Fréttir - Eyjafréttir - 01.07.1999, Blaðsíða 27
Fimmtudagur l.júlí 1999
Fréttir
27
Landssímadeild karla: Víkingur 1 - ÍBV 2
Lansþráður útisisur
INGI, Hjalti Jóhannesar, AHan Mörköre og Guðni Rúnar geta verið ánægðir með gengi ÍBV í síðustu
leikjum liðsins.
Bikarkeppni kvenna: Fjölnir 0 - ÍBV 7
Góður leikur Eyjastúlkna
Eyjamenn mættu nýliðum Víkings á
Laugardalsvelli, síðastliðinn föstudag
í Landssímadeildinni. Fyrir þennan
leik voru Eyjamenn án sigurs á útivelli
það sem af er tímabilinu og vom stað-
ráðnir að breyta því í þessum leik.
IBV byrjaði betur, þeir héldu bolt-
anum nokkuð vel og vom grimmari í
návígum. Það var svo þvert gegn
gangi leiksins að heimamenn skomðu
og var það fyrir klaufagang í vöm
IBV. Ekki í fyrsta skipti og var þetta á
13. mínútu.
Markið kom eins og köld vatnsgusa
í andlit Eyjamanna, en þeir náðu þó að
koma sér fljótlega inn í leikinn aftur
með marki Guðna Rúnars Helgasonar,
sem skoraði með innanfótarskoti eftir
misskilning milli markmanns og
vamarmanns Víkings.
Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks
vom bæði lið í miklum erfiðleikum
með að halda boltanum innan síns liðs
sem sýnir að knattspyman var ekki
upp á marga fiska. Staðan í leikhléi
var I -1.
IBV-liðið var mjög ferskt í upphafi
síðari hálfleiks og hafði yfirhöndina
lengst af án þess þó að skapa sér
hættuleg færi. Það var síðan á 65.
mínútu að Guðni Rúnar Helgason
bætti við öðm marki fyrir ÍBV. Fékk
hann góða fyrirgjöf frá Ivari Bjarklind
og hamraði knöttinn með glæsilegum
skalla í netið. Leikurinn jafnaðist
nokkuð eftir þetta mark og undir lokin
sóttu Víkingar stíft, en náðu ekki að
koma boltanum í netið hjá ÍB V.
Birkir og Guðni Rúnar áttu góðan
leikfyrirÍBV.
Liðið: Birkir-ívarB., Zoran, Kjartan,
Hjalti Jóh. - Allan, ívar I., Guðni,
Baldur, Rútur - Steingrímur.
17* júní hlaupið
Hið árlega 17. júní hlaup fór fram í
síðustu viku, við heldur leiðinlegar
aðstæður. Þátttaka var engu að
síður mjög góð og tóku 67 krakkar
þátt í hlaupinu. Urslit urðu sem
hér segir:
8 ára og yngri, stelpur: l. Berglind
Björg Þorvaldsdóttir, 2. Elísa Við-
arsdóttir og 3. Bára Einarsdóttir.
Strákar: l. Guðmundur Oskar,
2. Theodór Ofeigsson og 3. Ein-
ar G. Olafsson.
9 - 10 ára stelpur: 1. Ema S.
Sveinsdóttir, 2. Hlíf Berry og 3.
Elísabet Þorvaldsdóttir.
Strákar: 1. Þórarinn I. Valdason,
2. Þórhallur Friðriksson og 3.
Davíð Þorleifsson.
11 - 12 ára stelpur: 1. Birgitta Ó.
Rúnarsdóttir, 2. Svala Jónsdóttir
og 3. Alma Guðnadóttir.
Strákar: 1. Frans Friðriksson og
var þetta 5. skiptið sem hann vinnur
þetta hlaup, 2. Svavar Þ. Georgsson
og 3. Heimir Gústafsson.
13 ára og eldri strákar: 1. Ólafur
Berry og 2. Ólafur S. Guðjóns-
son.
Eyjastúlkur mættu Fjölni í Coca-
Cola bikar kvenna um síðustu helgi.
