Fréttir - Eyjafréttir - 09.11.2000, Side 23
Fimmtudagur 9. nóvember 2000
Fréttir
23
Nissandeildin: HK21 -IBV24
Aldrei byrjað betur
ÍBV heldur áfram að gera það gott
í Nissandeild karla en aldrei í sögu
handknattleiks karla í Vestmanna-
eyjum hefur liðið náð jafngóðri
byrjun og núna.
Fimm sigrar í fyrstu sjö leikjunum
er nokkuð sem ekki þekkist hér í
Eyjum og er óhætt að segja að liðið
hafi aðeins einu sinni leikið illa, gegn
FH í Kaplakrika en eins marks tap
gegn Val að Hlíðarenda er eitthvað
sem mátti kannski búast við. Síðast
spilaði IBV gegn HK í Kópavogi, en
Kópavogsliðin tvö sitja sem fastast í
botnsætunum tveimur og lítur allt út
fyrir að þeirra hlutskipti verði fall-
baráttan. ÍBV var mun betri aðilinn í
leiknum og vann ömggan sigur, 21-
24.
Byrjunin lofaði þó ekki góðu fyrir
IBV, heimamenn vom sprækari á
upphafsmínútunum og leiddu þegar
um tíu mínútur vom liðnar af leiknum
5-2. En í kjölfarið fylgdi góður leik-
kafli IBV og liðið skoraði hvorki
meira né minna en fimm mörk í röð án
þess að heimamenn næðu að svara
fyrir sig og staðan orðin 5-7 fyrir IBV.
Leikmenn ÍBV náðu þar með undir-
tökunum í leiknum sem þeir létu ekki
frá sér og staðan í hálfleik var 10-14
fyrir ÍBV.
Seinni hálfleikur einkenndist af því
að Eyjamenn juku forskotið upp í
fimm mörk en heimamenn minnkuðu
muninn jafn óðum en þó aldrei niður í
minna en tvö mörk. Lokatölur
leiksins urðu eins og áður segir 21-24
og situr ÍBV því í þriðja til fjórða sæti
ásamt Valsmönnum með tíu stig.
Erlingur Richardsson fyrirliði liðs-
ins sagði að liðið væri ört vaxandi.
„Það er nauðsynlegt hjá okkur að
vinna liðin sem eru fyrir neðan okkur
og reyndar mjög gott að vinna þau á
útivelli. Þeir eru með svipað lið og í
fyrra en þá unnu þeir okkur þannig að
við hljótum að vera með betra lið í ár
en í fyrra. Við þurftum að breyta
uppstillingunni á liðinu hjá okkur,
Mindausgas er puttabrotinn og Auri-
mas á við meiðsli að stríða og spilar
bara í vöm, þannig að Eymar og Siggi
Ari komu inn í staðinn fyrir þá og
stóðu sig mjög vel. Þetta sýnir bara
hversu mikla breidd við höfum. Við
byrjuðum að vísu illa en í seinni
hálfleik var þetta aldrei spurning um
hvar sigurinn endaði. Nú verðum við
bara að vinna Fram héma á morgun
og komast þar með í annað sætið.“
Nissandeild kvenna: IBV 25 - Valur 14
Stórsisur á bikarmeisturunum
-Nýi leikmaðurinn kemurvel út
ÍBV tók á móti bikarmeisturum Val
í áttundu umferð Nissandcild-
arinnar á þriðjudagskvöld. Lengi
leit út fyrir að leikurinn yrði jafn og
spennandi, allur fyrri háltleikur var
jafn þar til undir lokin að ÍBV náði
tveggja marka forskoti, 12-10. En
IBV tók góðann kipp í upphafi
seinni hálfleiks og hreinlega kláraði
leikinn á tíu mfnútum, en staðan
um hálfleikinn miðjan var 18-12
fyrir IBV. Leikurinn endaði svo
með ellefu marka sigri ÍBV, 25-14.
Tamara Mandizch, nýjasti leikmaður
Islandsmeistaranna sló heldur betur í
gegn hjá stuðningsmönnum liðsins í
leiknum gegn Val. Ekki aðeins
skoraði hún heil þrettán mörk, heldur
spilaði hún frábærlega í vöm og leitaði
samherja sína stöðugt uppi í sókninni.
Hér er á ferð mjög sterkur leikmaður
sem er kannski það sem liðið vantar.
