Morgunblaðið - 11.11.2014, Side 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2014
Myndlistarmaðurinn Guðmundur
Ármann Sigurjónsson heldur fyr-
irlestur í Ketilhúsinu á Akureyri í
dag kl. 17 undir yfirskriftinni Að
tína upp og miðla þar sem hann
fjallar um 42 ára feril sinn í
myndlist. Fyrirlesturinn er hluti af
fyrirlestraröð sem er samvinnu-
verkefni Listasafnsins á Akureyri,
Verkmenntaskólans á Akureyri,
Háskólans á Akureyri og Mynd-
listaskólans á Akureyri.
Guðmundur Ármann hefur
starfað sem myndlistarmaður frá
1972.
Málarinn Guðmundur Ármann
Fjallar um 42 ára
feril í Ketilhúsinu
Verkefnavalið á nýhafinnivetrardagskrá SÍ 2014-15 þykir sumum, þ. á m.mér, í hefðbundnara lagi
en oft áður, og er hverjum og ein-
um auðvelt að staðfesta það eða
vefengja á sinfonia.is án þess að
tíunda þurfi nánar hér.
Það er því von að maður spyrji:
Hvað veldur? Eða er rekstur
þessa klassíska flaggskips þjóð-
arinnar að verða það þungur fyrir
minnkandi áhuga almennings að
ekkert tjói lengur annað en að
veðja á það sem þekktast er? (Sbr.
algenga skilgreiningu á „léttri“
klassík.)
Spurningin hlaut að brenna enn
heitar á vörum við að renna aug-
um yfir aðeins rúmlega hálfsetinn
Eldborgarsalinn sl. fimmdudags-
kvöld þegar í boði voru tvö Ís-
landsfrumflutt verk frá 1870 og
1953 ásamt splunkunýjum íslenzk-
um klarínettkonsert. Því hafi ekki
nýbyrjuð Iceland airwaves rokkhá-
tíð í sama húsi dregið úr um-
ræddri aðsókn (manni er það að
fyrra bragði til efs), þá hlaut þessi
óvenjuslaka mæting óneitanlega
að styðja tilgátuna um að þvílík
sláandi undantekning frá „stríðs-
fákastefnu“ straffist grimmilega
með hrapandi miðasölu.
Vonandi er sem minnstur fótur
fyrir því. Að öðrum kosti verður
takmörkuð tilhlökkun að næstu
misserum, enda skipta óflutt sígild
meistaraverk á Íslandi enn tugum
ef ekki hundruðum – fyrir nú utan
nýjar innlendar afurðir. Full
ástæða er hins vegar til að minna
á hvað happdrætti hins ókunna er
gjörsamlega ómissandi aukakrydd
þá leitað er út fyrir hefðbundnasta
rammann. Ekki aðeins hversu
margt kemur skemmtilega á óvart,
heldur líka hvernig það eykur
hlustendum næmi, skilning og við-
miðun um kunnari viðfangsefni.
Gamla sagan – vogun vinnur,
vogun tapar. Það sannaðist ræki-
lega þetta þórsdagskvöld. Vinn-
ingsmegin lentu að mínu viti við-
fangsefnin fyrir hlé. Maður hjó
fljótt eftir því hve akústík salarins
var lifandi (ný stilling?) og hljóm-
sveitin eldspræk undir stjórn síns
gamalkunna leiðtoga, er laðaði
fram hið bezta úr hinu fjöruga
æskuverki Vincents D’Indys
kenndu við herbúðir Wallensteins
generáls í 30 ára stríðinu. E.t.v.
ekki meðal djúpristari ópusa
Frakkans, en því glæsilegra leikið.
Hinn nýi Klarínettkonsert
Sveins Lúðvíks var meðal spar-
neytnari íslenzkra nútímaverka
jafnt í breidd sem lengd. Sem sagt
fráleitt „Of margir tónar, hr. Moz-
art!“ eins og haft ku eftir Jósep
II., heldur stutt, hnitmiðuð og
furðuspennandi smíð í allri sinni
nekt, ísprengdri stöku ískrandi
hljómsveitarinnskoti innan um dul-
hrjóstuga kyrrð. Reyndist þar
meira en minna, og leiddi andrúm
niðurlagsins ósjálfrátt hugann að
„Yfir kaldan eyðisand“ undir ógn-
þöglum blámóðugosmekki Norna-
elda. Einar Jóhannesson þandi
einkum efsta tónsvið öræfapípu
sinnar af syngjandi snilld, og hlaut
verkið standandi hyllingu hlust-
enda að leikslokum.
Mínushlið kvöldsins var að mín-
um smekk Sinfónía, 52 mín. lífs-
kveðjuverk Erichs Korngolds frá
1953 samið eftir 15 ára útlegð frá
Austurríki í Hollywood þar sem
hann náði sögulegum frama sem
kvikmyndatónskáld. Þótt auðheyrt
væri að Korngold þekkti orkestr-
unarhandverkið í bak og fyrir,
enda að upplagi undrabarn er vak-
ið hafði aðdáun Mahlers og Rich-
ards Strauss, þá gat ég, þrátt fyrir
góða spretti og innlifaðan flutning,
stundum ekki varizt þeirri hugsun
að hér færi postrómantískt dæmi
um ofþroskaðan ávöxt. Einkum í
næstsíðasta (III.) þætti er jaðraði,
frómt frá sagt, við hið drepleið-
inlega. Engu að síður var verkið
fróðlegt áheyrnar og fyllti ýmsar
þekkingargloppur tengdar tón-
arfleifð hvíta tjaldsins.
