólfsson menningar-
blaðamaður, Katia Reich listsafn-
fræðingur og sýningarstjórinn
Nina Grundemark.
Morgunblaðið/Kristinn
Fjölbreytileg Spessi er einn listamannanna sem eiga verk á sýningunni.
Íslensk ljósmynda- og
myndbandalist í Berlín