Vigdís Sigurðardóttir átti einnig mjög
góðan leik í markinu, varði 20 skot en
einnig var gaman að sjá Gunnleyg
Berg, hina færeysku en hún sýnir
stöðugar framfarir og verður án efa
drjúg þegar á líður.
Gunnleyg sagði eftir leikinn í stuttu
spjalli við Fréttir að hún væri að finna
sig æ betur í Vestmannaeyjum.
„Þetta var mjög erfiður leikur fyrir
okkur, mér fannst við vera dálítið
þreyttar eftir Evrópuleikinn en svo
æfðum við stíft eftir að við komum
heim, daginn fyrir leik þannig að við
þurftum kannski smátíma til að
komast í gang. Ég tel að við eigum
alveg möguleika á að vinna titilinn,
ég er búinn að sjá öll liðin nema
Gróttu/KR og ég met það þannig að
við eigum alveg ágæta möguleika.
Við vinnum kannski ekki deildina en
verðum aftur á móti sterkari í
úrslitakeppninni og þar mun vonandi
allt ganga upp.“
En hvemig líkar færeyska leik-
manninum dvölin í Eyjum?
„Ég fæ auðvitað stundum heimþrá
en þetta er allt að koma. Ég er að
kynnast æ fleirum, læri auðvitað
mikið í handbolta enda er ég að æfa
tvisvar á dag. íslenskuna tala ég ekki
ennþá en ég get sagt að ég skilji hana
ágætlega."
Hópleikur IBV og Frétta
Starfsemin komin á fullan skrið
Þá er hópaleikur ÍBV og Frétta
kominn á fullann skrið.
Tvær vikur eru liðnar, en enginn
hópur sker sig afgerandi úr, nema ef
vera skyldi Austurbæjargengið (Guðni
Hjöll og Jói Ólafs), en það virðist vera
ansi mikið gengissig þar á ferðinni. Þá
virðist Einar Ottó ekki eiga getspaka
vini og JóJóið, sem Eddi Garðars
getraunastjóri er í forsvari fyrir, byrjar
greinilega í niðursveiflu. En þar sem
þetta er rétt að byija, þá er ekki nein
ástæða að örvænta.
Við viljum hvetja sem flesta til að
koma inn í Týsheimili á laugardögum
og tippa á enska eða ítalska boltann.
Að sjálfsögðu er líka hægt að tippa á
lengjuna. Éf menn komast ekki inn í
Týsheimili, þá er líka hægt að hringja
í síma 481- 2861 og þá þarf aðeins að
gefa upp greiðslukortanúmer og
númer á þankareikningnum sem á að
leggja vinninginn inn á. Er þetta
sérstaklega hentugt fyrir sjómenn og
eins stuðningsmenn ÍBV á fasta-
landinu.
Að lokum er rétt að nefna það að hægt
er að sjá stöðuna í hópaleiknum á
heimasíðu knattspymudeildar ÍBV,
ibv.is/fotbolti/, fljótlega eftir að
leikjum er lokið á laugardögum.
A-riðill Bahamas Boys 17, Dumb
and Dumber 15, FF 15 og Austur-
bæjargengið 13.
B-riðill HH 17, Reynistaður 17,
Húskross 16, Bonnie & Clyde 15 og
Jó-Jó 15.
C-riðilI Yngvi Rauðhaus 18,
Pörupiltar 17, RE 16 og VinirOttós
15.
D-riðiIl Vinstri bræðingur 19, Tveirá
toppnum 18, Óléttan 17, BláaLadan
17 og Klaki 17.
TIPPAÐ á 13, Halli ogÓlií
þungum þönkum við tölvuna.
Evrópukeppnin:
Stórt tap hjá stelpunum
ÍBV spilaði gegn þýska liðinu Buxtehude í annari
umferð Evrópukeppni félagsliða í Þýskalandi um
síðustu helgi. Leikurinn var leikur kattarins að
músinni, IBV átti ekki möguleika gegn hinu
gríðarlega öflugu þýska liði og endaði leikurinn
með átján marka sigri heimamanna, 38-20.
Staðan í hálfleik var 20-10 fyrir þýska liðinu.
