Fréttir - Eyjafréttir - 01.07.1999, Side 1
26. árgangur • Vestmannaeyjum 1. júlí 1999 • 26~. tölublað • Verðkr. 140,- • Sími:481 3310 • Fax:481 1293
FRÉTTIR
í 25 ár
Þann 28. júní 1974 kom
út fyrsta tölublað af
vikublaðinu Fréttum.
Síðasta mánudag var því
nákvæmlega
aldarfjórðungur frá því
blaðið hóf göngu sína og
hefur því komið út
reglulega síðan, einu
sinni í viku og stundum
oftar.
Þessara tímamóta er
minnst í blaðinu í dag
með ýmsum hætti. Auk
hefðbundinna frétta og
greina má nefna grein
þar sem leitað er gam-
alla frétta og þær tengdar
við daginn f dag.
Einnig er litið á
umfjöllun um myndlist í
Fréttum á þeim tíma
þegar yfir 1000 manns
mættu á eina mynd-
listarsýningu á einni
helgi. Þá er rætt við fólk
sem kemur við sögu í
Fréttum fyrir fimm árum,
tíu árum, fimmtán og
tuttugu árum. Að lokum
leituðum við uppi
jafnaldra okkar, fólk sem
á þessu ári verður 25 ára
og forvitnumst um hagi
nokkurra þeirra.
Viðtalið er við Rósalind
Gísladóttursem í vor
lauk prófi í klassískum
söng frá Söngskólanum í
Reykjavík.
Fréttir hafa frá upphafi
verið aðilar að Sumar-
stúlku Vestmannaeyja
sem að þessu sinni fer
fram á laugardaginn og
verður um leið
afmælisveisla Frétta.
Á myndinni er Emil
Ásgeir sem mamma
hans og Karó frænka
máluðu á þennan
sérstæða hátt í tilefni af
afmæli Frétta.
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sími 481
Sumaráœtlun Herjólfs
Aila daga
Fimmtud. aukaferðir
Föstud. aukaferðir
Sunnud. aukaferðir
Frá Eyjum
kl. 08.15
kl. 15.30
Kl. 15.30
kl. 15.30
Frá Þorl.höfn
kl. 12.00
kl. 19.00
kl. 19.00
00
'3£L<fc&1,J
■fférjðlfuf SimiSTmiFax4812991