IBV-Iiðið fór á kostum og sigraði
stórt, 0 - 7.
Kelly Schimmen gerði þrennu í
leiknum, Karen Burke, Lára D.
Konráðsdóttir og Lisa gerðu eitt mark
hver og eitt mark var sjálfsmark.
Staðan í leikhléi var, 0-3.
Heimir Hallgrímsson, þjálfari IB V,
var ánægður með sínar stelpur í
Síðastliðinn þriðjudag fóru fram 16
liða úrslit í Coca-Colabikar-
keppninni. Núverandi bikarmeist-
arar skruppu til Keflavíkur þar
sem Keflavík og ÍBV áttust við í
kaflaskiptum leik.
Fyrri hálfleikur var frekar tíðinda-
lítill, Vestmannaeyingar lágu frekar
aftarlega en það vom Keflvíkingar
sem sóttu heldur meira. Eftir leikhlé
var eins og leikmenn ÍBV hefðu
fengið spark í rassinn og það tók
Eyjamenn aðeins fimm mínútur að
skora fyrsta markið. Það var Guðni
Rúnar Helgason sem skoraði sitt
þriðja mark í síðustu tveimur leikjum.
Eftir þetta sóttu Eyjamenn stíft og það
liðu ekki nema tíu mínútur þangað til
Eyjamenn skomðu sitt annað mark
þegar Allan Mörköre skoraði glæsi-
legt skallamark. Eftir nokkurra
mínútna leik náðu Keflvfldngar aðeins
að klóra í bakkann en Mörköre gerði
þeirra möguleika á að komast áfram
að engu þegar hann skoraði þriðja
mark IBV og sitt annað á 70. mínútu.
leiknum. „Þetta var góður leikur af
okkar hálfu og stelpumar gerðu bara
það sem þær áttu að gera. Yfirburðir
okkar voru miklir og Fjölnisstúlkur
áttu aldrei neinn möguleika," sagði
Heimir.
Líf og fjör hjá stelpunum
Eftir leikinn urðu stelpumar eftir í
höfuðborginni og var margt á döfinni.
Á föstudagskvöldinu fóm þær út að
Seinni hálfleikur var eins og áður
sagði æsispennandi og áttu bæði lið
möguleika á að skora mun fleirri
mörk. Sigurinn hefði hæglega getað
orðið stærri en Keflavík átti líka sín
færi svo mikið var af marktækifærum
í seinni hálfleik.
borða saman á Pasta Basta og í fram-
haldi af því var kikt á skemmtistaði
borgarinnar.
Á laugardeginum var farið í Laser-
Tag og keilu og síðan sigldu stelp-
umar niður Hvítá. Á sunnudeginum
var bmnað til Grindavíkur og farið á
hestaleigu og svo endað í Bláa-
Lóninu. Já, þær kunna sko að
skemmta sér þessar stelpur!
Nú em Eyjamenn vonandi komnirá
beinu brautina eftir þrjá unna leiki í
röð, bæði í deild og bikar, og þar af
tvo útisigra. Allan og Goran lofa góðu
og eiga eftir að styrkja liðið vemlega.
Sportlð lýslr beint
Eins og Vestmanneyingar vita þá
hefur útvaipsstöðin Sportið verið
með útsendingar í sumar. Útvarps-
stöðin mun lýsa öllum útileikjum
hjá meistaraflokki karla í sumár,
sem ekki eru sýndir í sjónvarpihu
og þá ætla þeir Sporímenn að reyna
að lýsa útileik ÍBV í Evrópii-
keppninni. , Spo.rtið. hefur fengið
sterka aðila til liðs við sig til að
þetta geti orðið að veruleika ög má
þar nefim Vömvaj,' Miðstöðina,
Flugfélag Islands og Heijólf.
Góður sigur
Annar flokkur karla lék um síðustu
helgi hér heima gegn toppliði Þórs
frá Akureyri. Strákarnir fóru á
kostum í Ieiknum og sigmðu sann-
færandi, 4-0, eftir að staðan í
hálfleik hafði verið, 2-0. Mörk
ÍBV skomðu þeir Gunnar Heiðar
Þorvaldsson tvö og Magnús Elías-
son tvö.
