Fréttir - Eyjafréttir - 09.11.2000, Page 11
Fimmtudagur 9. nóvember 2000
11
Skemmdi
ábyggilega ekki
fyrir að ég var frá
Vestmannaeyjum
-segir Valur Bogason, forsföðumaður Hafró í Eyjum
VALUR Bogason, nýráðinn forstöðumaður Hafró í Eyjum.
í haust urðu mannaskipti hjá
útibúi Hafrannsúknastofnunar í
Vestmannaeyjum. Hafsteinn Guð-
finnsson, sem verið hafði forstöðu-
maður Hafró í Vestmannaeyjum
til margra ára,flutti til
Reykjavíkur. I stað hans var
ráðinn Vestmannaeyingurinn
Valur Bogason sem hefur hafið
störf hjá Hafró í Eyjum.
Valur er 35 ára gamall, sonur
Boga Sigurðssonar,
verksmiðjustjóra í FES og Fjólu
heitinnar Jensdóttur. Valur
útskrifaðist sem stúdent frá Fram-
haldsskólanum í Vestmannaeyjum
vorið 1987, vann um skeið hjá
Braga á Fluginu, eins og hann
segir, en hélt síðan í líffræðinám í
Háskóla íslands 1989 og
útskrifaðist þaðan sem líf-
fræðingur 1992.
Meðfram náminu hafði Valur
unnið að verkefnum hjá
Hringormanefnd en réðist þangað
til starfa þegar hann útskrifaðist
og vann að selarannsóknum. Um
haustið fluttist hann síðan yfir á
Hafrannsóknastofnun þar sem
síðan hefur verið hans starfs-
vettvangur. Fram til 1997 var
starf hans einkum fólgið í
rannsóknum á fæðu landsels, og
gagnasöfnun og sjóferðum vegna
fiskirannsókna víða kringum
landið.
Tveir sem sóttu um
Af hverju ákvaðstu að koma aftur
heim á æskustöðvamar?
„Líklega hefur alltaf blundað í
mér að flytja aftur heim til Eyja.
Alla vega fór ég ekki í Háskólann
til að flýja frá Eyjum. Aftur á móti
var fátt um atvinnutækifæri hér
þegar ég hafði lokið námi og því
ílentist ég í Reykjavík. Raunar
vissi ég ekki um að Hafsteinn væri
að hætta í sínu starfí fyrr en í mars
í vetur. Eftir stutta umhugsun
gekk ég á fund forstjóra Hafró og
spurði hann hvenær hann ætlaði
að auglýsa starfíð í Vestmanna-
eyjum. Svo var það auglýst í
Morgunblaðinu og við vorum tveir
sem sóttum um. Eg varð
hlutskarpari og líklega hefur ekki
skemmt fyrir að ég var
Vestmannaeyingur að ætt og
uppruna. Þá þekkti ég líka vel inn
á störf hjá Hafró þannig að það
hefur teldð minni tíma fyrir mig að
komast inn í starfíð en það hefði
kannski gert fyrir aðra.“
Fjölskyldan sátt við að
flytja
Valur er kvæntur Báru
Ingólfsdóttur frá Selfossi og þau
eiga tvö börn, Bylgju Sif sjö ára og
Hafþór fjögurra ára. Hvernig tók
fjölskyldan því að flytja til
Vestmannaeyja?
„Bára hafði nú búið í Vest-
mannaeyjum áður svo að hún var
staðnum ekki alveg ókunnug. Og
fjölskyldan var alveg sátt við að
flytja til Eyja. Eg kom hingað í
byrjun ágúst en fjölskyldan kom
svo í byrjun september og við
erum svona rétt búin að koma
okkur fyrir. En það eru allir mjög
sáttir við þessa ákvörðun í
fjölskyldunni.“
Stefni að mastersgráðu á
næsta ári
í hverju felst þitt starf hjá Hafró í
Vestmannaeyjum aðallega?
„I stórum dráttum má segja að ég
taki beint við því sem Hafsteinn
varaðgera. Frumskyldaníþessu
starfí er sýnataka úr lönduðum
afla. En svo er ég að sinna öðrum
verkefnum þar fyrir utan. I
Reykjavík vann ég við rannsóknir
á síli og er það hluti af
mastersnámi mínu. Því held ég
áfram hér, ég er búinn að safna
öllum gögnum og nú er aðeins
úrvinnslan eftir. Eg stefni að
mastersgráðunni á næsta ári,
upphaflega var stefnan sett á
næsta vor en búferlaflutningarnir
koma til með að draga það eitthvað
á langinn svo að líklega verður
ekki af því fyrr en á næsta hausti.“
Finnst þér margt hafa breyst í
Vestmannaeyjum á þessum tíu
árum sem þú hefur verið
fjarverandi?
„Ekki neitt sem mér fínnst
áberandi. Raunar er talsvert af
fólki sem ég þekkti farið burt en þó
eru margir enn eftir af gamla
kunningjahópnum. En ég er mjög
sáttur við að vera kominn aftur
heim til Eyja og við erum ekki að
tjalda til einnar nætur, búin að
kaupa okkur hús og koma okkur
fyrir og horfum bjartsýn fram á
veginn,“ segir Valur Bogason.
Sigurg.
Itfinu
ÞEGAR kom að því að velja myndir í dálkinn kom í
Ijós að skemmtanafífl Frétta hafði gleymt að taka
með sér myndavélina þegar hann fór út á lífið á
laugardaginn. Það varð því að leita á gömul mið og
fyrir valinu varð m.a. uppskeruhátíö eldra fólksins
hjá IBV og villibráðarkvöld á Prófastinum. Hvað
tíðindamann Frétta varðar þá var hann í góðu
yfirlæti á Gaujabar á 2. hæð Lundans þar sem
loksins er kominn vísir að notalegum pöbb í
Vestmannaeyjum.
INGA og Sólveig voru mættar á slúttið hjá IBV-íþróttafélagi,
ÞAÐ var ljúft að slappa af eftir að hafa rennt niður villihráðinni
hjá Steinu og Jóni Inga á Prófastinum.
yf v æ
Y ■ ■ A /
W A B ■i £ ■fk %
ííffeal '■át
I m • - u w -n U/ A