Fréttir - Eyjafréttir - 01.07.1999, Side 23
Fimmtudagur l.júlí 1999
Fréttir
23
ÞAU LITU FYRST DAGSINS LJÓS ÁRIÐ SEM FRÉTT1R KOMU ÚT í FYRSTA SKIPTI
i iiiii ih n**n
10. bekkur, 1989 Aftasta röð frá vinstri: Birkir Matthíasson, Rútur Snorrason, Hermann Hreiðarsson, Kristján Sigurðsson, Tryggvi Gunnarsson, Orri Jónsson,
Hafliði Ingason, Hjalti Jóhannesson, Magnús Sigurðsson.
Miðröð frá vinstri: Sigþóra Guðmundsdóttir, Anna Lilja Tómasdóttir, Dögg Lára Sigurgeirsdóttir, Sara M Ólafsdóttir, Auður Ásgeirsdóttir, Brynja Jónsdóttir.
Fremsta röð frá vinstri: Dóra Hanna Sigmarsdóttir, Guðbjörg Sigurðardóttir, Björg Hrund Sigurbjörnsdóttir, Elín H Garðarsdóttir, Lilja B Jónsdóttir, Hrund Gísladóttir,
Jóhanna Yr Jónsdóttir.
•8!
-
Súsanna Georgsdóttir
f. 4. mars 1974
Ég bauð nokkmm vinkonum mínum
í mat á afmælisdaginn og það var
rosafínt. Ég stundaði nám í
danskennslu í fjögur ár og vann
nokkuð við það. Svo hef ég verið að
kenna eróbik í Hressó og auðvitað
unnið í fiski eins og sannur
Vestmannaeyingur. Þessa dagana er
ég að einbeita mér að því að eignast
mitt fyrsta bam, það á að koma í
heiminn einhvers staðar í kringum 16.
júlí. Ég er í sambúð með Magnúsi
Jónssyni, ættuðum frá Felli, miklum
golfleikara. Ég hef alltaf búið í
Eyjum ef skólaárin eru undanskilin
og það verður engin breyting á því.
Það kemur ekkert annað til greina en
að eiga heima héma.
Já, Fréttir les ég alltaf, í hverri viku,
spjaldanna á milli. Auðvitað heldur
maður tryggð við jafnaldra sína, hvort
sem það em blöð eða fólk.
Birkir Matthíasson
f. 3. desember 1974
Ég tók stúdentspróf af tónlistarbraut
Menntaskólans við Hamrahlíð og hef
lítið verið í Eyjum síðustu tíu árin.
Ég kláraði kennaradeild Tónlistar-
skólans 1997 og hef verið að kenna
síðan, bæði íTónmenntaskólanum og
Vesturbæjarskólanum í Reykjavík. í
vetur leysti ég svo af í Stykkishólmi
og tók að mér lúðrasveitina þar líka.
Ég kenni á málmblásturshljóðfæri og
nær eingöngu á trompet. Svo er ég
líka í hljómsveitinni Jagúar. Já, ég er
ennþá einn á báti, þetta gengur ekkert
hjá mér, ég efast um að ég gangi út.
Oftast hef ég komið heim til Eyja á
hverju sumri en líklega fer þeim
ferðum að fækka þar sem foreldramir
em að flytja til Reykjavíkur. Ég á því
ekki von á að setjast að í Eyjum enda
kannski ekki mikill markaður fyrir
trompetkennara þar. Þó er aldrei að
vita hvað gerist.
Fréttir les ég alltaf, ég er einmitt með
stóran bunka fyrir framan mig núna.
Mamma kemur alltaf með fullar
hendur af Fréttum þegar hún kemur í
bæinn.