Málfríður - 15.03.2005, Blaðsíða 23
MÁLFRÍÐUR 23
Matsalur var í nærliggjandi húsi, ca. 5-mínútna
ganga frá Newport. Þar fengum við okkur morgun-
mat og hádegismat. Maturinn var mjög fjölbreyttur
og góður, enda hefur Amherst College fengið viður-
kenningu fyrir góða matreiðslu. Í matsalnum gafst
einnig tækifæri til að hitta Bandaríkjamenn, bæði
nemendur, kennara og starfsfólk skólans. Margvís-
leg sumarnámskeið eru haldin í Amherst College
– námskeið í tennis og hokkí, bæði fyrir börn og
fullorðna, og tölvunámskeið, svo lítið eitt sé nefnt.
Oft var mannmargt og hávaðasamt í matsalnum en
gaman að geta deilt borði með bandarískum ung-
lingum eða starfsfólki og borið saman bækur sínar
um uppeldi og heimþrá, eða um laun og kjör.
Hópurinn náði mjög vel saman og varð afskap-
lega samrýmdur. Óhætt er að fullyrða að allt milli
himins og jarðar hafi verið rætt í eldhúsinu. Nem-
endur báru mikla virðingu hver fyrir öðrum og
gagnkvæm hreinskilni og umburðarlyndi ríkti. Þó
svo að auglýst markmið námskeiðsins væri það
að fræða hópinn um bandaríska sögu, samfélag
og menningu var öllum ljóst að skilningur manna
á málefnum annarra landa, tungumáli, skólakerfi,
fjölskyldumálum og trúarbrögðum hafi aukist til
muna. Það var ómetanleg reynsla að gera sér grein
fyrir því að, þrátt fyrir mismunandi litarhátt, tungu-
mál og lífskilyrði, var svo margt sem allir í hópnum
áttu sameiginlegt – meðal annars mikla trú á mennt-
un og djúpa þrá til að skapa betri veröld fyrir börnin
okkar.
Kennslan fór fram í gömlu og virðulegu húsi
sem heitir College Hall. Dagskráin var oftast á þá
leið að fyrirlestrar og umræður voru frá kl. 8.30 til
12.00, með stuttri kaffipásu. Hlé var gert í tvo tíma
en eftir mat var fyrirlestur, pallborðsumræður eða
vettvangsferð. Tölu verður heimalestur var á hverju
kvöldi, opinber skjöl, smásögur, ljóð og úrdrættir
úr lengri bókmenntaverkum, og oft var okkur um
megn að klára daglega lesturinn sem settur hafði
verið fyrir. Námsbækur og ljósrit fengum við okkur
að kostnaðarlausu. Kennsluhættir voru mjög hefð-
bundnir, kennarar lásu fyrirlestrana af blaði, enginn
þeirra notaði glærur eða gagnvirkt efni og aldrei
var um hópvinnu eða paravinnu að ræða. Aftur á
móti voru umræðurnar út frá fyrirlestrunum mjög
líflegar og óþvingaðar. Fulltrúi Department of State
(Nancy Meyers) hafði orð á því þegar hún kom í
heimsókn að hópurinn væri alveg sérstaklega virk-
ur og sýndi mikinn áhuga.
Ekki vorum við alltaf sammála kennaranum,
hvorki aðalkennaranum né gestakennurum, sérstak-
lega hvað varðar utanríkisstefnu Banda ríkja manna
og lög um byssueign. Við nemendurnir vorum
heldur ekki alltaf á sömu skoðun um ýmis málefni
en það var alla tíð ljóst að mikið málfrelsi ríkti og að
allir báru virðingu fyrir skoðunum annarra. Engin
verkefni voru gerð í tímum en stór hópverkefni
voru unnin síðustu tvær vikur námskeiðsins. Aðal-
kennarinn var Frank Couvares, prófessor í sögu við
Amherst College, og var þetta fyrsta árið hans sem
stjórnandi sumarskólans. Frank er mjög fær kennari
og sagnfræðingur. Fyrirlestrar hans voru vel samdir
og til þess gerðir að auka skilning okkar nemenda
á sögu Bandaríkjanna. Aðalmarkmið námskeiðsins
var það að við skildum betur stöðu Bandaríkjanna í
dag sem heimsveldis í sögulegu samhengi.
Á meðan við vorum í Amherst höfðum við
aðgang að háskólabókasafninu og einnig að líkams-
ræktarstöð og lítilli sundlaug.
Farið var í skoðunarferð einu sinni í viku eða
oftar, á myndlistasöfn, í verslunarmiðstöðvar og
áhugaverðar borgir í nágrenninu skoðaðar. Einnig
var farið í skrúðgöngu 4. júlí, útiveislu, í bíó og
í kayaksiglingu. Einnig var farið í helgarferð til
Boston, Plimouth Plantation skoðaður og gengið
um Boston með leiðsögumanni.
Tveggja vikna námsferð var farin til Salt Lake City
í Utah, Washington og New York og voru þær vikur
alveg ógleymanlegar. Gist var á góðum hótelum í
tveggja manna herbergjum. Í Salt Lake City voru
fyrirlestrar á hótelinu, en einnig var farið með okkur
á verndarsvæði Indíána, í fjallgöngu og á ródeó.
Kennt var um Mormónatrú og um Heiti námskeiðs-
ins var : American Democracy: Continuing Debates
over Rights and Obligations „villta vestrið“ í bók-
menntum, í myndlist og í kvikmyndum.
Engin kennsla var í Washington og New York, en
Hópurinn fyrir framan The Mayflower í Plimouth