Morgunblaðið - 11.11.2014, Síða 21
UMRÆÐAN 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2014
Nú bíður hálf þjóðin spennt eftir því
að fá leiðréttingu á lánum sínum. Til
að geta tekið á móti þessari leiðrétt-
ingu þarf að hafa rafræn skilríki. Ör-
stutt eftirgrennslan á vefnum leiddi í
ljós að sími þess sem þetta skrifar er
ekki með SIM-kort sem styður raf-
ræn skilríki, þannig að næsta mál á
dagskrá er að verða sér úti um nýtt
kort svo hægt verði að taka á móti
fúlgunum. Bankar, símafyrirtæki,
Auðkenni og jafnvel einhverjir fleiri
bjóða upp á þessi skilríki. Eitthvað
er á reiki hvort rukka eigi fyrir notk-
un skilríkjanna, en einhvern veginn
lyktar það nú af því að á endanum
muni einhver borga (þú?). Nú hafa
flestir talið skattinn fram á vefnum í
mörg ár og notað til þess auðkenni
sem skatturinn samþykkir. Þar sem
þessi skuldaleiðrétting er líka á veg-
um hins opinbera hefði þá ekki verið
hægt að nota sömu auðkenni fyrir
skuldaleiðréttinguna? Hvað gerir
nýju, rafrænu skilríkin betri eða
öruggari (fari svo ólíklega að maður
fái einhverja) en auðkennin fyrir
skattinn? Getur einhver sagt mér
það?
Skuldunautur.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Skuldaleiðrétting bara fyrir
þá sem hafa rafræn skilríki?
Peningar Margir bíða spenntir eftir að fá
leiðréttingu á lánum sínum.
Hólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.isSkútan
www.veislulist.is
jólahlaðborð okkar á
Pantanir fyrir veislur þurfa
að berast tímalega.
Þú getur lesið allt um
Nú fer að líða að jólum þá er gott að
panta tímanlega jólahlaðborðin.
Starfsfólk okkar leggur sig fram um að gera
stundina fallega með góðum veitingum og
persónulegri og góðri þjónustu.
Öll þjónusta er innifalin í verði veitinga.
...tímanlega!
Panta
ðu
fi p y j g p
C p iar acc o ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam
með hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté prikmeð pa
mauki Bruchetta íreymeð tv
ðlatu hangikjöti, bal- samrau
og piparrótarsósu heBruc
ta með hráskinku, balsam
rægrill uðu Miðjarðar- h a f s g
meti Krabba a- s a l
ðboferskum kryddjurtum í brau
Bruchetta rðameð Miðja
hafs-tapende aRisa- rækj
spjóti með peppadew Silunga hrogn i simeð japönsku majónes
nepsrjóma-osti á bruchettu Birkireykt-ur lax alioá bruchettu með
grillaðri papriku og fetaosti Hörpuskeljar ddju, 3 smáar á spjóti m/kry
taídýfu Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum ufyVanill
tar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarberjum nguKjúkli
satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti RisahörpuskSími 511 8090 • www.yndisauki.is
Möndlu Mix og Kasjú Kurl
er ekki bara hollt snakk. Líka
gott í salatið. Hollt og gott
frá Yndisauka.
Fæst í: Hagkaupum, Heilsuhúsunum,
Melabúðinni, Fjarðarkaup,
Þín verslun Seljabraut, Kjöthöllinni,
Hreyfingu, Garðheimum, Mosfellsbakaríi
og Bakaríinu við brúna Akureyri.
Flutningskostnaður
er hluti verðs seldrar
vöru og hluti af stofni
innflutningsgjalda og
virðisaukaskatts. Hann
hefur áhrif á hagnað
við útflutning afurða.
Lækkun flutnings-
kostnaðar getur því
haft áhrif á vísitöluna,
samkeppnishæfni og
afkomu útflutnings.
Í grein sem ég skrif-
aði í Viðskiptablaðið í lok júlí
færði ég rök fyrir að með hag-
kvæmni stærðarinnar væri hægt
að minnka kostnað við sjóflutninga
milli Íslands og Evrópuhafna um
20% ef skipafélögin hefðu vissa
samvinnu þar sem færri stærri
skip yrðu nýtt í stað fleiri minni.
Róttækara fyrirkomulag gæti leitt
til umtalsvert meiri sparnaðar.
Sparnaður á skipa-, hafnar- og
olíukostnaði yrði vel yfir $7 millj-
ónir á ári sem veldur 7.000 tonn-
um minni olíunotkun. Miðað er við
olíuverð í lok september.
Dýrari olía
Um áramótin ganga í gildi regl-
ur í Norðursjó til að draga úr
brennisteinsmengun sem banna
notkun þeirrar olíu er skipin
brenna nú. Þarf að nota mun dýr-
ari olíu. 57% olíunotkunar núver-
andi siglingakerfa eru á bann-
svæðinu, en það leiðir til 25%
hækkunar olíukostnaðar.
Slíkum hækkunum hefur verið
mætt með því að hækka „olíuálag“
sem bætist við umsamin flutnings-
gjöld. Maersk og MSC hafa gefið
til kynna að þau munu bæta við
$25 á hverja TEU, sem fer um
svæðið, sem sérstakt álag vegna
þessa.
