Fréttir - Eyjafréttir - 02.03.2000, Page 16
16
Fréttir
Fimmtudagur 2. mars 2000
Tilbreytingardagar í Barnaskólanum:
Sköpun og listir í fyrirrúmi
I síðustu viku voru svokallaðir
tilbreytingardagar, eða þemavika
2000 í Bamaskólanum. Á slíkum
dögum er ekki kennt samkvæmt
hefðbundinni stundatöflu heldur
lögð aukin áhersla á sköpun og
listir. Nemendum var blandað í
hópa innan síns aldursstigs en
ekki eftir bekkjum eins og venja
er. Vinnutíminn var frá kl. 08.00
til 12.15 og eftir hádegi suma
daga.
Nemendur 8. -10. bekkjar unnu í
6 hópum: Árshátíðarhóp við að
undirbúa umgjörð árshátíðarinnar,
leilistarhóp þar sem þau unnu
sýningaratriði undir stjóm
kennara og leikstjóra, fatahönnun,
dans, kvikmyndagerð og
framtíðarsýn Eyjanna í
Athafnaverinu. Framtíðarsýn
nemenda á Eyjar hefur verið
komið upp á Intemetinu og geta
áhugasamir litið á síðuna, en
slóðin er:
http/A'estmannaeyjar.ismennt.is/n
em/thema2000/
Á þriðjudeginum fór fram
ljósmyndasprettur Fuji og Fóto,
en sigurvegarar í þeim spretti
vom Ágúst Halldórsson og
Halldór Sævar Grímsson, báðir í
níunda bekk. Eftir hádegið á
miðvikudeginum fór fram
Bamófárið en það var keppni hvar
nemendur áttu að leysa ýmiss
konar þrautir vitandi ekki hveijar
þær vom. Þó áttu heiti þeirra að
gefa vísbendingar, en oftar en
ekki vom þau villandi. Varafhin
besta skemmtun, þó margar
þrautimar hafi komið nemendum
í opna skjöldu
Nemendur í 1. - 4. bekkjum fóra í
leikhús á fimmtudaginn og sáu
það merka verk Snuðra og Tuðra
undir leikstjóm Aino Freyju
Jervila, annars vom þau í
rannsóknarvinnu, myndlist, batik,
hljóðfærasmíði, tónlist,
„marmaravinnu.“ Á miðstigi (5.-
7. bekk) var unnið í 6 hópum.
Búin vom til bókamerki,
kartöfluþrykk, hljóðfærasmíði,
stærðfræðivefurinn skoðaður,
matreiðsla og vídeo. Farið var í
ratleik og á fimmtudaginn
óvissuferð.
Árshátíð 8. - 10. bekkja var svo á
fímmtudagskvöldið með
matarveislu og frábærri dagskrá
sem nemendur sáu um með
dyggri aðstoð valinkunnra
leiðbeinenda. Vom þar flutt dans-
og leiklistaratriði, auk þess sem
minni kennara og nemenda vom
flutt Á árshátíðinni afhenti
Aðalsteinn Sigurjónsson
umboðsmaður Sjóvár - Almennra
í Eyjum nemendum peningastyrk
sem renna mun til góðra málefna í
þágu nemenda. Einnig vom
sigurvegarar ljósmyndasprettsins
verðlaunaðir.
fólk skemmti sér vel.
ÞESSAR dömur hittu „ridd-
arann síunga“ og ekki laust við
EITT atriða Barnófársins var að hitta bolta í körfu í 30m/sek vindstyrk. Hér fylgjast nemendur spenntir að hann hafi komið þeim í opna
með félögum sínum við körfuna.
skjöldu í endataflinu.
HÉR fyrir ofan eru nemendur í
„Þvottakörfunni“ en það var
hluti af Barnófárinu, hvar
nemendur áttu að búa um rúm á
sem skemmstum tíma. Eins og
sést skemmtu nemendur sér hið
besta yfir tilþrifunum í þessari
þraut.
„EHEM,“ þegar pönnukökur
bakast set ég eitt kíló af pipar,
síðan íhuga ég málið þar til
sykur út á fer. Síðan vanda ég
mig mikið svo ég far'ekki yfir
strikið.
MIKIL dansmennt er iðkuð í
Eyjum þessa dagana og létu
þessar stúlkur ekki sitt eftir ligga
til að efla þá mennt á
árshátíðinni við mikinn fögnuð
viðstaddra.
EIN dansmærin í hópi einlífis-
manna sem settu sterkan svip á
eitt dansatriðið
SALURINN var þéttsetinn og