Morgunblaðið - 05.11.2014, Page 36

Morgunblaðið - 05.11.2014, Page 36
MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 309. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Ráðist á skokkara við Rauðavatn 2. Valdi að deyja til að geta lifað 3. Vill ekki búa í íþróttatösku 4. Meðal 1% hæstu í stöðuprófi »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hefst í dag og hluti af henni er hliðar- dagskrá með ókeypis tónleikum sem verða haldnir víða um Reykjavík. Meðal forvitnilegra tónleika á þeirri dagskrá í dag eru tónleikar Júníusar Meyvants og hljómsveitarinnar Ylju á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund við Hringbraut. Júníus hefur leik klukkan 10.30 og Ylja tekur við 15 mínútum síðar. Dagskrá hátíðarinnar má finna á vefsíðu hennar, iceland- airwaves.is. Á myndinni sjást Guðný Gígja Skjaldardóttir og Bjartey Sveinsdóttir úr hljómsveitinni Ylju. Morgunblaðið/Ómar Júníus Meyvant og Ylja leika á Grund  Opin bókmenntadagskrá fer fram í Norræna húsinu í kvöld kl. 20 í til- efni af komu danska ljóðskáldsins Yahya Hassan til landsins. Hassan mun lesa upp ljóð og spjalla við Hauk Ingvarsson, rithöfund og bók- menntafræðing, og Bjarki Karlsson kynnir þýðingu sína á ljóðabók Hass- ans sem ber nafn skáldsins og kom út fyrir helgi. Hassan hristi upp í dönsku menningarlífi í fyrra þegar hann var 18 ára gamall og sendi frá sér fyrrnefnda ljóðabók. Í henni lýsir hann uppvexti í skugga gegndar- lauss ofbeldis, bókstafstrúar og hræsni. Hassan er ríkisfangslaus Palestínumaður frá Árósum. Bókin olli usla í dönskum stjórnmálum og Hassan hefur orðið fyrir líkams- árásum vegna hennar og verið hótað lífláti. Því kemur hann ekki fram nema í fylgd líf- varða. Skáld í fylgd lífvarða Á fimmtudag Austan 10-15 m/s. Talsverð rigning á suðaustan- verðu landinu, en dálítil rigning eða slydda í öðrum landshlutum. Á föstudag Norðan og norðaustan 10-20 m/s, hvassast norð- vestan- og vestanlands. Víða snjókoma fyrir norðan. Kólnandi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi suðaustanátt með slyddu eða rign- ingu. Hægari vindur og úrkomulítið norðaustanlands. Hlýnandi. VEÐUR Úlfar Jón Andrésson skor- aði bæði mörk Bjarnarins í gærkvöld þegar liðið vann 2:0-sigur á Íslandsmeist- urum SA á Akureyri. Þetta var annar sigur Bjarnarins á SA í vetur í þremur leikjum, en SA er enn á toppnum með sex stiga forskot. Í hin- um leik kvöldsins vann SR 3:0-sigur á Esju en þetta var þriðji sigur SR-inga í jafnmörgum rimmum þess- ara tveggja liða í vetur. »3 Úlfar Jón skaut Birninum nær SA Guðmundur Þórarinsson telur meiri líkur en minni á að hann yfirgefi norska úrvalsdeildarliðið Sarpsborg eftir tímabilið. Guðmundur á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið en hann er eftirsóttur og voru margir út- sendarar að fylgjast með honum á dögunum og meðal annars frá liðum í Þýskalandi og Hollandi, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. »1 Guðmundur er víða undir smásjánni ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Haraldur Geir Hlöðversson, lög- reglumaður í Vestmannaeyjum, hef- ur unnið að því að hefja gamla íþrótt til vegs og virðingar á ný, hefur með- al annars stofnað landssamband og undirbýr Vestmannaeyjamót og Ís- landsmót og vonar að innan skamms fari menn reglulega í sjómann vítt og breitt um landið. Fyrir margt löngu átti körfubolti helst upp á pallborðið hjá Haraldi Geir eða Halla Geir, eins og hann er kallaður, og síðan tók blakið við. Hann var meðal annars blakmaður ársins 1979 og lék yfir 20 landsleiki. Hann kynntist því að fara í sjómann á unga aldri, en tók ekki þátt í opin- berri keppni fyrr en á heimsleikum lögreglu- og slökkviliðsmanna í Van- couver í Kanada 2009, þar sem hann kom, sá og sigraði. Hann hefur sam- tals tekið þátt í þrennum heims- leikum, tvisvar unnið til gullverð- launa og einu sinni lent í öðru sæti. Þá varð hann í 4. sæti með hægri hendi og 6. sæti með vinstri af yfir 900 keppendum á heimsmeistara- mótinu, sem fór fram í Vilnius í Litháen í haust, og stefnir á að vera með á HM í Kuala Lumpur í Malasíu að ári. Auk þess hefur hann hug á að taka þátt í Evrópumótinu í Búlgaríu á næsta ári. „Það hafa verið haldin 36 heimsmeistaramót, árlega frá 1978, og þetta er kjörinn vettvangur til þess að komast á HM,“ segir hann. Íþrótt fyrir alla Halli Geir stofnaði Sjómannglímu- samband Íslands í ársbyrjun og und- irbýr nú Eyjamót og Íslandsmót. Hann leggur áherslu á að þótt Al- þjóðaólympíunefndin hafi ekki enn tekið íþróttina upp innan sinna raða henti hún öllum og ekki síst fötl- uðum, að því gefnu að þeir séu með arma og axlir í lagi. Alþjóða- sambandið (World Armwrestling Federation) ætli enda að leggja áherslu á íþróttina hjá hreyfihöml- uðum. „Þetta er skemmtileg íþrótt og flott líkamsrækt,“ segir Halli Geir og bætir við að það að fara í sjómann sé næsti bær við það að lyfta lóðum. Hann bendir líka á að ekki þurfi mik- ið til þess að fara í sjómann, eigin- lega ekkert annað en mótherja og borð. „Við viljum vekja athygli á þessari íþrótt og stefnum meðal ann- ars að því að kynna hana í skólum, því þar er áhuginn mestur,“ segir Halli Geir. „Ég hef áhuga á öllum íþróttum og vil að allir eigi mögu- leika á að iðka þá íþrótt sem hentar þeim. Það geta ekki allir orðið at- vinnumenn í fótbolta, en nánast allir geta farið í sjómann.“ Fara í sjómann sem víðast  Undirbýr Vest- mannaeyjamót og Íslandsmót Fyrstur Íslendinga Haraldur Geir Hlöðversson braut ísinn og keppti á heimsmeistaramótinu í Vilnius í Litháen. Keppendur Konur og karlar keppa á heimsmeistaramótinu. „Þetta hefur verið áhugaverður tími. Ég vissi svo sem nokkurn veginn að hverju ég gekk í klúbbnum þar sem ég þekkti aðeins til hjá félaginu og þekkti til leikmannahópsins og þjálf- aranna. Ég vissi fyrir hvað félagið stóð en auðvitað er fullt af hlutum svona dags daglega í starfinu sem eru öðruvísi,“ segir Ólafur Helgi Krist- jánsson, þjálfari hjá danska úr- valsdeildarlið- inu Nordsjæll- and. »4 Ólafur kann vel við sig hjá Nordsjælland

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.