írís í landsliðshóp
íris Sæmundsdóttir, leikmaður ÍBV
í knattspyrnu, hefur verið valin í
22ja manna hóp íslenska lands-
liðsins í knattspyrnu sem æfir af
kappi fyrir verkefni haustsins.
...og þrjáríviðbót
Þrjár ÍBV stúlkur í knattspyrnu
hafa verið valdar í 21 manns
æfíngahóp 21-árs landsliðs íslands
fyrir verkefni haustsins. Það eru
þær Bryndís Jóhannesdóttir, Hjör-
dís Halldórsdóttir og Hrefna
Jóhannesdóttir.
Bryndísmeidd
Kvennalið ÍBV varð fyrir miklu
áfalli í síðustu viku þegar Bryndís
Jóhannesdóttir, leikmaður IBV,
meiddist. Hún verður frá í að
minnsta kosti 3-4 vikur.
Samið við Goran
Knattspyrnudeild ÍBV hefur gert
samning við Júgóslavann Goran
Aleksic sem gildir út þetta keppn-
istímabil. Goran kom til ÍBV í
síðustu viku til reynslu. I framhaldi
af því var ákveðið að semja við
Goran. Hann hefur spilað í júgó-
slavnesku I. deildinni undanfatin ár
Stórsigur hjá KFS
KFS lék einn leik í 3. deildinni um
síðustu helgi, gegn Gollklúbbi
Grindavíkur og fór leikurinn lram á
Helgafellsvelli. Að sögn Hjalta
Kristjánssonar, þjálfara KFS, léku
heimamenn mjög vel þó að mörkin
hafi látið standa á sér í byrjun.
„Þetta var nú trekkt framan af, en
við náðum tveimur mörkum rétt
fyrir hálfleik og voru þar að verki
Lúðvík Jóhannesson og Magnús
Steindórsson. Jón Bragi bætti síðan
við þriðja markinu úr víti í upphafi
síðari hálfleiks og Stefán Bragason
og Þorsteinn Þorsteinsson skomðu
svo síðustu mörkin í leiknum og
tryggðu okkur sannfærandi 5-0
sigur,“ sagði Hjalti.
Framundan:
Föstudagur2. júlí
Kl. 20.00 Njarðvík - KFS í 3. deild.
Sunnudagur 4. júlí
Kl. 20.00 IBV - Keflavík
Mánudagur5. júlí
Kl. 20.00 Vfldngur - ÍBV í 1 .fl. k.
Þriðjudagur 6.júlí
Kl. 20.00 IBV - Breiðablik í Lands-
símadeild kvenna.
Ekki óskadrátturinn
í gærmorgun var dregið í forkeppni Meistaradeildar Evrópu, mótherjar
ÍBV verða SK Tirana frá Albaníu og fer fyrri leikurinn f'ram á íslandi.
Talið er nokkuð ömggt að undanþága fáist þannig að fýrri leikurinn verði í
Vestmannaeyjum. Hann verður miðvikudaginn 14. júlí en seinni leikurinn er
settur á 21. júlí. „Það em þó líklegt að þeim leik verði flýtt um einn dag og fer
hann þá fram þriðjudaginn 20. júlí,“ segir Þorsteinn Gunnarsson.
Ljóst er að IBV-liðið á langt férðalag fyrir höndum en Þorsteinn segir að þó
þetta hafi ekki verið óskadrátturinn hefði hann getað verið veni. „Við vomm í
potti með liðum frá Færeyjum, Bretlandseyjum, Eystrasaltslöndunum,
Luxemburg og Azerbajan. Best hefði verið að lenda í Færeyjum en við
verðum að taka þessu því Evrópukeppnin er og verður lotterí."
Ekki er mikið vitað um andstæðingtma en Þorsteinn segir að ÍBV eigi alla
möguleika á að komast áfram en þá verða andstæðingamir FC Budapest lfá
Ungveijalandi.
Knattspyrna: Bikarkeppnin