Fréttir - Eyjafréttir - 09.11.2000, Side 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 9. nóvember 2000
Bókvitið
'askana
Nýfæddir ?cr
Vestmannaeyingar
Tuttugu garðyrkjublöð,
Englar alheimsins og Bangsímon
Ég þakka Steina skólabróður fyrir að
skora á mig. Hann vill að ég gefi innsýn
inn í minn bókaheim.
Ég hef nú ekki verið neinn bókaormur
í gegnum tíðina en hef þó samt alltaf
töluvert lesefni á náttborðinu til að grípa
í. Þar er til dæmis að finna bók sem Elías
gaf mér í jólagjöf í fyrra. Hún heitir
Afródíta og er eftir Isabel Allende. Isabel
Allende þekkja margir af hennar
verkum. Hún skrifaði til dæmis bæk-
umar Eva Lima og Hús andanna en eftir
henni var gerð frábær kvikmynd með
Meryl Streep og fleira frægu liði. í
þessari bók, - Afródíta, eru ýmsar sögur,
bæði þjóðsögur og lífreynslusögur
höfundar og fleiri aðila. Þar er einnig að
ftnna margar gimilegar mataruppskriftir
og ýmsan annan fróðleik. Afródíta hefur
verið á borðinu hjá mér lengi og það er
gaman að kíkja í hana öðm hvom.
Um daginn las ég Engla alheimsins
eftir Einar Má Guðmundsson. Mér frnnst
hún skemmtilega skrifuð og vel frá
henni komist þar sem Einar Már er að
segja sögu bróður sins. Mig langaði að
lesa bókina áður en ég sæi myndina, en
hún er nú komin á myndband svo ég get
nú farið að drífa í því.
Síðan em það ævisögumar. Ég les
alltaf ævisögu öðm hvoru. Mér finnst
gaman að lesa um fólk sem hefur lent í
ævintýmm eða einhverju öðm og fá smá
nasasjón af upplifun annara, hvort sem
það er gleði eða sorg. Hér get ég t.d.
nefnt bókina hennar Jóhönnu Kristjóns-
dóttur, Perlur og Steinar.
Villtir svanir er mikil bók og var hún
nokkuð lengi á náttborðinu. Þar fékk
maður góða innsýn í sögu Kína á
tuttugustu öldinni. Þetta er fjölskyldu-
saga, kvennasaga og mannkynssaga.
Höfundurinn, Jung Chang, segir sögu
tjölskyldu sinnar frá sjónarhóli þriggja
kynslóða kvenna. Mér fmnst þetta mjög
áhugaverð bók sem vakti athygli mína á
lífskjömm fólks í Kína á öldinni.
Jæja, ekki má gleyma blaðabunk-
unum hjá mér sem em um allt, en þeir
teljast nú ekki til bókmenntaverka. Ég
kaupi oft blöð sem gaman er að lesa og
skoða og er ég orðin eins og móðir mín í
þeim efnum. Kaupi dönsku kvenna-
blöðin eins og hún! Sum skoða ég aftur
og aftur. Svo var ég að fá sendingu um
daginn, en það vom tuttugu garðyrkju-
blöð. Þau finnst mér mjög gaman að
skoða því þar er margt að finna sem mér
finnst áhugavert.
Þá er komið að aðallesefninu á mínu
heimili undanfama mánuði. Það em
Snúður og Snœlda, Bangsímon og hinar
ýmsu smábamabækur sem maður þarf
að lesa aftur, aftur og aftur og alltaf við
jafnmikla gleði sonarins.
Ég ætla að láta þessa upptalningu
duga, en vil halda þessu áfram innan
árgangsins og skora á bekkjarbróður
minn, Sigurð Friðriksson tíkallateljara
og yfirhárgreiðslumeistara Tröllabauk-
anna. Ég veit að hann er einnig
áhugamaður bókmennta á borð við Snúð
og Snældu og fleiri góðra verka.
Vakna alltaf glaður
Vinrtslustöðin er líklega það fyrirtæki í
Vestmannaeyjum sem hvað mest hefur verið í
fréttum á árinu. Ekki síst vegna fyrirhugaðrar
sameiningar við ísfélagið, sem nú er Ijóst að
ekkert verður úr og sömuleiðis vegna taps á
rekstri sem þó er talsvert minna nú en í fyrra.