Samkeppnisumhverfi
Í grein sinni í Mbl. 16. ágúst
segir Páll Gunnar Pálsson, for-
stjóri Samkeppniseftirlitsins, að
eftirlitið geti veitt undanþágu fyrir
samstarfi fyrirtækja að uppfylltum
vissum skilyrðum.
Í 3. mgr. 53. greinar samnings-
ins um Evrópska efnahagssvæðið
er lýst skilyrðum um undanþágur
frá samkeppnisreglum vegna sam-
starfs sem stuðlar að hagkvæmni
enda sé neytendum veitt sann-
gjörn hlutdeild í ávinningnum.
Þessi fjögur skilyrði eru listuð hér
með athugasemdum með tilvísun
til skrifa um hagkvæmni stærð-
arinnar í sjóflutningum:
a) Verður að stuðla að bættri
framleiðslu eða vörudreifingu
eða efla tæknilegar og efna-
hagslegar framfarir
Með samsiglingum má ná
fram 20% kostnaðarlækkun
vegna hagkvæmni stærð-
arinnar.
b) Neytendur verða að njóta sann-
gjarnrar hlutdeildar í þeim
ávinningi sem af þessu hlýst
Með upplýstri umræðu og eftirliti
hagsmunaaðila má fylgjast með
að kaupendur njóti ábatans.
c) Hömlurnar verða að vera ómiss-
andi til að unnt sé að ná þessum
markmiðum. Ekki er hægt að
ná fram hagkvæmni stærð-
arinnar án fækkunar skipa.
d) Samningurinn má ekki gefa fyr-
irtækjunum færi á að koma í
veg fyrir samkeppni
Spurningin er um samkeppni á
gámaflutningamarkaðnum þar
sem tvíkeppni ríkir með háum að-
gangsþröskuldi. Skipafélögin tvö
eru aftur í sviðsljósinu vegna sam-
keppnismála. Það er erfitt að vera
í tvíkeppni, halda uppi verði og
markaðshlutdeild án þess að verða
á.
Setja má það skilyrði að öðrum
aðilum í flutningastarfsemi verði
gert kleift að kaupa flutninga með
skipunum á sam-
keppnishæfu verði til
endursölu.
Í hvers þágu?
Þó við séum sann-
færð um að und-
anþága fáist er óvíst
að skipafélögin hafi
áhuga á að breyta fyr-
irkomulagi sem hefur
tryggt báðum þokka-
legan hagnað. Þá er
aðalskilyrðið að ofan
að ábatanum sé skipt
með fraktkaupendum.
Hagsmunaaðilar
Erlendis er kostnaður við og
framkvæmd flutningaþjónustu mál
sem kaupendur láta sig varða. Þeir
hafa bundist samtökum, „Shippers
Council“, sem tengjast í „Global
Shippeŕs Forum“ og halda uppi
umræðum og eru umsagnaraðilar
um breytingar á reglugerðum og
stefnumótun um flutninga.
Útgerðir hafa sín samtök sem
gefa álit og berjast fyrir hags-
munum útgerða, European Comm-
unity Shipowneŕs Association og
International Chamber of Shipping,
til dæmis.
Í ársbyrjun 2006 var SÍK – Sam-
band kaupskipaútgerða lagt niður
og verkefnin færð til flutningasviðs
Samtaka verslunar og þjónustu.
SVÞ hefur innan sinna vébanda
bæði kaupendur og seljendur flutn-
inga. Á hinn bóginn virðist Félag
atvinnurekenda hafa innanborðs
einungis kaupendur flutninga.
Verðstríð
Erlendis geisar verðstríð sem að
hluta stafar af æ stærri skipum
sem eru byggð vegna hagkvæmni
stærðarinnar. Tvær stærstu gáma-
útgerðir heims, Maersk og MSC,
hafa orðið ásáttar um samsiglingar
og ráðgera að hafa 185 skip með 2,1
milljónar TEU flutningsgetu, sem
með 22 áætlunum koma við á 77
höfnum í Evrópu, Asíu, Afríku og
Ameríku. Þær eiga líka í baráttu
um fyrsta sæti heimslista gámaút-
gerða. Sæti sem Maersk hefur haft
lengi, en MSC ásælist. Til þess þarf
MSC að veita betri þjónustu, hafa
öflugri sölumenn og lægri verð.
Samstarfið lokar á að aðilar skiptist
á upplýsingum eða hafi annað sam-
ráð en hefur að gera með sigl-
ingaáætlun.
Hvað næst?
Ólíklegt er að skipafélögin taki
frumkvæðið að gjörbreytingu á
skiparekstri sínum.
Samkeppniseftirlitið heldur uppi
eftirliti með samkeppni: að regl-
unum sé fylgt ef um samvinnu er
að ræða. Hins vegar er ekki orð í
samkeppnislögum um úrræði þeg-
ar kostnaður er 20% hærri en sá
kostnaður sem hægt væri að ná
með samvinnu eða með öðru
rekstrarformi sem tryggði minni
tilkostnað.
Flutningskostnaður og
hagkvæmni stærðarinnar
Eftir Pál
Hermannsson » Fyrirkomulag gáma-
flutninga milli Ís-
lands og Evrópu kostar
árlega nálægt miljarði
meira en þyrfti ef skipin
yrðu samnýtt og sam-
keppni breytt.
Páll
Hermannsson
Höfundur er flutningahagfræðingur.