Morgunblaðið - 11.11.2014, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2014
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Nýr kjarasamningur, sem samninga-
nefndir Starfsmannafélags Kópa-
vogsbæjar, SFK, og Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga undirrituðu á
sjöunda tímanum í gærmorgun, felur
m.a. í sér eingreiðslu upp á 35.000
krónur og að háskólamenntun verð-
ur áfram metin til launa. Hlutaðeig-
andi aðilar segjast fagna því að
samningar náðust áður en til boðaðs
verkfalls kom í gærmorgun sem
hefði haft áhrif á stóran hluta þeirrar
þjónustu sem veitt er á vegum bæj-
arins.
Eitt af því sem viðsemjendur
greindi á um var svokölluð há-
skólabókun, sem er sérákvæði um
háskólamenntaða í félaginu. Hún
mun haldast inni hjá þeim sem þegar
starfa hjá bænum, en fellur annars út
í tengslum við heildarendurskoðun á
starfsmati sem á að tryggja sömu
launabætur og bókunin kvað á um.
„Viðtökur félagsmanna við nýja
samningnum hafa verið mjög góðar,“
segir Jófríður Hanna Sigfúsdóttir,
formaður SFK, sem fagnar því að
ekki kom til verkfalls. Hún segist
ánægð með að samningurinn gildi frá
1. maí sem hafi verið ein helsta kraf-
an. „Fólk verður ánægt með að fá
slíka leiðréttingu í launaumslagið um
næstu mánaðamót. Þá er mikilvægt
að laun ófaglærðra starfsmanna leik-
skólanna í Kópavogi verða nú þau
sömu og í Reykjavík.“ Samningurinn
verður kynntur innan SFK á næstu
dögum og 20. nóvember liggur fyrir
hvort hann verður samþykktur eða
ekki.
Gerðu ráð fyrir hækkunum
Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri
segist ánægður með að samningar
hafi náðst og að ekki hafi orðið af
verkfalli. Spurður um kostnaðinn við
samningana í heild, segir hann að
verið sé að vinna að útreikningum og
að þeir verði lagðir fram á fundi bæj-
arráðs á fimmtudaginn. Hægt sé að
reikna út kostnaðinn við eingreiðsl-
una, sem er 35.000 kr. á hvert stöðu-
gildi og þau séu um 800. Þegar það er
gert er útkoman 28 milljónir. Ár-
mann segir að gert hafi verið ráð fyr-
ir því í rekstrarspám bæjarins að eft-
ir ætti að semja við SFK og að því
myndi fylgja útgjaldaauki. „Við gerð-
um reyndar ekki ráð fyrir eingreiðsl-
unni en höfum borð fyrir báru, því
fyrri hluti árs kom vel út rekstr-
arlega. Þannig að við ættum að ráða
vel við þetta.“ annalilja@mbl.is
Samkomulag á
sjöunda tímanum
Eingreiðsla kostar 28 milljónir
Magnús Carlsen var spurður að því,
á blaðamannafundi sem haldinn var
strax að lokinni 2. skák hans og
Wiswanathans Anands í einvíginu
um heimsmeistaratitilinn í Sochi við
Svartahaf og lauk með sigri Norð-
mannsins, hvort það væri taktík
hans í einvíginu að tefla langar og
strangar skákir og reyna þannig að
þreyta Anand. Hann svaraði því til
að það skipti hann engu máli hver
mótstöðumaðurinn væri: ef ein-
hverjar forsendur væru fyrir vinn-
ingstilraunum myndi hann reyna að
knýja fram sigur hversu langan tíma
sem það tæki, og gilti einu hversu
gamall andstæðingurinn væri.
Fyrstu einvígisskákinni lauk með
jafntefli eftir tæplega sex klukku-
stunda baráttu og þar var Magnús
nálægt því að vinna. Eftir auðveldan
sigur í annarri skákinni er staðan
1½:½ Magnúsi í vil. Einvígið hefur
þegar tekið sömu stefnu og það sem
þessir tveir háðu í Chennai á Ind-
landi í fyrra: Magnús hefur náð að
skauta framhjá yfirgripsmikilli
þekkingu Anands á vinsælum byrj-
unum og þróttmikil taflmennska
hans í byrjun bendir til þess að hann
muni ekkert gefa eftir í baráttunni.
Spurður um hverjir væru aðstoð-
armenn hans í einvíginu svaraði
hann stutt og laggott: „Daninn og
hamarinn“ – „The Dane and the
hammer“, eins og hann orðaði það og
átti við danska stórmeistarann Peter
Heine Nielsen og landa sinn Jon
Ludwig Hammer. Að Peter Heine
skuli koma fram sem helsti aðstoð-
armaður Magnúsar kemur á óvart
því að hann hefur áður verið í liði An-
ands í fjölmörgum mótum og einvígj-
um. Ekki þótti lítið hneyksli á sínum
tíma þegar Boris Spasskí mætti
Karpov í áskorendaeinvígjunum
1974 og Efim Geller, sem hafði verið
hjálparhella hans í einvíginu við
Bobby Fischer tveimur árum fyrr,
var genginn til liðs við Karpov.