Eyjamaður vikunnar er starismaður Vinnslu-
stöðvarinnar.
Fullt nafn? Stefán Baldvin Friðriksson.
Fæðingardagur og ár? 31. október 1963.
Fæðingarstaður? Reykjavík.
Fjölskylduhagir? Kvæntur Þjóðhildi Þórðar-
dóttur, börnin eru tvö, Þórður Örn og Kristín
Auður.
Menntun og starf? Viðskiptafræðingur og
aðstoðarframkvæmdastjóri VSV.
Laun? Góð, samanber Frjálsa verslun.
Bifreið? Toyota Corolla.
Helsti galli? Fljótfær.
Helsti kostur? Vakna alltaf glaður.
Uppáhaldsmatur? Humar.
Versti matur? Skata.
Uppáhaldsdrykkur? DietÞepsi.
Uppáhaldstónlist? Dire Straits ogJethro Tull.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Að veiða
fiska og fugla.
Hvað erþað leiðinlegasta sem þú gerir? Að bóna bílinn.
Hvað myndirðu gera efþú ynnir milljón í happdrætti?
Græddur er geymdur eyrir.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Guðni Ágústsson.
Uppáhaldsíþróttamaður? Þorbergur Aðalsteinsson, golfari.
Ertu meðlimur íeinhverjum félagsskap? Golfklúbbnum.
Uppáhaldssjónvarpsefni? íþróttir.
Uppáhaldsbók? Klokken i Makedonien eftir Knud H.
Thomsen.
Hvaðmeturþú mest í fari annarra ? Þoiinmæði og þraut-
seigju.
Hvað fer mestí taugarnar á þér í fari annarra ? Óheiðar-
leiki.
Fallegasti staðursemþú hefurkomið á? Flateyjardalur.
Eygið þið von um að snúa taprekstri upp í hagnað á
komandi ári? Ef ytri aðstæður eru hliðhollar getur allt
gerst.
Stendur tilað selja kvóta tilað redda málunum?
A.m.k. ekki varanlegan kvóta.
Eitthvað að lokum? Lífið er saltfiskur.
Stefán Baldvin Friðriksson
er Eyjamaður vikunnar
Þann 11. október eignuðust stúlku Guðrún Kristín Sigurðardóttir og Sigurður Þór
Sigurðsson. Hún vó 14,5 merkur og var 53 sm og hefur fengið nafnið Bergþóra.
Með henni á myndinni er stóri bróðir Jón Berg. Ljósmóðir var Valgerður Olafs-
dóttir. Fjölskyldan býr í Vestmannaeyjum.
BÖRN að leik horfa á börn að leik, gæti þessi
skemmtilega skuggamynd heitið.
Á döfinni 4*
Nóvember
9. Opnaður bókamorkoður í Oddinum við Strondveg. Opið fró
kl. 13-18, fimmtud. og föstud. 10-12.30 laugardag.
10. ÍBV ■ Fram í Nissandeild karla kl. 20.00.
11. Cöngudagur fjölskyldunnar. Safnast saman kl. 14 ó Skansinum.
11. ÍBV ■ Buxtehude í Fvrópukeppni kvenna.
Allir ó leikinn kl. 14. Styðjum IBV til sigurs.
10.-12. Nómskeið í liföndun. Leiðbeinandi Guðrún Arnalds.
13. ■ 19. Norræn bókasafnavika. Upplestur í bókasafninu og margt fleira
15. Tónleikar Todmobile.
19. Þjóðlagamessa í Landakirkju kl. 20.00.
Með söng og í stuði, göngum við með Guði.
25. Styrktarfélagatónleikar Lúðrosveitar Vestmannaeyja
í Vélasolnum við hlið Tónlistarskólans kl. 16.
25. 10 óra afmælisfagnaður og aðalfundur Félags hjartusjúklingu
í Vestmannueyjum kl.14 í Akóges.
Desember
13. Jólutónleikur Sumkórsins. Ljúf tónlist ó aðventu.