Fréttir - Eyjafréttir - 01.07.1999, Side 12
12
Fréttir
Fimmtudagur l.júlí 1999
Frábær árangur Eyjapilta á Shellmótinu í flokki A-liða:
Stóðu uppi sem meistarar
Þá kom að því sem lengi
hetur verið beðið eftir, ÍBV
náði að sigra á
Shellmótinu í flokki A-
liða. Er þetta besti
árangur Eyjaliða síðan á
fyrsta mótinu þegar
Þórarar urðu
Tommamótsmeistarar eins
og mótið hét þá.
IBV mætti Þrótturum í
úrslitaleiknum, vann
sannfærandi, 5 -1 og réðu
okkar menn gangi leiksins
eins og tölurnar bera með
sér.
Það leit ekki vel út á
miðvikudaginn þegar 16.
Shellmótið átti að hefjast.
Ekki gaf til flugs framan
af degi og útlit var fyrir að
ekki tækist að koma öllum
liðunum til Eyja. En
síðdegis rofaði til og sett
var upp loftbrú til Eyja
sein um miðnætti hafði
náð að skila 1000
drengjum á aldrinum átta
til tíu ára til
Vestmannaeyja. Með þeim
voru um 200 þjálfarar og
fararstjórar auk um 800
foreldra og annarra
aðstandenda sem voru
mættir til að fylgjast með
sínum mönnum spila
fótbolta. Samtals voru því
um 2000 manns mættir til
Eyja í tengslum við
Shclhnótið.
A föstudaginn sýndu
veðurguðimir allar sínar
verstu hliðar en strákarnir
létu það ekki á sig fá og
léku sína knattspyrnu sem
aldrei fyrr. A laugar-
daginn fór að rofa til og á
sunnudaginn var veðrið
nijög gott og skapaði það
skemmtilega umgjörð um
úrslitaleikina sem fóru
fram á Hásteinsvelli.
Auk fótboltans var boðið
upp á kvöldvöku, leiki alls
konar, grillveislu, siglingu
að kví Keikós og
skoðunarferðir. Það var
því hver mínúta nýtt til
hins ítrasta og
herlegheitunum lauk með
glæsilegri lokaathöfn í
íþróttamiðstöðinni þar
sem verðlaun og
viðurkenningar voru
athcntar.
JÓN ÓLI með A-liðinu. Fremri röð: Valtýr Bjarnason, Eiður Aron Sigurbjörnsson, Fannar Stefnisson, Gauti Þorvarðarson, Daníel Freyr.
Aftari röð: Arnór E Ólafsson, Guðjón Ólafsson, Kristinn Sigurðsson, Davíð Þorleifsson, Víðir Róbertsson.
Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari 6. flokks ÍBV:
r
Anægjulegt að landa titlinum
Jón Ólafur Daníelsson,
þjálfari ÍBV, stóð í
ströngu á mótinu, enda
með fjögur lið á sínum
herðum. IBV-liðin stóðu
sig mjög vel á mótinu,
bæði innan- og utanhúss.
Hápunktur mótsins var
auðvitað glæsilegur sigur
a-liðs ÍBV í úrslita-
leiknum gegn Þrótti.
Hvernig fcmnst þér mótið
til takast íár? „ Bara mjög
vel eins og öll önnur mót.
Það er komin það mikil
reynsla á bæði Shellmót og
Pæjumót að það er
eiginlega alveg sama hvað
kemur upp á, þetta gengur
alltaf upp.“
Kom árangur þíns liðs á
óvart og þá sérstaklega
þessi frábœri árangur hjá
A-liðinu? „Já, kannski að
við skyldum vinna mótið en
ég var alltaf nokkuð viss
um að við yrðum meðal
efstu átta og því kom þessi
árangur manni skemmtilega
á óvart," sagði Jón Ólafur.
Hver finnst þér vera
lykillinn að þessum góða
árangrí? „Eg hef þjálfað
flesta þessa peyja síðan þeir
voru fimm ára gamlir og
efniviðurinn í þessum hópi
er bara gríðarlega góður.
Strákamir æfa mjög vel á
vetuma og síðan hef ég náð
að berja svolitlu Eyjahjarta
í þá og þeir fyllast stolti og
metnaði þegar þeir fara út á
völl að spila fyrir IBV og í
þeirra augum skiptir engu
hver mótherjinn er, þcir fara
í hvem leik til jtess að
vinna,“ sagði Jón Ólafur að
lokum.
Arnór E. Ólafsson, leikmaður með ó.flokki ÍBV-A:
Lansar að spila með Liverpool
Arnór E. Ólafsson er 10 ára gamall og leikur sem
miðjumaður í a-liði IBV, sem varð Shellmótsmeistari
um síðustu helgi. Arnór er einn af mörgum efnilegum
strákum í 6. flokki IBV og hefur æft knattspyrnu frá
því að hann man eftir sér. Hann stóð sig frábærlega í
úrslitaleiknum gegn Þrótti og var án efa niaður
leiksins. Arnór gerði sex mörk í mótinu, þar af eitt í
úrslitaleiknum.
Varst þú á þínu fyrsta Shellmóti? -Nei, þetta var mitt
annað mót.
Hvemig fannst þér svo að spila úrslitaleikinn á mótinu ? -
Alveg frábært. Eg var ekkert stressaður og ég bara naut
þess að spila fótbolta.
Hverfmnst þér vera aðal styrkleikinn í liðinu ykkar? -Eg
held að við séum bara með jafnt og gott lið og við fömm í
alla leiki til þess að vinna.
Hvaðfannst þér eftinninnilegastfrá mótinu ? -Það var að
sjálfsögðu úrslitaleikurinn og setningin.
Attu þér einhvem uppáhaldsleikmann ? -Já, það er Jamie
Redknapp í Liverpool.
-Hvert er flottasta mark sem þú hefur séð? -Það var
markið sem Roberto Carlos gerði fyrir Brasilíu gegn
MARKASKORARAR í A-liði ÍBV í úrslitaleikn-
um gegn Þrótti. Frá vinstri Eiður A. Sigur-
björnsson, Guðjón Olafsson, Gauti Þorvarðarson
og Arnór E. Olafsson.
Frökkum, beint úr aukaspymu.
Ertu búinn að ákveða hvað þú œtlar að verða þegar þú
verður eldri? -Já, ég ætla mér að verða atvinnumaður í
knattspymu og þá helst hjá Liverpool
Hverjir heldur þú að verði Islandsmeistarar í sumar hjá
körlunum? -IBV, að sjálfsögðu.
DAVÍÐ Þorleifsson, fyrirliði A-
liðs IBV, tekur við bikurunum.