Fréttir - Eyjafréttir - 01.07.1999, Side 8
8
Fréttir
Fimmtudagur l.júlí 1999
Þýölr ekkert að vera í
dtgerð ðn bjartsvninnar
-segir Gunnlaugur Olafsson útgerðarmaður sem kom með nýjan Gandí VE á þriðjudaginn.
ÚTGERÐ Gandís VE er dæmigert fjölskyldufyrirtæki þar sem karlinn stundar sjóinn og konan sér um
reikningana í landi. Gunnlaugur með Kristínu Gísladóttur eiginkonu sinni og Ellý dóttur þeirra.
Nýtt skip bættist í Eyjaflotann síð-
astliðinn þriðjudag þegar Gandí
VE 171 kom til hafnar frá
Álasundi í Noregi. Gandí er ellefu
ára gamalt alhliða línuskip, smíðað
í Noregi 1988. Skipið er 34 metrar
að lengd, 8,20 metrar að breidd og
486 brúttótonn og kostaði um
tvöhundruð og fimmtíu milljónir
Fjórtán manns eru í áhöfn
skipsins. Það er útgerðar-
fyrirtækið Gandí ehf. sem rekur
skipið en það er tveggja ára
gamalt, en áður hafði Gunnlaugur
Olafsson skipstjóri gert út undir
eigin nafni frá 1976. Hann segir að
þetta nýja skip komi til með að
leysa af hólmi eldra skipið sem
fyrirtækið hefur rekið, en þetta er
þriðja skipið sem hann gerir út.
„Það er nú ekki ætlunin að gera út
bæði skipin, því meiningin er að
selja það, enda leyfir kvótastaðan
ekki að gera út fleiri skip.“
Gunnlaugur segir að eitthvað sé
eftir af kvóta á þessu kvótaári.
„Það eru 150 tonn á þessu ári, svo
tekur bara nýtt kvótaár við og ég
er bjartsýnn á framhaldið. Það
þýðir ekkert annað, maður væri
ekki í þessu að öðrum kosti.“
Gunnlaugur segir að siglingin
heim hafi gengið mjög vel, enda
þeir nánast í blíðu allan tímann.
„Það reyndi lítið á skipið hvað
veður áhrærir. Á mánudaginn
fengum við einhvern kalda, en að
öðru leyti var hægviðri á leiðinni."
Aðspurður hvort hagstætt sé að
kaupa notuð skip núna, segir
Gunnlaugur að hér á landi sé svo.
„Hins vegar eru þessi sérbyggðu
línuskip mjög dýr.“
Vélstjóri á Gandí er Vignir
Sigurðsson. Hann segir að ástand
skipsins sé mjög gott. „Skipið var
VIGNIR Sigurðsson vélstjóri á
Gandí í ríki sínu.
GANDÍ VE kemur til hafnar í Vestmannaeyjum. Skipið er ellefu ára gamalt alhliða línuskip, srníðað í Noregi 1988. Skipið er 34 metrar að
lengd, 8,20 metrar að breidd og 486 brúttótonn
tekið í slipp í Álasundi, þar sem
það var málað, farið yfir
þrýstikerfi, öxull skoðaður og einn
stimpill tekinn upp. Aðalvélin er
901 hestafl af Caterpillar gerð auk
tveggja ljósavéla sem eru 300
hestöfl.“
Vignir segir að í inniverunni
muni túrbínur á öllum vélum
verða teknar upp og yfirfarnar
áður en skipið leggur úr höfn
næstkomandi þriðjudag.