Vigdís Sigurðardóttir sagði að hún hefði ekki
verið sátt við að tapa svona stórt. „Mér finnst við
eiga að geta betur en við gerðum þama úti og átján
marka tap er of stórt. Ég tel að munurinn á liðunum
hefði frekar átt að vera í kringum tíu mörk en þetta
var náttúrulega fyrsti leikurinn hjá Tamara, nýja
leikmanninum hjá okkur og það tekur tíma fyrir
okkur að læra inn á hana og jafnframt hana að
komast inn í leik liðsins. En hún á eftir að nýtast
okkur vel í vetur, hún er sterkur leikmaður en spilar
mikið upp á aðra leikmenn og nýtist því liðinu enn
í Þýskalandi
betur. Þetta var alls ekki leiðinlegt að spila þama,
tæplega tvö þúsund manns og mikil stemmning.
Við vomm í sjálfu sér kannski ekkert að spila illa,
við gerðum að vísu nokkur mistök sem Þjóð-
veijamir refsuðu okkur strax fyrir en miðað við
aðstæðumar þá var þetta í lagi hjá okkur. En við
ætlum að gera betur á laugardaginn þegar við fáum
þær í heimsókn."
Tveir ósigrar ó
Iveimur dögum
IV spilaði um helgina tvo leiki í 1.
deild karla en báðir leikimir fóru
fram á fastalandinu. Fyrst mætti ÍV
toppliði Breiðabliks á laugardaginn
og tapaði ÍV leiknum með 96
stigum gegn 50, eftir að staðan í
hálfleik hafði verið 48-25. Stiga-
hæstir ÍV vora þeir Eggert Bald-
vinsson með 16 stig, Guðmundur
Eyjólfsson með 7 stig og Jónatan
Guðbrandsson með 6.
Meiðslum hrjáð lið ÍV mætti svo
Snæfelli á sunnudaginn og tapaðist
sá leikur einnig en nú með 69
stigum gegn 44. Stigahæstir í þeim
leik vora þeir Eggert með 16 stig,
Ragnar Már Steinssen 8 stig og
Jónatan Guðbrandsson 7.
Hlynur þjólfar
í Eyjum
Hlynur Stefánsson hefur ákveðið að
taka að sér þjálfun þess hóps leik-
manna ÍBV sem era í Vest-
mannaeyjum yfir vetrartímann.
Ráðning hans nær þó ekki lengra en
fram að áramótum en Hlynur hefur
ekki enn ákveðið sig hvort hann
muni spila með ÍBV næsta sumar,
en hann kveðst ætla að æfa með
liðinu þar til að annað kæmi í Ijós.
Af leikmannamálum ÍBV er lítið
að frétta, Sigurvin Ólafsson mun
líklega taka ákvörðun í samráði við
unnustu sína um hvort hann muni
spila með ÍBV næsta sumar en það
mun líklega ekki gerast fyrr en í
fyrsta lagi í næstu viku.
Ásmundur Friðriksson formaður
knattspymudeildarinnar segist
ennfremur hafa verið í sambandi
við aðra Eyjamenn með það í huga
að spila með ÍBV og hlýtur það að
eiga við Bjamólf Lárasson og
hugsanleg?, Tómas Inga Tómasson.
Formaðurinn og þjálfarinn, Njáll
Eiðsson, munu svo á næstu vikum
vera á leið alla leið til Júgóslavíu
þar sem þeir munu skoða nokkra
leikmenn en Ásmundur sagði ljóst
að ÍBV gæti ekki greitt þeim
Momir Mileta og Goran Aleksic
þau laun sem þeir hafa haft ul þessa.
• •
Oruggt
Karlalið ÍBV mætti B-liði Víkings í
32ja liða úrslitum bikarkeppni HSI
á þriðjudagskvöldið, í Víkinni. IBV
átú ekki í vandræðum með Vík-
ingana, en þess má til gamans geta
að feðgar spiluðu með heima-
mönnum, Páll Björgvinsson virðist
enn vera að og kennir syni sínum
réttu taktana. Sigur ÍBV var aldrei í
hættu, staðan í hálfleik var 14-4
fyrir ÍB V og þrátt fyrir að strákar úr
öðrum og þriðja flokki hafi klárað
leikinn, þá jókst munurinn á
liðunum jafnt og þétt. Lokatölur
urðu 34-14, tuttugu marka sigur og
ÍBV því í pottinum í 16 liða
úrslitum.
Framundan
Föstudagur 10. nóvember
Kl. 20.00 ÍBV-Fram Nissandeild
karla
Laugardagur 11. nóvember
Kl. 14.00 IBV-Fram 2.fl. karla
Kl. 15.30 ÍBV-Valur3.fl. karla
Þriðjudagur 14. nóvember
Kl. 20.00 Grótta/KR-ÍBV Nissan-
deild kvenna