Morgunblaðið - 16.10.2014, Qupperneq 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2014
Ástralski rithöfundurinn Richard Flanagan hreppti
hin virtu Man Booker-verðlaun, sem höfundar sem
rita á enska tungu keppa um, fyrir skáldsögu sem
gerist á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar og nefnist
„The Narrow Road to the Deep North“. Verðlaunaféð
nemur 50.000 pundum, um tíu milljónum króna.
Formaður dómnefndar segir þetta vera stórmerka
ástarsögu og um leið frásögn um þjáningu og sam-
kennd. Sagan gerist meðan unnið er að lagninu járn-
brautar milli Taílands og Búrma og byggist að vissu
leyti á ævi föður höfundarins sem var fangi Japana í
stríðinu og lést 98 ára gamall daginn sem sonurinn
lauk við að skrifa hana.
Flangan er 53 ára gamall. Hann hefur skrifað
nokkrar skáldsögur og hafa þær komið út í 26 lönd-
um. Hann hefur einnig leikstýrt leikinni kvikmynd og
skrifað handrit með Baz Luhrmann.
Verðlaunasaga úr stríðinu
AFP
Lukkulegur Richard Flanagan hampar verðlaunabókinni.
Ljósmyndasýningin Landslags-
þættir verður opnuð í Norska
húsinu og Tang og Riis í Stykk-
ishólmi í dag kl. 16. Á henni sýna
sex ungir ljósmyndarar túlkanir
sínar á íslensku landslagi, allt frá
draumkenndum sýnum og túlkun
eftir minni yfir í næstum kóm-
ískar vísanir til beytileika náttúr-
unnar, eins og því er lýst í til-
kynningu.
Ljósmyndararnir eru Bjargey
Ólafsdóttir, Charlotta Hauks-
dóttir, Hallgerður Hallgríms-
dóttir, Kolbrún Þóra Löve, María
Kjartans og Silja Sallé. Sýning-
arstjórar eru Katrín Elvarsdóttir
og Hallgerður Hallgrímsdóttir.
Náttúra Frá sýningunni. Hluti ljós-
myndar eftir Bjargeyju Ólafsdóttur.
Náttúran í ólíkum ljósmyndum
Gæðakonur nefnist ný skáldsaga eft-
ir Steinunni Sigurðardóttur sem
bókaútgáfan Bjartur sendir frá sér
nú á haustmánuðum. „Eldfjallafræð-
ingurinn María Hólm er á leið í flug-
vél til Parísar. Hinum megin við
ganginn situr kona sem gefur henni
auga. Daginn eftir sér hún sömu
konu á kaffihúsi þar sem hún fær sér
morgunverð. Hver er hún þessi
Donna með rödd sem er í senn suð-
andi þýð og raspandi gróf? Og hvað
vill hún Maríu – konunni sem jökull-
inn skilaði?“ segir m.a. í tilkynningu
frá Bjarti.
Oddný Eir Ævarsdóttir sendir frá
sér skáldsöguna Ástarmeistarinn.
„Anna og Fjölnir hafa bæði beðið
skipbrot í ástinni. Þau leggja allt í
sölurnar í leit að meistara sem getur
kennt þeim að elska á nýjan leik.
Þau tefla blindskák við ástina í þeirri
von að máta sjálf sig og leikurinn lit-
ast af skömm, sælu, goðsögum, kyn-
lífi og þrám.“
Ókyrrð nefnist ný glæpasaga eftir
Jón Óttar Ólafsson. „Kvöld eitt fær
lögreglumaðurinn Davíð Arnarson
beiðni í SMS um að koma til Cam-
bridge. Hann þekkir ekki númerið
og það er hvergi á skrá. Morguninn
eftir berst lögreglunni í Reykjavík
hjálparbeiðni vegna morðs á íslensk-
um eðlisfræðistúdent sem var að
rannsaka ókyrrð í lofti – við Cam-
bridge-háskóla. Æsileg atburðarás
fer í gang þar sem Davíð reynir að
aðstoða bresk yfirvöld við komast til
botns í morðmálinu en hverjum get-
ur hann treyst? Og áður en hann veit
af er lífi hans sjálfs ógnað.“
Uppruni lífsins
Bjartur sendir frá sér þrjú fræði-
rit á næstu vikum. Fyrst ber að
nefna Ráðgátu lífsins eftir dr. Guð-
mund Eggertsson, sem um árabil
var prófessor í líffræði við Háskóla
Íslands og kallaður hefur verið faðir
erfðafræðinnar á Íslandi. „Í bókinni
segir annars vegar frá upphafi sam-
eindalíffræðinnar og merkum upp-
götvunum sem lögðu grundvöllinn
að nútímalíffræði. Hins vegar er
fjallað um uppruna lífs og helstu til-
raunir til að gera grein fyrir honum.
