Morgunblaðið - 11.11.2014, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2014
Björn Jóhann Björnsson
Sunna Sæmundsdóttir
Auður Albertsdóttir
„Ég neita því ekki að þetta er gleði-
dagur. Ég er himinlifandi yfir því að
sjá þetta verða loks að veruleika,“
sagði Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson forsætisráðherra við Morg-
unblaðið að loknum blaðamannafundi
í Hörpu í gær þar sem kynntar voru
niðurstöður leiðréttingar á verð-
tryggðum íbúðalánum.
Alls bárust um 69 þúsund umsókn-
ir um leiðréttingu frá um 105 þúsund
kennitölum og verður niðurstaða um
90% þessara umsókna birt í dag á
vefnum leidretting.is.
Eftir er að vinna úr 10% umsókna
en það er einkum vegna breytinga á
högum umsækjenda á því tímabili
sem leiðréttingin nær til.
Samanlagt er 150 milljörðum
króna varið til höfuðstólslækkunar
lánanna á næstu þremur árum. Þar af
fara 80 milljarðar króna í beina höf-
uðstólslækkun og 70 milljarðar koma
til vegna skattleysis við innborgun
séreignarlífeyrissparnaðar inn á höf-
uðstól lána. Með beinu og óbeinu
framlagi ríkisins er öll verðbólga um-
fram 4% á árunum 2008-2009 leiðrétt
til fulls. Fram kom á blaðamanna-
fundinum í gær að þannig myndi eig-
infjárstaða um 56 þúsund heimila
styrkjast og um 2.500 þeirra myndu
fara úr því að eiga ekkert eigið fé í
fasteignum sínum yfir í jákvæða eig-
infjárstöðu.
1,4 milljóna meðaltal á hjón
Halldór Benjamín Þorbergsson
hagfræðingur kynnti helstu nið-
urstöður leiðréttingarinnar og tók
dæmi um áhrifin. Kom m.a. fram í
máli hans að meðaltal leiðréttingar á
hvern umsækjanda er 1.350 þúsund
krónur í lækkun höfuðstóls. Tíðasta
gildi leiðréttingar til hjóna er 1,4
milljónir króna.
Nýti heimilin sér úrræði leiðrétt-
ingar til fulls getur mánaðarleg
greiðslubyrði lækkað um rúm 15%.
Fyrir 15 milljóna króna jafn-
greiðslulán, tekið 2007 til 40 ára,
lækkar mánaðarleg greiðslubyrði á
þremur árum um tæplega 15 þúsund
krónur. Fyrir samskonar lán tekið ár-
ið 2000 lækkar mánaðarleg greiðslu-
byrði á sama tíma um 13%, eða um
rúmar 18 þúsund krónur. Er þá í
þessum dæmum ekki gert ráð fyrir
skerðingum leiðréttingar vegna fyrri
aðgerða. (Sjá nánar á meðf. súluriti.)
Bæði Sigmundur Davíð og Bjarni
Benediktsson fjármálaráðherra fögn-
uðu því á fundinum að fjármögn-
unartími aðgerðanna verður styttur
úr þremur árum í eitt. Betri staða rík-
issjóðs gerði það kleift að lækka
vaxtakostnað, sem ella hefði runnið til
fjármálastofnana, og að greiða hærri
fjárhæðir inn á höfuðstól lána.
Á fundinum greindi Halldór Benja-
mín frá helstu niðurstöðum fyrirtæk-
isins Analytica um efnahagsleg áhrif
leiðréttingarinnar. Meðal áhrifanna
má nefna að skuldahlutfall íslenskra
heimila lækkar um 11% og verður
94% af vergri landsframleiðslu. Ráð-
stöfunartekjur heimilanna eru taldar
aukast um 17% til ársins 2017 og af-
borganir og vaxtagjöld heimila gætu
lækkað á sama tíma um 22%. Telur
Analytica að á sama tíma geti lítil
verðbólga og hækkandi fasteignaverð
styrkt eiginfjárstöðu allra heimila í
landinu, ekki bara þeirra 54 þúsunda
sem njóta góðs af leiðréttingunni.
