Málfríður - 15.03.2005, Síða 24
24 MÁLFRÍÐUR
við fórum á helstu söfnin, á minnisvarða, í Capitol
og í Hvíta Húsið. Í New York var farið með okkur a
Ground Zero.
Hvað varðar kostnað, voru gisting, uppihald
(morgunmatur og hádegismatur) og allar ferðir
greiddar fyrirfram. Dagpeningar voru greiddir út
fyrir kvöldmat og venjuleg dagleg útgjöld (dagblöð,
ritföng, póstburðargjald, o.s.frv). Meðan á náms-
ferðinni stóð fengum við mjög ríflega matar- og
dagpeninga. Einnig fengum við bókapeninga að
upphæð $600.
Sumarnámskeiðið í Amherst var ómetanleg
náms- og lífsreynsla. Það var mjög vel hugsað um
okkur nemendur og starfsfólk ITD (fyrirtækið sem
skipuleggur námskeiðið) á mínar þakkir verðskuld-
aðar. Lærdómurinn var mikill, ekki eingöngu um
Bandaríkin heldur líka um hin löndin 23 sem tóku
þátt í námskeiðinu. Ég mæli eindregið með að kenn-
arar sæki námskeið á vegum Fulbright-stofnunar-
innar. Það er frábær leið til að sjá Bandaríkin, hitta
skemmtilegt fólk og auka samkennd milli ríkja.
Félag spænskukennara á Íslandi skipulagði fyrsta
fagfund spænskukennara í grunn- og framhalds-
skólum undir heitinu „Kennsluefni og aðferðir“.
Fundurinn var haldinn 12. febrúar síðastliðinn
og markmiðið var að kynna kennsluefni sem
mismunandi skólar nota og skiptast á reynslu,
miðla þekkingu og aðferðum sín á milli.
Kennarar sem tóku þátt í fundinum voru
frá: Árbæjarskóla, Fjölbrautaskólanum í
Ár múla, Fjölbrautaskólanum í Breiðholti,
Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Fjölbrautaskóla
Suðurnes ja , Iðnskólanum í Reyk jav ík ,
Menntaskólanum Hraðbraut, Menntaskólanum
í Reykjavík, Menntaskólanum við Hamrahlíð,
Stóruvogaskóla og Verslunarskóla Íslands.
Félagið notaði jafnframt tækifærið til að
kynna nýja heimasíðu félagsins á fundinum og
hleypa henni af stokkunum, www.aipe.is, (AIPE:
Asociación Islandesa de Profesores de Español).
Heimasíða félagsins er mjög auðveld í notkun og
er á spænsku og íslensku. Helsta framsækni við
síðuna er svæði með krækjum og tenglum fyrir
nemendur, með miklu úrvali af æfingum til að
læra spænsku. Auk þess er allt efni sem er í boði
á síðunni að kostnaðarlausu fyrir notendur og
megnið af æfingunum eru gagnvirkar æfingar,
sem er mikill kostur fyrir nemendur, sem geta
þá vafrað án erfiðleika og nýtt sér æfingarnar.
Nokkrar æfingar á síðunni eru þó þannig að þær
þurfa undirbúning og stjórn kennara til að nem-
andi geti tekið þátt í þeim.
Næsta verkefni sem félagið AIPE kemur
að er sumarnámskeið haldið í samstarfi við
Endurmenntun Háskóla Íslands og Stofnum
Fyrsti fagfundur grunn- og
framhaldsskólakennara í spænsku
Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumál-
um. Á námskeiðinu verður sjónum beint að því
hvernig kennaramenntun og kennarastarfið krefst
stöðugrar aðlögunar að því síbreytilega umhverfi
sem mótar spænska tungu. Meðferð málsins og
misjöfn mótun eftir stöðum og stéttum er skoðuð,
auk þess sem vinnuaðferð textagreiningar verður
notuð til að nálgast enn frekar margbreytileikann
og menningarsamsetningu tuttugustu og fyrstu
aldarinnar. Í lokin verður svo farið yfir nýlegar
samþykktir innan Evrópusambandsins sem snúa
að kennaramenntun og kennarastarfinu og skoðað
sérstaklega hvernig það snýr að spænskri tungu.
Kennari verður Dr. María Luisa Vega, doctora en
Filología og prófessor við háskólann Universidad
Complutense de Madrid. Námskeiðið verður hald-
ið í lok maí.
Fyrir hönd AIPE.
Carmen Ortuño, gjaldkeri