Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 18.12.2003, Page 26

Fréttir - Eyjafréttir - 18.12.2003, Page 26
26 Fréttir / Fimmtudagur 18. desember2003 KVEIKT á jólatrénu. Kveikt var formlega á jólatrénu á Baldurshagatúninu á laugardaginn. Þar söng barnakór, forseti bæjarstjórnar flutti ávarp, jólasveinar komu í heimsókn og þessar stúlkur sungu. Þá var boðið upp á heitt kakó á Lanterna sem kom sér vel í frostinu. |s>ska Umboðssalan Hamarsskólinn hélt sinn árlega föndurdag á föstudaginn og er þetta þriðja árið í röð sem þessi háttur er hafður á. Atta stöðvar voru settar upp þar sem alls kyns fóndur og fjör var í gangi og fengu krakkarnir þrívegis yfir daginn að skipta um stað. Það sem meðal annars var boðið upp á var kókosbollubakstur sem var vinsælasti staðurinn og tóku rúmlega 200 nemendur þátt í bakstrinum. Einnig var herbergi með jólakortagerð vinsæli viðkomustaður. 8 Þeir voru góðir tónleikarnir sem Æskulýðsfélag Landakirkju og KFUM&K buðu til á föstudags- kvöldið. Krakkarnir fengu tii liðs við sig þéttan hóp tónlistarmanna en hann skipa Birkir Egilsson, Hafdís Óskarsdóttir, Iris Guðmundsdóttir, Kolbrún Stef- ánsdóttir, Ragnhildur Magnúsdóttir, Sarah Hamilton, Sævar Helgi og Þórarinn Ólason. A flyglinum var Páll Viðar Krist- insson. Þau hafa sannað sig áður sem góðir flytjendur og brugðust ekki að þessu sinni þar sem boðið var upp á fjölbreytt úrval jólalaga. Skemmtunin var mjög vel sótt og var boðið upp á kaffi og með því, allt mjög myndarlegt. Sem sagt gott framtak og góð skemmtun.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.