Morgunblaðið - 16.10.2014, Page 44
FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 289. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. „Sorrý, öll þjóðin er að fagna“
2. „Besta myndin af Holuhrauni“
3. Reikningur Sigurjóns 46 milljónir
4. Aðkoman að slysinu var skelfileg
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Fyrsta sýningin í nýuppgerðu verk-
efnarými Nýlistasafnsins, að Völvu-
felli 13-21 í Breiðholti, verður opnuð á
laugardaginn, 18. október, kl. 16. Sýn-
ingin nefnist Laboratory Aim Density
– FOREVER! Just ended og er einka-
sýning Rebeccu Erin Moran. Hún mun
vinna með tilraunakennda kvik-
myndagerð á 16 mm filmu í safninu.
Safnið mun einnig opna dyrnar að
safn- og sýningarrými sínu tileinkuðu
safneigninni með sýningunni Blind
stýring. Á henni verða valin verk sem
hverfast um frásagnarformið.
Nýló opnað að nýju
Sópransöng-
konan Alexandra
Chernyshova
heldur styrkt-
artónleika í Sel-
tjarnarneskirkju í
kvöld kl. 20. Til-
efnið er ferð
hennar til Kína
þar sem hún mun
taka þátt í alþjóðlegri söngkeppni í
Ningbo, fyrst Íslendinga. Tónleikarnir
bera yfirskriftina „17 dagar í Kína“ en
Alexandra mun einmitt dvelja í 17
daga í Kína.
17 dagar í Kína
Tveir íslenskir leikarar, Sesselía
Ólafsdóttir og Haraldur Ágústsson,
leika í ensku kvikmyndinni Night Bus
sem frumsýnd var á kvikmyndahátíð-
inni í Lundúnum, London Film Festi-
val, 12. október sl. Mynd-
in gerist að næturlagi
í strætisvagni í Lund-
únum og fléttast
saman sögur ólíkra
farþega. Myndin hef-
ur fengið jákvæða
gagnrýni það sem
af er.
Sesselía og Haraldur
í næturstrætó
Á föstudag Austan og norðaustan 10-15 m/s, en hægari
NA-lands. Þurrt á V-landi, en annars dálítil væta. Hiti 2 til 9
stig, mildast V-til.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 8-13 m/s og þurrviðri á V-landi
en dálítil væta í öðrum landshlutum. Hiti 0 til 8 stig að
deginum, mildast syðst, en víða vægt næturfrost.
VEÐUR
Keppni á Evrópumeistara-
mótinu í hópfimleikum
hófst í Laugardalshöll í gær.
Keppt var í forkeppni í
þremur flokkum unglinga.
Íslensku liðunum þremur
gekk vel. Ísland sendi í
fyrsta sinn drengjasveit til
keppni og hafnaði hún í
fjórða sæti í forkeppninni.
Íslensku stúlkurnar, sem
eiga titil að verja, urðu í
þriðja sæti í forkeppninni í
gærkvöldi. »1, 4
Keppni hafin á EM
í hópfimleikum
Ólafur Bjarki Ragnarsson, landsliðs-
maður í handknattleik og leikmaður
Emsdetten í Þýskalandi, þarf að bíða
lengur með að snúa aftur inn á hand-
boltavöllinn. Bakslag kom í bataferlið
hjá Ólafi en hann sleit kross-
band í hné í febrúar. »1
Bakslag í bataferlið
hjá Ólafi Bjarka
„Ég er svolítið að hoppa út í djúpu
laugina og Blikarnir vita að þeir
eru að ráða mann sem hefur ekki
reynslu af því að þjálfa þótt ég hafi
verið leikmaður, aðstoðarþjálfari
og yfirmaður knattspyrnumála,“
segir Arnar Grétarsson sem á dög-
unum var ráðinn þjálfari karlaliðs
Breiðabliks í knattspyrnu í stað
Guðmundar Benediktssonar. »3
Svolítið að hoppa
út í djúpu laugina
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Okkur er mjög annt um að ungir for-
eldrar komi með börnin sín, kynnist
öðrum í sömu stöðu og fái fræðslu í
leiðinni,“ segir Erla Gísladóttir,
kynningarfulltrúi Hins hússins.
