Fréttir - Eyjafréttir - 01.07.1999, Page 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 1.. júlí 1999
Nýuvöktunarkerflmá
almannavarnanefnd
Aaalmannavamanefnd Vestmanna-
eyja fundaði 22. júní sl. Þar gerði
Armann Höskuldsson, forstöðu-
maður Náttúrustofu Suðurlands,
grein fyrir nýjum sjálfvirkum
búnaði til vöktunar á jarðskorpu-
hreyfmgum í Vestmannaeyjum.
Þessi búnaður verður beintengdur
Veðurstofu íslands og kerfi hennar.
Áætlaður kostnaður vegna hins
nýja kerfis er 3.650.000 kr. og hefur
verið sótt urn styrk sem nemur
tækjakostnaði, til Viðlagatrygg-
ingar að upphæð kr. 3.200.000.
Gáfugamla
sjúkrabílinn
Nýr sjúkrabfll er væntanlegur til
Vestmannaeyja. Rauði kross ís-
lands hefur boðið almannavarna-
nefnd Vestmannaeyja til eignar
eldri sjúkrabtlinn. Þetta kom fram
á síðasta fundi almannavama-
nefndar. Nefndin þakkaði þar
þessa höfðinglegu gjöf og hyggst
nota bílinn sem vettvangsstjóm-
arbíl.
Skógræktánýja
hrauninu
Á fundi bæjarráðs á mánudag
kynnti bæjarstjóri samning um
Landgræðsluskóga á nýja hrauninu.
Gerður hefur verið samstarfssam-
ningur við Skógræktarfélag íslands
um ræktun slíks skógar á 28,8
hektara svæði á nýja hrauninu.
Þetta svæði er vestan Sorpu og
afmarkast nokkurn veginn af
veginum sem þangað liggur neðan
frá Skansi. Skógræktarfélagið
hefur landið á leigu til 75 ára,
greiðir ekki leigu en mun sjá um
plöntun á svæðinu. Bærinn mun
aftur á móti sjá um girðingr og
viðhald þeirra. Þá skuldbindur
bærinn sig og til að halda landinu
friðuðu fyrir búfé.
Bæjarráð samþykkti samninginn
fyrir silt leyti en hann á eftir að fara
fyrir skipulagsnefnd og umhverfis-
og heilbrigðisnefnd.
Gosminjasvæðiárið
2003
Bæjarfulltrúar Vestmannaeyjalist-
ans lögðu á fundi bæjarráðs á
mánudag fram tillögu þar sem segir
að stefnt skuli að því á 30 ára
goslokaafmæli, árið 2003, að opna
gosminjasvæði í nágrenni Skansins.
Menningarmálanefnd_ fari með
forystu í þessu máli. í greinargerð
með tillögunni er rætt um að koma
þurfi upp eins konar sýningar-
aðstöðu í Vatnsveituhúsinu við
Skansinn. Þar mætti í máli, mynd-
um og með hlutum sýna þætti úr
sögu eldgossins, hraunkælingar-
innar, hraunhitaveitunnar auk þess
sem unnt væri að tengja þá þætti
við sögu vatns- og sjóveitu. Þá
verði gerð aðgengileg til sýningar
frystipressa, rafmagnstafla og fleira
sem í ljós kom þegar unnið var að
greftri á vegum Bæjarveitna fyrir
skemmstu. Einnig verði skoðaðar
vel aðrar hugmyndir sem með
einum eða öðrum hætti gætu tengst
gosminjum á Skanssvæðinu og
e.t.v. annars staðar á Heimaey.
Bæjarráð vísaði þessari tillögu til
menningarmálanefndar.
Ríkisstjómín ákveðin í að
bjoða ut rekstur a HerjoM
Á fundi bæjarráðs niánudaginn 28
júlí síðast liðinn mótmælti bæjarráð
ákvörðun ríkisstjórnarinnar varð-
andi útboð á ferjum. Bæjarráð
skorar á samgönguráðherra að
beita sér fyrir því að endurskoða
samþykkt þessa og telur mjög
mikilvægt að rekstur m/s Herjólfs
verði áfram í höndum heima-
manna.
Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri
sagði að bæjaryfirvöld í Vestmanna-
eyjum hefðu áður lent í viðræðum við
ríkisvaldið, vegagerðina og sam-
gönguráðuneytið. „Eg og Grímur
Gíslason, stjómarformaður Herjólfs,
áttum fund með ráðherra á þriðju-
dagsmorguninn og lögðum fram
okkar rök í málinu, þannig að málið er
komið í ákveðinn farveg. Við teljum
að ekki sé hægt að bera saman
flóabáta sem eru kannski eingöngu í
vöruflutningum og Herjólf sem er
þjóðbraut og lífæð Eyja. Það er
móðgun að leggja þetta að jöfnu,“
sagði Guðjón.
Þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir ff á
því á mánudag tókst blaðinu ekki að
ná sambandi við formann sam-
göngunefndar og 1. þingmann Suð-
urlandskjördæmis, Árna Johnsen og
ekki heldur samgönguráðherra sem er
að beita sér fyrir því að bjóða út
rekstur á Herjólfi án tillits til sérstöðu
Vestmannaeyinga.
Sjá bls. 25
Vel sott golfæuintýri hja GV
Golfævintýri Golfklúbbs Vestmanna-
eyja hófst á mánudaginn, þegar 158
krakkar á aldrinum 9 til 16 ára komu í
blíðskaparveðri með Heijólfi.
Golfævintýrið er nú orðinn árviss
viðburður í starfsemi Golfklúbbsins
og hefur fjöldi þátttakenda aldrei verið
meiri. Margt er gert til gamans og
skemmtunar á Golfævintýrinu, jafnt
kennsla og keppni.
Að sögn Ævars Þórissonar fram-
kvæmdastjóra Golfævintýrisins hefur
framkvæmd mótsins gengið mjög vel,
enda hafi veðurguðirnir verið mjög
hliðhollir mótinu. „Það var lítilsháttar
rigning á þriðjudeginum en í dag
(miðvikudag) hefur veðrið verið
frábært og krakkamir alveg í essinu
sínu.“
Ævar segir að ýmislegt annað
standi krökkunum til boða en að
munda golfkylfumar. „Við reynum
að brjóta upp dagskrána með óvænt-
um uppákomum, og gefum krökkun-
um þannig tækifæri til þess að kynnast
Eyjum. Mótsgestir hafa til að mynda
farið í bátsferðir, óvissuferð, grill-
veisla var haldin, skoðunarferð um
Heimaey og svo mætti lengi telja. Það
er líka boðið upp á kennslu í hinum
ýmsu tækniatriðum, má þar nefna pútt
og vippæfingar og ýmislegt fleira til
þess að efla kunnáttu og getu
krakkanna í golfinu."
Golfævintýrinu lýkur í kvöld og
munu krakkamir halda til íslands á
föstudagsmorgun með Heijólfi.
Frestun í
Skvísu-
sundi
Ákveðið hefur verið að uppákomu
þeirri sem Vestmannaeyjabær ætlaði
að standa fyrir nk. laugardagskvöld
verði frestað. Þama átti að minnast 80
ára afmælis kaupstaðarins með
þátttöku allra bæjarbúa. Stefnt er að
því að minnast tímamótanna öðm
hvom megin við mánaðamótin
Vakin er athygli á að því að
Sumarstúlkukeppnin verður í Kiw-
anishúsinu á laugardagskvöldið.
Fréttatilkynning frá Landakirkju:
Nelgiganga á goslokaafmæli
Frá Eldfelli niður á Skans, 4. júlí 1999 kl. 11
Það er að komast á hefð að fara í
helgigöngu frá krossinum í Eldfelli
niður á Skans um goslokin. Vest-
mannaeyingar em þannig í takt við
nágranna sína á Norðurlöndum sem
iðka helgigöngur í æ ríkari mæli,
sjálfum sér til góðs. Helgigöngur
virðast höfða vel til nútímafólks þar
sem saman fer andleg og líkamleg
endumæring. Helgigöngur af ýmsum
toga em að verða að tískusveiflu í
nágrannalöndum okkar. Vestmanna-
eyingar hafa ástæðu til helgifarar í
minningu um varðveislu Guðs á gos-
tímum. Allir rólfærir Vestmanna-
eyingar em hvattir til að gefa Guði
dýrðina fyrir vemd hans og blessun í
gosinu og mæta til helgigöngunnar.