En hvenær kemur höfuðstólslækk-
unin til framkvæmda? Sem fyrr segir
verður hægt að kynna sér niðurstöðu
útreikninga í dag. Inngreiðslur sér-
eignarsparnaðar á höfuðstól hefjast
um næstu mánaðamót og samþykki
leiðréttingarinnar hefst í desem-
bermánuði. Er gert ráð fyrir að
skuldarar hafi 90 daga til að undirrita
og samþykkja niðurstöðuna, og nota
til þess rafræn skilríki. Ef fólk sættir
sig ekki við niðurstöðuna verður
hægt að vísa henni til sérstakrar
áfrýjunarnefndar, sem skipuð var af
fjármálaráðherra.
Sigmundur Davíð og Bjarni báru
lof á þá sem unnið hafa við útreikn-
inga og úrvinnslu á leiðréttingunni
undanfarið ár. Formaður verkefn-
isstjórnar var Guðrún Ögmunds-
dóttir, starfsmaður í fjármála- og
efnahagsráðuneytinu, og Tryggvi Þór
Herbertsson var verkefnisstjóri.
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskatt-
stjóri stýrði þeirri vinnu sem hans
embætti innti af hendi en samanlagt
er talið að um 300 manns hafi með
einum eða öðrum hætti komið að
vinnunni, þar af 60-70 manns að jafn-
aði allan tímann. Er þetta því ein
viðamesta efnahagsaðgerð seinni ára.
Gott svigrúm til staðar
„Heildarniðurstaðan er ánægjuleg.
Fólk sem nýtir sér úrræðin til fulls
mun geta lækkað skuldir sínar um
allt að 20% og meðalniðurfærslan er
aðeins meiri en við gerðum ráð fyrir
ári síðan. Umfang aðgerðarinnar er í
takt við það sem við höfum reiknað
með til þessa. Við getum síðan fengið
aðeins jákvæðari niðurstöðu með því
að hraða framkvæmd þessara mála,
meðal annars í ljósi betri afkomu rík-
issjóðs,“ sagði Bjarni Benediktsson
við Morgunblaðið að loknum fundi í
Hörpu.
Hann telur gott svigrúm vera til
staðar fyrir skuldaleiðréttingunni, án
þess að verðbólgan fari úr böndum.
Seðlabankinn sé búinn að lækka vexti
miðað við þær spár að verðbólgan
haldist innan vikmarka á næsta ári og
áfram.
„Ríkisstjórninni var af kjósendum
sérstaklega falið að grípa til mark-
vissra aðgerða vegna alvarlegrar
skuldastöðu heimilanna. Hún birtist
hjá tugþúsundum einstaklinga,“ segir
Bjarni og bendir á hve hátt skuldir
heimila fóru sem hlutfall af lands-
framleiðslu, eða langt yfir 100%. Nú
mundi það hlutfall fara niður í 95%
fyrir lok þessa árs og það væri gríð-
arlega mikilvægt í efnahagslegu tilliti.
Bjarni segir þátttökuna í aðgerð-
inni mikla, eða nærri 100% hjá þeim
sem áttu verðtryggt lán á árunum
2008 og 2009. „Ég geri ráð fyrir því að
þeir sem nýta sér úrræðin til fulls, og
geta þannig lækkað skuldir sínar um
20% á næstu árum, muni finna veru-
lega fyrir því. Fyrir mitt leyti er ég
ánægður með hvaða heildaráhrifum
við náum á skuldastöðu og ráðstöf-
unartekjur heimilanna,“ sagði Bjarni.
„Þetta er búið að vera löng ferð,
byrjaði í raun strax árið 2009, þó með
öðrum hætti væri. Um tíma árin 2010
og 2011 óttaðist maður að tækifærin
væru að glatast til að láta eitthvað af
afskriftinni á Ísland, þar með talið á
skuldir heimilanna, ganga eitthvað
áfram til heimilanna. Svo fundu menn
leið til að láta þetta verða að veruleika
og sá veruleiki birtist okkur í dag.
Þetta er jafnvel heldur betra en við
þorðum að vona þegar frumvarpið
um leiðréttinguna var lagt fram,“
sagði Sigmundur Davíð við Morg-
unblaðið.
