Fréttir - Eyjafréttir - 01.07.1999, Blaðsíða 16
16
Fréttir
Fimmtudagur 1. júlí 1999
Fyrir fimm, tíu, fimm-
tán og tuttugu árum
-Þau 25 ár sem Fréttir hafa komið út, hefur blaðið ævinlega fylgst með hjartslætti bæjarfélagsins, greint frá því sem helst er
að gerast í bæjarfélaginu. Ýmsar hræringar hafa verið í atvinnumálum, pólitík, menningarlífi, íþróttum og fleiru. Við rifjuðum
að gamni okkar upp atvik sem áttu sér stað um þetta leyti árs fyrir fimm, tíu, fimmtán og tuttugu árum. Samantekt: Sigurg.
Fyrir fimm árum - sumarið 1994
Draumahöggið
Sveinn Magnússon,
einn af elstu kylfing-
unum hjá Golfklúbbi
Vestmannaeyja, vann
það afrek, 72 ára
gamall, að fara holu í
höggi á braut 7 eða
Kaplagjótu eins og
hoían er ævinlega
nefnd. Þetta gerðist í
Stöðvamótinu, þann
26. júní og sá gamli
gerði gott betur, fór
ekki úr jafnvægi við
þetta draumahögg
allra kylfinga heldur
vann mótið
sannfærandi.
Sveinn segir svo frá þessu í Fréttum:
„Það gekk allt upp hjá mér í þessu
móti. Eftir að ég fór holu í höggi hélt
ég að minn skammtur vasri búinn en
það var nú aldeilis ekki. Ég fór næstu
holu, Fjósaklettinn á einu höggi undir
pari og hélt áfram að spila gott golf.
Við vorum þrír saman í holli, með mér
voru þeir Sigurjón Pálsson og Andrés
Sigmundsson. Kúlurnar þeirra lentu
sín hvoru megin við flötina á Kapla-
gjótunni en ég sá ekki hvar mín
hafnaði nema hvað hún skoppaði inn á
flötina. Við fórum svo að leita að
henni, því að hún sást hvergi, og ég
sagðist ekki trúa því að hún hefði farið
yfir. Andrés sagði að þá hlyti kúlan að
vera í holunni og það reyndist rétt
vera. Þá tók nú hjartað kipp í gamla
manninum. Þegar ég kom á 18. og
síðustu holuna hafði Magnús sonur
minn dregið ailt Múlapakkið þangað.
Síðasta púttið var nokkurra metra
langt og ég hafði á orði að það væri
ekki dónalegt að klára mótið með því
að fara síðustu holuna á einu höggi
undir pari fyrir framan fjölskylduna.
Ég gaf mér góðan tíma í þetta, vildi
hafa kúluna hreina og þurrkaði hana
vel með klútnum mínum. Þá hefur
mér alltaf gengið vel að pútta þegar ég
er nýgyrtur og ég gyrti mig að sjálf-
sögðu vel og vandlega fyrir loka-
höggið. Og það fór auðvitað beint
ofan í.“
Hefur Sveinn Magnússon endurtekið
þennan leik, síðan 1994, aðfara holu
í höggi?
„Nei, það hef ég nú ekki gert en
stundum verið nálægt því. En þessi
dagur var dálítið sérstæður, þetta var
tveggja daga keppni og þetta var á
seinni deginum. Ég var haltur, fékk
eitthvað í löppina og fékk strákinn til
að draga fyrir mig og kláraði þetta
svona prýðilega. En svo kom í ljós að
það var rifin hásin í fætinum og
fljótlega eftir þetta fékk ég mér þríhjól,
öðruvísi gæti ég þetta ekki í dag.
Forgjöfm mín er 15,1 í dag, ég held að
það sé ágætt hjá 78 ára gömlum karii
sem byijaði ekki í golfmu fyrr en eftir
sextugt. En golfið er svona upp og
ofan hjá manni í dag, ég er orðinn
miklu höggstyttri og ég held að það sé
borin von að ég fari aftur hoiu í höggi
á þeirri sjöundu, ég dreg bara ekki inn
á hana lengur. Ég reyni að fara í golf
á hverjum degi, það er helst ef veðrið
er mjög leiðinlegt sem maður sleppir
því. Svo er ég nýkominn úr golfferð
með Svarta genginu, við förum íjúm' á
hverju ári í nokkurra daga golf-
SVEINN Magnusson hefur sagt elli kerlingu stnð a hendur. Her er
hann á flötinni við Kaplagjótu þar sem hann fór holu í höggi.
ieiðangur upp á land.“
Hvemig ætlar svo kylfmgurinn
Sveinn Magnússon að halda upp á
áttræðisafmælið?