Loks beinist umræðan að eðli lífsins
og að meðvituðu lífi.“
Veðurfræði Þórðar Tómassonar
hefur verið ófáanleg um árabil, en
kemur nú út með nýrri orðaskrá og
eftirmála höfundar. „Þessi merkilegi
vitnisburður um íslenska tungu kom
út árið 1979, og sendi Nóbelsskáldið
Halldór Laxness höfundi þakkar-
bréf og áletraða bók í hrifningu
sinni,“ segir m.a. í tilkynningu, en
höfundur hefur um langt skeið safn-
að minjum um horfna menningu og
starfshætti og byggt upp byggða-
safnið í Skógum undir Eyjafjöllum.
Þriðja fræðiritið er Chineasy -
Það er leikur að læra kínversku eftir
Shaolan í þýðingu Hildigunnar Þrá-
insdóttur.
Aðskilin bæði í tíma og rúmi
Af erlendu skáldsögunum sem
von er á ber fyrst að nefna skáldsög-
una Bréfabók eftir Mikhaíl Shishkin
í þýðingu Áslaugar Agnarsdóttur
þar sem sögð er ástarsaga Vladimirs
og Alexöndru. „Þau skiptast á bréf-
um og lesandinn áttar sig fljótt á því
að þau eru aðskilin í tíma, ekki síður
en í rúmi.“
Hinn litlausi Tsukuru Tazaki og
pílagrímsár hans nefnist nýjasta
skáldsaga Harukis Murakami í þýð-
ingu Ingunnar Snædal. „Á mennta-
skólaárunum átti Tsukuru Tazaki
fjóra bestu vini, sem áttu það sam-
eiginlegt að eftirnöfn þeirra inni-
héldu einhvern lit. Tazaki var sá eini
sem hét engum lit. Alveg frá upphafi
fannst honum hann því örlítið út-
undan. Dag nokkurn tilkynntu vinir
hans að þau vildu hvorki sjá hann né
heyra nokkurn tíma aftur. Síðan þá
hefur Tsukuru gengið í svefni í
gegnum lífið og ekki tengst neinni
manneskju vinaböndum. Þegar hann
kynnist Söru fyllist hann löngun til
þess að gera upp við fortíðina og
komast að því hvað gerðist.“
silja@mbl.is
Steinunn og
Oddný Eir með
nýjar skáldsögur
Þrjár nýjar íslenskar skáldsögur
væntanlegar frá Bjarti Von á nýj-
ustu skáldsögu Murakami á íslensku
Guðmundur
Eggertsson
Haruki
Murakami
Jón Óttar
Ólafsson
Míkhaíl
Shíshkín
Oddný Eir
Ævarsdóttir
Steinunn
Sigurðardóttir
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
16
16
16
L
GONE GIRL Sýnd kl. 7 - 10
DRACULA UNTOLD Sýnd kl. 10:20
TOMBSTONES Sýnd kl. 5:30 - 8
SMÁHEIMAR 2D Sýnd kl. 5:40
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND UM
EINKASPÆJARA SEM FLÆKIST INN Í
HEIM EITURLYFJASALA
LIAM NEESON
ÓLAFUR DARRI ÓLAFSSON
MARGUR ER
KNÁR
ÞÓTT HANN SÉ
SMÁR...