Morgunblaðið/Golli
Syngjandi snilld „Einar Jóhannesson þandi einkum efsta tónsvið öræfapípu sinnar af syngjandi snilld, og hlaut
verkið standandi hyllingu hlustenda að leikslokum,“ segir meðal annars í gagnrýni.
Einn um nótt ég sveima…
Eldborg í Hörpu
Sinfóníutónleikarbbbmn
D’Indy: Le camp de Wallenstein (ísl.
frumfl.). Sveinn Lúðvík Björnsson: Klar-
ínettkonsert (frumfl.). Korngold: Sin-
fónía (ísl. frumfl.). Einar Jóhannesson á
klarínett og Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba.
Fimmtudaginn 6. nóvember 2014.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Jólaskreytingar
Við seljum og setjum
upp jólaseríur
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 15/11 kl. 13:00 22.k. Lau 13/12 kl. 13:00 29.k. Lau 3/1 kl. 13:00
Sun 16/11 kl. 13:00 Aukas. Sun 14/12 kl. 13:00 30.k. Sun 4/1 kl. 13:00
Lau 22/11 kl. 13:00 23.k. Lau 20/12 kl. 13:00 Aukas. Lau 10/1 kl. 13:00
Sun 23/11 kl. 13:00 24.k. Sun 21/12 kl. 13:00 31.k. Sun 11/1 kl. 13:00
Lau 29/11 kl. 13:00 25.k. Fös 26/12 kl. 13:00 Lau 17/1 kl. 13:00
Sun 30/11 kl. 13:00 26.k. Fös 26/12 kl. 16:00 Sun 18/1 kl. 13:00
Lau 6/12 kl. 13:00 27.k. Lau 27/12 kl. 13:00
Sun 7/12 kl. 13:00 28.k. Sun 28/12 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi á Stóra sviði Borgarleikhússins!
Bláskjár (Litla sviðið)
Þri 11/11 kl. 20:00 Aukas. Mið 12/11 kl. 20:30 9.k.
Sýningin 11. nóvember. verður textuð á ensku.
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fim 13/11 kl. 20:00 21.k. Þri 18/11 kl. 20:00 Lau 22/11 kl. 20:00 25.k.
Fös 14/11 kl. 20:00 22.k. Mið 19/11 kl. 20:00 Sun 23/11 kl. 20:00 aukas.
Lau 15/11 kl. 20:00 23.k. Fim 20/11 kl. 20:00 aukas. Lau 29/11 kl. 20:00 26.k.
Sun 16/11 kl. 20:00 aukas. Fös 21/11 kl. 20:00 24.k.
Nýjar aukasýningar komnar í sölu!
Gaukar (Nýja sviðið)
Fös 14/11 kl. 20:00 14.k. Lau 29/11 kl. 20:00
Fim 20/11 kl. 20:00 Sun 30/11 kl. 20:00
Grátbroslegt verk um karlmenn, tilfinningar og sparakstur
Beint í æð (Stóra sviðið)
Fim 13/11 kl. 20:00 7.k. Sun 23/11 kl. 20:00 15.k. Lau 6/12 kl. 20:00
Fös 14/11 kl. 20:00 8.k. Fim 27/11 kl. 20:00 16.k. Sun 7/12 kl. 20:00
Lau 15/11 kl. 20:00 9.k. Fös 28/11 kl. 19:00 17.k. Lau 13/12 kl. 20:00
Sun 16/11 kl. 20:00 10.k. Lau 29/11 kl. 19:00 18.k. Lau 13/12 kl. 20:00
Þri 18/11 kl. 20:00 aukas. Sun 30/11 kl. 20:00 19.k. Sun 14/12 kl. 20:00
Mið 19/11 kl. 20:00 11.k. Fim 4/12 kl. 20:00 Fös 19/12 kl. 20:00
Fim 20/11 kl. 20:00 12.k. Fim 4/12 kl. 20:00 Lau 20/12 kl. 20:00
Fös 21/11 kl. 20:00 13.k. Fim 4/12 kl. 20:00
Lau 22/11 kl. 20:00 14.k. Fös 5/12 kl. 20:00
Drepfyndin SÝning sem flæðir beint í æð!
Hamlet litli (Litla sviðið)
Lau 15/11 kl. 17:00 2.k. Sun 16/11 kl. 17:00 aukas. Sun 23/11 kl. 17:00 3.k.
Táknmálstúlkuð sýning 23. nóv kl. 17
Gaukar –★★★★ , A.V. - DV
★★★★ – SGV, MblHamlet –
Útlenski drengurinn (Aðalsalur)
Sun 16/11 kl. 15:00 Lau 22/11 kl. 14:00 Fim 4/12 kl. 20:00
Fös 21/11 kl. 20:00 Sun 30/11 kl. 20:00
Lífið (Aðalsalur)
Lau 15/11 kl. 14:00
GOOD/BYE + this is it (Aðalsalur)
Sun 16/11 kl. 20:00
Coming Up (Aðalsalur)
Sun 23/11 kl. 20:00
Útgáfutónleikar Siggu Eyrúnar (Aðalsalur)
Lau 22/11 kl. 20:00
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is