Allt að 20% lækkun höfuðstóls
Lántakendur geta séð leiðréttingu fasteignalána sinna í dag Búið að vinna úr 90% af 69 þúsund
umsóknum sem bárust Greiðslubyrði gæti lækkað um 15% Gleðidagur, sagði forsætisráðherra
Morgunblaðið/Kristinn
Leiðrétting kynnt Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kynntu niðurstöðu skuldaleiðréttingar
heimilanna í Hörpu í gær, ásamt fjölmennri verkefnisstjórn sem skipuð var til að vinna að framkvæmdinni.
Mánaðarleg greiðslubyrði lána
1990
25.492 kr.
1996
20.241 kr.
2000
18.195 kr.
2004
16.177 kr.
2007
14.830 kr.
• Samanburður á greiðslum láns fyrir og eftir leiðréttingu út frá lántökudegi
• Forsendur: 15 m.kr jafngreiðslulán til 40 ára. Lán tekið á mismunandi tímum, 2,5% verðbólga til framtíðar.
Ekki er gert ráð fyrir skerðingum leiðréttingar vegna fyrri aðgerða.
200.000
150.000
100.000
50.000
0
Heimild: Fjármálaráðuneytið
Lækkun
greiðslubyrði á mánuði
eftir 3 ár
M
án
að
ar
le
g
gr
ei
ðs
lu
by
rð
ií
þú
s.
kr
.
Heildargreiðsla
f. leiðréttingu
Heildargreiðsla
e. leiðréttingu
Heildargreiðsla
e. 3 ár af
innborgunum
-13%
-13%
-13%
-14%
-15%
Dæmi um lækkun á 10 milljóna kr. láni
Mánaðarleg greiðslubyrði lækkar um 8.704 krónur - 1,8m.kr. í lækkun höfuðstóls
Lán fyrir leiðréttingu Greiðsla af láni fyrir leiðréttingu
Greiðsla af frumláni eftir leiðréttingu
Greiðsla af leiðréttingarláni
Gjalddagi 132 af 480
Útgáfudagur
Upphafleg fjárhæð
Vextir
Lokagjalddagi
Gjalddagi
Eindagi
1.1.2004
10.000.000
4,15%
1.1.2044
1.1.2015
2.1.2015
23.500
55.176
78.676
20.876
49.095
69.972
0
0
0
15.954.513
14.166.013
1.788.501
11,21%
Afborgun af höfuðstól
Vextir
Samtals til greiðslu
Afborgun af höfuðstól
Vextir
Samtals til greiðslu
Afborgun af höfuðstól
Vextir
Samtals til greiðslu
Staða láns fyrir niðurfærslu
Staða láns fyrir niðurfærslu
(frumlán)
Leiðréttingarlán
Hlutfallslækkun
Heimild: Fjármálaráðuneytið
• Meðaltal leiðréttingar er 1.350.000 krónur.
• Miðgildi leiðréttingar er 1.216.000 krónur.
• Tíðasta gildi leiðréttingar til hjóna er 1.400.000 kr. og 800.000 kr. til
einstaklinga.
• 21 þúsund einstaklingar fá leiðréttingu.
• 35 þúsund hjón fá leiðréttingu (70 þúsund einstaklingar).
• Höfuðstólslækkun hefst eftir samþykki umsækjenda í desember og
skattfrjáls séreignarsparnaðar á fasteignalán hefst 1. desember.
Heimild: Fjármálaráðuneytið
150
milljarða kr. lækkun á höfuðstól
íbúðalána á næstu þremur árum.
80
milljarðar kr. þar af í beinar
höfuðstólslækkanir íbúðalána.
70
milljarðar kr. í skattleysi við inn-
borgun á séreignalífeyrissparnaði.
20%
lækkun getur orðið á höfuðstól láns
við fullnýtingu leiðréttingar.
15%
lækkun á greiðslubyrði 15 milljóna
kr. láns sem tekið var árið 2007.
69.000
umsóknir bárust stjórnvöldum um
leiðréttingu húsnæðislána.
2.500
heimili fara úr neikvæðri eiginfjár-
stöðu í fasteigninni í jákvæða.
LEIÐRÉTTINGIN
»
Skannaðu kóðann
til að sjá kynning-
armyndband um
leiðréttinguna.