Málfríður - 15.10.2010, Blaðsíða 24
að ráðum enskukennarans síns. Hefur hún lesið bókina
síðan og kannski velt fyrir sér því sem hún skrifaði?
„Já, ég las hana aftur um daginn en áhrifamikið var
líka að áður en við fórum heim skrifuðum við bréf
til allra fimmtíu þátttakendanna í prógramminu og í
flugvélinni á leiðinni heim las ég öll bréfin mín. Það
var ómetanleg reynsla. Þau hef ég líka tekið upp síðan
og lesið.“
Þeir sem eru áhugasamir um Benjamin Franklin
Transatlantic Fellows Summer Institute geta farið inn
á vefslóðina http://blogs.bftf.org og lesið sér meira
til um þetta einstaka nám sem sameinar ungmenni,
dregur úr fordómum og opnar nýja heima.
Steingerður Steinarsdóttir.
mér að gerast sendiherra einhvern tíma í framtíðinni en
annars eru svo mörg tækifæri í dag og vandi að velja.“
Hvað myndir þú ráðleggja öðrum unglingum, sem
hefðu áhuga á að prófa að fara þarna út, að gera?
„Þau geta haft samband við sendiráð Bandaríkjanna
og sótt um. Það er um að gera að bera sig eftir björg
inni og koma vel fyrir. Ég var á réttum stað á réttum
tíma sem varð til þess að ég fékk þetta tækifæri en það
er um að gera að spyrjast fyrir um næstu námskeið og
hvernig best sé að sækja um. Ég verð líka að minnast
á hversu frábærlega vel unnið og skipulagt þetta pró
gramm er og viðmót allra framúrskarandi. Þetta ein
kenndist allt af fagmennsku! „
Snæfríður hélt dagbók meðan hún var úti og fór þar
STÍLfélagar og aðrir gestir áttu ánægjulega og
árangurs ríka daga á námstefnunni „Sharing the
Treasure Trove “ sem STÍL hélt fyrir NBR, dagana
18.–19. júní síðastliðinn. Áttatíu þátttakendur voru
skráðir til leiks og skipuleggjendur fagna því sérstak
lega að meðal íslenskra þátttakenda voru kennarar
af öllum skólastigum. Við fengum þrjátíu erlenda
gesti og var afar dýrmætt að fá þátttöku svo víða
að, frá Finnlandi, Danmörku, Svíþjóð, Bretlandi,
Lettlandi, Spáni, Italíu, Möltu, SuðurAfríku og
Ástralíu. Tilgangur námstefnunnar var að deila því
sem við gerum best í tungumálakennslu og efna til
samræðu meðal kollega. Tilganginum var náð og
þátttakendur fóru sáttir til síns heima.
Það var einstaklega notalegt að nýta aðstöðuna
sem STÍL bauðst í Verslunarskóla Íslands og kunn
um við skólayfirvöldum VÍ og starfsfólki bestu
þakkir fyrir. Það kom einnig sérlega vel út að halda
hluta námstefnunnar í Viðey og getum við hæglega
mælt með Viðeyjarstofu fyrir samkomur sem þessar.
Ferðin virkaði sem félagslegur hvati og ýtti undir að
fólk kynntist og ræddi við ókunnuga. Nándin sem
þannig skapaðist í Viðeyjarferðinni gaf síðari deg
inum aukna dýpt og innileik, jafnvel þótt hann væri
þéttskipaður fyrirlestrum og vinnustofum.
Nærvera Vigdísar Finnbogadóttur, verndara nám
stefnunnar, var sérstaklega dýrmæt og munu erlend
ir gestir seint gleyma því að hafa fengið far með
henni niður að Skarfabakka áleiðis í Viðeyjarferju.
Kærkomin heimsókn Þórunnar Björnsdóttur með
hóp stúlkna úr Skólakór Kársness léði laugardegin
um ferskan hátíðleik og harmonikkuleikur Böðvars
Magnússonar í Viðey veitti tækifæri til „margmála
söngs“. Í lokahófi í heimahúsi við lok námstefnu
fór ekki á milli mála að erlendir kollegar fóru til
síns heima hæstánægðir með Íslandsförina og
höfðu smekk fyrir íslenskri lúðu og ljóðum Jónasar
Hallgrímssonar, í Bard of Iceland.
Fyrir hönd STÍL vil ég þakka öllu því góða fólki
sem lagði sitt af mörkum til að svo vel tækist til, og
treysti ég því að þátttakendur séu einhverju bættari
fyrir komuna. Á heimasíðunni www.stil.is má nálg
ast efni frá námstefnunni.
Jesus Loayza myndlistarmaður hefur gefið STÍL
listaverkið Adam í Paradís sem þakklætisvott handa
Verslunarskóla Íslands. Verkið er unnið með þurrnál
og bleki í endurunnið ál og þakið táknmyndum sem
vísa í katólska trú. Sjá nánari upplýsingar á www.
jesusloyxa.com. Kunnum við honum bestu þakkir
fyrir.
Ragnheiður Jóna Jóns-
dóttir, formaður STÍL.
24 MÁLFRÍÐUR
Ragnheiður Jóna
Jónsdóttir
Námstefnan
„Sharing the Treasure Trove“