Spasskí var heiðursgestur við setn-
ingarathöfn einvígisins. Magnús
kvaðst sannfærður um að tíundi
heimsmeistarinn hefði kunnað vel að
meta taflmennskuna í annarri skák-
inni og hann var býsna nálægt því að
knýja fram sigur í fyrstu skákinni:
1. einvígisskák:
Wisvanathan Anand – Magnús
Carlsen
Grünfelds-vörn
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4.
cxd5 Rxd5 5. Bd2 Bg7 6. e4 Rxc3 7.
Bxc3 0-0 8. Dd2 Rc6 9. Rf3 Bg4 10.
d5 Bxf3 11. Bxg7 Kxg7 12. gxf3 Re5
13. 0-0-0 c6 14. Dc3 f6 15. Bh3 cxd5
16. exd5 Rf7 17. f4 Dd6 18. Dd4
Had8 19. Be6 Db6 20. Dd2?
Eftir þennan leik nær svartur
betri stöðu. Hagsmunum hvíts var
best borgið í endataflinu sem kemur
upp eftir 20. Dxb6. Anand virðist
hafa ofmetið möguleika sína og talið
að pressan eftir e-línunni hlyti að
reynast Magnúsi erfið.
20. … Hd6 21. Hhe1 Rd8! 22. f5
Rxe6 23. Hxe6 Dc7+ 24. Kb1 Hc8
25. Hde1 Hxe6 26. Hxe6 Hd8 27.
De3 Hd7 28. d6 exd6 29. Dd4 Hf7
30. fxg6 hxg6 31. Hxd6 a6 32. a3
Da5 33. f4 Dh5 34. Dd2 Dc5 35. Hd5
Dc4 36. Hd7 Dc6 37. Hd6 De4 38.
Ka2 He7 39. Dc1 a5 40. Df1 a4 41.
Hd1 Dc2 42. Hd4!
Anand var orðinn býsna að-
þrengdur og fann þennan varnarleik
sem hangir saman við 44. Dh1 eftir
langa umhugsun.
42. … He2?!
Meiri vinningsvon var fólgin í
43. … He3! 44. Hd7+ Kh7 45. Hxb7
Hb3! 46. Hxb3 axb3+ 47. Ka1 Dxh2
og kóngsstaða hvíts er aðþrengd.
43. Hb4 b5 44. Dh1! He7 45. Dd5
He1 46. Dd7+ Kh6 47. Dh3 Kg7 48.
Dd7+
– Jafntefli.
2. einvígisskák:
Magnús Carlsen – Wisvanathan
Anand
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6 4.
d3
Sneiðir hjá Berlínar-vörninni sem
komst í tísku eftir einvígi Kasparovs
og Kramniks árið 2000. Það kemur
upp eftir 4. 0-0 Rxe4 5. d4 Rd6 6.
Bxc6 dxc6 8. dxe5 Rf5 9. Dxd8+
Kxd8.
4. … Bc5 5. 0-0 d6 6. He1 0-0 7.
Bxc6 bxc6 8. h3 He8 9. Rbd2 Rd7
10. Rc4 Bb6 11. a4 a5 12. Rxb6 cxb6
13. d4 Dc7
14. Ha3!
Þessi frumlegi hróksleikur virtist
slá Anand út af laginu. Hrókurinn er
á leiðinni í sóknarstöðu á g3.
14. … Rf8 15. dxe5 dxe5 16. Rh4
Hd8 17. Dh5 f6 18. Rf5 Be6 19. Hg3
Rg6 20. h4! Bxf5
Sóknaráætlun hvíts hefur alveg
gengið upp og hér er Anand of fljót-
ur á sér, traustara var 20. … Hd7.
21. exf5 Rf4 22. Bxf4 exf4 23. Hc3
c5 24. He6 Hab8 25. Hc4 Dd7 26.
Kh2 Hf8 27. Hce4 Hb7 28. De2 b5
29. b3?!
Ónákvæmur leikur en betra var
29. He7! Dd6 30. f3! og svarta staðan
stenst ekki álagið. Anand virðist
ekki hafa gert sér grein fyrir að það
er talsverður varnarmáttur í stöð-
unni.
29. … bxa4 30. bxa4 Hb4 31. He7
Dd6 32. Df3 Hxe4 33. Dxe4 f3+ 34.
g3
34. … h5??
Anand átti nokkrar mínútur eftir
og það bætast við 30 sekúndur eftir
hvern leik. Afleikurinn bendir til
þess að hann hafi verið búinn að gefa
upp alla von en hann gat varist með
34. … Dd2! 35. Dxf3 Dxc2 36. Kg2!
Kh8 þótt staðan sé vissulega erfið
eftir 39. Dc6 því að ekki gengur
37. … Dxf5 vegna 38. He8+ Kg8 39.
Da8! og vinnur.
35. Db7!
– Við hótuninni 36. Hxg7 er engin
vörn. Anand gafst upp.
Þriðja skák einvígisins verður
tefld í dag og hefst kl. 12 að íslensk-
um tíma og hefur Anand hvítt.
Fjórða skákin verður svo tefld á
morgun.
Magnús Carlsen hefur tekið forystu
í skákeinvíginu við Anand
Einvígið Magnús Carlsen, heimsmeistari í skák, hefur tekið forystuna í einvígi sínu við Wisvanathan Anand.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Laugavegi 34, 101 Reykjavík
Sími: 551 4301 | gudsteinn.is Guðsteins Eyjólfssonar sf
V E R S L U N
Úrval af peysum og pólóbolum frá
Peysa verð 16.900,- — Pólóbolir verð 8.900,- stk.