Helgigangan hefst með bæn við
krossinn í Eldfelli. Síðan verður
gengið niður á Skans með stuttri
áningu á leiðinni.
Á Skansinum verður safnast saman
við væntanlega stafkirkju. Sr. Bára
Friðriksdóttir verður með helgistund.
Molasopi á eftir í boði Landakirkju
þar sem Jóhann Friðfinnsson segir frá
stafkirkjunni. Hljómbrot úr Lúðrasveit
Vestmannaeyja mun þeyta lúðra í
helgigöngunni og kór Landakirkju
styður sönginn.
Rúta fer frá Landakirkju kl. 10.30
að Eldfelli. Rútan fer niður á Skans
með þá sem ekki treysta sér í gönguna
sjálfa. Klæðnaður eftir veðri.
Prestar Landakirkju
Upplýstmeðgrútinn
Eins og getið var um í síðasta
tölublaði Frétta komst grútur í
höfnina í nokkm magni fyrir
skömmu. Nú liggur ljóst fyrir að
grútnum var fyrir mistök dælt frá
bræðslu ísfélagsins á laugardag
fyrir rúmri viku. Rofi í dælustöð
mun hafa bmnnið yfir með þessum
afleiðingum. Hafnarstjóra og
tæknifræðingi hefur verið falið að
rita Isfélaginu bréf vgna þessa máls,
svo að slikt gerist ekki aftur.
Austurslíppurinn
munhverfa
Á síðasta fundi hafnarstjómar lagði
Olafur Olafsson, tæknifræðingur,
frain hugmynd að uppfyllingu í
Austurslippnum svokallaða þar
sem aðsetur Drátlarbrautar Vest-
mannaeyja vai'. Hafnarstjóm hefur
falið tæknideild bæjarins að bjóða
út verkið, bæði uppfyllingu og
niðurrif hússins að Strandvegi 74.
Áformað er að nýta svæðið a.m.k.
til að byrja með sem bifreiðastæði
og gámasvæði.
Tvöbörní
umferðarslvsum
Á fimmtudag í síðustu viku var
ekið á bam á reiðhjóli. Bamið, sem
er níu ára gamalt, hjólaði rakleitt af
gangstíg milli Faxastígs og Vest-
mannabrautar inn á Vestmanna-
braut í veg fyrir bifreið. Bamið var
flutt á sjúkrahúsið en meiðsli þess
reyndust minniháttar.
Þá varð annað slys sarna dag við
Týsvöllinn þar sem fólk var að
fylgjast með Shellmótinu. Þar var
ekið á sex ára bam sem hljóp milli
bifreiða og út á götu. Bamið
meiddist lítillega enda var bifreiðin
á mjög hægri ferð.
Enneinnstúturinn
Bókanir í dagbók lögreglu vom alls
172 í síðustu viku. Er það ívið
meira en í meðallagi og skýrist m.a.
af aðstoð við tjaldgesti í Heij-
ólfsdal. auk þess sem helgin var
nokkuð ónæðissöm. Og aðfaranótt
föstudags var svo ökumaður tekinn,
gmnaður um ölvun við akstur.
Vandræði í Dalnum
Mikill tjöldi fólks hélt til í
Herjólfsdal meðan á Shellmótinu
stóð, í tjöldum, tjaldvögnum og
hjólhýsum. Á föstudag hvessti
rækilega og lentu þá margir þar í
vandræðum, þar sem tjöld fuku og
rifnuðu. Lögregla aðstoðaði all-
marga og þeim var komið í
húsaskjól sem þess þurftu með.
Erill um helgina
Þjóðhátfð er eftir mánuð og þeir
allra hörðustu virðast byrjaðir að
hita upp fyrir hana. Alla vega var
töluverður erill um helgina vegna
ölvunar og slagsmála. Hafði lög-
regla í mörg hom að líta og voru
tveir vistaðir í fangageymslum
lögreglu í beinu framhaldi af þeim
ólátum.
FRÉTTIR Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson. íþróttir: Rútur Snorrason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstur frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt I áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn. Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flugvallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og I Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.