„Heyrðu, það era nú tvö ár í það.
Eigum við ekki aðeins að bíða og sjá
til hvort maður heldur það út. En ef ég
næ þeim aldri þá held ég ábyggilega
upp á það á viðeigandi hátt. Kannski
lækka ég mig enn frekar í forgjöf,"
sagði golfarinn síungi, Sveinn Magn-
ússon.
Þann 25. júní gengu
þau í hjónaband, Una
Þóra Ingimarsdóttir
og Þór Engilbertsson.
Það væri kannski ekki
í frásögur færandi eitt
og sér en staðurinn
sem þau völdu sér til
þeirrar athafnar var
nokkuð sérstæður.
Það var Jónsskora í
Bjarnarey, sylla í
bjarginu vestanverðu,
um 20 metra neðan
við brún og 100 m yfir
sjó. Þór fékk þessa
hugmynd í eggjaferð
ári áður og fyrir hann
var þetta lítið mál,
sem vanan bjarg-
mann. En hvað sagði
brúðurin Una Þóra um
þetta fyrir fimm
árum?
„Mér leist strax vel á hugmyndina og
var tilbúin að slá til þó að mér fyndist
þetta nokkuð hátt þegar ég sá í fyrsta
sinn hvar Jónsskora er. En ég var
ákveðin í að fara og eftir eina æfingu
fannst mér þetta ekkert mál.“
Séra Bjami Karlsson ætlaði að gifta
þau en þegar til kom var hann í fríi og
því varð að leita annað. Fyrsti prest-
urinn sem þau leituðu til treysti sér
ekki vegna lofthræðslu en séra Axel
Fyrir fimm árum - sumarið 1994
Himneskur dagur
Ámason, frá Tröðum, var strax til í
þetta.
„Dagurinn var himneskur, alveg frá
því að við vöknuðum kl. sjö um
morguninn og þar til við fóram að
sofa um kvöldið. Þetta var ævintýri
líkast og við hefðum ekki viljað missa
af þessu. Það sama á við um gestina,
þeir gleyma seint þessum degi,“ sögðu
þau Una Þóra og Þór.
Ferðin niður í Jónsskora gekk að
óskum þó ekki sé fært þangað nema á
vað. Flestir vora á báðum áttum hvort
þeir ættu að fara niður eða ekki en þeir
urðu þó fleiri en brúðhjónin áttu von á
eða milli 20 og 30, konur jafnt sem
karlar. I þeirra hópi var sjálfur
Bjamareyjarjarlinn, Hlöðver Johnsen,
en hann færði þeim skjöld til að setja
upp í Jónsskora til minningar um
þennan atburð. Að athöfn lokinni
skáluðu brúðhjónin á bjargbrúninni og
í veiðihúsinu í Bjarnarey fengu svo
gestir forsmekkinn að brúðkaups-
veislunni sem haldin var um kvöldið í
landi.
„Jú, ég man vel eftir þessum degi,“
segir Una Þóra fimm áram síðar.
Þetta rann allt svo dásamlega ljúft í
gegn, við gátum heldur ekki verið
heppnari með veður, lognið var svo
algert að fella varð niður skútusiglingu
sem átti að vera einmitt þennan dag.“
Hafa þessi funm ár verið eitthvað í
líkingu við brúðkaupsdaginn, eilíft
logn ?
„Ekki segi ég það nú kannski. Það
hefur ekki alltaf verið logn en samt
mjög gott. Við höfum líka eignast tvö
böm á þessum tíma og okkur li'ður
mjög vel.“
Þau Þór og Una Þóra hafa í nógu að
snúast. Þór er verktaki og þessa dag-
ana er hann að byggja raðhús við
Litlagerði. Una Þóra sér um bók-
haldshliðina á fyrirtækinu.
„Við ætluðum einmitt að halda upp á
fimm ára brúðkaupsafmælið um
síðustu helgi úti í Bjamarey. Halli
Geir var svaramaður og þau Hjödda
ætluðu með okkur út. Við eigum
tveggja mánaða dóttur og ætluðum að
taka hana með. I þessari ferð ætluðum
við líka að koma skildinum fyrir niðri
í Jónsskora, það átti löngu að vera
búið að því en hefur alltaf dregist. En
veðrið var þannig um helgina að við
ákváðum að fresta ferðinni. En hún
verður farin í sumar, það er engin
hætta á öðra. Ég er virkilega búin að
hlakka til að rifja þetta upp,“ sagði
Una Þóra.
UNA Þóra og Þór á góðri stund,
meðal nágranna í grillpartíi á
Ásaveginum.