Hrund - 01.05.1967, Qupperneq 43
Þekking er sú krafa sem helzt er gerö til nútímamannsins. Og maður meö
þekkingu er sá maður sem nútímaþjóðfélagiö þarfnast. Hann er sá maður sem
sótzt er eftir og honum eru boðin betri lífsskilyrði.
Þekking er tvenns konar: Við höfum sjálf yfir fróðleik að ráða, eða vitum hvar
hann er að finna.
Sú þekking sem við höfum sjálf yfir að ráða er einstaklingsbundin og hlýtur
að takmarkast við persónulega reynslu hvers og eins, nám hans og umhverfi.
Hún getur komið að miklum notum I daglegu starfi — en umhverfið krefst
stöðugt vaxandi menntunar og þekkingar.
Handbækur hf. kynna á íslandi bókaflokka um margvísleg efni. Alfræðiorðasöfn,
vísindabækur, listaverkabækur, landafræðibækur og klassisk ritsöfn. Allt
bókaflokkar sem byggðir eru upp með sama markmiði í huga. Að miðla þekkingu.
Allt bókaflokkar sem samdir eru fyrir almenning.
Jafnframt kynningu á einstökum bókaflokkum kynna Handbækur hf. ákveðna
menntunar- og þekkingaráætlun er nær til 10 ára, sniðna fyrir þá sem vilja
fræðast meira.
THF THi: THf
tBPÍ^/WCAN \M£WCAN AMFRICAN
PEOMíS PEOPlES
'W.~ncu> tNooo enctcio
ÍhT edia pfdi/' PFni/,
THf
AMEWCAN
PEOMES
ENCYOjO
PEDl/.
K«f JOHNÍTOW
CMfrrsUT lOUlitANA
*K>ti*rtro>< iun
THE AMERICAN PEOPLES ENCYCLOPEDIA
THE AMERICAN PEOPLES ENCYCLOPEDIA er glæsilegt 20
binda alfræðisafn sniðið eftir kröfum nútímans um nýtízkulegt
og samþjappað safn fróðleiks og upplýsinga. Með það fyrir
augum að taka saman alfræðisafn sem hentaði hverju heimili
og væri á færi hvers heimilis að eignast — unnu ritstjórar og
útgefendur safnsins verk sitt, eftir að hafa framkvæmt skoðana-
könnun meðal 1000.000 manna víðs vegar um heim. Á því
leikur enginn vafi, að ætlun útgefenda hefur tekizt: Vinsældir
safnsins og stöðug sala þess jafnt meðal menntaðra sem
annara, ungra og gamalla, sýnir að þetta er alfræðisafn hins
almenna borgara.
HANDBÆKUR H.F.
TJARNARGÖTU 14 . SÍMI 19400