-Empire
-H.S.S., MBL
★★★★★
-T.V., biovefurinn
★★★★★
-V.J.V., Svarthöfði.is
Henry Altmann (RobinWilliams) er bitur mið-aldra karlmaður semlætur smæstu hluti fara í
taugarnar á sér. Pirringurinn brýst
oftar en ekki út í reiðiköstum, þar
sem Henry lætur gamminn geisa
með fúkyrðaflaumi um fávisku hvers
þess sem reitt hefur hann til reiði þá
stundina.
Sheila Gill (Mila Kunis) er ungur
læknir sem hóf störf full vonar um
að geta breytt heiminum. Bitur
reynsla raunveruleikans hefur sýnt
henni að í raun eru of margir sjúk-
lingar og of lítill tími til þess að sinna
hverjum og einum þeirra svo vel sé.
Þegar Gill ákveður að hlaupa í
skarðið fyrir yfirmann sinn, lendir
hún á Altmann og þarf að segja hon-
um þau ömurlegu tíðindi að hann sé
dauðvona. Altmann tekur fréttunum
illa og þegar hann þráspyr Gill
hversu langt hann eigi eftir ólifað
missir hún út úr sér 90 mínútur. Alt-
mann bregður við þær fréttir og flýr
út af spítalanum, staðráðinn í að
bæta fyrir mistök sín gagnvart fjöl-
skyldu sinni, en hún hefur fyrir
löngu snúið baki við honum.
„Það eru ekki ártölin á legstein-
inum sem skipta máli, heldur band-
strikið á milli,“ segir Henry Alt-
mann undir lok myndarinnar, þegar
andlátið nálgast. Það breytir yf-
irbragði myndarinnar nokkuð að að-
alleikari hennar sé nýlátinn. Robin
Williams sýndi á ferlinum hvað hann
getur spannað vítt svið, allt frá
klæðskiptigríninu í Mrs. Doubtfire
og til hins ótrúlega hrollvekjandi
eltihrellis Sy Parrish í One Hour
Photo.
Reynt er að nota hinn óviðjafn-
anlega hæfileika Williams til að
blanda gleði og trega saman, en það
verður þreytandi til lengdar að sitja
undir eilífum reiðigusum hins dauð-
vona manns. Hefðu þó líklega fáir
aðrir leikarar getað valdið þessu erf-
iða hlutverki.
Aðrir karakterar láta lítið til sín
taka. Dr. Gill í meðförum Kunis er
nokkuð litlaus persóna, svona miðað
við önnur hlutverk þessarar góðu
gamanleikkonu. Stórleikarinn smá-
vaxni Peter Dinklage kemur með
sína einstöku kaldhæðni í hlutverk
Aarons, bróður Henrys, en hefur
annars lítið að gera, annað en að
sendast um New York í leit að bróð-
ur sínum.
Af öðrum leikurum er fátt að
segja, fyrir utan að gamla brýnið
James Earl Jones á stórbrotna inn-
komu sem sölumaður í raftækja-
verslun í einu atriði. Sama verður
því miður ekki sagt um uppistand-
arann Louis CK, sem leikur yfir-
mann Dr. Gill og elskhuga, og nær
að sýna okkur eitthvert mest ósann-
færandi og um leið óaðlaðandi ást-
aratriði sem fest hefur verið á filmu.
The Angriest Man in Brooklyn
reynir að vera bæði gamanmynd og
átakanlegt drama og það sem á að
sameina þessa tvo ólíku fleti er hin
ömurlega tilfinning reiði. Útkoman
verður mynd sem er eiginlega
hvorki né.
Fullmikil reiði
Sambíóin
Angriest Man in Brooklyn bbmnn
Leikstjóri: Phil Alden Robinson. Hand-
rit: Daniel Taplitz. Aðalhlutverk: Robin
Williams, Mila Kunis, Peter Dinklage,
Melissa Leo. Bandaríkin, 2014. 83 mín.
STEFÁN GUNNAR
SVEINSSON
KVIKMYNDIR
Þreytandi Reynt er að nota hinn óviðjafnanlega hæfileika Williams til að
blanda gleði og trega saman en það verður þreytandi til lengdar.