Á hverjum miðvikudegi kl. 14-16
hittast ungir foreldrar á aldrinum 16-
25 ára með börnin sín í Hinu húsinu.
Aðra hverja viku er boðið upp á ýmiss
konar fræðslu, kynningar og uppá-
komur sem tengjast barnauppeldi.
Hina vikuna hittast foreldrar og
spjalla. Fræðslan hverju sinni er í
raun allt sem foreldrunum dettur í
hug. „Við reynum að mæta þeim ósk-
um en allir sem koma og ræða við for-
eldrana gefa vinnuna sína,“ segir
Erla.
Nýta kraft samfélagsmiðlanna
Hópurinn Ungt fólk með ungana
sína hefur verið starfræktur í Hinu
húsinu um árabil. Erla segir mikil-
vægt að ná til ungra foreldra á þessu
aldursbili ekki síður en annarra ung-
menna sem Hitt húsið vinnur með.
Þar er vettvangur fyrir ungt fólk að
hittast, skapa eitthvað saman eða
hreinlega hangsa.
Erla segir hins vegar aðeins erf-
iðara að ná til ungra foreldra en ann-
arra á þessum aldri þar sem þeir eru
eðlilega meira heima við og sækja
ekki skipulagða viðburði í jafnríkum
mæli og aðrir á þessum aldri. Þá
koma samfélagsmiðlarnir sterkir inn
og eru þeir mikið notaðir.
„Það er alltaf viss hætta á að ein-
angrast þegar þú ert ungur og eign-
ast barn og vinir þín-
ir eru ekki í
sömu stöðu. Líf-
ið er ekki búið
þótt þú sért ung
og jafnvel einstæð
móðir,“ segir
Erla.
Í Hinu húsinu
stendur ungu fólki til
boða að fá viðtal við atvinnuráðgjafa,
fá aðstoð við að komast aftur í skóla
og fleira í þeim dúr. Öll þessi þjón-
usta er ókeypis.
Mætingin á miðvikudögum í Ungt
fólk með ungana sína í Hinu húsinu
hefur verið misjöfn eins og gengur,
að sögn Erlu. Mæður eru alla jafna
fleiri. Ekki síður er mikilvægt að fá
feðurna til að mæta. „Þeir þurfa ekki
síður á uppörvun og fræðslu að
halda,“ segir Erla.
Hópurinn hittist í fyrsta skipti á
haustönninni í gær. Þá mætti hjúkr-
unarfræðinemi á fjórða ári og ræddi
um mataræði ungra barna.
Hægt er að kynna sér starfið, Ungt
fólk með ungana sína, á vefsíðunum:
hitthusid.is og facebook.com/
ungtmedunga.
Samvera og fræðsla foreldra
Ungt fólk með
ungana sína hittist
í Hinu húsinu
Morgunblaðið/Golli
Ungt með unga Það var glatt á hjalla hjá foreldrum sem ræddu við verðandi hjúkrunarfræðing um mataræði ungra
barna. Foreldrarnir eru á aldrinum 16-25 ára og hittast á miðvikudögum kl. 14-16 í Hinu húsinu og ræða málin.
„Ofþyngd barna er vaxandi vanda-
mál hér á landi. Mig langar að
ræða við foreldra og leggja áherslu
á mikilvægi þess að velja hollt
mataræði fyrir börnin. Á
þessum árum mótast mat-
arvenjur þeirra. Þá er gott
að ná til foreldranna áð-
ur en börnin byrja að
borða og gefa þeim
ráð, til dæmis um
hvernig hægt sé að
forðast að sæta matinn þeirra o.fl.
Ég fer einnig yfir brjóstagjöf, þurr-
mjólk o.fl. Ég styðst við ráðlegg-
ingar Lýðheilsustöðvar í spjallinu,“
segir Margrét Inga Gísladóttir,
hjúkrunarfræðinemi á fjórða ári,
sem hélt fræðsluerindi fyrir for-
eldra í Hinu húsinu í gær.
Forvarnarfræðslan er hluti af
verknámi í hjúkrunarfræði en Mar-
grét valdi mataræði barna því mál-
efnið er henni hugleikið.
Áhersla á hollt mataræði
MATARÆÐI UNGRA BARNA