Morgunblaðið - 11.11.2014, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2014
ÞÓR HF
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
Er orðið kalt?
Þá eigum við hitablásara til að bjargamálinu!
MASTER - Gashitablásarar
Áratuga reynsla á Íslandi. Stærðir 18 – 73 kW
MASTER - Hitablásarar.
Brenna steinolíu eða dieselolíu.
Áratuga reynsla á Íslandi.
Stærðir 10 – 111 kW
HITABLÁSARAR
Þessir einu sönnu gæða hitablásarar.
Bjóðum úrval alvöru hitablásara bæði fyrir
gas og diesel/steinolíu.
Eigum líka hitastilla fyrir MASTER hitablásara.
Viðurkennd viðgerða- og varahlutaþjónusta.
Íslenski sjávarklasinn sendi í gærfrá sér skýrslu um efnahagsleg
umsvif og afkomu fyrirtækja sem
starfa með
einum eða
öðrum hætti
að sjávar-
útvegi. Þetta
eru ekki að-
eins útgerðir
og fisk-
vinnslur, heldur einnig þjónustu- og
framleiðslufyrirtæki af marg-
víslegu tagi sem byggja tilveru sína
að verulegu eða öllu leyti á sjávar-
útvegi.
Í skýrslunni kemur fram að í þess-um fyrirtækjum verða til allt að
30% landsframleiðslunnar sem sýn-
ir gríðarlegt mikilvægi þessa
grunnatvinnuvegar fyrir þjóð-
arbúið og velferð og velmegun al-
mennings hér á landi.
Þessar staðreyndir gleymast oftþegar rætt er um sjávarútveg
hér á landi og sumir geta helst ekki
rætt málefni þessarar atvinnu-
greinar án þess að reyna að grafa
undan henni.
Á síðasta kjörtímabili gengustjórnvöld hart fram í því að
knésetja greinina og enn er mikil
óvissa um hvert stefnir í lagaum-
hverfi og skattheimtu.
Vegna umfangs sjávarútvegsinsog tengdra fyrirtækja í ís-
lensku atvinnulífi má með ólík-
indum teljast að ekki skuli búið að
setja traustan grunn undir þau fyr-
irtæki sem starfa að sjávarútvegi.
Stjórnvöld og Alþingi hafa ríkarskyldur til að leysa úr þessu og
koma fram með lagasetningu sem
tryggir stöðugleika og hóflega og
sanngjarna skattlagningu á þessu
sviði sem öðrum.
Grafið undan
grundvellinum
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 10.11., kl. 18.00
Reykjavík -1 léttskýjað
Bolungarvík -4 heiðskírt
Akureyri -2 alskýjað
Nuuk -2 léttskýjað
Þórshöfn 8 skýjað
Ósló 7 skúrir
Kaupmannahöfn 10 skýjað
Stokkhólmur 8 skýjað
Helsinki 6 alskýjað
Lúxemborg 8 léttskýjað
Brussel 10 léttskýjað
Dublin 10 skúrir
Glasgow 7 léttskýjað
London 12 léttskýjað
París 10 skýjað
Amsterdam 11 léttskýjað
Hamborg 10 skýjað
Berlín 7 skýjað
Vín 15 skýjað
Moskva 2 þoka
Algarve 17 skýjað
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 17 léttskýjað
Winnipeg -7 snjókoma
Montreal 6 alskýjað
New York 13 heiðskírt
Chicago 10 alskýjað
Orlando 20 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
11. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:44 16:41
ÍSAFJÖRÐUR 10:06 16:28
SIGLUFJÖRÐUR 9:50 16:11
DJÚPIVOGUR 9:18 16:06
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur er
þegar farin að taka við jólaum-
sóknum. „Okkur sýnist staðan
vera svipuð og á sama tíma í fyrra.
Þegar nær líður jólum þá fjölgar
umsóknum,“ segir Ragnhildur G.
Guðmundsdóttir, formaður
Mæðrastyrksnefndar.
Tekið er á móti jólaumsóknum
alla þriðjudaga fram að jólum milli
kl. 10-15. Þegar sótt er um þarf
skattskýrslan að vera meðferðis.
Úthlutað er matvöru til jólahalds
og einnig verður gjafahorn þar
sem hægt er að fá ýmsa gjafavöru,
einkum fyrir yngstu kynslóðina.
Ástæðan fyrir því að sækja þarf
um er sú að nefndin þarf að vita
hversu mikið hún þurfi að viða að
sér. Ragnhildur tekur þó fram að
enginn fari tómhentur frá þeim.
Úthlutun Mæðrastyrksnefndar í
ár fer fram á Korputorgi líkt og í
fyrra. „Við erum að búa okkur
undir að flytjast búferlum eins og
við gerum árlega. Um miðjan máð-
uðinn komum við okkur þar fyrir.“
Ragnhildur segir að vel gangi að
fá matvæli og gjafavöru. Að
stórum hluta gefa sömu fyr-
irtækin, félagasamtök og ein-
staklingar hin ýmsu aðföng fyrir
jólin, „og sömu konurnar sjá um
úthlutunina líka“.
Þörfin því miður fyrir hendi
„Við kunnum afskaplega vel að
meta þessa hugsun að gefa af sér
og erum við þakklátar fyrir stuðn-
inginn. Því miður virðist þörfin
vera fyrir hendi,“ segir hún.
thorunn@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Jólaumsóknir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur verður með árlega jólaút-
hlutun á Korputogi líkt og í fyrra. Tekið er á móti umsóknum alla þriðjudaga.
Svipaður fjöldi og
í fyrra sótt um
Byrjað að taka við jólaumsóknum
Forsvarsmenn Félags tónlistar-
skólakennara (FT) sátu árangurs-
lausan fund í húsakynnum rík-
issáttasemjara í gær og hefur
annar fundur ekki verið boðaður.
Verkfall tónlistarskólakennara hef-
ur staðið yfir í tæpar þrjár vikur.
Var einnig fundað síðastliðinn
föstudag hjá ríkissáttasemjara og
stóð sá fundur yfir í um sex klukku-
stundir án þess að nokkur nið-
urstaða næðist í deilunni. Hefur
samninganefnd FT m.a. lagt til að
félagsmenn fái greitt eftir sömu
launatöflu og leik- og grunnskóla-
kennarar . khj@mbl.is
Engin sátt í deilu tónlistarskólakennara